Morgunblaðið - 17.04.1968, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1968
3
vélar og vira daginn eftir.
Hestur þessi var sterkur
gripur, stríðalinn gæðingur,
9 vetra gamall. Hann var
bleikur á lit, eign Inga Löv-
dal, og munu margir Reyk-
víkingar kannast við þennan
gullfallega hest, því eigand-
inn hefur verið mikið með
hann hér síðan hann var
fjögursa vetra. Var hann
bæði mikill fjörhestur og
ganghestur.
urinn losnaði við hestinn og
komst hann heill á húfi yfir.
Hesturinn synti yfir ána og
var kominn langleiðina.
Þarna í ánni liggja leifar
af geysistórum hættulegum
rörum. í rörunum hefur
myndazt svo mikið sog í flóð
inu, að það tók hestinn og
sogaðist hann niður í rörið,
þar sem hann festist og
drukknaði. Náðist hann ekki
úr því fyrr en komið var með
við klakhúsið við Vatnsenda-
veginn. Þarna hafði vegur-
inn farið í sundur í fyrri
flóðunum. Var búið að fylla
í skarðið, en það fór aftur nú.
Síðdegis á föstudaginn
voru hestamenn á leið fram
með þessum ál. Riðu þeir
eftir skafli á öðrum bakkan-
um. Skaflinn var orðinn
meyr og sprakk fram. Einn
hesturinn og maðurinn, sem
honum reið, fóru í ána. Mað-
UJM BÆNADAGANA varð
mikið flóð í Elliðaánum. í
vikunni hafði hlýn<j5 mjög.
mikið, og snjórinn á vatna-
svæði Elliðaánna bráðnaði
ört. Flóðið varð þó ekltí nærri
eins mikið og fyrr í vor, þó
mikið vatnsmagn væri í án-
um.
Á föstudaginn langa voru
árnar mjög vatnsmiklar. >á
lá strengur með ásnum, þar
sem efri hesthús Fáks eru og
Sinfóníuhljómsvestin:
llngur Akureyringur ein-
leikari á næsta konsert
Á NÆSTU tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands leikur ung-
ur islenzkur cellóleikari með
henni í fyrsta skiptið. Þetta er
Hafliði Hallgrímsson frá Akur-
eyri, sem lauk námi v?ð Royal
Academy of Music í Lundúnum
í desember sl. Þar var aðalkenn-
ari hans Derrick Sirhpson. Þar
áður var Hafliði í Róm og var
nemandi við Santa Cecilia, jafn-
framt því, sem hann naut
kennslu Einrico Mainardis. Haf-
liði brautskráðist frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík vorið 1961,
eftir fjögurra ára nám þar hjá
Einari Vigfúessyni.
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar leikur Hafliði celló-
konsert í C-dúr eftir Haydn,
konsert, sem var „uppgötvaður“
í Tékkóslóvakíu um það bil, er
Hafliði var að ljúka námi við
Tónlistarskólann hér. Þá hafði
konsertinn verið gleymdur og
grafinn í tvær aldir.
Stjórnandi á þessum tónleik-
um er Bohdan Wodiczko, sem nú
kemur aftur eftir stutta heim-
sókn til Pólands. Hann byrjar
tónleikana með Haffner-sinfóníu
Mozarts, en lýkur þeim me’ð átt-
undu sinfóníu Beethovens. Það
er bjart og létt yfir báðum þess-
um verkum, og samflot þeirra
með konsert Haydns í meðförum
ungs, íslenzks cellóleikara, ætti
að koma fólki í sumarskap eftir
langan vetur.
Hafliði Hallgrímsson.
Á Hannover-iðnsýningunni sýna yfir 5 þús. fyrirtæki frá 30 löndum allar helztu nýj-
ungar i iðnaði og tækni. Þeim sem hafa í hyggju að heimsækja þessa merku kaup-
stefnu viljum við vinsamlega benda á að hafa samband við oss sem fyrst varðandi
nánari upplýsingar, flugfarseðla, aðgöngukort og aðra fyrirgreiðsla.
Enkaumboð Ilannover Messe á fslandi:
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS,
Gimli-Lækjargötu, sími: 11540.
HELZTU VÖRUTBGrUNDFR: Járn, stál og aðrir málmar, myndavélar og ljósmyndatæki, lækn-
ingatæki, alls konar verkfæri, r afmagnsvörur, raflagnaefni, heimilistæki, sjónvarps- og útvarps-
tæki, electronisk tæki, raflampar, lampaskermar, raftæki, tæki fyrir byggingariðnað, byggingar-
efni, dælur, skrifstofuvélar, glervörur, gjafavörur, skartgripir, úr, kíukkur, borðbúnaður, plastvör-
ur, þungavinnuvélar.
LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SfMI 11540
HANNOVER IÐNSÝNINCIN 29. APRÍL - 7. MAÍ
STAKSl NWI!
Hefgi má
en fólkið ekki
Helgi Sæmundsson ritar grein
í Alþýðublaðið hinn 10. apríl sl.
þar sem hann segir m.a.:
„Mér blöskrar, að Morgunblað
ið skyldi í siðustu viku efna til
eins konar skoðanakönnunar um
hver ætti að verða næsti forseti
Bandaríkjanna.“ Nokkrum lín-
um ofar lét Helgi Sæmundsson
hins vegar svo ummælt: „Ég vil
helzt ekki sjá eða heyra Lyndon
B. Johnson, en hvemig mundi
umhorfs í veröldinni, ef Gold-
water liefði sigrað og Ragnax
minn í Smára fengið vilja sinn.“
Eins og fram kemur í þessum
tveimur tilvitnunum í grein
Helga Sæmundssonar, lætnr
hann annars vegar uppi álit sitt
á forseta Bandaríkjanna og
öðrum stjómmálamanni þar í
landi, sem sótt hefur eftir for-
setaembættinu, en hins vegar
fárast hann yfir þvi, að Morgun-
blaðið skyldi spyrja fólk úr ýms
um stéttum og starfshópum
vegna yfirlýsingar Johnsons for-
seta um að hann mundi ekki
gefa kost á sér, hver það teldi
að verða mundi næsti forseti
Bandaríkjanna. Helgi Sæmunds-
son má sem sagt hafa skoðanit
á bandarískum stjórnmálum, en
almenningrur á íslandi má það
ekki að hans dómi. Þetta er auð
vitað dæmigerður hugsunarhátt-
ur manna, sem telja að fólkinu
í þessu landi megi skipta í ein-
hvers konar „úrval“ annars veg-
ar og „almenning“ hins vegar og
auðvitað á „urvalið" að hafa vit
fyrir „almenningi" eins og glögg
lega skín í gegn í orðum Helga
Sæmundssonar. En það er óneit
anlega kaldranalegt, að slíkur
hugsunarháttur skuli birtast í
skrifum mann,s sem telur sig
„jafnaðarmann“ og á síðum
blaðs, sem telur sig helgað bar-
áttu fyrir „jafnaðarstefnu."
Hitt er svo annað mál að Mbl.
sneri sér til almennings fyrst ©g
fremst til að heyra skoðanir
hans á friðartillögum Johnsons,
en spurði um forsetakosningarn-
ar í leiðinni.
Hefur ekkert
breytzt?,
F.ins og menn muna brást
kommúnistablaðið á íslandi afar
illa við yfirlýsingu Johnsons
Bandaríkjaforseta um stöðvun
loftárása á Norður-Víetnam að
mestu og tilboði hans um samn-
ingaviðræður. Sama daginn og
ríliisstjórnin í Hanoi sendi já-
kvætt svar við tilboði Banda-
ríkjaforseta, birti kommúnista-
blaðið á íslandi það álit sitt, að
Hanoi ætti að taka upp samn-
ingaviðræður og það væri hin
mesta firra að krefjast jákvæðs
svars frá Ho Chi Min. Samninga
viðræður munu væntanlega
hefjast innan tíðar. En augu
ritstjóra kommúnistablaðsins,
hafa enn ekki opnast fyrir
því, að friðsamlegri horfur
eru nú í Víetnam en áður. Það
kemur berlega fram í því hversu
viðskotaillur hann er yfir því,
að hin breyttu viðhorf hafa gert
það að verkum, að ástæðulaust
er að Alþingi fjalli frekar um
tillögu þá sem kommúnistar og
Framsóknarmenn lögðu þar
fram fyrir nokkrum vikum, og
m.a. fól í sér „að ríkisstjóm
Bandaríkjanna stöðvi þegar loft-
árásir á Norður-Víetnam . . að
stjórn Norður-Víetnams og ÞjóS
frelsishreyfingin í Suður-Víet-
nam sýni ótvíræðan vilja af
sinni hálfu þegar loftárásum
linnir, að ganga til samninga og
draga svo úr hernaðaraðgerðum
að leiða megi til vopnahlés."
Eins, og sjá má af þessum til-
vitnunum í tillöguna, er þessum
forsendum að mestu fullnægt og
þess vegna engin ástæða til frek
ari meðfcrðar á Alþingi.
<
r
«