Morgunblaðið - 17.04.1968, Page 10

Morgunblaðið - 17.04.1968, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 19W sprenging yrði í vinstra væng hennar, en vængurinn stóð í björtu báli tveimur mínútum eftir flugtak. Hefði eldurinn kviknað út frá innra hreyfli undir vinstri vængum og breiðst óðfluga út. Sendi Taylor strax út neyðarkall, og fékk samstundis heimild til að lenda á næstu flug- braut, sem annars er ekki ætluð þotum. Tókst lending- in mjög vel, en ekki mátti tæpara standa, því skömmu eftir að vélin stöðvaðist urðu í henni miklar sprengingar. „Ég hafði rétt stöðvað vél- ina þegar fyrsta sprengingin varð“, segir Taylor flug- stjóri. „Sá ég þá logandi elds neyti flæða yfir flugstjórnar- klefann utanverðan, en inni í vélinni óðu farþegarnir þykkan reykjarmökkinn við að reyna að komast út“. Sagði flugstjórinn, að þrátt fyrir fffffffffffffffffffff’fi' > ff'ff'> "f "■■■* :/■;&/% . Þannig var umhorfs á slysstaðnum þegar tekizt hafði að slökkva eldinn. Charles Taylor flugstjóri með hundinn sinn, Dinah. Myndin var tekin daginn eftir slysið. ., ... .......... .... : ÞAÐ þykir ganga kraftaverki næst að 111 af 115 farþegum skyldu hafa komizt lífs af úr brezku Boeing 707 þotunni, sem fórst á Heathrow-flug- velli við London á mánudag- inn fyrir páska. Flestum bar saman um, að það sé Charles Taylor flugstjóra að þakka að svo vel tókst til. Flug- stjórinn segir hinsvegar, að áhöfnin öll hafi unnið saman sem einn að því að bjarga því sem bjargað varð eftir að eld- ur kviknaði í einum af fjór- um hreyflum þotunnar skömmu eftir flugtak. í viðtali við fréttamenn fyrir helgina sagði Taylor flugstjóri, að sjálfur hefði hann efazt um að sér tækist að lenda þotunni áður en voðann hafi ekkert æði grip- ið farþegana og þakkaði hann áhöfn sinni frábæra frammi- stöðu við að koma farþegun- um út. Eins og fyrr segir, fórust fimm manns með þotunni, fjórir farþegar og flugfreyja. Meðal farþeganna, sem af komust var frú Slhirley Cooper, en níu ára dóttir hennar, Jacqueline, varð eld- inum að bráð. Frú Cooper segir svo frá: „Maðurinn minn þreif til tveggja kvenna, sem sátu skammt frá okkur og reyndi að fá þær til að koma sér út úr flugvél- inni eftir lendingu. Þær voru svo stjarfar af hræðslu að þær neituðu að hreyfa sig. Svo Framhald á bls. 31 . ■ . ■ Brennandi farþegaþotan rétt eftir lendingii. Ferjuslysið við l\lýja-S jáland EINS og sagt var frá í blöð- u<m á skfírdag, fórst 8,900 tonna ferja „Waihine“ við inn- siglinguna ^ við Wellington á Nýja Sjálandi s. 1. miðviku- dag, Mikið fárviðri brast á snögglega, hið versta sem gengið hefur yfir Nýja Sjá- land. Ferjan var þá að koma frá Ohristdhurdh og átti skammt ósiglt inn á höfnina i Welling- to.n Hrakti ferjuna fyrir vindi og sjó á sker, skammt frá innsiglingunni. Þá var vind- hraði um 200 km á klukku- stund. Nokkru síðar losnaði skipið af skerinu og rak nú hratt að hafnarmynninu. Björgunarsveitir voru þá komnar á vettvang og voru settir út bátar til að freista þess að bjarga fólkinu. sem öllum þótti sýnt að væri hætt komið. Fjöldi manna sóð á bryggjunni og fylgdist með. Snögglega fór ferjunni að hvolfa og innan stundar var hún sokkin. Áður hafði tekizt að setja niður báta og fóru eins margir farþegar í þá eins og hægt var að komá fyirr. Tvo bátanna fyllti skömmu síðar, en flestum sem í þeim voru tófcst að bjarga. Sveitirnar í landi gerðu og hetjulegar tilraunir til að ná til sfcipbrotsmanna og ber öll- um saman um, að þakka megi vaskleika björgunarmanna hversu mörgum tókst að koma lifandi í land. Er ferjunni hvolfdi stukku margir fyrir borð og er talið að suma hafi hrafcið upp í kletta og þeir hafi marizt til bana. í fyrstu var talið, að 14 manns hefðu verið með ferjunnni og smám saman fundust 56 lík. Á föstudaginn langa tilkynnti lögreglan í Wellington, að langtum feiri farþegar hefðu verið innan- borðs en haldið var og léki ekki vafi á því, að fjöldi laumufarþega hafi verið með skipinu. Lögreglan gaf þá upp töluna 817, og af þeim er nú talið víst að tvö hundruð hafi farizt. Yfir eitt hundrað manns voru í sjúkrahúsi yfir háíðina eftir slysið og margir /00 ■*• 'IWí mmzm Björgunarbátur kemur að landi með nokkra þeirrra sem sluppu lifandi úr þessu hörmulega sjóslysi. Ferjunni hvolfdi á svipstund u. Rannsóknarnefnd hefur nú verið skipuð til að kanna orsakir slyssins. þungt haldnir. Lögreglan sagði, að mistök hefðu orðið er skýrt var frá nöfnum lát- inna og lifenda, hefðu sumir sem komust lífs af verið tald- ir af og svo öfugt. Olli þetta auknu hugarangri og skelf- ingu hjá aðstandendum skip- verja, sem margir hverjir horfðu á er ferjan bvarf í sjóinn. , Á fösudaginn langa voru haldnar minningarguðsþjón- ustur um allt Nýja-Sjáland vegna- slyssins. Ferjan „Waihne“ var aðeins tveggja ára gamalt skip og smíðað í Skotlandi fyrir rétt- um tveimur árum. Ástralskt björgunarfyrirtæki hefur til- kynnt, að vel sé hugsanlegt að ná flakinu upp, ef hafizt verður handa strax. Átta klukkustundum eftir að fárviðrið skall á, kyrrði jafn skyndilega, sjórinn varð sléttur á ný og skýjaþykknið greiddist sundur, innan stund ar skein sólin björt og varla gáraði á haffletinum. En þessar átta kluk'kustundir höfðu kostað um tvö hundruð manneskjur lffiö. L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.