Morgunblaðið - 17.04.1968, Síða 14

Morgunblaðið - 17.04.1968, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 196« Vettvangur æskunnar '68 sýndi heilbrig&an þroska Hljómar, „Hljómsveit unga fólksins46 Soffía Wedholm, „Fulltrúi unga fólksins Sigrún Harffardóttir söngkona. í hljómlistarkeppninni. Kynn ir á skemmtununum var Svav ar Gests og fórst honum það mjög vel, eins og hans var von og vísa. Svavar var fljót- ur að velja þeim fáu, sem voru með ærsli, þannig orð að þeir trufluðu ekki meir. Hljómsveitin Óðmenn lék með skemmtiatriðum og var kynn- ingarhljómsveit. Óðmenn eru skemmtilega leikandi og hafa mjög efnilega söngkonu. Kvar ett úr Réttarholtsskólanum söng nokkur þjóðlög með gít- arundirspili og fóru krakk- arnir, 2 stúlkur og tveir pilt- ar, mjög laglega með lögin. Sigrún Harðardóttir, ung og efnileg söngkona söng nokk- ur lög með Hljómum og var henni mjög vel tekið. Sigrún stundar nám í Menntaskól- anum á Akureyri. Stúlkurnar sem þátt tóku í keppninni heita: Soffía Wedholm frá Eskifirði, sem varð númer I. Önnur varð Guðrún Birgis- dóttir Reykjavík og þriðja varð Ragnheiður Pétursdótt- ir úr Reykjavík. Hinar stúlk- 66 í lögum voru einkar skemmti- legar, enda hlutu Hljómar verðskuldað sigur og fengu yfir 50% atkvæða. Hljómar hlutu 658 atkv. Flowers 335 og Óðmenn 253 atkv. Viff ræddum viff fulltrúa ungu kynslóffarinnar 1968, Soffíu Wedholm frá Eskifirffi. — Þú ert f rá Eskifirði,. Soffía. — Já, ég er fædd og upp- alin á Eskifirði og hef alltaf átt þar heima. — Stundaðir þú nám á Eskifirði? — Já framan af, en ég er gagnfræðingur frá Gagnfræð askóla Neskaupsstaðar. — Hvað starfar þú? Soffía Wedholm „fulltrúi ungu kynslóffarinnar 1968“, og Kristín Waage „Fulltrúi ungu kynslóffarinnar 1967“. Ljósm.: Mbl. Kristinn Ben. — Já, mér líkar mjög vel við það. — Bjóstu við sigri? — Nei, alls ekki. Ég veit ekki hver benti á mig í keppn ina, en þegar ég hafði verið beðin að taka þátt í keppn- inni af forráðamönnum henn- ar og ráðfært mig síðan við foreldra mína, bá sló ég til. Svavar Gests var kynnir á skemmtununum og þarna er hann aff ræffa við Soffíu eftir krýninguna. Fyrir nokkru var haldin skemmtun unga fólksins í Aust urbæjarbíói, en Karnabær og Vikan stóffu fyrir skemmtun- inni. „Fulltrúi ungu kynslóff- arinnar“, var kjörin Soffía Wedhólm frá Eskifirði. og „Hljómsveit ungu kynslóffar- innar" var kjörin Hljómar frá Keflavík. Hljómar hlutu yfir 50% atkv., en í öðru sæti urffu Flowers og í þriðja sæti Óffmenn. Skemmtunin fór mjög vel fram. Skemmtun unga fólksins var haldin tvö kvöld og voru úr- slit í keppninni kunn síðara kvöldið. 6 stúlkur tóku þátt í keppninni „Fulltrúar ungu kynslóðarinnar“ og Hljómar, Flowers og Óðmenn tóku þátt HLJÓMAR voru kjörin bezta hljómsveitin og kom þaff engum á óvart, því aff fyrir skömmu voru þeir talin bezta hljómsveitin á Norrænu hljómsveitarmóti. Frá vinstri: Rún ar Gunnarsson, Erling Bjömsson, Engilbert Jensen og Gunnar Þórðarson. Ljósm.: Mbl. Kr. Ben. — Ég stunda íþróttir og einnig finnst mér mjög skemmtilegt að fara í útreiðar túra. Innivið hef ég mesta ánægju af bókalestri. — Hvaða bókum hefur þú mestan áhuga á? — Ég hef yfirleitt gaman af öllum bókum, en uppáhalds ljóðskáld mitt er Davíð Ste- fánsson. — Er góð aðstaða fyrir fé- lagsstarf ungs fólks á Aust- fjörðum? — Nei, það finnst mér ekki og það er kannski þess vegna sem fólk virðist ekki hafa áhuga á að gera eitthvað, sem getur drifið upp félags- starfið. — Hvað gæti orðið til úr- bóta? — Helzt að unga fólkið taki höndum saman og drífi upp einhver félög og vinni þannig að félagslegri upp- byggingu. — Hefur þú nokkur sér- stök framtíðaráform? — Ég hef mikinn áhuga á að komast í íþróttakennara- skólann og býzt við að reyna það. urnar í keppninni voru Henn Hermannsdóttir, Auður Aðal- steinsdóttir og Edna Njáls- dóttir. Dómnefndin tók það fram að mjög erfitt hefði ver- ið að skera úr um fyrstu 3 sætin, því að dómarar töldu stúlkurnar svo jafnar. Áður en hljómlistarkeppn- in hófst sýndi ungur hár- greiðslumaður listir sýnar í hárlagningu kvenna og var það hröð myndun á allskyns lokkum og dinglum. Einnig var tískusýning á fatnaði frá Karnabæ og sýndu stúlkur, sem þátt töku í skemmtun unga fólksins s.l. ár. Mjög góð skipulagning var á öll- um atriðum, en framkvæmda stjóri skemmtunarinnar var Guðlaugur Bergmann. Mjög mikið líf færðist í tuskurnar þegar hljómsveitarkeppnin hófst. Fyrst léku Flowers og lögðu sig alla fram í að ná hylli áhorfenda. Léku þeir skemmtilega, en nokkuð rann söngur og tónlist saman til lýta. Óðmenn léku næst með sinni ágætu söngkonu Shady Owens, en hún hefur sérlega skemmtilega sviðsframkomu og lagði mikið af mörkum í skemmtilegri túlkun Óðmanna Að síðustu léku Hljómar og báru þeir af í tónlist og söng, enda hafa þeir orðið mjög góða æfingu og leika af frá- bæru öryggi. Skiptingar þeirra — Ég vinn í verzlun og á skrifstofu hjá Elíasi Guðna- syni á Eskifirði. — Ertu ánægð með starfið? — Hvað freistaði helzt? — Bara að fá að vera með. — Hvað gerir þú helzt í tómstundunum? Stúlkurnar 6, sem þátt tóku í keppninni „Fulltrúi unga fólksins 1968“. Frá vinstri: Henny Hermannsdóttir, Soffía Wedholm „Fulltrúi unga fólksins", Guðrún Birgisdóttir (nr. ), Edna Njálsdóttir, Auffur Affalsteinsdóttir og Ragnheiður Pétursdóttir (nr. 3).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.