Morgunblaðið - 17.04.1968, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 190»
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstj órnarfulltr úi:
Fréttastjóri:
Auglýsingast j óri:
Ritstjóm og afgreiðsla:
Auglýsingar:
I lausasölu:
Áskriftargjald kr. 120.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
Kr. 7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
HOFLEG BJARTSÝNI
OG AÐ VÖR UNARORÐ
Aársfundi Seðlabanka Is-
lands, sem haldinn var
fyrir nokkru, flutti dr. Jó-
hannes Nordal, formaður
bankastjórnar Seðlabankans,
ræðu, þar sem hann ræddi
viðhorfin í efnahagsmálum
landsmanna. í ræðu Seðla-
bankastjórans gætti hóflegrar
bjartsýni um að takast mundi
að ráða fram úr þeim vanda-
málum, sem gert hafa vart
víð sig vegna verðfalls á út-
flutningsafurðum okkar og
aflabrests.
Um þetta efni sagði dr. Jó-
hannes Nordal m.a.:
„Ég sagði áðan, að sú varn-
arbarátta í efnahagsmálum,
sem háð hefur verið hér á
landi gegn afleiðingum hinna
stórfelldu efnahagsáfalla und
anfarið hálft annað ár, hafi
borið verulegan árangur. Tek
izt hefur að draga úr áhrifum
samdráttarins á atvinnu- og
framleiðslustarfsemi, jafn-
framt því, sem neyzla og fjár-
festing hafa smám saman
hneigzt til aðlögunar við hin
breyttu viðhorf. Með gengis-
lækkuninni var stigið stórt
skref í átt til betra jafnvægis
út á við og í atvinnumálum,
enda þótt ekki yrði hjá því
komizt, að hún raskaði því
jafnvægi, sem náðst hafði í
kaupgjalds- og verðlagsmál-
um. Varla verður þó annað
sagt en nokkur skilningur
hafi náðst fyrir nauðsyn þess
að koma í veg fyrir, að ávinn-
ingi gengisbreytingarinnar
verði eytt af víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags“.
Janframt viðhafði dr. Jó-
hannes Nordal nokkur aðvör-
unarorð er hann sagði:
„Jafnframt vill bankastjórn
Seðlabankans leggja áherzlu
á það, að ekki verður lengur
hægt að brúa bilið milli tekna
og eftirspurnar í þjóðfélaginu
með notkun gjaldeyrisforð-
ans, ef koma á í veg fyrir
það, að hann falli niður fyrir
það mark, sem samrýmanlegt
er fjárhagslegu öryggi þjóð-
arinnar og frjálsum viðskipt-
um. íslenzk stjórnvöld verða
því að vera við því búin að
grípa til frekari efnahagsað-
gerða, ef þróunin verður ó-
hagstæðari en nú er gert ráð
fyrir eða ef þær ráðstafanir,
sem gerðar hafa verið bera
ekki tilætlaðan árangur".
Nú sem fyrr skiptir það að
sjálfsögðu meginmáli, að
þannig verði haldið á efna-
hagsmálum landsmanna, að
áhrif gengisbreytingarinnar
fyrir útflutningsatvinnuveg-
ina eyðist ekki á skömmum
tíma. Að því marki hafa að-
gerðir ríkisstjórnarinnar
stefnt og enn sem komið er
a.m.k. virðist bærilega hafa
til tekizt, eins og dr. Jóhann-
es Nordal benti á í ræðu
sinni.
EINKENNILEGT
INNRÆTI
fólks við þeirri á-
kvörðun Alþingis að fella
niður fjárveitingu til starf-
rækslu prestsembættis í
Kaupmannahöfn sýna glögg-
lega, að íslenzki presturinn,
sem þar hefur starfað um
nokkurt skeið hefur unnið
mikið og gott starf, sem vert
er að þakka. Jafnframt er á-
stæða til að hvetja almenn-
ing til þess að taka vel þeirri
áskorun biskupsins yfir Is-
landi að leggja fram fé til
stuðnings þessari starfsemi.
Vafalaust eiga margir bágt
með að skilja þá ákvörðun
Alþingis, sem hér er um að
ræða, þótt jafnframt sé Ijóst,
að þegar grípa þarf til rót-
tækra sparnaðaraðgerða,
hljóta þær að koma niður á
ýmsum góðum málum. Hins
vegar er ástæða til að vekja
athygli á viðbrögðum eins
manns, ritstjóra og alþingis-
manns, gagnvart þessu máli,
en hann segir svo í Þjóðvilj-
anum hinn 9. apríl sl.:
„Biskupinn yfir fslandi hef-
ur flutt hjartnæma ræðu í út-
varp og birt ávarp, þar sem
hann hvetur fólk til að leggja
fram fé til stuðnings heið-
ingjatrúboði því, sem - starf-
rækt hefur verið í Kaup-
mannahöfn um nokkurt
skeið . Undir lokin skýrði
biskupinn frá því, að tilgang-
urinn með fjársöfnuninni
væri ekki fyrst og fremst sá
að tryggja framhald trúboðs
og líknarverka í Kaupmanna-
höfn, heldur hvatti hann
menn til þess að knýja ríkis-
stjórn og Alþingi til að hætta
sparnaði og leggja á nýjan
leik fram háar fúlgur til
prestsembættis í borginni við
sundið. Hér var sem sé um að
ræða evangelíska fjárkúgun-
artilraun af næsta nýstárlegu
tagi .
Ummæli sem þessi lýsa
vissulega harla einkennilegu
innræti, sem vert er að fólk-
ið í landinu veiti verðuga
athygli.
UTAN ÚR HEIMI
Chiang Kai-shek horfir vongóð-
ur til meginlandsins
SHIANG KAI-SHEK forseti
leiðtogi kínverskra þjóðern-
issinna á Formóisu, hefur
loksins lagt öll innrtásaráform
á hilluna og er kominn á þá
skoðun, að óranhætft sé að
reyna að ná yfirnáðum yfir
meginlandi Kína með her-
vaidi. En hann spáir því, að
þess verði ekki langt að
bíða, að þróun móla á megin-
iandinu geri honum kleitft að
setja menn á land á suður-
ströndinni, án þess að veitt
verði mótspyrna og án þess
að biðja þurtfi Bandaríkja-
menn um aðstoð.
Þjóðernissinnar telja, að á
næsta þingi kínverska
kommúnistaflokksins verði
éfnt til nýrrar „menningar-
byltingar“. sem koma muni
af stað nýju umróti. Þess
vegna telja þeir að búast
megi við að deilur Kínverja
og Rússa harðni enn, að kín-
verskir kommúnistar taki á
ný u*pp herskáa utanríkis-
stefnu og auki undirróður er-
lendis til þess að etfla áhrif
kenninga Maos, að innan-
lands verði hatfin barátta fyrir
því að binda enda á allan
sjálfstæðan búskap, og fólk
verði í enn ríkari rnæli en
nú neytt til að startfa á sam-
yrkjubúum og að taka við
iaunum fyrir vinnu sína í
vöru en ekki peningum.
Fáir telja, að Kínverjar
muni snúa baki við Mao fyrir
fullt og allt og landið klofni
í ótal smáríki, þar sem vold-
ugir herstjórar ráði ríkjum
og fari með stríði á hendur
hver öðntm. En þó búast
þeir við hörðum innanlands-
átökum og jafnvel uippreisn
einstakra fylkja gegn stjórn-
inni í Peking. Þá gæti þannig
ástand skapazt, að hérað eins
og Fukien, sem er gegnt For-
mósu og hefur á að skipa
350.000 hermönnum og þriðj-
ungi alls flugflota Kínverja,
þyrfti nauðsynlega á stuðn-
ingi bandamanns að halda.
Og þjóðernissinnar, sem segja
að fulltrúar þeirra standi í
sambandi við hertforingja á
megnlandinu, sem Peking-
stjórnin eigi erfitt með að
treysta, segja, að möguleiki
á einhverju slíku bandalagi
sé kjarni málsins.
Chiank Kai-Shek hefur á
að skipa voldugum her, alls
600.000 mönnum, ötflugum
flugher og allisterkum innrás-
arflota, en suðunströnd Kína
er rammlega varin. Etf þjóð-
ernissinnar ætla að gera ein-
hverskonar árás á strendur
Kína verða þeir að geta
treyst því, að Bandaríkja-
menn ióti þeim í té skip til
flutninga og birgðir handa
innrásarliðinu eftir að það
hefur stigið á land. En Banda
ríkjamenn neita harðlega að
láta teyma sig út í slíkt ævin-
týri. Birgðamálin eru því aðal
vandamál Chiang Kai-siheks
og raunar óleysanleg, því að
hann gerir ráð fyrir að komm
únistar skilji eftir sviðna
jörð, etf þeir neyðast til að
leggja á tflótta, og þá verða
þjóðernissinnar að fæða íbú-
ana. Ráðunautar hains óttast
einnig, að kommúnistar varpi
kjarnorkusprengju á Formósu
í hefndarskyni, ef minnsta tií
raun verður gerð til þess að
setja menn á land á megin-
landinu.
Forsetinn leggur því nú á
það meg náherzlu, að valda-
baráttan í Kína verði að
ganga fyrir öllum róðagerð-
um um sókri gegn meginland-
inu. Orka hans beinist nú
aðallega að því að gera For-
mósu að sýningarglugga kín-
verskrar menningar og stjórn
málaþroska. Hann heldur því
eindregið fram, að staðsetn-
ing herja hans méðist ekki
við árás á strendur Kína,
sem eru í um 190 km fjar-
lægð, heidur við vörn gegn
hugsanlegri árás kommún-
ista á Quemoy eða jafnvel
sjálfa Formóisu.
Samt sem áður miðast ölfl
barátta þjóðernissinna við
það, að emn góðan veðurdag
komist sæmi’.lega voldugur
en aðþrengdur herstjóri (eða
herstjórar) í Suður Kína að
samkomulagi við Chiang for-
seta og þjóðernissinnastjórn-
iha á Formiósu. „Og á því er
enginn vafi, að við tækjum
tiiboði um að setja her á land
hvað svo sem Bandiaríkja-
menn segðu,“ sagði einn af
herforingjum kínverskra þjóð
ernissinna nýlega. „Þetta er
líka hvað sem öllu líð>ur eini
tilgangurinn í Lífi okkar.
Og birgðaflutningavandamál-
in mundu leysast án Banda-
ríkjamanna.“
(OFNS — Einkaréttur).
//
Speglinum" hrint á flot
— Ási í Bæ ritstjóri
HÁÐBLAÐIÐ Spegillinn hef-
ur nú skipt um eigendur og að
nokkru um búning, en I. blað
nýju eigendanna kom út nú um
páskana. Eigendur blaðsins eru:
Ási í Bæ, sem verður aðalrit-
stjóri og Ragnar Lár., sem verð-
ur aðalteiknari. Blaðið mun
koma út mánaðarlega og verða
36 síður að stærð.
Hinir nýju eigendur Spegils-
ins boðuðu blaðamenn á sinn
fund og kynntu þeim nýja út-
gáfu Spegilsins og framtíðarhug
myndir. I. blað nýju eigendanna
er komið út og er það 36 síð-
ur að stærð, en áður var blað-
ið 28 síður. Það er gömul hug-
mynd hjá Ása og Ragnari að
standa að slíku blaði, sem Speg-
illinn er. Þeir ræddu þetta fyrst,
þegar þeir réru saman á skaki
við Eyjar og ræddu spaklega
við þorskinn og fleira lifibrauð.
Máske var það undirbúningur
undir það sem nú tekur við.
Eigendurnir sögðu, að þeir
myndu leggja áherzlu á að fá
sem flest ungt fólk í lið við
útgáfu blaðsins og nú þegar
væri mannval á bæði borð. Út-
lit blaðsins er nokkuð breytt og
t.d. verður hver síða teiknuð
sérstaklega. Auglýsingar verða
einnig teiknaðar sérstaklega fyr
ir auglýsendur án kostnaðar.
Efni verður víða fengið að og
skop dregið fram úr því sem
það á skilið .Ákveðnir þættir
verða í blaðinu, svo sem um:
táninga, tónlist, íþróttir o.fl. Sem
fyrr segir er Ási í Bæ aðal-
ritstjóri og aðstoðarritstjóri er
Jón Hjartarson. Benedikt Vigg-
óson sér um táningasíðu og út-
litsteiknari er Ragnar Lár. Auk
Ragnars teikna í blaðið: Þór-
dís Tryggvadóttir, Haraldur
Guðbergsson, Birgir Bragason
og Bjarni Jónsson. Spegillinn
kemur út mánaðarlega og kostar
40 kr. Prentsmiðja Þjóðviljans
prentar blaðið, Lithoprent gerir
kápuna og myndir eru gerðar
í Prentmyndagerð Alþýðublaðs-
ins. Sem stendur er ritstjórinn
á Landspítalanum og því er rit-
stjórnarskrifstofan ekki opnuð
enn, en pósthólf Spegilsins er
594.
: ■: '
mm
Asi í Bæ ritstjóri Spegilsins og Ragnar Lár. útlitsteiknari
blaðsins skoða nýja útgáfufor mið.