Morgunblaðið - 17.04.1968, Side 19

Morgunblaðið - 17.04.1968, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 19®8 19 Úr Mývatnssveit Björk, Mývatnssveit, 2'4. marz. EFTIR langan harðindakafla brá hér til suðlægrar áttar með góubyrjun, gerði þá hlýindi í nokkra daga. Leysing var ör og tók mjög upp hinn mikla gadd. Sæmileg beitijörð kom fyrir sauðfé, en þá var búið að gefa því inni hér samfellt í 10 vikur. Hélzt góð tíð fram í miðja góu en þó var nokkuð stormasamt suma daga. Síðan fór að herða frostið, sem haldizt hefur, og jafnvel komizt í 20 stig. Eflaust hafa bændur eittíhvað getað sparað hey að undanförnu, þrátt fyrir storma og hálfgerða íshafs veðráttu. Ekki hafa heybirgðir almennt verið kannaðar hér, en gera má ráð fyrir að sumsstað- ar sé nokkuð farið að ganga á þær sem eðlilegt er. Vegir voru ruddir hér strax og hlánaði ,síðan má heita að færð hafi vérið góð og flutning- ar gengið vel. Um síðustu helgi gerði hér norðan hörkuveður, setti þá nið ur nokkurn snjó, en ekki svo mikinn að vegir lokuðust. Verkfalls-hugleiðingar Ekki urðum við hér mikið vör hins mikla verkfails sem nýlok- ið er, nema þá af fréttum í út- varpinu, svo og að menn fengp frí við lestur blessaðra dagblað- anna. Að vísu má geta þess, að sumir starfsmenn Kísiliðjunnar fengu frí einn dag vegna verk- fallsboðunar frá Húsavík. Okkur hér sem vorum aðeins áheyrendur, ef svo má að orði komas';, að þessum verkfallsátök um, verður á að spyrja: Er það sæmi ægt í okkar þjóðfélagi, þar sem frjálsnæði er talið ríkja og þjónar það einhverjum sérstök- um tilgangi að börn fái ekki mjólk og aðrir er mest hafa hennar þörf? Á sama tíma er mjólkinni hellt niður. Ennfrem- ur, hvers eiga sjúklingar og þeir, er höllustum fæti standa að gjalda. Er ekki hér verið að náðast á garðinn þgr sem hann er lægstur. Hefur þjóð okkar efni á því á þessum tímum að kasta milljónatugum á glæ í verkföllum. Er ekki mál til kom ið að löggjafinn samþykki þannig lög, að ýmsir þeir atburð ir, er áttu sér stað í síðasta verk falli, og hér að framan er get- ið, endurtaki sig ekki oftar. Hlýtur það líka ekki að marg borga sig fyrir deiluaðila hverju sinni ,að þrautreyna með næg- um fyrirvara, allar samkomu- lagsleiðir áður en til verkfalls er boðað. Silungsveiði hefur verið ákaf lega léleg í Mývatni í vetur, má sjálfsagt ýmsu þar um kenna. ís inn er orðinn mjög þykkur á vatninu .sennilega 80—100 cm. enda frosthörkur verið miklar. Minkurinn sækir á Mikið hefur sést af minkaslóð um hér við Mývatn í vetur. Bendir það ótvírætt til þess, að meira sé af mink hér nú en oft áður. Eru það sannarlega ískyggilegar horfur. Á undan- förnum árum hefur mikið verið gert til að hefta útbreiðslu háns hér við vatnið, og sýnileg- ur árangur af því starfi. Nú virð ist hinsvegar vera svo, að upp á síðkastið hafi minni áherzla ver ið lögð á að vinna hann hér. Það er að vísu alveg rétt að hér við Mývatn er aðstaðan mjög erfið til þeirra hluta. Vel má líka vera að vanir menn til þessa starfs liggi ekki á lausu, en það réttlætir á engan hátt slíkt að- gerðarleysi, sem nú virðist rikja í þessum rnálum. Verður að krefjast þess, að nú þegar verði allt gert sem í mann legu valdi stendur til að reyna að eyða minknum við Mývatn. Má í því efni ekkert til spara, hér eru svo mikil verðmæti í húfi að aldrei verða metin til fjár. Verður því að vona, að réttir aðilar taki þetta mál til alvarlegrar íhugunar. Skólahald. Heimavistarbarnaskólinn á Skútustöðum tók til starfa um miðjan okt. sl. í skólanum eru í vetur 60 nemendur, þar af 16 i unglingadeild. Vegna rúmleys- is í heimavistinni verður að skipta nemendum til dvalar í skólanum. Er það gert með þeim hætti, að þeir dvelja þar hálfan mánuð í senn, en eru síð- an heima hjá sér jafn langan tíma, koma þar aðrir nemendur í þeirra stað, og dvelja í skólan- um á sama hátt, virðist slíkt fyrirkomulag gefast vel, þótt námstíminn sé ekki lengri. Nemendur í unglingadeild fá hinsvegar samfellda kennslu. Heimavistar-barnaskólinn á Skútustöðum var tekinn í not- kun í janúar 1963. Áður hafði barnakennsla hér í sveitinni farið fram á ýmsum stöðum, og án efa oft við erfiðar aðstæður. Síðast var kennt í félagsheim- ilinu Skjólbrekku. Árið 1963 þegar kennsla var hafin í skól- anum, var eftir að byggja sér- staka álmu við skólann. Þar í voru kennslustafur, leikfimi- gangur, áhaldageymsla og kennaraherbergi . Árið 1964 var hafizt handa við að koma upp þessari álmu. Á síðasta ári var svo þessi bygg- ing fullfrágengin, og hófst þá kennsla þar. Batnaði þá til muna öll aðstaða í skólanum, bæði varðandi sjálfa kennsluna, svo og aðra starfsemi innan veggja skólans. Síðastliðið haust, bárust skóla- nefndinni hér tilmæli frá nökkrum foreldrum, m.a. ný-inn fluttum, þess efnis, að börn þeirra 7-8 ára að aldri fái ein- hverja tilsögn á yfirstandandi vetri. Hér í þessu skólahverfi, hefur gilt undanþága fyrir börn á þessu aldursskeiði, þar sem ekki hefur verið hægt að sjá þeim fyrir kennslu. Bentu for- eldrarnir á hvort ekki mundi hægt að fá leigt húsnæði t.d. í Reynihlíð, þar sem hægt væri að hafa heimangöngu skóla fyrir væntanlega nemendur. Skólanefnd og sveitastjórn samþykktu síðart að fella niður þessa undanþágu fyrir börn 7-8 ára, sem sótt gætu heimagöngu- skóla í Hótel Reynihlíð. Leitað var umsagnar námsstjóra og fræðsluyfirvalda, til framgöngu þessu máli. Fengum við þar samþykki og góða fyrirgreiðslu, af þeirra hálfu. Sama má segja varðandi húsnæði, þar sem kennsla gæti farið fram, eigend- ur hótelsins veittu góðfúslega þá aðstöðu. Skömmu eftir síðustu áramót iiófst kennsla í Hótel Reynihlíð. Komu börnin þangað eftir há- degi, fjóra daga í viku hverri. Kennari var ráðinn Helga Vil- borg Pétursdóttir, Austurhlíð. Helga er stúdent að mennt, og hefur áður fengizt við barna- fræðslu austur á Vopnafirði. Nemendur í skólanum í Reyni- hlíð hafa verið 18. Kennt var 3 stundir á dag. Óhætt er að segja, að börnin hafi sýnt sér- stakan áhuga og dugnað við námið. Þráinn Þórisson hefur nú starfað hér bæði sem kennari og skólastjóri yfir 20 ár. Á sama tíma hefur kona hana, Margrét Lárusdóttir, einnig unnið við skólann, fyrst sem ráðskona við mötuneyti, og síðan haft á hendi stundakelnnslu. Stöndum við vissulega í þakkarskuld við þessi ágætu hjón fyrir þeirra langa og gifturíka starf. Ekki er að efa, að stjórn og umsjón heimavistarskóla, er mjög eril- samt og ábyrgðarmikið starf. Veltur á miklu í hverjum skóla, að það starf sé samvizkusam- lega af hendi leyst. Ég held, að fullyrða megi að þa’ð hefur Þráinn Þórisson reynt eftir beztu getu. Rétt er að geta hér fleiri, sem unnið 'hafa við heimavistar- skólann á Skútustöðum. Séra Örn Friðriksson hefur verið þar stundakennari frá því skólinn tók til starfa. í eldhúsi við mötuneyti, hafa þær systur Helga og Guðfinna Axelsdætur unnið frábært starf sem ráðs- konur. Vil ég færa öllum þakk- ir, sem á einn eða annan hátt hafa unnið ágæt störf í þágu skólans. — Kristján. SVAR MITT f*j|i EFTIR BILLY GRAHAM ÉG er húsmóðir og er að nálgast sextugt. Ég hef elzt / á undan manninum mínum. Hann virðist vera yngri I en ég. Ég fékk að finna fyrir þessu í vikunni, sem leið, þegar einhver spurði mig, hvort ég væri móðir hans! Hvað á sú kona að taka til bragðs, sem virðist vera eldri en eiginmaður hennar? ÉG er nú eiginlega ekki rétti maðurinn til að svara þessari spurningu. En ég ráðgaðist við konuna mína, og ég skal reyna að gefa yður ráð. Skoðun okkar á því, hvað sé elli og „ellisvipur“, ákvarðast fremur af viðhorfum og mati á lífinu en því, hve mörg ár við höfum lifað. Þetta er reynsla fjöl- margra kvenna: Þær finna, að líkami þeirra er farinn að láta á sjá; þær sjá hrukkur færast yfir andlitið, og axlirnar eru teknar að síga lítið eitt. Þær gefast því upp fyrir Elli kerlingu og ganga hinu óhjákvæmilega á vald. Illu heilli setja slíkar konur sig líka í andlegar stellingar, sem eru í samræmi við hina „líkamlegu uppgjöf“. Þær draga sig inn í skel, hætta að brosa, hætta að lesa, hætta að koma á mannamót. Allt bendir til þess, að þær hafi dáið fyrir aldur fram. Þótt líkaminn eldist, getur hjartað verið ungt! Verið með opnum huga og látið hlýju streyma frá yður. Berið umhyggju fyrir öðrum. Veitið viðtöku þeim styrk, sem Davíð talar um, þegar hann segir: „Gleðin í Drottni er hjálpræði mitt“. í hópi þeirra kunningja minna, sem eiga hvað mest af eldmóði æskunnar, er einnig roskið fólk. Takið nú nýja af- stöðu í þessu máli, og þér sláizt í hópinn. Raðhús í Hafnaríirði Til sölu raðhús á 2 hæðum, v/Smyrlahraun. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi, bað og tauherbergi. Stofur, eldhús og þvottaherb. á neðri hæð. Bílskúrsréttur. SKIP & FASTEIGNIR Austurstræti 18 sími 21735, eftir lokun 36329. Til sölu við Miðbæinn 6 herb. efsta hæð í þríbýlishúsi í nýlegu steinhúsi. Sérhiti, sérþvottaherbergi á hæðinni, tvennar svalir. I.aus eftir samkomulagi. FASTEIGNASALAN, Garðastræti 17 símar 24647—15221. Kvöldsími 41230. Fréttabréf úr Stykkishólmi: Lúðrasveitin hélt hljómleika STYKKISHÓLMI 8. apríl — Lúðrasveit Stykkishólms efndi hinn 7. apríl s.l. til hljómleika í leikfimisal Gagnfræðaskólans í Stykkishólmi. Stjórnandi Lúðra- sveitarinnar er Víkingur Jó- hannsson og hefir hann verið það frá upphafi, en Lúðrasveit- in var stofnuð á sumardaginn fyrsta 1944 og er því að verða 24 ára gömul. Hún hefir jafn- an haldið uppi ágætu starfi, ferð azt víða um og leikið fyrir fólk og allstaðar mætt góðu viðmóti. Á hljómleikaskránni voru 15 lög, en auk þess varð að leika aukalög. Hljómleikarnir voru vel sóttir og menn ánægðir með þessa ágætu stund. Endurvarpsstöð sjónvarps. Nú verður senn hafizt handa með smíði stöðvarhúss fyrir end urvarpsstöð sjónvarpsins hér. Hefir verið valinn staður skammt fyrir ofan Stykkishólm, ca. 4 km. frá bænum. Er þetta ágætur staður. Verkfræðingar voru hér í dag að mæla út fyrir húsinu og mun smíði þess verða boðin út. ísinn minni á Breiðafirði. ísinn hefir minnkað að mun hér á Breiðafirði og má hann að mestum hluta teljast auður. Undanfarna daga hefir verið góðviðri og er það mikil til- breyting frá því sem verið hefir. Klaki er mikill í jörðu, sem von- legt er, enda veturinn með ein- dæmum harður. Vegir eru allir værir um Snæfellsnes og ágætis færð er inn í Dali. Árshátíð Barnaskólans. Árshátíð Barnaskólans í Stykk ishólmi var föstudaginn 5. þ.m. og var hún fjölbreytt og vel sótt. Þrjár sýningar voru og fullt hús á öllum sýinngum. Önnuðust nemendur öll atriði, sem voru upplestur, leikþættir og söngur og að lokum var sjón- leikurinn Gilitrutt fluttur af nemendum og þótti vel takast í alla staði. Allur ágóði mun renna í Menningarsjóð skólans og ferðasjóð skólabarna, en á hverju ári er farin ferð til fróð- leiks og skemmtanar fyrir nem- endur sem ljúka lokaprófi. Stykkishólmi 8. apríl 1968 MOBGUNBLAOID Til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð (jarðhæð samþykkt) á einum bezta stað í Kópavogi. íbúðin sem er smíðuð árið 1965 er skipt þannig: Tvö svefnherb., ein stofa, eldhús, (vantar innréttinguna), baðherbergi, þvotta hús og geymsla. Inngangurinn er sér. Lóð er að mestu frágengin. Hagkvæmir greiðsluskilmálar ef samið er strav. Upplýsingar í síma 22911, 19255. ÍBÚÐ ÓSKAST liöírnn kaupanda að 4ra—6 herb. hæð sem mest sér. bílskúr, helzt innan Hringbrautar, við Safamýri, eða í Laugar- neshverfi. Um staðgreiðslu gæti verið að ræða. EINAR SIGURÐSSON, HDL., Ingólfsstræti 4, simi 16767, kvöldsími 35993.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.