Morgunblaðið - 17.04.1968, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 1958
21
Myndin var tekin á Kurfurstendamm í Vestur-Ber lín á fimmiudag, er óeirðimar höfðu brotizt út eft-
ir tilræðið við Rudi Dutschke. Lögreglan beitti vantsslöngum og kylfum gegn stúdentum.
— Tilxæðismaðurinn
Framihald af bls. 1
beinzt gegn honum og blaðaút-
gáfu hans og þeir hafa reynt að
hindra dreifingu blaða hans.
t Meðal eldri kynslóðarinnar
hafa þessar óeirðir vakið ugg og
óánægju. Þykir mörgum, sem
þær minni ískyggilega á þá at-
burði, er gerðust á dögum
Weimar-lýðveldisins og urðu m.
a. til þess, að Hitler náði völdum
í Þýzkalandi.
t Yfirvöld borga og bæja,
svo og háskólayfirvöld hafa skor
að á stúdenta að láta af óeirðuiv-
um og beina hugum sínum að
náminu þess í stað, en stúdentar
láta sér ekki segjast og hafa
boðað áframhaldandi aðgerðir.
Segir talsmaður lögreglunnar í
Hamborg, að stúdentar hafi
fyrst í gærkyöldi beitt valdi
gegn lögreglumönnum. Þá hafi
gengið í lið með þeim „Ieður-
jakka-unglingar“ og ekki látið
sitt eftir liggja í átökunum.
t Eftir því sem næst verður
komizt hafa 59 lögreglumenn
meiðzt og 60—80 úr hópi stúd-
enta og annarra. — f Miinchen
berjast læknar við að bjarga lífi
þýzks blaðaljósmyndara, er fékk
stein í höfuðið á mánudagskvöld
ið. Annar ljósmyndari, Karl
Frings frá AP eP einnig lífs-
hættulega slasaður. Hlaut hann
heilameiðsl í átökunum og hef-
ur gengizt undir meiriháttar
skurðaðgerð.
4 ÞRJÚ SKOT HÆFÐU
DUTSCHKE
Upptök óeirðanna urðu sem
fyrr segir þau, að sósíalistaleíð-
toga stúdenta Rudi Dutschke, 28
ára heimspekistúdent, var sýnt
banatilræði. Hann var að koma
frá skrifstofu stúdentasamtaka
sinna og var á reiðhjóli. Er hann
hjólaði eftir Kurfiirstendamm
sat tilræðismaðurinn fyrir hon-
um, dró hann af hjólinu og skaut
á hann af skammbyssu. — Þrjájr
kúlur hæfðu hann, fór ein í heil-
ann, önnur í hægri kinnina, hin
þriðja í brjóstið, og segja lækn-
ar hina mestu furðu, að maður-
inn skuli enn vera lífs. Lögregl-
an kom þegar á vettvang og
tókst að handtaka tilræðismann-
inn, en þó ekki fyrr en eftiir
klukkustundar átök við hann,
þar sem hann beitti byssu sinni
óspart. Hlaut hann sjálfur skot-
sár af lögreglunni og var illa
sæi*ður, er hann var loks yfir-
bugaður og fluttur í sjúkrahús.
Að því er lögreglan upplýsir,
er tilræðismaðurinn Josef Bach-
mann, 23 ára að aldri, ættaður
frá Reichenberg, sem nú er X
Austur-Þýzkalandi, en kom til
Vestur-Berlínar árið 1956. Við
húsleit á heimili hans í Peine
fundust málverk, er hann sjálf-
ur hafði gert af Hitler og Napo-
leon. Haft var eftir móður hans,
að hann hataði kommúnista eins
og pestina og sjálfur sagði hann,
að óbeit sín á Dutschke og stjórn
málaskoðunum hans væri eina
orsök tilræðisins. Kva’ðst hann
hafa lesið um morðið á Dr.
Martin Luther King og þá sagt
við sjálfan sig: „Þetta átt þú líka
að gera“.
Lögreglan hefur einnig upp-
lýst, að Bachmann hafi tvisvar
verið handtekinn fyrir þjófnað,
fyrst árið 1964 í Dortmund og
síðar í Frakklandi, í júlí 1966,
og þá einnig fyrir að bera skot-
vopn.
Fómarlamb hans, Dutschke,
er einnig frá Austur-Þýzka-
landi, flýði þaðan fyrir nokkr-
um árum til þess að komast hjá
herþjónustu. Hann kvæntist á
sl. ári bandarískiri stúlku, er
stundar nám í guðfræ'ði.
4 „NAZISTAR — MORГ
Þegar eftir tilræðið hófust ó-
eirðir, en þó ekki að ráði fyrr
en á föstudag. Þá tóku um 6.500
stúdentar þátt í mótmælaaðgerð-
um í Berlín, fóm fylktu liði um
götur og torg og sungu: „Nazist-
ar, nazistar, morð, morð“. Þeir
reyndu að ráðast á ráðhúsið,
höfðu uppi vígor’ð gegn þýzkum
stjórnarvöldum og kröfðust af-
sagnar borgarstjórans. Aðeins
um þúsund stúdentar komust að
torginu, Kennedy-torgi, fyrir
framan ráðhúsið og eftir klukku-
stundar viðureign við lögreglu,
var þar orðið kynrt.
Á laugardag hélt óeirðunxxm á-
fram og átti lögreglan þá jafn-
framt við að stríða umferðaröng
þveiti vegna hátíðarinnar. Þá tók
refði stúdenta að beinast gegn
blaðaútgáfu Springers, en á laug-
ardagsmorgxm hafði eitt blaða
hans, „Bild Zeitung", krafizt
þess, að ekki yrði tekið neinum
vettlingatökum á stúdentum.
Þeir reyndu að stöðva dreifingu
blaðsins í ýmsum borgum Þýzka-
lands, m.a. í Munchen, Frank-
furt, Essen og Haxmover. Segja
stúdentar, að blöð Springers
hafi skapað óþolandi andnims-
loft í Þýzkalandi og stefna þeirra
hafi leitt tif tilræðisins við
Dutschke.
Á sunnudag var áfram haldið
og gerðist nú lögreglan harðhent
ari en áður. Fréttaritari Reuters
segir að lögreglumerm hafi slegið
með kylfum sínum til hægri og
vinstri án þess að skeyta nokkuð
um það, hver yrði fyrir höggun-
um. Hafi ekkert haft að segja að
sýna skírteini fréttaritara eða
önnur gögn.
Fjöldi ferðamanna var i
Berlín um helgina og flúðu þeir
fljótlega, er til átakanna kom,
enda gaf lögreglan fólkinu fimm
mínútna frest til að koma sér
burt frá átakasvæ'ðinu, áður en
hún léti til skarar skríða.
í mótmælaaðgerðum stúdent-
anna á mánudag voru blaðahús
Springers í Frankfurt og Ham-
borg sett í algert umsátur. Lög-
reglan, sem beitti eins og áður
kylfum og vatnsslöngum, brauzt
gegnum stúdentaþvöguna. En
allt ætlaði um koll að keyra eft-
ir að fréttist um atvik, er gerð-
ist í Hamborg, er einn af bifreiða
stjórum Springerblaðanna ók á
fullri ferð á stúdentahópinn, sem
ætlaði að varna bifreiðinni veg-
arins. Einn piltur varð fyrir bif-
reíðinni og slasaðist alvarlega.
í Berlín var kveikt í bílskúr fyr-
irtækisins og tólf bifreiðar
brenndar.
Óeirðir þessar í Þýzkalandi
breiddust einnig til annarra
landa, m.a. til ítalíu og Bret-
lands, þar sem hópar manna
söfnuðust saman og fóru fjölda-
göngur til að „hefna fyrir Rudi
Dutschke", eins og sagt var. Á
sunnudag reyndi múgur manns
að ryðjast inn í Lundúnaskrif-
stofu Springer-blaðanna. Lögregl
an var kölluð á vettvang og urðu
þar svo hörð átök, að margir
slösuðust verulega. Mótmælaað-
gerðir þessar vegna Dutschke
voru einskonar hliðarspor frá
aðalmótmælum hátfðarinnar,
mótmælum gegn kjarnorkuvopn-
um, sem fara skyldu fram með
friðsamlegum hætti. Var það hin
svonefnda Aldermaston-ganga,
sem farin er árlega. f Ihenni tóku
þátt um 20.000 manns.
— Innlendir
FramlhaM atf Ibls. 32.
varðar tollstöð í Reykjavík án
þess að blaðið hafi vitneskju um
grundvallaratriði málsins.
Tollstöðvarhúsið í Reykjavík
er þannig gert, að á því eru stór
ir gluggaveggir, rammar með
ísettu gleri. Þar eð hér er um að
ræða mjög umtalsverðan hluta
af byggingarkostnaði var það
verk að smíða og setja upp þessa
gluggaveggi boðið út og bárust
tilboð frá 10 aðilum, sem voru
mjög mismunandi að verði og
gæðum, allt frá röskum 5 millj.
kr. og yfir 12 millj. kr. á eldra
gengi. Eins og áður sagði var
efni það, sem í boði var frá hin-
um ýmsu tilboðsgjöfum, mjög
misjafnt að gæðum og styrk-
lei'ka. Það kom enn fremur í
ljós, að öll tilboðin, hvort held-
ur þau komu frá innlendum eða
erlendum' aðilum voru fyrst og
fremst erlend og í engu tilfell-
inu innlend að meiru en Vs
hluta.
Fyrir gengisfellingu íslenzku
krónunnar höfðu tilboð verið
könnuð og bygginganefnd húss-
ins komizt að þeirri niðunstöðu,
að af innlendum tilboðum kæmi
helzt til greina að taka tilboði
Perspektiva A/S, dansks fyrir-
tækis. Verðmunur þessarra til-
boða var talinn yfir 20% hinu
innlenda hlutafélagi í óhag.
Eftir gengisbreytingu var
gerð ný könnun á tilboðum.
Voru þá sérstaklega tekin til at-
hugunar þau sjónarmið, sem
ríkisstjórnin hefur gert að
stefnuskráratriði sínu, að við
slíkar aðstæður Skuli leitazt við
að hlynna að innlendum iðnaði
eftir því sem frekast er kostur.
Var þá sérstaklega kannað til-
boð Völundar hf., sem varð all-
miklu hagstæðara en áður af
völdum gengisbreytingarinnar.
Niðurstaða bygginganefndar
hefur orðið sú, að Völundur
smíði hluta glugganna, en að
öðru leyti leggi danska fyrir-
tækið Perspektiva A/S til efni
(prófíla) í gluggaveggina, en
uppsetning þeirra eigi sér stað
á vegum innlendra aðila. Með
þessum hætti telur bygginga-
nefndin, að hvorttveggja náist,
lægra verð, sem í boði er, og
stærstur innlendur hluti í srrxíði
veggjanna. Er talið, að með
þessum hætti kosti'veggirnir upp
settir um 7 milljónir króna, þar
af verður keypt efni frá Per-
spektiva A/S fyrir d. kr.
280.000.00, eða ísl. kr. 2.144 þús.,
og er ekki um annan erlendan
kostnað að ræða í því sam-
bandi. Tilboð Raftækjaverk-
smiðju Hafnarfjarðar h/f er um
8,5 siillj. kr.
Gagnvart innlendum iðnaði
verður þannig hluti smíðinnar
alinnlendur, en hluti verðui
fólginn í innflutningi á „prófíl-
um“ og gluggúm, sem verða
settir saman hér heima. Það skai
tekið fram, að gluggasmíði Raf-
tækjaverksmiðju Hafnarfjarðai
h/f er einnig fólgin í innflutn-
ingi á „prófílum", að vísu úr
málmi, sem síðan eru sniðnir
og settir saman. Hlutur íslenzks
iðnaðar í verkinu eins og það
verður unnið er því sízt minni
en verið hefði, ef tilboði Raf-
tækjaverksmiðju Hafnarfjarðar
hefði verið tekið. Hins vegar
70 fórust
Dacca, 16. apríl. NTB
TALIÐ er, að a. m. k. 70 manns
hafi látið lífið og um 700 meiðst,
er fellilbylur gekk yfir Faridpur
hénaðið í Austur-Pakistan á
skírdag. Geysilegt tjón varð á
bygginguim, m. a. lögðust þrír
smábæir í rúst og þúsundir
manna eru heimilislausir.
verður verkið um 1.5 millj. kr.
ódýrara".
i
— Tanzanía
Framhald af bls. 1
Nígeríu, er dvalizt hafa í Tanz-
aníu, verið kallaðir heim.
Stjóm Biafra hefur átt fastan
fulltrúa í Dar Es Salaam í sex
mánuði, eða þar um bil, og ný-
lega voru mikilsmetnir Biafra-
merm gestir Juliusar Nyreres,
forseta Tanzaníu.
Þegar utanríkisráðherra Tanz-
aníu skýrði frá ákvörðun stjóm-
ar sinnar tilkynnti hann, að
vissulega harmaði hún að Biafra
skyldi segja sig úr lögum við
Nígeríu — það væri áfall fyrir
einingarhugsjón Afríkjuríkjanna.
En ljóst væri, að vonlaust vseri
að halda ríkjunum saman með
valdbeitingu og blóðsúthellingum
og íbúamir í Biafra hefðu kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að eina
lífsvon þeirra væri, að slíta sam-
bandinu við Nígeríu og lifa sem
sjálfstæð þjóð.
Um síðustu mánaðamót til-
kynnti stjórnin í Lagos, að
„bylting Biafrabúa hefði verið
brotin á bak aftur að langmestu
leyti“ og helztu borgir hefðu fall
ið í hendur hersins. Sfðan hefur
sókn hans stöðvazt að mestu, en
í AP-frétt á laugardag segir, að
víða stundi Biafrahermenn enn-
þá skæruhernað og geti Lagos-
hernum reynzt erfitt að ráða nið-
urlögum þeirra að fullu.
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum, er William Westmore-
land, hershöfðingi, hélt frá Andrews-flugstöðinni til S-Víetnam,
eftir tveggja daga viðræður við Johnson, forseta, í Washington.
Forsetinn fylgdi honum frá Hvíta húsinu til flugstöðvarinnar og
kvaddi hann þar. Hann hefur nú skipað Creighton Abrams, hers-
höfðingja, í embætti yfirmanns bandaríska herliðsins í Suður-
Veítnam, er Westmoreland lætur af því starfi.
— Ósamið
Framhald af hls. 1
Fun.d þennan átti upþhatflega
að halda um sáðustu helgi, en
þá frestaði forsetinn för sinni
vegna morðsins á Dr. Martin
Luther King og kynþáftaóeirð-
anna, er urðu eftir það.
í frétt frá NTB segir, að John
son hafi ljóslega verið óánægður
í dag vegna ósamfko>nmlagsins
við Hanoistjórnina um það, hvar
haMa skuli undinbúningsviðræð-
ur um Vietnam. Eftir að forset-
inn kom til HonoÉhiIu í gær,
sendi hann Hanoistjórninni að-
vörun þar sem sagði, að nú væru
liðnar tvær vikur frá því hann
hefði lá'tið hætta loftárásium á
Norður Vietnam og enn hefði
ekki náðzt samkam'ulag itm
fundarstað. Þannig hefði þessi
tími til einskis farið og væri
nú farið að ganga nokíkuð á þol-
inmæði Bandaríkjastjórnar.
Hann sagði, að Hanoi hefði
ekki enn svarað uippástunguim
Bandaníkjamanna um einhvern
eftirtalinna fundarstaða: Genf.
Vientiane, Rangoon, Dj akarta og
Nýju Delhi en hann kvaðsf haía
gert Hanoi stjórninni fuiila grein
fyrir því, hvers vegna hann gæti
hvorki sætt sig við Varsjá né
Pnom Penh.
Af uippástungum Bandaríkja-
manna er talið Liklegast, að
Hanoistjórnin sætti sig við Nýju
Delhi. Hefur hún tilkynnt stjóm
inni indverisku, að uppástungan
hafi verið tekin til íhiugunar og
komi til greina, enda þótt Hanoi-
stjómin mundi heldur kjósa að
fundarstaðurinn væri nær Han-
oi.
í AP írétt segir, að ein óstæð-
an til þess, að Johnison forseti,
geti ekki fallizt á Vansjá eða
Pnom Penh sé sú að sögn opin
berra embættismanna, að ýmis
bandalagsríki Bandarikjamanna
hafi ekki stjórnmáiasaimband við
þessi ríki, svo sem Thailand og
S—Kórea. Bandaríkjamenn sjálf
ir hafa ekki stjórnmálasamband
við Cambodiu.
En fréttastofan hefur eftir öðr
um embættismönnum, að þeir
óttist, að deilan um fundarstað
verði að áróðursstríði deiluaðiil-
anna, ef áfram haldi sem horfir.
Þá kemiur það fram í fréttum
frá Manila, að stjórn Suðxxir-Vi-
etnam óskar eftir að haMinn
verði leiðtogafundur þeirra
ríkja, sem hlut eiga að máli í
S-Vietnam, áður en friðarviðnæð
ur hefjast við Hanoistjómima,
— með það fyrir auigrum að
marka sameiginlega stefnu í
friðarumleitunum um Vietnaim
og ræða jafnframt í heiM hin
ým®u öryggisvandamál Suðaust-
ur Asíu og Suðvesturhluta Kyrra
hafssvæðisins. Ríkini, sem hér
eiga hlut að máli, eru auk
Bandaríkjanna og S-Vietnam,
Ástralía, Nýja Sjáland, Thailand,
SuðuT Kórea og Filippseyjar.