Morgunblaðið - 17.04.1968, Side 31

Morgunblaðið - 17.04.1968, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1908 31 Reytingsafli sunnanlands TALSVERÐUR afli barst á land í verstöðvunum sunnanlands yf- ir páskana, en þar var mikið um tveggja nátta fisk að ræða og því varla hægt að tala um páska hrotu að þessu sinni. Litlar birgðir af salti eru fyrir hendi í verstöðvunum á Suðurnesjum, en von er á saltskipi í byrjun næstu viku. V estmannaey jar Reytingsafli hefur verið hjá Vestmannaeyjabótum að undan- förnu, en þó hefur afli verið mjög misjafn. Netabátar hafa afl að sæmilega, en tregara hefur verið hjá trollbátum. Afli hefur komist upp í liðlega 1000 tonn í dag í Eyjum Og í gær voru bátar með frá 20-60 tonn, en margir voru ekki væntanlegir fyrr en seint í gærkvöldi. Grindavík Síðustu dagana hafa Grinda- víkurbátar aflað vel og í fyrra- dag bárust 750 tonn þar á land úr 34 bátum. Mestan afla hafði Geirfugl, 51 lest, og er hann nú aflahæstur. Grindavíkurbáta með 1006 lestir. Arnfirðingur er með 836 lestir, Hrafn Svein- bjarnarson III með 816 lestir og Albert er fjórði með 812 lest- ir. Er allt útlit fyrir, að vertíð- in í ár verði betri en í fyrra, en þá var hæsti bátur með tæpar 1000 lestir í vertíðarlok. Flestir Grindavíkurbátar voru á sjó í gær. Sandgerði Fimmtán bátar lögðu upp í Sandgerði í fyrradag og var afl- inn þetta frá 1 Ms tonni og upp í 6%. Línubátar hafa ekki róið frá Sandgerði síðan á skírdag, vegna sunnan- og suðaustanstrekkings. í gærmorgun kom einn bátur til — Bronsið Framhald af bls. 30 ísl. liðið sió þarna gamalt og gott met, það að standa svo í Fnnum, að aldrei fyrr á Polar Cup móti hefur sigur Finna ver- ið minni en í þessum leik. Það met bættu svo Svíar í úrslita- leiknum. í 11 fyrstu mínúturnar stóð leikurinn í járnum og liðin skipt ust á um forystu og hafði fsland ÖHu betur. En slakur kafli í lok fyrri hálfleiks færði Finnum 16 stiga forskot við leikhlé 43:27. f síðari hálfleik var baráttunni haldið áfram og tókst ísl. liðinu mjög vel upp. Sýndu liðsmenn skínandi leikkafla og komu Finn um greinilega á óvart. Má ætla að þetta sé bezti landsleikur ís- lands í þessari grein og áttu all- ir leikmenn þar hlut að. Fór svo að síðari hálfleikur- inn varð íslands, þannig að for- skot Finna minnkaði um eitt stig og varð sigur þeirra 85:70 að lokum. Þarna höfðu ísl. leik- mennirnir allt að vinna, engu að tapa, léku yfirvegað og vel og sýndu sína beztu hlið. Stighæstir voru Þorsteinn 14, Einar Bollason 12, Birgir Jakobs son 11 og Birgir Birgis 9. ísland — Noregur 123:59. fslendingar höfðu þarna al- gera yfibrurði eins og hin liðin gegn Norðmönnum. Yfirburðir voru á öllum sviðum og vart ræðandi um leikinn sem slíkan. í hálfleik stóð 59:24. Stighæstir voru Einar 24, Birg ir Jakobsson 21, Kolbeinn 13. Þórir 12, Þorsteinr. 11. íslendingar sýndu og sönnuðu að þeir áttu bronsverðlaun skil- ið — og með leik sínum yfir- leitt (gegn Svíum undanskilið) að þeir eiga lið sem er nær því að fara upp í 2. sæti, en niður á við. Skortir mest háa menn og þyrfti að gera átaik í því að laða hávaxna menn að þessari skemmitilegu íþróttagrein. — A. St. Sandgerðis með 32 tonn. Nokkrir Sandgerðisbáta hafa lagt upp í Keflavík, og er afl- inn fluttur þaðan á bílum til Sandgerðis. Keflavík. Tuttugu og fjórir bátar lönduðu afla í Keflavík í fyrradag, sam- tals 320 tonnum af tveggja nátta fiski. Á laugardag fyrir páska lönduðu jafnmargir bátar í Kefla vík samtals 323 tonnum. Aflahæsti báturinn var Lóm- ur með um 30 tonn, en margir bátar voru með 20 tonn og þar yfir. Afli smærri bátanna var yf irleitt 12 til 15 tonn. Einn línu- bátur lagði upp í Keflavík, 7 tonn, en aðrir línubátar frá Keflavík hafa lagt upp í Sand- gerði og Grindavík, en aflinn ver ið fluttur á bílum til Keflavík- ur-, f gær var blíðskaparveður á miðunum og allir Keflavíkurbát ar á sjó. Akranes. Enginn Akranesbátur komst á sjó á laugardag fyrir páska vegna brælu, en í gær voru all- ir Akranesbátar á sjó. Þorlákshöfn Afli Þorlákshafnarbáta hefur verið góður og jafn í aprílmán- uði, en þaðan róa nú 7 bátar, 5 eru með net og tveir á trolli. Aflahæsti netabáturinn er kom- inn með 646 tonn. Á laugardag var afli Þorláks- hafnarbáta frá 11 og upp í 42 tonn, en í fyrradag lönduðu 14 bátar í Þorlókshöfn — aðkomu- bátar voru frá Reykjavík og Hafnarfirði — og var aflinn frá 9 tonnum og upp í 37 tonn. Allir Þorlákshafnarbátar reru í gær. Hornafjörður Heildarafli Hornafjarðarbáta fyrri hluta aprílmánaðar var 1544,7 lestir. Frá áramótum er aflinn þá orðinn 4,702 lestir í 395 sjóferðum, en var á sama tíma í fyrra 4,365 lestir í 401 sjóferð. A'flahæstur Hornafjarðabáta er nú Jón Eiríksson með 798,4 lestir, Gissur hvíti er með 760 lestir og Hvanney er með 720 lestir. í fyrradag lönduðu 6 bátar 198 lestum af tveggja nátta fiski í Hornafirði. — Breyting Framihald af bls. 1 Stjórnmálafréttaritarar í Saigon benda á, að þessir menn séu báðir sérfræðingar á sviði utanríkismóla og leiða getum að því að stjórnarbreytingin standi í einhverju sambandi við hugs- anlegar friðarviðræður við Bandaríkjastjórn. Á hinn bóginn segir í flokks- málgagninu „Nhan Dan“ í dag, að Bandaríkjastjórn reyni að fresta því, að viðræður hefjist. Áframhaldandi hernaðaraðgerð- ir Bandaríkjamanna hafi sýnt og sannað öllu mannkyni, að Bandaríkjamenn hafi ekki látið af árásarstefnu sinni. Megi líta á það sem sönnun fyrir því að þeir kæri sig ekki um friðar- viðræður og mikið skorti á góð- vilja þeirra, segir blaðið. — Munaði Framhald af bls. 10 mikill troðningur var að son- urinn minn, Andrew, var nærri troðinn undir. Urðum við að berast að næsta neyð- arútgangi, þar sem ég varp- aði Andrew út og fór svo sjálf á eftir honum. Rétt á eftir komu svo maðurinn minn og Kevin, hinn sonur okkar, en við fundum ekki Jacqueline". Seinna fannst lík SK0TMARK HATURSINS TILRAUNIN sem gerð var í síðustu viku til að ráða stúdentaleiðtogann Rudi Dutsohke af dögum í Vestur- Berlín hefur leitt til þess að margir stuðningsmenn hans hafa ráðizt á eignir og fyrir- tæki Springer-blaðahringsins og reynt hefur verið að stöðva dreifingu blaða Axel Spring- ers víða í Vestur-Þýzkalandi. Kiesingar kanzlari, Strauss fjármálaráðherra og fleiri ráð herrar Bonn-stjórnarinnar hafa bfugðið hart við í nafni laga og reglu og komið til varnar Axel Springer, sem er voldugasti blaðakóngurinn á meginlandi Evrópu. Strauss hefur sagt, að árásir stúdenta á Springer minnni á árásir nazista á Gyðinga fyrir þrjá- tíu árum. Allir þeir, sem.vilja breyta ríkjandi stjórnarháttum í Vestur-Þýzkalandi, líta á Springer sem tákn afturhalds í landinu. Springer á aðeins sjö af 160 dagblöðum og sunnudagsblöðum Vestur- Þýz'kalands, en útbreiðsla blaða hans nemur um það bil 40% af heildarútbreiðslu allra blaða í Vestur-Þýzkalandi og um 65—70% blaðanna í Vest- ur-Berlín. Axel Cásar Springer er 55 ára að aldri, metnáðargjarn og ágætur kaupsýslumaður. Hatur það, sem beinzt hefur gegn honum, á að miklu leyti rætur að rekja til þess að honum hefur tekizt það sem öðrum hefur ekki tekizt. Hann hefur til að bera óskeikult kaupsýsluvit og útsjónarsemi hans er einstök.Þrívegis hefur hann lagt aleigu sína að veði þvert ofan í ráðleggingar sam starfsmanna sinnna, en árang urinnn er líka só að blaðaút- gáfufyrirtæiki hans er orðið að stórveldi, og nemur velta þess árlega um 100 milljónum punda. Springer stjórnar fyrirtæki sínu eins og konungur ríki sínu, en hann neitar því að blöðin verði að lúta hug- myndafræðilegri yfirstjóm og birta aðeins skoðanir er sam- rýmist skoðunum hans sjálfs. Hins vegar hefur Springer mjög ákveðnar pólitískar skoð anir. Hann er innnilega trú- aður. herskár andstæðingur kommúnista og finnst hann hafi sérstöku hlutverki að gegna. Það kann að vera rétt, að hannn stjórni ekki þvi sem blöð hans segja, en hugmynd- ir hans berast rétta boðleið. Norður-þýzkur ritstjóri hefur látið svo um mælt, að hann spyrji alltaf sjálfan sig: „Hvað mundi Axt:l Springer gera“ á sama hátf og honum var kennt í æsku sinni: „Hvað hefði Jesús gert?“. Springer á dagblöð, sunnu- dagsblöð, kvennablöð og ungl ingablöð, en tvö áhrifamestu blöð hans eru Bild Zeitung (upplag: 4.6(10.000) og Die Welt (280.000). Sunnudagaút- gáfur þessara blaða eru Bild am Sonntag (2.700.000) og Welt am Sonntag (480.000). Bild Zeitung er í stíl við brezka blaðið Daily Mirror, prýtt fjölda mynda, fréttirnar stuttorðar og gagnorðar, fyrir sagnirnar suttar og hnitmið- aðar og ritstjórnargreinarnar örstuttar og tilfinnninga- þrungnar. Áhrif Bild Zeitungs Axel Springer. eru gífurleg, blaðið hefur neytt ráðherra til að segja af sér og þingið til að ræða mál sem það hefði annars leitt hjá sér og átt mikinn þátt í falli Erhard-stjórnarinnar. Enginn ráðherra, stjórnmála- maður eða stjórnmálaflokkur þorir opinberlega að mæla á móti Bild Zeitung. Fá önnur blöð í Vestur- Þýzkalandi en blöð Springers hafa stutt hinnn umdeilda fjármálaráðherra, Franz Josef Strauss, sem er sagður góður vinur Springers og ritstjóra Bild-Zeitung, Peter Bamnisoh Bild Zeitung styður de Gaulle samstarf Frakka og ÞjóðVerja og Franz-Josef Strauss. Það er frekar óvinveitt Bretum andvígt samningi um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna, svarinn fjandmaður kommún ista og afar vantrúað á minnk andi spennu í 'sambúð austurs og vesturs. Blaðið kallar sig „rödd þjóðarinnar“. og slag- orðakenndar fyrirsagnir þess hafa greypzt í hugum flestra Vestur-Þjóðverja. Prestur nokkur sagði nýlega um ferm ingarbörn sín að hugsanir þeirra mótuðust af Bild- Zeitung. , Á hinn bóginn er Die Welt, sem kallað er flaggskip Springerflotans, keypt af menntamönnum. Á undan- förnum árum hefur blaðið yfirleitt verið hægrisinnað, en örlað hefur á frjálslyndi svo að ekki er auðvelt að átta sig á því og kann það að staía af því að ritstjórar blaðsins séu sjálfum sér sundurþykk- ir. Die Welt hefur eins og öll önnur blöð Springers mikil áhrif, ekki sízt vegna þess að þau böð. sem lesin eru um landið allt, eru tiltölulega fá. í raun og veru ná aðeins brjú böð til landsins alls og tvö þeirra eru blöð Springers, Bild Zeitung og Die Welt (þriðja blaðið er Frankfurter Allgemeine Zeitung). Og eina blaðið sem almennra vin- sælda nýtur er Bild Zeitung, sem hefur engan keppinaut. En Springer-blöðin eiga sér harða andstæðinga. Áhrifa- mestu keppinautar hans eru Der Spiegel ,sem selt er í milljónaupplagi, og Die Zeit (300.000). frjálslynt vikublað, sem óhrætt lætur skoðanir sínar í ljós. Súddeutsche Zeitung, sem er vinstri sinn- að, er ágætt blað. og að lang- mestu leyti keypt í Bayern. Vikublaðið Stern hefur einn- ig gert harðar árásir á Spring er. En öll þessi blöð til samans geta ekki vegið upp á móti áhrifum Springer-blaðahrings ins, iafnvel þótt þau væru sameinuð. , Springer hefur haldið þvi fram, að útvarp og sjónvarp hafi miklu meiri áhrif en blöð hans. og auðvitað er mikið til í bví. Útvarp og sjónvarp eru ríkisfyrirtæki. Springer hefur sett sér það takm.ark að endursameina Þýzkaland og ..bjarga Berlín", en til þess að þvi takmarki verði náð kvaðst hann eitt sinn fús að leggja líf sitt í sölurnar. En raunalegt er hvernig hann hefur gert of mikið úr pólitízkum áhrifum sinum. Árið 1958 fór hann til Moskvu í þeirri bjargföstu trú að hann gæti talið Rússa á að sameina Þýzkaland. Til- raunin fór út um þúfur og það var þá sem Springer- blöðin tóku upp öfgakennda andstöðu gegn kommúnistum. Ginsburg-málinu vísað Irá í Sovét Moskva, 16. apríl. NTB. DÓMSTÓLL í sovétlýðveldinu Rússlandi vísaði í gær frá áfrýj unarbeiðni frá menntamönnun- um Ginsburg og Galanskov, en þeir voru ásamt tveimur öðrum dæmdir til þræikunarvinnu og fangelsisvistar þann 12. janúar dóttur þeirra í brunarústun- um. Eftir bráðabirgðarannsókn á flugslysinu var það haft eftir einum sérfræðinganna, sem að rannsókninni stóðu, að ef lendingin hefði dregzt um nokkrar sekúndur frá því sem var, mætti reikna með að flest allir sem í vélinni voru hefðu farizt. sl. og vöktu dómarnir mikinn úlfaþyt víða um heim. Þeir Ginsburg og Galanskov voru dæmdir til 7 og 5 ára þrælk unarvinnu á sínum tíma. Dubrov olsky hlaut tveggja ára fangels- isdóm og Vera Laskhova var dæmd til árs fangelsis. Hún hef ur nú verið látin laus. Hvorugur þeirra Ginsberg né Galanskov var viðstaddur er fjallað var um málið í dag, en ættingjar þeirra biðu í hliðar- herbergi eftir niðurstöðum dóms- ins. Ekki er vitað, hvort þeir hafa verið fluttir til þrælkunar- búða, eða eru enn í fangelsi skammt fyrir utan Moskvu. Fréttastofufregnum ber ékki saman um, hvort Vera Laskhova hafi verið viðstödd, segja sum- ar að hún hafi verið þar ásamt ættingjum hinna dæmdu, en aðr ar taka fram að hún hafi hvergi sézt. Blaðamenn fengu ekki aðgang að dómssalnum. Þá var tilkynnt í Moskvu, að þekktur sovézkur listmálari Bor is Birges hafi' verið rekinn úr kommúnistaflokknum, vegna þess að hann mótmælti dómnum yfir fyrrnefndum menntamönn- um. Fylgir fréttinni, að annar listamaður hafi fengið duglegar ákúrur fyrir sams konar „glæp“. Fyrr í þessum mánuði birti blað sovézkra listamanna í Moskvu frétt um, að margir listamenn hefðu verið útilokaðir frá starf- semi listamannasamtakanna, af því að þeir hefðu undirritað mót mæli gegn réttarhöldunum í jan úar. AUGLYSINGAR SÍMI SS*4*80

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.