Morgunblaðið - 27.04.1968, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRTL 190«
Verðum að Ijúka könnun á
aðild að EFTA fyrir áramdt
— Aðild íslands cð norrœnu tollabandalagi útilokuð
— sagði viðskiptamálaráðherra á blaða mannafundi
DR. Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðherra sagði á fundi með
fréttamönnum í gær, að hann
teidi óhætt að fullyrða, að ís-
lendingar gætu ekki tekið þátt
í Norrænu tollabandalagi og því
síður norrænu efnahagsbanda-
lagi. Sagði ráðherra, að ef til
þess kæmi að Norðurlöndin hin
mynduðu með sér slík viðskipta
handalög stæðum við íslending-
ar gagnvart miklu vandamáli og
væri því enn meiri nauðsyn að
kanna möguleika á inngöngu ís-
lands í Fríverziunarbandalagið.
Taldi ráðherra brýna nauðsyn að
ljúka þeirri könnun fyrir næstu
áramót.
Eins og kunnugt er var sam-
þykkt á fundi forsætisráðherra
Norðurlanda nú í vikunni að
skipa nefnd til að leggja fram til
lögur um myndun norræns tolla
bandalags. Sóttu fundinn fyrir
Lík finnst
i hofninm
LÍK fannst í Reykjavíkurhöfn í
gærmorgun og reyndist það vera
af Kristjáni Bernódussyni, 26 ára
til heimilis að Lönguhlíð 23, en
hann hvarf að heiman frá sér að
kvöldi 8. janúar sl.
íslands hönd dr. Gylfi Þ. Gísla-
son viðskiptamálaráðherra, dr.
Gunnar Thoroddsen, sendiherra
og Þórhallur Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóri og auk þeirra þing-
mennirnir, prófessor Ólafur
Björnsson, prófesSor Ólafur Jó-
hannesson, Sigurður Ingimundar-
son, efnaverkfræðingur og Magn
ús Kjartansson, ritstjóri.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason ræddi a
fundi sínum með fréttamönnum
þau viðhorf, er skapast hafa
vegna þessarar ákvörðunar Norð
urlandanna. Sagði dr. Gylfi, að
ljóst hefði verið að Norðmenn,
Svíar og Danir, sem allir hafa
sótt um aðild að Efnahagsbanda-
laginu, væru á einu máli um, að
mjög gæti dregizt á langinn, að
fá aðild þar að. Hefðu Danir lagt
á það áherzlu að vinna bæri því
að norrænni lausn, og væri þar
verið að taka upp þráðinn frá því
fyrir tíu árum. Norðmenn væru
frekar hikandi, en teldu þó ó-
maksins vert að kanna málið.
Sagði ráðherra, að hik Norð-
manna stafaði mjög af því, að
landbúnaður þeirra væri ekki
fær um að keppa við hinn
danska.
Aðalverkefni hinnar nýskipuðu
sérfræðinganefndar er að leggja
fram tillögur um norrænt tolla-
bandalag. Þá er einnig meining-
in að kanna, hvernig efnahags-
| bandalag Norðurlanda liti út, þar
]sem mótuð væri sameiginleg
| efnahagsstefna líkt og í Efna-
'hagsbandalaginu, en ekki ein-
göngu um að ræða samvinnu um
tolla eins og hjá Fríverzlunar-
bandalaginu. í þriðja lagi er hug
myndin að kanna möguleika á
að stofnsetja norrænan fjárfest-
ingarsjóð,, sem fjármagnaði nor-
rænar framkvæmdir. Sagði við-
skiptamálaráðherra, að slíkur
sjóður yrði að miklu gagni fyrir
íslendinga, enda hefðum við á-
samt Finnum verið fúsastir til
Áð stofna slíkan sjóð. Svíar væru
hins vegar tregastir, enda kæmu
þeir til með að leggja meginfjár
magnið í slíkan sjóð.
Ekki er búið að taka neina
! pólitíská ákvörðun um þessi mál
og verður það ekki gert fyrr en
: niðurstöður liggja fyrir.
Ráðherra kvaðst vilja leggja
á það áherzlu, að hann teldi ó-
hætt að fullyrða, að við gætum
ekki tekið þátt í tollabandalagi
eða efnahagsbandalagi Norður-
[landa. Væri skýringin sú, að á
milli íslands og _ hinna Norður-
,landanna væri ísland hálfu á-
: berandi skortur á viðskiptalegu
gagnkvæmi, hvað þetta snerti.
Það væri meginatriði í aðila að
tollabandalagi, að þjóð fengi á-
líka hagræði af dvöl sinni þar og
Frarrlhald á bls. 31.
Frá slökkvistarfinu.
Goldberg lætur af starfi aoaifuiltr.
Við tekur George Ball, fyrrum
aðstoðarutanríkismálaráðherra
Tjón í „Grillinu" ekki
undir 700 þúsund kr.
— segir Konráð Guðmundsson
eftir brunann í fyrradag
Washington, 26. apríl AP-NTB
ARTHUR J. Goldberg, aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, hefur
fengið lausn frá því starfi af
einkaástæðum og er talið, að
hann muni snúa sér á ný að
málflutningsstörfum. John-
son Bandaríkjaforseti til-
kynnti þetta á fundi með
fréttamönnum og sagði þá
jafnframt, að Ge>orge W.
Ball, fyrrum aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
hefði verið skipaður í stað
Goldbergs. Samkvæmt ósk
Johnsons mun Goldberg
gegna aðalfulltrúastarfinu
áfram, þar til í júní.
Afsögn Arthurs Goldbergs
kom ekki á óvart, þar sem vitað
hefur verið um nokkra hríð, að
hann hefði hug á að snúa sér að
málflutningsstörfum og draga
sig út úr opinberu stjórnmála-
vafstri. Goldberg var verkaiýðs
málaráðherra í stjórn John F.
Kennedys, og síðar dómari við
Hæstarétt Bandaríkjanna. John
son forseti skipaði hann aðal-
fulltrúa landsins hjá SÞ, að
Adlai Stevenson látnum árið
1965.
Johnson forseti kvaðst á fund-
inum með fréttamönnunum
harma afsögn Goldbergs, en
sagði, að Goldberg hefði fall-
izt á að gegna embætti
fram í júní. Jafnframt lét
forsetinn þess getið, að Gold-
bergn hefði fullvissað sig um,
að stjórnin mætti reiða sig
á fulltingi hans og ráðleggingar,
ef þeirra yrði óskað. Talið er
víst ,að Goldberg muni taka þátt
í samningaviðræðum við full-
trúa Norður-Vietnam ,ef sam-
komulag næst milli Bandaríkja-
manna og stjórnarinnar í Hanoi
um friðarviðræður.
Blaðið The Daily News sagði
í gær, að þótt vitað hefði verið
lengi, að Goldberg vildi draga
sig í hlé, hefði honum fundizt
Johnson ganga fram hjá sér, er
hann skipaði þá Averill Harri- j röðum embættismanna í Was-
mann og Cyrus Vance sem sér- I hington. Hann hefur lengi verið
lega samningamenn fyrir hönd þess hvetjandi að reynt yrði að
Bandaríkjanna. I binda enda á Vietnamstyrjöld-
Skipu George Ball í embætti ina eftir að hann lét af störf-
aðalfulltrúa -vakti mikla furðu Framhald á bls. 31.
Arthur Goldberg
ÉG geri ráff fyrir því aff kostn-
affur viff viffgerð á eldhúsi og
kaup á nýjum tækjum verffi
aldrei undir 600 til 700 þúsund
krónum, sagði Konráff Guffmunds
son, hótelstjóri Hótel Sögu í viff-
tali viff Mbl. í gær. Grilliff mun
og verffa óstarfhæft í um viku
tíma, aff minnsta kosti vonum viff
aff um lengri töf verffi ekki aff
ræffa.
Konráð skýrði frá því, að tölu
vert miklar skemmdir hefðu orð-
ið í Grilleldhúsinu og skemmdust
eina mest loftræstingarbólkar frá
eldhúsinu og einanjgnun í þaki
hússins o girafmagnsáhöld í eld-
húsi skemmdust mikið. Konráð
taldi það mjög hafa bj'argað hús-
inu, hve slökkviliðsmenn votru
gjörkunnugir öll'um hús'akynn'um
enda höfðu þeir nýlega skoðað
húsið. Þeir skoða allar stórbygg-
ingar í Reykjavík árlega.
Edurinn kom upp um kl. 13.30
á fimmtudag, sagði Gústaf Guð-
jónsson Mbl. í gær, sem er varð-
stjóri í slökkviliðinu. Við sáun>
er eldurinn kviknaði og vorum
þegar komnir út í bílana, er
hringt va.r og tilkynnnt um brun
ann og logaði þá í þili að baki
grillofns.
Slökkviliðið vissi af kunnug-
leika á aðstæðum, hvert eldurinn
svalir og upp á efstu plötu húss-
ins, sem er um met.ri á kant og
þar stóð eld'urinTi út um rimla á
loftræstiopi. Stigi hafði verið
reistur upp við bygginguna, sem
súlnasalurinn er til húsa í og
voru slöngur hífðar upp þaðan.
Gústaf tjáði Mbl. að með því
að opna loftræstiopið á þakinu
'hefði allur reykur komizt út og
vairð slökkviliðinu þannig mun
hægara um vik. Eldurinn komst
aldrei á mjög stórt svæði og tókst
að sækj.a að honum frá þremur
stöðum. Tók slökkvistarfið á
aðra klukkkustund, en slökkvilið
ið varð að vera á verði nokkru
lengur, þar eð eldur hafði kom-
izt í einangrun.
— Mér finnst hafa tekizt giftu-
samlega að ráða niðuirlögum
þessa elds, sagði Gústaf í viðtali
við Mbl. Vel stóð á hjá okkur, þar
eð heil vakt var á reykæfingu um
100 metra sunnan við slökkvistöð
ina, ásamt norskum þjálfara, sem
hér er nú. Þ,eir voru strax kvadd
ir á staðinn og á fyrstu mínútun
um voru alls 55 slökkviliðsmennn
komnir á brunastað, sem teljast
má til tilviljana. Ræður miklu, er
svo margir koma á staðinn á
fyrstu au'gnablikum brunans. Þá
er ómetanlegt að allár vabtir
kynna sér staðháttu í Hótel Sögu
Franska bóka-
sýningin áfram
FRÖNSKU bókasýningunni í
Bogasal Þjóðminjasafnsins átti að
ljúka í gærkvöldi, en vegna góðr
aa* aðsóknar verður hún nú opin
til sunnudagskvölds.
Stór vöruflutningabifreiff fór út af veginum skammt fyrir ofan Lækjarbotna í gærmorgun.
Enginn hægffarleikur var aff ná bifreiðinni upp á veginn aftur og þurfti til þess tvo kraftmikla
bíla. (Ljósm. Þ.H.)
myndi leita og var því farið út á árlega, en svo er og um fleiri stór
...........................hýsi hér í bæ.
Vormót I
Hlégarðí
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kjós
arsýslu halda árlega vormót í
Hlégarffi í kvöld kl. 21 og hefst
þaff meff ávarpi f jármálaráffherra.
Ýmislegt verffur þarna til
skemmtunar, s.s. skemmtiþáttur
Ragnars Lár og hinir vinsælu
Kátu félagar munu leika fyrir
dansL
Þessi vinsælu vormót hafa ver
iff haldin um árabil, ýmist aff
Félagsgarffi í Kjós effa aff Hlé-
garði í Mosfellssveit. Aff venju
eru allir í sýslu og utan velkomn
ir á þetta vormót sjálfstæffis-
manna.