Morgunblaðið - 27.04.1968, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1968
'O/&0
Rauðarárstíg 31
Sími 22-0-22
MAGIMÚSAR
ISKIPHOLTI 21*SÍMAR 21190
eftirlokurrsimi 40381 ””
w ^ s.m. 1.44.44
Hverfisgötu 103.
Sími eftir iokuu 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurúur Jónsson.
BÍLALEIG4N
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRALT
NÝIR VW 1300
SENDUM
SÍMI 82347
Sparið fé
og fyrirhöfn
Daggjald 300 kr. 3 kr. pr.
km.
Bílaleigan BRAUÍ
Hringbraut 93, Keflavík.
Sími 2210.
Skolphreinsun
Losa um stífluð niðurfalls
rör. Niðursetningu á brunn-
um. — Smáviðgerðír. Vanir
menn. Sótthreinsum að
verki loknu. — Sími 23146.
★ Kynning á sjón-
varpsþáttum
„Kæri Velvakandi!
Mig langar að koma á fram-
færi í dálkum þínum málefni,
er varðar Sjónvarpið.
Það er sú undarlega ráðstöf-
un að birta ekki í skrám sín-
um efni allra þátta, t.d. Á önd-
verðum meiði og Á blaða-
mannafundi. Þar er aldrei get-
ið efnis þáttanna, en þess alltaf
getið, hver umsjónarmaður
þáttarins er, þótt gera megi
ráð fyrir, að flestir sjónvarps-
áhorfendur/heyrendur séu því
gerkunnugir, hverjir þeir 'eru.
Mér finnst, að allir sjón-
varpsáthorfendur/heyrendur
eigi sk'' 'isa kröfu til þess að
vita efni allra þátta fyrirfram,
a.m.k. geta kynnt sér efni
þeirra í dagblöðum samdæg-
urs. Það gerir Útvarpið sem
betur fer.
'A' Óþolandi
kartöflusala
Einnig vil ég nefna, að
öþolandi er, hvernig ríkisvald-
inu leyfist einkasala á kart-
öflum; fyrir skömmu varð ég
að fleygja ca. 80% úr 5 kilóa
poka, og meðalrýrnunin er lík-
lega 20-25%, að öllu jafnaði.
ARGUR".
★
— Velvakandi heldur, að
dagskrá útvarps og sjónvarps
sé prentuð með viku fyrirvara,
og þar sem umgetnir þættir
fjalia oft um „há-aktúelt“ efni,
getur verið erfitt að ákveða þá
og útvega þátttakendur með
löngum fyrirvara. Hins vegar
mætti kynna þættina til hlítar,
um leið og þeir eru ákveðnir,
a. m. k. degi fyrir flutning, svo
að áhorfendur-hlustendur viti
deili á þeim fyrirfram.
— Um kartöflurnar getur
Velvakandi sagt hið sama, og
segist t.d. kona hans aldrei
fleygja undir 20% úr hverjum
poka, en oftast allmiklu meira
magni.
-Ar Gunnhildur
og áheitið
Helga Jónasardóttir frá
Hólabaki skrifar:
„Einhver „collega" minn á
Vífilsstöðum, Guðlaugur Gisla-
son að nafni, segist hafa heitið
á Gunnhildi okkar — og hafi
hún brugðizt vel við.
Mjög trúlegt, — kerla vill
áreiðanlega ekki vera staðnum
til skammar. Ekki þekki ég til
ættar hennar, en kannast vel
við kerlu eftir 10 ára dvöl
þarna. En nú hefur hún hvísl-
að í eyra mér, hvernig hún
vilji ráðstafa þessu fé.
Furðu gott bókasafn er á
Vífilsstöðum, þegar miðað er
við efnaleysi þess og lítið hús-
rúm. Vann ég við það hartnær
10 ára skeið, og skorti þar til-
finnanlega tvennt: Húsrými og
var ekki gott við að gera, þar
eð ávallt biðu fleiri sjúklingar
en að komust, svo að ekki
dugði að skerða annað hús-
rými. En fagna mundi ég þeim
degi, er ég frétti, að raknað
hefði úr því. í öðru lagi bag-
aði okkur ávallt féleysi sem
önnur fámenn lestrarfélög.
Ég held, að Gunnhildi kerlu
fyndist því tilvalið að gefa safn-
inu umrætt áheit. Þá kemur það
að góðum notum á þágu allra
vistmanna.
Með kveðju til míns éþekkta
„collega“, Guðlaugs.
Helga Jónasardóttir
frá Hólabaki.
— nú
á Reykjalundi‘“.
Dýrasta
páskaeggjapúta
„Kæri Velvakandi!
Þannig er mál með vexti, að
ég keypti páskaegg handa dótt-
ur minni, sem ég álít, að flest-
ir foreldrar hafi gert fyrir börn
sín.
Eggið var frekar lítið og
kostaði 76.80 kr.
Síðan rennur upp sú stóra
stund, að eggið skuli opnazt.
Eftirvænting ríkir, er eggið
brotnar, — hvað skyldi vera í
því? Jú, út úr egginu velta
tvær kúlur, (sem einu sinni
voru kallaðar tíuaurakúlur), 2
stk. súkkulaði-vindlar (einu
sinni á 25 aura), 2 stk. kon-
fektmolar (sennilega ódýrasta
framleiðsla) og síðast málshátt
urinn, sem ekki má gleyma:
DYGGÐ ER GULLI DÝR-
MÆTARI.
Að gamni mínu vó ég eggið.
Súkkulaðið, sem í egginu var,
var 115 gr., innihald 30 gr.
samanlagt 145 gr. Mér varð að
orði: Eitthvað hljóta mennirn-
ir að græða: Nú langar mig til
að vita, hver eftirlit hafi með
slíkri framleiðslu, og þá sér-
stáklega verðinu, því að ekki
get ég gert að því að eggið
fannst mér dýrt í meira lagi.
Erum við varnarlausir gagn-
vart slíkri framleiðslu? Ekki
er miði með egginu, sem á
stendur, hvað í því er. Það
mætti segja mér, að það væri
hollt fyrir framleiðendur að
læra málshættina, sem þeir
setja í þessi egg, svo sem
DYGGÐ ER GULLI DÝR-
MÆTARI — eða kannske það
sé okkar, sem kaupum þessa
framleiðslu, að hugsa um
málsháttinn (lítið er betra en
ekki neitt).
Sigurður Jóhannsson".
Taimlækningaslofa
Nálægt Miðborginni er til leigu tannlækningastofa
í fyrsta flokks ástandi, búin fullkomnum tækjum.
Upplýsingar gefur
BERGUR BJÖRNSSON, IIDL.,
Óðinsgötu 4 — Sími 20750
kl. 10—12 og 13—15.
Kennaraskólakórinn 1968.
SAMSÖNGUR
í Austurbæjarbíó sunnudaginn 28. apríl kl. 3 e.h.
Stjórnandi Jón Ásgeirsson.
Aðgöngumiðasala eftir kl. 4 á laugardag og
kl. 1—3 á sunnudag.
GILDIR ENNÞÁ
r \ *K *
| föt kr 70 oo ; A0U» Kt 1 >0 90 JAKKI KR 40 00 AOU» K» 41 00 • BUXUR KR.35.OO i AOUI KI ‘ 1013 S
i
Öska eftir
Volkswagen árg. ’60—’65 gegn staðgreiðslu,
ekki rúgbrauð.
BLIKK og STÁL H.F.
Grensásvegi 18 —- Sími 36641.
V erkstæðishúsnæði
óskast um 100 til 150 ferm. — INNKEYRSLA.
Kaup koma til greina. Sími 81075 eftir kl. 1 e.h.
KJÖRSKRÁ
til kjörs forseta íslands, sem fram fer 30. júní n.k.,
liggur frammi almenningi til sýnis i Manntaisskrif-
stofu Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
kl. 9 — 17 alla virka daga nema laugardaga frá
30. apríl til 27. maí n.k. Kærufrestur er til
8. júní n.k.
Reykjavík, 26. apríl 1968.
Borgarstjórinn í Reykjavík.