Morgunblaðið - 27.04.1968, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUii 27. APRIL 1968
7
Sandlóan er komin i fföruna
Og enn gengum við niður
í fjöruborðið til að fylgjast
með ferðum farfuglanna,
hinna vængjuðu vina okkar.
Það var að kvöldi sumardags
ins fyrsta. — Eilítið þótti okk
ur hann svalur, en fegurðin
á hauðri, hafi og himni eins
og mildaði kuldann.
í vestri seig sólin við Suður
nes, eins og rauð kringla,
hægt og hægt, n-eðar og neðar,
unz hún hvarf í djúpið vest-
an við Snæfellsjökul, sem
trónaði þar í blámóðunni og
kvöldroðanum, — eins og risi
á verði, — með gignum
fallega, þeim hinum sama, sem
Jules Verne lætur Arne Sak-
numsen klífa niður í á leið
hans niður í iður jarðar eins
og segir í bókinni frægu:
Leyndardómar Snæfellsjök-
uls.
Skerin bar svört við sjóinn,
allgáraðan og blýgráan. Heill
Heiðlóuihópur-, sjálfsagt nær
hundrað lóur-, sat í fjöruborð
inu, og rétt í jaðri hans, sáum
við nýjastg gestinn í hópi far
fuglanna að þessu sinni, hina
smáfríðu Sandlóu (Charadri-
us Hiaticula -L) ).
Þær voru þarna þrjár, kát-
ar og hressar, og virtust ekk
ert hafa orðið meint af volk-
inu. Sand'lóan er skemmtileg
ur fugl, og margur maðurinn
minnist með gleði og kæti,
Sandlóan litla og fagra er komin til landsins.
þegar honum verður hugsað
til ferða hennar á sumrin, —
þegar hún‘ reynir að beina
athygli vegfarenda frá ung-
um sínum og eggjum, hvern-
ig hún barmar sér, — lafandi
vængjum þýtur hún um fjör
una, og stélið eins og sópar
fjörusandinn, en ámátlegt
kurr, gefur hún frá sér.
Og nú er hún komin, bless
uð litla sandlóan fríða, mætt
til að gleðja alla þá íslend-
inga, og þeir eru margir, og
þeim fer ört fjölgandi, sem
yndi hafa af náttúruskoðun,
og þá ekki sízt hinu yndislega
fuglalífi landsins.
— Fr. S.
FRÉTTIR
Kvenfélagið Hrönn
heldur fund miðvikudaginn 1.
maí að Bárugötu 11 kl. 8.30. Haf-
liði Jónsson kemur á fundinn og
talar um garðyrkju og svarar
fyrirspurnum.
Kvenfélag Lágafellssóknar
Aðalfundur haldinn að Hlégarði
fimmtudaginn 2. maí kl. 8.30.
Happdrætti
Dregið hefur verið í skyndihapp
drætti Nemendasambands Hús-
mæðraskólans á Löngumýri. Upp
komu þessi númer: 597 (garð-
stólasett), 746 (bangsi). Upplýs-
ingar í síma 400042.
Kristileg samkoma
í samkomusalnum Mjóuhlíð 16
sunnudagskvöldið 28. apríl kl. 8.
Verið hjartanlega velkomin.
Kristniboðsfélag karla
Fundur mánudagskvöld kl 8.30.
Umræðuefni: Endurkoma Jesú
Gísli Guðnason. Allir karlmenn
velkoronir,
Filadelfia, Reykjavík
Almenn samkoma sunnudaginn
28. apríl kl. 8 Ásmundur Eiríks-
son talar. Tveir ungir menn
flytja stutt ávörp. Pjölbreyttur
söngur. Safnaðarsamkoma kl. 2.
Kvenfélag Neskirkju
hefur kaffisölu í Félagsheimilinu
til ágóða fyrir starfsemi sína,
sunnudaginn 5. maí að aflokinni
guðsþjónustu kl. 3.
Æskulýðsstarf Neskirkju
Fundur pilta, 13—17 ára, verður
í félagsheimilinu mánudaginn 29.
apríl. Opið hús frá kl. 7.30, Frank
M. Halldórsson.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma sunnudaginn
28. apríl kl. 8.30. Allir velkomnir.
Ljósmæðraféiag íslands
heldur kaffikvöld mánudaginn
29. apríl kl. 9 í Ljósmæðraskól-
anum. Valgerður Guðmundsdótt
ir, fyrrverandi formaður, kvödd.
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk
Kirkjunefnd Kvenna Dóm,
kirkjunnar veitir öldruðu fólki
kost á fótaaðgerðum á mánudags
morgna kl. 9—12 í Kvenskáta-
heimilinu í Hallveigarstöðum.
Símapantanir í 14693.
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík heldur basar
og kaffisölu 1. maí í Lindarbæ
kl. 2. Vinsamlegast skilið munum
á basarinn sunnud. 28. og mánud.
Náttúrulækningafélag Reykja-
víkur heldur félagsfund í mat-
stofu félagsins Kirkjustræti 8
mánudaginn 29. april kl. 9 síð-
degis. Vignir Andrésson íþrótta-
kennari flytur erindi: Tauga- og
vöðvaslökun og almenn heilsu-
vernd. Veitingar. — Allir vel-
komnir.
Akranesferðir Þ. Þ. Þ.
Frá Akranesl mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík kl. 6 alla daga
nema laugardaga kl. 2 og sunnu-
daga kl. 9.
Skipadeild S.Í.S.
Arnarfeil fór í gær frá Flateyrí til
Rotterdam og Hull. Jökulfell lestar á
Norðurlandshöfnum. Dísafell fer í dag
frá Bíldudal til Vestmannaeyja. Litla-
fell fer í dag frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja. Helgafell er á Sauðár-
króki. Stapafell fór 25. þ.m. frá Reykja
vík til Þórshafnar og Akureyrar. Mæli
leil er i Gufunesi.
Hafskip hf.
Langá er í Reykjavík. Laxá er á
Akranesi Rangá er i Reykjavik. Selá
er i Reykjavík. Maroo er í Gautaborg.
Skipaútgerð Ríkisins
Esja fer frá Reykjavík á mánudag-
inn austur um land til Seyðisfjarðar.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum I
dag til Reykjavíkur. Blikur er á Norð
urlandshöfnum á austurleið. Herðu-
breið er á Vesturlandshöfnum á suður
leið.
Loftleiðir hf.
Bjarni Herjólfsson er væntanlegur
frá New York kl. 0930. Heldur áfram
til Luxemborgar kl. 1030. Er væntan-
legur til baka frá Luxemborg kl. 0200.
Heldur áfram til New York kl. 0300.
Þorfinnur karlsefni fer til Óslóar,
Gautaborgar og Kaupmannahafnar kl.
1930. Snorri Þorfinnsson er væntan-
legur frá Helsingfors, Kaupmannahöfn
og Ósló kl. 0130.
Flugfélag íslands hf.
Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Giasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:30 í dag. Væntan-
legur aftur til Keflavikur kl. 18:10 í
kvöld. Vélin fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:30 f fyrramálið.
Væntanleg aftur til Keflavíkur kl.
18:10 annað kvöld. Leiguflugvél Flug
félagsins er væntanleg til Reykjavíkur
frá Kaupmannahöfn Bergen og Fær-
eyjum kl. 22:30 annað kvöld.
Innanlandstflug:
í dag er áætlað að fljúga til: Akur-
eyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja (2
ferðír), Patreksfjarðar, ísafjarar,
Egvlsstaða og Sauðárkróks.
Skipaútgerð Ríkisins
Esja fer frá Reykjavík á mánudag-
inn austur um land til Seyðisfjarðar.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum i
dag til Reykjavíkur. Blikur er á Norð
urlandshöfnum á austurleið. Herðu-
breið er á Vesturlandshöfnum á suð-
urleið .
H.f. Eimskipafélag íslands
Bakkafoss fór frá Sauárkróki í dag
26. 4. til Odda, Kristiansand, Gauta-
borgar og Kaupmannahafnar. Brúar-
foss fór frá Reykjavík í fyrradag 25.
4. til Bíldudals, Flateyrar, ísafjarðar,
Glouchestor New York Cambridge og
Norfolik. Dettifoss fer frá Porkala i
dag 27. 4. til Kotka og Reykjavíkur.
Fjallfoss fór frá New York 17. 4. til
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá Ham-
borg 23. 4. til Reykjavikur. Gullfoss
er 1 Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá Kristiansand í gær 26. 4. til Ham-
borgar og Reykjavi-kur. Mánatfoss fór
frá Seyisfirði 25. 4. til Bremen, Lond-
on og Hull. Reykjafoss fer frá Rotter
dam í dag 27. 4. ti-1 Reykjavíkur. Sel-
foss fór frá New York í gær 26. 4. til
Reykjavikur. Skógafoss fór frá Akra-
nesi 25. 4. til Moss, Gautarborgar og
Hamborgar. Tungufoss fór frá Akur-
eyri 24. 4. til Gdansk, Gdynia, Vent-
spils og Kotka. Askja fer frá London
29. 4. til Leith og Reykjavíkur. Kron-
prins Frederik fer frá Reykjavik i
dag 27. 4. til Færeyja og Kaupmanna-
hatfnar. Havlyn fór frá Kaupmanna-
höfn 24. 4. til Rey-kjavikur.
(Sunnudagaskólar (
\ Sunnudagaskólar KFXJM og K k
1 í Reykjavík og Hafnarfirði í
/ hefjast í húsum félaganna kl. )
) 10.30. Öll börn eru hjartanlega \
i velkomin. i
i Hjálpræðisherinn ,
I Sunnudagaskóli kl. 2 e. h. — )
\ Öll börn velkomin. I
IHeimatrúboðið /
Sunnudagaskólinn kl. 10.30. — J
Öll börn hjartanlega velkomin. I
Sunnudagaskólinn, t
Mjóuhlíð 16, kl. 10,30. — Öll )
börn hjartanlega velkomin. 1
Fíladelfía i
Sunnudagaskólar hefjast kl. /
10.30 að Hátúni 2 og Herjólfs-1
götu 8. Öll örn velkomin. (
Sunnudagaskóli ,
kristniboðsfUaganna í Skip- 1
holti 70 hefst kl. 10.30. — Öll 4
börn velkomin. /
SUMARMÁL
Það heilsar nú sigrandi
sumar,
og sólskini, meyjar og gumar,
fagna með frjálslegum vilja,
en feigð sækir mjöll, —.vegna
bilja.
Ungir og aldnir nú vona,
að ei muni vetra til svona.
Til langframa ljóma hver
dagur,
svo lifni aftur sveitanna
hagur,
Sjómenn á sígrænum legi,
senn munu fagna þeim degi,
er störf þeirra leika í lyndi,
við lækkandi ra-stir, frá vindi.
Börnin þá bjartsýn sér leika
við blómin, þau akrana reika
og græða upp garðana sína,
við gamanið andlitin skina.
Aðrir þeir æða á bílum,
í allskonar skrautlegum
„stílum".
Með unnustur, konur og
krakk
og keppast til sólskyns að
hlakka.
Á síðasta vetrardag 1968.
Gunnar B. Jónsson
frá Sjávarborg.
Óska eftir kvöldtímum í almennri rökfræði. — Uppl. í síma 14283. Fasteignatryggð skuldabréf að upphæð kr. 250 þús. til sölu. Tilb. legg- ist inn á afgr. Mbl. merkt: „8538“.
Ford Zephyr ’63 i góðu standi til sölu. — Skipti á gömlum Willy’s koma til greina. Uppl. í s. 30244 eftir hádegi í dag. Óska eftir 2ja—3ja herb. íbú'ð á Ála- fossi. Tilboð sendist Mbl., merkt: „8886“.
Innanhússmíði Tek að mér smíði innrétt- inga og ýmsa innanhús- smíði. Ákveði'ð verð eða tímavinna. — Útvega allt efni. Uppl. í síma 31307. íbúð, raðhús eða einbýlishús 6— 7 herb. óskast til leigu. — Uppl. í sima 40182.
Vauxhall Velox árg. 1955 til sölu. Hentugur til niður rifs. Gangfær. Uppl. í sím- um 15647, 13699 eða 12799. Ford Fairlane 500 1964 til sölu. Skipti á góð- um jeppa koma til greina. Uppl. í síma 11088.
2ja—3ja herb. íhúð óskast fyrir 14. maí. Uppl. í síma 82175 eftir kl. 2 í dag og á morgun. Keflavík — H-ljós Hef flestar gerðir H-ljósa fyrir bifreiðir. Sími 1426, Hörður Valdemarsson, Keflavík.
Bíll, ódýr Til sölu Volga ’59 til stand- setningar eða níðurriifs. — Góð vél, dekk og undir- vagn. Þarfnast lagfæringar á boddíi. Uppl. í síma 40031 næstu daga. Atvinna Kjötiðnaðarmaður óskar eftir atvinnu í kjötbúð eða kjötvinnslu. Fleira kemur til igreina. Tilb. merkt: — „Kjötiðnaður 8887“ sendist Mbl. fyrir 30. apríl nk.
Veiðileyfi Veiðin við Loftsstaðaós er til leigu í sumar. Uppl. gef ur Kristján Jónsson, Skóla- völllum 10, Selfossi, sími 1282. Svartur hundur tík, hvít á hægri framlöpp, týnd. Hringið í síma 32699. Fundarlaun.
Stúlka úr 3. hekk Kvennaskólans óskar eftir atvinnu í sumar. Er vön verzlunarstörfum. Margt kemur til greina. Tilb. send ist Mbl. merkt: „Áhugasöm 8890“. Góð íhúð óskast Ung hjón, sem vinna úti, vilja taka á leigu 3ja—4ra herb. íbúð, helzt í Vestur- bæ. Góð umgengni og skil vísi. Sími 23033 kll. 1—5 laugardag og sunnudag.
Mótatimbur Til sölu notað mótatimbur 1x6 og 1x4. Einnig harð- viður og plankar, tilvalið í stillans. Uppl. í síma 33846. Húsnæði, um 140 ferm. fyrir skrifstofur eða hrein- legan iðnað, svo og geymsl ur, er til leigu í Garða- stræti 2. Uppl. í síma 17866
Keflavík og nágrenni Óska að ráða kvenmann til afgreiðslustarfa. Uppl. um aldur og fyrri störf leggist inn á afgr. Mbl. í Keflavík merkt: „Afgreiðslustarf — 1234“. Kjólföt sem ný á fremur stóran karlmann ásamt 2 vestum, skyrtu og hönzkum til sölu á Brávallagötu 16, ne'ðstu hæð.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Halló — Halló 10 ára nemendur Hús- mæðraskólans, Varmalandi Farið verður 12. maí. Þær sem ætla að fara, tilkynni þáttt. strax í s. 32620, 38624
Lögfræðingur
óskar eftir góðu starfi við sitt hæfi
Tilboð sendist Mbl fyrir 30. þ.m. merkt:
„Jus — 8889“.
íbúðir til sölu
2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir á góðum stað í Breið-
holti. Verða seldar tilbúnar undir tréverk, til af-
hendingar í jan. og febr. 1969. Beðið verður eftir
hiuta af húsnæðismálastjórnarláni.
SKIP OG FASTEIGNIR,
Austurstræti 18, sími 21735,
eftir lokun 36329.