Morgunblaðið - 27.04.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGITÁ 27. APRÍL 1&68 11 irnir eru á hinn bóginn lin- ari á þessu sviði, og þess vegna höfum við aldrei hætt á að skipta deildinni í karla og kvennadeild, erum hrædd ar um að það yrði ósköp lít- ið úr störfum hjá karlmönn- unum. Unglingarnir eru á hinn bóginn mjög áhugasam- ir og hafa starfað mikið fyrir deildina. Má í því sambandi geta þess, að aldursforseti skemmtinefndar sveitarinnar er um tvítugt, en aðrir nefnd armenn eru allir talsvert yngri. — Að hverju hefur deild- in á Eyrarbakka aðallega unn ið nú að undanförnu? — Við erum nú í þann mund að ljúka við björgunar skýli fyrir björgunarsveitina okkar og útbúnað hennar. Stendur skýlið skammt frá þorpinu, og við munum af- henda það núna á 45 ára af- mæli SVFÍ, en um áþekkt leyti á deildin okkar 40 ára afmæli, þannig að þetta er sameiginlegur áfangi. Skýlið er annars að mestu byggt yfir 12 manna björgunarbát, sem Landhelgisgæslan gaf sveit- inni okkar, en auk þess er þarna geymslurými fyrir all- an tækjaútbúnað sveitarinn ar Núna vinnum við að því gerð úr pólintien-efni og eru sömu stærðar og venjuleg teppi, en svo næfurþunn, að samanbrotin eru þau ekki stærri en venjulegur Pall Mall vindlingapakki. Tilraun okkar beindist að því að finna út, hvort þau veittu sömu hlýju og venjuleg ull- arteppi, og við komust að því, að maður gat legið klukku- stund og 20 mínútum lengur undir þessu teppi en undir ullarteppi. Var það einkum því að þakka að geimfara- teppin blotna ekki eins og ullarteppin. Þessi teppi eru bylting að því leyti, að venju lega hefur sex manna ieitar- flokkur aðeins tvö teppt með ferðis en nú getur hver maður haft sitt teppi. Hinsvegar höf um við ýmislegt við þessi geimfarateppi að athuga, því að okkur finnst þau ekki nógu breið né nógu löng. — Hefur komið verulega til kasta landbjörgunardeildar- innar á síðustu árum? — Við fengum okkar eld- skím fyrir fáeinum árum, er flugvél fórst á leið frá Norð- firði. Það var mjög viðamikil leit, sem þá fór fram, og út frá þeirri reynslu fórum við af færa ákveðin leitarsvæði inn á kort. Er gert ráð fyrir Elías Jónsson frá Höfn í Hornafirði ásamt konu sinni Odd- björgu Ögmundsdóttir, sem situr þingið sem fulltrúi kvenna deildarinnar í Höfn. að útbúa ullarföt handa 12 mönnum, sem við æltum að hafa um borð í björgunarbátn um, en næsta átak verður svo að fá ullarfatnað handa skips áhöfnum bátanna, sem róa að heiman. Ætlum við að hafa ullarföt þessi í plastpokum borð í bátunum, því að það er ekki nóg að mennirnir bjarg- ist í gúmbáta ef þeir krókna svo úr kulda. Gróa segir okkur að ekki hafi mikið komið til kasta deildarinnar á Eyrarbakka nú síðustu árin nema við leit- ir á týndu fólki. — Björgun- arsveitin er aðallega þjálfuð með tilliti til björgunar úr sjávarháska, en nú er unnið að því að fjölhæfa hana, bæði hvað lýtur að flugbjörg un og leit á landi af týndu fólki. Tilraunir með ný teppi Slysavarnardeildinni á Höfn í Hornafirði er tvískipt- — önnur er þjálfuð með til- liti til bjóbjörgunar, en hin til landbjörgunar. Eiríkur Eiríksson er formaður sjó- björgunardeilsarinnar, en E1 ías Jónsson er formaður hinn ar. Fengum við Elías til að segja okkur frá starfi deild- ar sinnar. — Við höfum æft land- björgun nokkuð í fyrrasumar fórum við á Fláarjökum til æfinga. Við gerðum þá jafn- framt tilraunir með svonefnd geimfarateppi, en þau eru að hvert svæði nægi fyrir sex manna leitarflokki til dag leitar. — Hvernig er með útbúnað deildarinnar? — Hún verður að teljast mjög vel búin tækjum. Við höfum þar notið góðrar fyrir- greiðslu frá Slysavarnarfé- lagini íslands og erum t.d. með alveg ný fluglínutæki, en gömlu tækin höfum við stað sett í svonefndri Austurfjör- unni. Þá höfum við umsjón með þremur skýlum og einu sæluhúsi á Lónsheiði reist var í samvinnu í deildina á Djúpa vogi. Loks má geta þess að við höfum fengið mjög full- kominn vatnabíl, sem án efa mun koma okkur að miklum notum. Bill þessi var í eigu kaupfélagsins í Höfn, og átti að nota hann til flutninga yfir fljótin fyrir austan, en ekki urðu not fyrir hann því að þarna var brúað litlu sið- ar. Fengum við þá bílinn með mjög góðum kjörum. Elías segir okkur að end- ingu, að félagar í deildinni á Höfn í Hornafirði væru mjög áhugasamir og gat þess, að á næstu jöklaæfingu, sem hald- in yrði í sumar kæmust vafa laust færri að en vildu. Seve Ljungman afhendir Jóni Nordal skjalið. Til vinstri stendur dr. Páll ísólfsson, fyrsti ís- lendingurinn, sem varð þess heiðurs aðnjótandi að vera kjörinn í akademiuna. (Ljósm. IM). Jón Nordol meðlimur sænsku músíkukndemíunnar FORSETI konunglegu sænsku mústkakademíunnar, Seve Ljung- man, hefur dvalizt hér undan- farna daga, en erindi hans hing að var m.a. að afhenda Jóni Nor dal, tónskáldi skjal sem sönnun þess að hann hafi verið valinn í músíkakamediuna. Hann var kjör inn meðlimur hennar 29. febr. síð astliðinn, samtímis Pablo Casals, hinum þekkta hnéfiðluleikara. Áður hefur einum fslendingi hlotnazt sú sæmd að vera kjör- inn meðlimur akamedíunnar dr. Páli ísólfssyni tónskáldi og fyrr- um dómorganista. Mbl. ræddi í gær stuttlega við Jón Nordal, sem sagði að þetta hefði komið sér mjög á óvart og sér þætti mjög vænt um þessa viðurkenningu. Kvaðst hann líta á hana sem viðurkenningu á ís- lenzkri tónlist yfirleitt. Ljungman afhenti Jóni skjal- ið síðasta vetrardag á heimili sænska sendiherrans. Viðstaddir voru nokkrir vinir Jóns svo og framámenn í tónlistarlífi. Einnig var viðstaddur dr. Páll ísólfsson. Sænska músíkakademian var stofnuð árið 1771 af Gúsrtafi III, sem var mikill áhugamaður um tónl. Músikakademíuna má telja meðal áhrifamestu stofnana 1 sænsku tónlistarlifi, en hún ann- ast bæði kennslu og er ráðgef- andi konungs. Félagar eru 120, þar af 40 útlendingar. Meðal þeirra sem sæti hafa átt í aka- demíunni má nefna Haydn og Beethoven, en nú eiga sæti þar m.a. Stnavinsky og Rubenstein. Kennaraskólmn heldur tónleika KENNARA SKÓLAKÓRINN 1968 heldur tónleika n.k. sunnu- dag kl. 3 e.h. í Austurbæjarbíó. Efnisskrá tónleikanna er þrí- þætt: ísl. þjóðlög í raddsetningu Sig- fúsar Einarssonar og kórstjór- ans. Lög frá 16. og 17. öld eftir Hans Leo Hassler, Crazio, Vecchi, Thomas Morley og Hein- rich Isaac, en þessum þætti lýk- ur með sálmalaginu Slá þú hjartans hörpustrengi eftir Bach. Þjóðlög og létt tónlist frá ýms- um löndum. Einsöngvari með kómum er Helgi Einarsson, en undirleik annast Jón Stefánsson á píanó, Eysteinn Jónasson og Snoiri Snorrason, báðir á gítar. Þetta er þriðja starfsár kórs- ins, en fyrsta skipti sem hann kemur fram á opinberum tón- leikum. Skólakórar eru æfðir í flest- um skóllum landsins, en oftast a'ðeins til að koma fram á skóla- skemmtunum. Það hefur hins Jón Ásgeirsson stjórnandi. Ljósmynd: Kr. Ben. vegar verið ætlunin frá upphafi að Kennaraskólakórinn starfaði sem fullgildur kór. T.d. er í ráðl að færa upp næsta vetur óper- una Mikdó eftir Gilbert og Sullivan. í því sambandi hvort hugsan- legt sé að korna upp góðum skóla kór, má benda á, að víða við skóla erlendis starfa mjög góðir kórar. Kennaraskólakórnum hefur verið sköpuð góð aðsta'ða, bæðii hvað snertir skilyrði til æfinga og kennslu. Nemendur fá kennslu í nótnalestri, tvo tíma 1 viku og einnig fá nokkrir sér- þjálfun i raddbeitingu, sem Guðrún Sveinsdóttir annast, en í viðbót við þetta eru svo kór- æfingar tvisvar á viku, allan vet- urinn. í kórnum eru um 80 nem- endur og lýsir það nokkuð á- huga nemenda á söng. Stjórnandi Kennaraskólakórs- ins er Jón Ásgeirsson, tónskáld. Miðasala að tónleikunum verður í Austurbæjarbíói á laugardag eftir kl. 4 og á sunnudag kL 1—3 e.h. Kennaraskólakórinn á söngæfingu fyrir tónleikan a. Jón Ásgeirsson stjómandi er við flygilinn. g*!SSil & ^ 4 L jSSKí ■ fSÍ L jfl jfln^ i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.