Morgunblaðið - 27.04.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUA 27. APRÍL 1968
17
v • • " . • ' *
Er stjðrnarandstöðulaust lýðræði grundvöllur upplausnar?
fslenzkir stúdentar í Vestur-
Þýzkalandi láta í Ijós álit sitt
á ðeirðunum þar
MORGUNBLAÐIÐ hefur
haft tal af íslenzkum stúd-
entum í Þýzkalandi og spurzt
fyrir um óeirðirnar meðal
stúdentanna þar og um álit
Islendinganna á þeim. Allir
þeir, er spurðir voru, álitu
málin flókin og töldu enga
eina ástæðu vera fyrir ó-
eirðunum. Skiptu menn
ástæðunum aðallega í þrennt.
F.in er, að háskólakerf-
ið er að áliti margra
s údentanna gamalt orð-
ið einnig sögðu þeir póli-
tískar ástæður liggja fyrir lát
unum og nefndu þeir þá jafn
an Axel Springer sem póli-
tiskan ásteitingarstein, en
einnig kom fram að um van
stillingu meðal hins unga
fólks gæti verið að ræða.
Þórður Vigfússon
Fyrst hittum við að máli
Þórð Vigfússon, sem leggur
stund á verkfræðinám í Ber-
lín. en hann sagði:
Óeirðirnar eiga sér lang-
an aðdraganda. Ég minnist
þess að þegar Humphrey vara
forseti Bandaríkjanna kom til
Berlínar mótmæltu stúdentar
Vietnamstríðinu. Tel ég lík-
legt að sömu eða svipaðir
hópar hafi staðið að óeirðun-
Ein ástæðan fyrir óeirðun-
um er skólakerfið sem margir
telja úrelt. Mál það hefur
verið lengi á döfinni og verð
ur alltaf. Stúdentum finnst
prófessorarnir allt of mikil
goð á stalli og vilja frjáls-
ari samskipti þeirra við stúd
enta.
— Ekki alls fyrir löngu
kom Persakeisari til Berlínar
í opinbera heimsókn. Þá var
farið í mótmælagöngur og gerð
ist þá sá atburður, að lög-
reglumaður skaut einn stúd-
entinn og lézt hann af sárum
sínum. Lögreglumaðurinn
hafði verið hrakinn í horn af
manngrúa og til þess að ögra
fólkinu tók hann upp byssu.
Skot hljóp úr henni og lenti
í einum stúdentinum. Álit
manna í Þýzkalandi á þessum
atburði er æði misjafnt Sum-
ir segja að lögreglumaðurinn
hafi skotið hann viljandi, aðr
ir að þetta hafi verið slys
og enn aðrir að lögreglumað-
urinn hafði skotið í sjálfs-
vörn. Eitt er víst, að er lög-
reglumúðurinn var sýknaður
af að hafa myrt manninn,
hleypti það illu blóði í rót-
tæka stúdenta. Atburður þessi
gerðist við óperuna í Berlín
2. júní síðastliðinn
— Að öðru leyti hefur ver
ið hálfgerð skálmöld í Þýzka-
landi í þessu tilliti undanfar-
in tvö ár og hafa menn alltaf
öðru hverju verið að mót-
mæla. Fyrst eftir slysið eða
hvað maður skyldi kalla það
varð mikil ólga. Próf-essorar
og stúdentar söfnuðust þá
saman á Kúrfurstendamm og
ræddu málin. Safnast þeir þar
saman og fara þar fram at-
mennar umræður milli fjölda
fólks, en allar opinberar mót
mælaaðgerðir voru þá bann-
aðar.
— Nú Axel Springer er
maður er fer í taugar átúd-
entanna. í Berlín á hann
m.a. 3 dagblöð og halda stúd
entar því fram að hann hafi
of mikil áhrif á skoðanamynd
un fólks og segja að blöð hans
berl fram of einhliða sko-ðan
ir. Telja þeir það mikinn á-
byrgðarhluta að einum manni
sé falið svo mikið vald, en ég
tel þó að andstaðan gegn
Springer sé sérstaklega mik-
il vegna þess að blöð hans
hafa ráðizt gegn stúdentun-
um og kallað þá öllum illum
nöfnum. Persónulega hef ég
ekki mikið álit á þessum blöð
um, en þau seljast vel eins og
títt er um æsifregnablöð
— Mörg æskulýðsfélög eru
aðilar að óeirðum þessum.
Einna mest ber á SDS —-
samtökum sósíalistiskra stúd-
enta, en sá félagsskapur er
mjög róttækur. Rudi Dut-
schke, sá er reynt var að
myrða um daginn er áhang-
andi þessum félagsskap.Hann
er 28 ára gamall Austur-Þjóð
verji er ætlaði að gtúdera í-
þnóttablaðamennsku, en flýði
Erlendur Haraldsson
vestur yfir eftir að hann hafði
fengið fyrirskipun um að
gegna herskyldu. Var honum
þá meinað að halda námi
sínu áfram. Hann er nú kvænt
ur bandarískri konu og á
einn son og var, er skotið
var á hann, að ljúka doktors-
ritgerð í þjóðfélagsfræðum.
Kona hans stundar nám í
guðfræði. Dutschke hefur ver
ið kallaður hugmyndafræðing
Stúdentar mótmæla og bera rauðan fána.
I.ögreglan sprautar vatni að æstum múg.
ur SDS, hefur lagt þeim lín
urnar.
—Ég álít að þessir stúdent
ar, sem þátt taka í óeirðunum
hafi margir hverjir misst sjón
ar á eiginlegu markmiði sínu
og einn er kannski að berjast
fyrir sínum hugsjónum á með
an annar befst fyrir allt öðru
Bairáttumálin eru mörg og
þeim ægir saman. Þá hefur
mér virzt áberandi, hve við-
brögð roskins fólks hafa ver-
ið andsnúin þessum ungu
mönnum og konum. Fólkið,
sem man Hitlerstímann hræð-
ist þetta og leggur á það
ríka áherzlu, að innsta ósk
þess sé friður. Hve mikill
hluti stúdenta tekur þátt í
þessu er og ekki vitað, sagði
Þórður að lokum.
Næst töluðum við við Er-
lend Haraldsson, sem leggur
stund á sálfiræði í Múnchen.
Erlendur kvað ekki auðvelt
að svara því, hver væri or-
sök óeirðanna og ekki væri
unnt að gefa neitt eitt svar
við því. Málið væri flókið og
erfitt.
Erlendur kvað háskólakerf
ið þykja nokkuð gamalt og
ekki vel skipulagt. Einnig
lægju að baki óeirðunum ýms
ar pólitískar ástæður og fynd
ist stúdentunum flokkarn-
ir nokkuð fastir í skorð-
um, þannig, að jákvæðum
breytingum miðaði lítið
áfram. Ekki kvaðst Erlendur
vita um sannleikgildi þess,
en síðan sagði hann:
— Svo er þetta með Spring
er-blöðin. f reynd finnst mér
þau ekki sterkari en ýmsar
blaðasamsteypur í ýmsum öðr
um löndum og lítil ástæða til
þess að vera með sérstök ó-
læti þess vegna. Hér er út-
varp og sjónvarp. Springer
ræður hins vegar aðeins yfir
blöðum og eru áhríf hans því
ekki eins geysileg og stúd-
entarnir vilja vera láta. Mér
finnst þetta því svolítið út í
bláinn.
— Að ýmsu leyti finnst
mér um vanstillingu vera að
ræða meðal stúdentanna eða
ef til vill ofstæki. SDS — að
alsamtök stúdentanna, sem
að mótmælunum standa, eru
að sjálfsögðu mjög róttæk,
þótt ekki sé unnt að kalla
meðlimi þeirra kommúnista.
Mér finnst þeir oft og tíðum
tala ósköp út í bláinn. Mál-
flutningur þeirra er frasa-
og fullyrðingakenndur, sem
oft er vanhugsaður. Líta þeir
oft ekki á hlutina í réttum
hlutföllum, Alltaf má finna
eitthvað að einhverju allsstað-
ar, en þá verður að miða við
það hvernig kringumstæður-
nar eru og svo framvegis. Ef
við miðum aðstæður hér við
það sem er t.d. í Austur-
Þýzkalandi, sjáum við geysi-
legan mun, hvað snertir lýð-
ræðisleg réttindi.
— Gæta verður þess að
meirihluti meðal stúdenta er
ekki fylgjandi þessum óeirð-
um. Hér í Múnchen t.d. er
stjórn stúdentasamtakanna
andstæð þessum félagsskap,
sem að óeirðunum stendur.
Hins vegar eru meðlimir SDS
athafnasamastir, það ber
mest á þeim, þeir halda flesta
fundi og starfsemi þeirra er
sterkust. I Berlín eru þeir
sterkastir.
— Mikið er að sjálfsögðu
rætt um þetta. Sumir telja að
þetta sé mjög hættulegt og
ég myndi segja að það sé ekki
hættulaust og þó sérstaklega
þar sem jafnvægi í stjórn-
málum Þýzkalands hefur ver
ið öruggt og traust eftir stríð
ið að því er mér finnst. Nú
hinsvegar ekmur fram ein-
hver óstöðugleiki og það er
ekki gott. Tíminn sker úr því
hvort hér er um veikleika-
merki að ræða. Mér finnst
hins vegar vanta einhvern
pólitískan þroska meðal ungs
fólks, sem eldri kynslóðin
hins vegar hefur um sína
reynslu — ekki sízt firá heims
styrjöldinni. Þessi unga kyn-
slóð hefur hins vegar enga
reynslu af síðasta stríði.
Hún þekkir ekki Hitlerstím-
ann og Weimar lýðveldið, en
þegar rætt er um þetta verð-
ur jafnframt að hafa í huga
að hér er um lítinn minni-
hluta meðal Þjóðverja að ræða
Minnihluti þessi fer þó held-
ur stækkandi um þessar
mundir, að því er mér virð-
ist, en hvort það verður á-
firam veit enginn. Allir vona
að ástandið lagist að sjálf-
sögðu, sagðj Erlendur að lok-
um.
Indriði Þorláksson leggur
stund á hagfræði í Berlín.
Við spurðum hann sömu
spurninga og aðra stúdenta,
er við höfðum tal af. Indriði
taldi undirrót óeirðanna vera
m.a. pólitíska óánægju með
samsteypustjórn Kristilega
demókrataflokksins og Jafn-
aðarmannaflokksins. Mörgum
finnst, og þá sérstaklega stúd
entum, að stjórnarandstöðu
Framh. á bls. 19