Morgunblaðið - 27.04.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUU 27. APRÍL 1968
31
Lagos-stjórnin vill
hefja friðarviðræður
Lundúnum 26. apríl AP-NTB
SAMBANDSSTJÓRNIN í
Nígeríu hefur boðizt til að
hefja skilyrðislausar friðar-
viðræður við aðskilnaðarrík-
ið Biafra innan 1. maí, að
því er utanríkisráðherra
Nígeríu, Koi Arikpo, upplýsti
í Lundúnum á fimmtudag.
Arikpo sagði, að stjórnin í
Lagos mundi gjarnan vilja
hefja samningaviðræður und
- ÓEIRÐIR
Framhald af bls. 1.
dag: „Við stöndum nú andspæn-
is atburðum hér í landinu, sem
við höfum aldrei þekkt til áð-
lu-. Þeir eru dapurlegir og vekja
mönnum ugg.“
Skoðanakönmm, sem gerð var
í Bretlandi í gær sýndi, að 75%
almennings er fylgjandi því, að
innflutningur hörundsdökkra
verði 'tiakmarkáður að verulegu
leyti. Úrsli/t skoðanakönnunar-
ilnnar, sém birt er í „The Daiiy
Sketch“ sýnir ennfremur, að
75% óttast, að til kynþáttaóeirða
komi í Bretlandi á næstmmi,
nema innflutningur hörunds-
blakkra sé takmarkaður. 64%
telja, að hvetja eigi blökkumenn
með fjárstyrkjum til að snúa
aftur til síns heima.
— Frjálsíþróttarabb
Framh. af bls. 30
f haust er leið stóð ég og
horfði á Lindingóhlau/pið þar,
sem hlaupararnir höfðu lokið 18
km. af því. Víst mátti þá þegar
sjá, hve misjáfnlega hlaupararn-
ir voru undir raun þessa búnir,
og þá þegar var yfir klst. munur
á 1. og síðasta manni. Það
mátti glöggt sjó, að þeir, sem
síðastir vonu, reyndu ekki að
hlaupa hraðar en þeir höfðu
getu tii, en bað vantaði ekkert
á hlaupagleði þeirra, og hjálp-
samir voru þeir og hvatningar-
orð sendu þeir meðkeppendum
sínum meðan á hlaupinu stóð.
Þegar ég stóð þarna og horfði
á þennan, því er virtist enda-
lausa straum hlaupara á skógar-
stígnum, varð mér hugsað heim
til víðavangshlaups ok.kar ÍR-
inga, sem að vísu er ekki nema
10. hluti Lindingöhlaupsinis að
lengd, er. þrátt fyrir það sjaldn-
ast mjög fjölmennt. Væri það
ekki þess virði að setja sér það
sem takmark — setja það upp
sem fynsta manndómspróf allra
frískra fslendinga — að taka þátt
í og Ijúka víðavangtshlauipinu?
Vegalengdin er engin frágangs
sök né heldur aldur manna eða
vaxtarlag, þegar stilla rná hlaupa
hraða einstaklingsins eftir því,
sem hver og einn er maður til
að þola.
Sú tilfinning, að vera svo vel
að manni að geta tekið þótt í
slíku hlaupi og komið í mark
léttur á fæt; þótt þreyttur sé,
mun vega margfaldlega upp á
móti þeim óþægindum, sem
augnagotur og háðlsglósur þær,
sem íþróttafólk þessa lands verð-
ur svo oft að þola frá hinum
,,óvirku“, mumi hafa í för með
sér. Slík framkoma hinna
„óvirku“ fslendinga er fram úr
hófi leiðingleg, en við, sem
stundum íþróttir okkur til gam-
ans og heilsubótar, ættum ekki
að láta slíkt á okkur fá. Það er
ekkert nema iffla dulin öfund,
sem fær hina „óvirku" til að
láta svona, öfund yfir því, að
fþróttafólkið vill leggja eitthvað
á sig til þess að njóta vellíðan-
innar eftir vel unnið verk og
giott afrek.
Þeim, sem þess óska, hjálpa
ég fúslega á strik að sínu mann-
dómsprófi.
G. Þór.
ir stjórn eins framkvæmda-
stjóra brezka samveldisins
um leið og aðskilnaðarstjórn
in væri reiðubúin til við-
ræðna-
Utanríkisráðherrann, sem sl.
miðvikudag hitti að máli Harold
Wilson, forsætisráðherra, sagði,
að hann hefði gefið brezku
stjórninni og aðalframkvæmda-
stjóra Samveldisins, Arnold
Smith, skýrslu um síðustu þró-
un mála í Nígeríu.
Tilboð Sambandsstjórnarinnar
í Lagos um friðarviðræður er
svar við tilboði Ojukwus
ofursta, leiðtoga Biaframanna,
sem hann bar fram á mánudag-
inn. Ojukwu lagði þá til, að frið
arviðræður hæfust milli ráð-
herra ríkjanna í þriðja Afríku-
ríkinu, en vopnahlé yrði gert
þegar í stað. Borgarastyrjöldin
í Nígeríu hefur nú staðið í 10
mánuði.
- GOLDBERG
Framhald af bls. 2.
um sem aðstoðarutanríkisráð-
herra í október 1906 hefur hann
hvað eftir annað birt gagnrýni
á stefnu stjórnar Bandaríkjanna
í Vietnam. Stjórnmálafréttaritar
ar eru þeirrar skoðunar, að
með því að skipa Ball í embætti
aðalfulltrúa hjá SÞ, hafi John-
son sýnt, að honum sé full al-
vara með að koma í kring samn-
ingaviðræðum við stjórn N-
Vietnam áður en hann hverfur
úr embætti forseta á næsta ári.
George W. Ball er sérfræðing-
ur í að fást við alþjóðadeilumál.
Hann hefur fjallað um ýmis
erfið deilumál, svo sem afstöðu
Bandaríkjanna til Efnahags-
bandalagsins, Kýpur-deilunnar
o.fl. Ball er 58 ára, sonur brezks
útflytjanda. Hann starfaði sem
lögfræðingur þar til Kennedy
skipaði hann efnahagsmálaráð-
- KOMMÚNISTAR
Framhald af bls. 32.
bíl, sem stóð norðan við Hótel
KEA, og fimm mörmum, sem
þar voru einmig, tveir inni í bíln-
um en þrír hjá honum. Ekiki
bar ég kennsl á menn þessa,
nema einn, Jón Hafstein Jóns-
son, menntaskólakennara. Hinir
munu sumir a.m.k. hafa verið
nemendur úr efri bekkjum MA.
— Ég gaf mig á tai við menn
þessa og spurði þá kurteislega,
hvort þeir hefðu fmmkvæði að
því, að dreifa áróðursplaggi
Æskulý’ðsfylkingarinnar. Varð
Jón Hafsteinn fyrir svörum og
viðurkenndi að sjá um dreifing-
una. H:ns vegar neitaði hann að
hafa mælt fyrir um að stinga
einblöðungnum inn í Morgun-
blaðið, sem þó hafði verið gert.
Ég sagði þá, að ég teldi þessa
áðferð ekki réttlætanlega og lítið
siðgæði að fara þannig að við
að koma flugritum og áróðurs-
plöggum kommúnista á fram-
færi. Jón Hafsteinn sagði þá að
mér kæmi ekkert við, hvað þessi
börn bæru út um bæinn, auk
Morgunblaðsins og taldi það
mikinn dónaskap af minni
hálfu, að víkja að sér á götu úti
„með skömmum" eins og hánn
komst áð orði.
— Ekki skiptumst við fleiri
orðum við, enda beið mín nú sá
starfi, að reyna að hafa uppi á
blaðburðarbörnum þeim, sem
hér áttu hlut að máli. Gat ég
náð í einn dreng, sem þá var
hálfnaður við að bera blaðið út
í sínu hverfi. Var áróðursplagg-
i’ð „Vietnambréf nr. 3“ innan í
öilum þeim blöðum, sem hann
átti óborin í hús.
— Hánn sagði mér svo frá, a3
einhverjir menn hefðu boðið sér
Ýmsar endurbætur komast í gagnið á H-degi og hafa þær raunar verið látnar bíða umferðar-
breytingarinnar. Myndin sýnir ný umferðarljós, er reist hafa verið við gatnamót Grensásveg
ar og Suðurlandsbrautar. (Ljósm. Sv. Þorm.)
herra í janúar 1961. Ellefu mán-
uðum síðar var hann hækkaður
í tign og gerður að aðstoðar
utanríkisráðherra. Ball er frjáls
lyndur demókrati og fylgdi jafn
an Stevenson að málum. Hann
er kvæntur og á tvo uppkomna
syni.
- RÚMENÍA
Framhald af bla. 1.
rest benda á, að margt sé líkt
með þeim atburðum, sem nú
virðast gerast bæði i Tékkósló-
vakíu og Rúmeníu, en Rúmen-
íustjórn hefur um nokkurt skeið
gefið greinilega til kynna, að
hún sætti sig ekki við að Sovét-
stjórnin móti stefnu Rúmeníu.
Rúmenskir fulltrúar á kommún-
istaþingum hafa og sýnt veru-
lega andstöðu gegn stefnu ým-
issa kommúnistaríkja og hlýðni
við Sovétríkin. Meðal annars
fóru fulltrúar Rúmeníu af fund-
inum í Búdapest fyrr í vetur og
varla er gert ráð fyrir,- að Rú-
menar muni taka þátt í fundar-
höldum í Búdapest, né heldur í
Moskvu, en sá fundur verður síð
ar á þessu ári. Sagt er skýrum
orðum í tilkynningunni, að
Rúmenía muni ekki sætta sig
við afskipti annarra af inn-
anríkismálum sínum, og
upp í rauðan bíl, þegar hann
var nýkominn út úr afgreiðlslu-
húsinu og boðist til að aka sér
þangað, sem hann ætti að byrja
að bera út blaðið, gegn því að
mfði frá þeim fengi að fljóta
með blöðunum og settu þeir því
næst miðana inn í öll blöðin,
sem hann var með.
— Ég býst við að Vietnam-
bréf þeti'ta hafi farið með eibt-
hvað á þriðja hundrað blöðum,
en alls náðu menn þessir í fjög-
ur böm og fengu þau til þessara
vika fyrir sig. Fyrir ómakið
greiddu þeir hverju bami 10 til
15 krónur eftir því sem þau hafa
sagt mér. Hins vegar mtmu þess-
ir herrar ekki hafa varazt það,
a’ð ég flyt blaðið sjálfur heim til
11 af 18 blaðburðarbörnum, sem
dreifa Morgunblaðinu og þvi
varð árangur þeirra sýnu lakari
en þeir höfðu vænzt.
— Það þótti mér hins vegar
afar athyglisvert að þrjú blað-
burðarbörn voru í fyigd með
feðrum sínum, þegar þau sóttu
blaðið í afgreiðsluna og þessi
börn létu þeir félagar algjör-
iega afskiptalaus.
— Mér þykja þetta heldur
lúalegar aðfarir bæ'ði gagnvafft
mér, Morgunblaðinu og áskrif-
endum þess. Það hefði að
minnsta kosti tæplega talizt
ókurteisi að færa það í tal við
mig, hvort ég hefði eitthvað við
þessa dreifingaraðferð að at-
huga, þar sem börnin vom í
vinnu hjá mér, en mér þykir
lágt lagzt hjá þessum freisis-
hetjum, að ætla a'ð laumast til
að nota sér óvitaskap og greið-
vikni bama ásamt hinu víðtæka
dreifingarkerfi Morgunblaðsins
til að koma boðskap sínum á
framfæri.
— Sv. P.
stjórn landsins sé fær um að
marka stefnu landsins án ihlut-
unar eða þvingunar utan frá.
- RITHÖFUNDUR
Framhald af bls. 1.
hann lýsti ástand'inu í Tékkó-
slóvakíu. Stjórnin fylltist
hinni mestu bræði, er rithöf-
undurinn lýsti yfir andstöðu
sinni í fyrra og fór til ísrael
og var hann samstundis rek-
inn úr kommúnistaflokknum
og sviptur fíkisborgararétti.
Málgagn kommúnisaflokks-
ins Rude Fravo birti í gær
grein um, að pólitískir fangar
ættu að vera óþekkt hugtak
í sósialísku lýðræði og að eng
an skyldj ofsækja fyriir skoð-
anir sínar. Hann hvatti dióms-
málaráðuneytið til að birta op
inberlega greinargerð, þar
skilgreint væri, hvað væri
pólitískur fangi.
Fyrrverand'i fangelsislæknir,
sem samkvæmt frétbastofu-
fregnum, var áhrifamaður í
pólitískum handtökum og of-
sóknum eftir 1950, 'hengdi sig
í gær í íbúð sinni í Prag.
Læknirinn var fyrir skömmu
ásakaður fyrir að hafa undir
ritað dánarvottorð og gefið
upp ranga dauðaorsök.
Vietnamáróður
á Keflavíkurvelli
VIÐ skrifstofubyggingu aðal-
stöðva flughersins á Keflavíkur-
flugvelli varð í fyrrakvöld vart
við um 35 unglinga undir tví-
! tugu og báru þeir borða með á-
letrun um Vietnam. Einnig
1 dreifðu unglingarnir áróðurs-
sneplum með áletrun á ensku um
! stríðið í Vietnam.
Lögreglan á Keflavíkurflug-
i velli tók unglingana og flutti þá
I út af vellinum. Kom þá i ljóa að
í þeir höfðu komið í 7 bílum und-
i ir því yfirskyni, að þeir væru
að taka á móti farþegum, úr Pan
Americanþotu, sem viðkomu
hafði í Keflavík þetba kvöld. Að
sögn lögreglunnar voru ungling-
j arnir leiðitamir og fóru út af
vellinum vandræðalaust.
Ladislav Mnacko.
- EFTA
Framhald af bls. 2.
hún legði á sig. íslendingar
flyttu nú inn frá Norðurlöndum
um 25% af öllum sínum innflutn
ingi. Væri það að langmestu
leyti iðnaðarvörur, sem á væri
verulegur tollur, sem kæmi til
með að hverfa smátt og smátt, ef
við tækjum þátt í slíku tol'la-
bandalagi. Útflutningur okkar til
Norðurlanda væri hins vegar um
20% af heildarútflutningi og
meginhluta sjávarafurða, sem eng
inn tollur væri á. Afleiðingarnar
yrðu því: Við opnuðum ísland
fyrir norrænum iðnvarningi en
fengjum ekkert í staðinn. Enn á-
berandi yrði þessi munur, ef
stofnsett yrði Efnahagsbandalag
Norðurlanda.
Viðskiptamálaráðherra sagði,
að ef úr slíkum viðskiptabanda-
lagi yrði, stæðum við frammi fyr
ir miklu vandamáli, sem gerði
enn brýnna að kanna möguleika
á inngöngu okkar í Fríverzlunar
bandalagið. Að vísu væri þar um
að ræða svipaðan skort á við-
skiptalegu gagnkvæmi, en þó
ekki í eins ríkum mæli, og inn-
ganga okkar í Fríverzlunarbanda
lagið myndi áreiðanlega opna fyr
ir okkur fiskmarkaði, sem væru
1 Las Vegas, 26. apríl. AP-NTB
! BANDARÍSKA kjarnorku-
nefndin lét framkvæma í
dag mestu neðanjarðarkjarn-
orkusprengingu í sögunni.
Sprengingin hafði sama styrk
leika og 1.2 millj. tonn af
TNT-sprengiefni.
Áhrif sprengingarinnar mundi
ef til vill gæta í 400 km radíus
, frá sprengingarstaðnum. Menn
í stjórnklefa 160 km frá staðn-
i um fundu engar jarðhræringar.
lokaðir nú. Það væri tvímæla-
laust auðveldara að leysa vanda-
málið Islands Fríverzlunarbanda
lagið en ísland og norrænt tolla-
i bandalag.
Þá sagði viðskiptamálaráð-
herra, að íslenzku fulltrúamir á
fundinum í Höfn hefðu látið
koma skýrt í ljós, að við mynd-
um fylgjast með þeirra könnun
á fyrrgreindum atriðum, en við
teldum okkur ekki eiga samleið
í þessu tilliti, heldur lægi okkar
leið í, gegnum Fríverzlunarbanda
lagið. f því sambandi gat ráð-
herra þess, að Einar Benedikts-
son fulltrúi í Viðskiptamálaráðu
neytinu væri nýkominn til lands
j og kæmi hann til með að helga
(sig eingöngu athugunum á inn-
! göngu okkar í Fríverzlunarbanda
i lagið.
I „Okkar könnun á möguleikum
á inngöngu í Fríverzlunarbanda-
lagið verður að ljúka fyrir ára-
mót“, sagði ráðherra. „Við tók-
um skýrt fram á fundinum, að
við legðum áherzlu á að okkar
stefna verði allra flokka stefna,
en ekki eingöngu stefna ríkis-
stjórnarinnar. Hefur ekkert kom
ið fram enn, sem bendir á aðra
átt. Ef hins vegar næst ekki sam
komulag um lausn þessa vanda-
máls, hlýtur ríkisstjórnin að
leggja fram sínar tillögur“.