Morgunblaðið - 01.05.1968, Page 2

Morgunblaðið - 01.05.1968, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR, 1. MAÍ -v 1 14. landsþingi SVFI lokið FJÓRTÁNDA landsþingi slysa varnafélags íslands lauk á sunnu daginn var í Slysavarnahúsinu við Grandagarð. Á sunnudag var fjallað um tillögur frá nefnd um þingsins og þær afgreiddar. Þá fór fram stjórnarkjör og var landsþinginu síðan slitið í hófi sem kvennadeild félagsins í Reykjavík bauð til. Tókst þing- ið í alla staði mjög vel og var árangursríkt, en jafnhliða þing- haldinu var minnst 40 ára af- mælis félagsins. Stjóm SVFÍ Stjórn Slysavarnafélagí ÍS- lands var einróma kjörin, og skipa hana þessir menn: Forseit Gunnar Friðriksson, Reykjavík. Gjaldkeri: Árni Sigurjónsson Kópavogi. Varaforseti Gróa Pét ursdóttir, Reykjavík. Ritari: Baldur Jónsson, Reykjavík Með stjórnendur: Ingólfur Þórðar- son, Reykjavík, Hulda Sigurjóns dóttir, Hafnarfirði, og Geir Ól- afsson, Reykjavík. — Árni Árna son, kaupmaður, sem verið hef- ur gjaldkeri félagsins í 26 ár baðst eindregið undan endur- kjöri og voru honum þökkuð Jóhannes Ceir opnar mál- verkasýningu í DAG opnar Jóhannes Geir, list málari málverkasýningu í Unu- húsi við Veghúsastig. Sýningin verður opin dagana 1.—12 maí frá klukkan 14—22. Á sýninguni verða 23 myndir, gerðar á tímabilinu frá 1962— .1968, og verða sautján þeirra til sölu. Steingrímur Sigurðsson á við •hann viðtal í blaðinu í dag, á bls. 5. mikil og giftudrjúg störf í þágu félagsins. Meðstjórnendur úr landsfjórð- ungunum: Sunnlendingafjórðungur: Sig ríður Magnúsdóttir, Vestmanna- eyjum, og til vara Bergur Arn- björnsson, Akranesi. Vestfirðingafjórðungur: Þórð- ur Jónsson, Látrum, og til vara Daníel Sigmundsson, ísafirði. Norðlendingafjórðungur: Eg- ill Júlíusson, Dalvík, og til vara Tryggvi Þorsteinsson, Akureyri Austfirðingafjórðungur: Árni Vilhjálmsson, Reykjavík og til vara Þórunn Jakobsdóttir, Nes- kaupstað. Endurskoðendur félagsins voru kjörnir Þorsteinn Árnason Reykjavík, og Sigurbjörn Sigur- jónsson, Reykjavík. Til vara: Jó hannes Briem, Reykjavík. Heiðursfélagar: f tilefni af 40 ára afmæli SVFÍ voru eftirtaldir menn kjörnir heiðursfélagar fyrir störf í þágu slysavarna: Ólafur Albertsson, stórkaupmaður, Kaupmannahöfn sem verið hefur gjaldkeri slysa- varnadeildarinnar „Gefion“ í Kaupmannahöfn frá stofnun hennar. — Árni Árnason, kaup- maður, sem verið hefur gjald- keri SVFÍ í 26 ár. — Ingibjörg Pétursdóttir fyrir margháttuð störf í þágu SVFÍ. — Séra Jón M. Guðjónsson Akranesi, fyrir útbreiðslustörf og stofnun fjölda slysavarnadeilda. — Björn Pálsson, flugmaður, fyrir braut- ryðjendastarf í skúkraflugi. — Gísli Guðmundsson, Sandger'ði, sem verið hefur í stjórn félags- ins í 40 ár. Á þinginu var samþykkt til- laga allsherjarnefndar, sem hljóð ar svo: ,,14 landsþing SVFl ■ viU, að athugaðri skýrlsu félags stjórnar fyrir árið 1966 og 1967 og í samanburði við ályktanir og fyrirmæli 13. landsþings 1966 votta forseta félagsins og stjórn þess í heild, þakklæti fyrir far- sæla stjórn á málefnum félags- ins, út á við og inn á við, á því stjórnartímabili, sem nú er á enda, og fyrir þróttmikla og öt- ula baráttu fyrir málefnalegir og félagslegri eflingu samtak- anna. Stríösglæparéttarhöld í V-Þýzkalandi — Hinir dœmdu voru í 55 og Cestapo Stuttgart, 29. apríl, NTB. FYRRVEBANDI SS-foring- inn Ernest Epple var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi og níu SS-menn aðrir fengu lengri eða skemmri fangelsis dóma í einum mestu stríðs- glæparéttarhöldum, sem fram hafa farið í V-I»ýzka- landi. Hinir dæmdu eru með- „Óvænt heimsóhn" ó flkureyri Akureyri, 29. apríl.— Leikfélag Akureyrar frumsýn- ir sjónleikinn Óvænta heimsókn eftir J. B. Priestley næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 8.30. Leik- stjóri er Gísli Halldórsson, en íslenzk þýðing er eftir Val Gísla son. Þetta er 3ja verkefni leik- félagsins á leikárinu. Leikendur eru 7 Guðlaug Hermannsdóttir. Laufey Einarsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Guðmundur Gunnars son, Júlíus Oddsson, Ólafur Ax- elsson og Sæmundur Guðvins- son. — Sv.P. Þeir félagar Sigurður Árnason, Sigurjón Hannesson og Pálmi Hlöðversson um borð í Óðni. Ljósm.: Ól. K. M. Óðinsmenn fara utan til Grimsby á morgun al 15 manna úr SS eða Gestapo, sem ákærðir voru fyrir að hafa tekið þátt í út- rýmingu 160.000 Gyðinga í Lwow (Lemberg) sem í síð- ari heimsstyrjöldinni til- heyrði Póllandi, en heyrir nú undir sovézkt umráðasvæði. I Hinir ákærðu voru ýmist í starfsliði höfuðstöðva Gestapo í Lwow eða vaktmenn í þrælkun- arbúðum nazista í Lwvw. Réttar höldin hófust í október 1966 og lauk á mánudag eftir 144 fundi og þá höfðu samtals 250 vitni sagt hina hroðalegu sögi* Lwow- fangabúðanna hvernig Gyðing- ■ arnir voru reknir áfram misk- unnarlaust við þrælkunarvinnu þar til þeir gátu ekki staðið á fótunum lengur og þá voru þeir myrtir á grimmdarlegan hátt. Fjórir hinna ákærðu voru sýkn aðir, en einn sem fundinn hafði verið sekur var látinn laus án dóms. Var það SS-foringinn Walter Schallok, en málshöfðun , gegn honum var látin falla nið- ur með tilliti til heilsufarslegra ástæðna hans. Krafizt hafði verið lífstíðar- fangelsunar átta hinna ákærðu, milli 4—8 ára fangelsunar fjög- urra þeirra og sýknunar hinna. Vitnin skýrðu frá því hvernig SS-mennimir hefðu með svip- um rekið Gyðinga inn í vöru- flutningalestir, sem fluttu þá til Belzec, þar sem þeir voru lif- látnir. Einn hinna ákærðu var meðlimur í ^sérdeiild 1005“, sem hafði það verkefni að grafa fjöldagrafir og brenna jarðnesk- ar leifar hinna myrtu Gyðinga áður en Rauði herinn kæmist til Lwow. „HERRA eða frú. Borgarstjórinn biður yður að sækja fund í borgarstjórn, sem haldinn verð ur í Ráðhúsinu á föstudag, 3. maí 1968 kl. 7 eftir hádegi stund víslega, að eftirfarandi tilefni: Til þess að láta í ljós þakk- læti borgarstjórnarinnar til á- hafnarinnar á varðskipinu Óðni fyrir djarfa og hreystilega björg un áhafnarinnar af Grímsbytog- aranum Notts County, er tog- arinn hafði strandað á Isafirði í fárviðri hinn 5. febrúar 1968, og til þess að afhenda áritaðan skjöld handa skipinu og þrjá á- rituð silfurstaup handa áhöfn- inni“ Þannig hljóðar boðskort, er þrír af áhöfn Óðins hefur nýlega verið sent, eða þeir SigurSur Árnason, skipherra og tveir skipsmenn hans Sigurjón Hann- ] esson og Pálmi Hlöðversson. Þeir j tveir síðastnefndu fóru á gúm- I bát að hinum strandaða togara og björguðu þannig áhöfninni j um borð í Óðin. Þeir félagar fara utan á morgun og á föstu- dag veita þeir viðtöku þakklæt- isvotti Grimsbyborgar. Boðsbréfið. Jarðskjálftar í Iran mrnæmmmm**/. mmmmmm..'■ wmmWmmm Nýlega var sett upp við Elliheimilið Grund (að austanverðu) afsteypa af einu listaverka Einars Jónssonar. — Nefnist það „Demantur". Tvær afsteypur voru gerðar af verkinu í Osló, og er hin í listasafni Einars Jónssonar á Skólavörðuholti. Ljósm. Mbl.: Ól. K. Mag. Teheran, fran, 30. apríl. (AP) AÐ minnsta kosti 50 manns hafa farizt, um 250 særzt og hundruð misst heimili sín í jarðskjálftum, sem gengu yfir norð-vestur hér- uð írans á mánudagskvöld. Mest ar urðu eyðileggingarnar í borg- inni Maku skammt sunnan við landamæri Sovétríkjanna. Stend ur borgin á fjalli, sem jarð- skjálftar hafa verið í öðru hverju undanfarna tvo mánuði, þótt skemmdir hafi ekki orðið á mannvirkjum né slys á mönnum fyrr en nú. í fréttum sem borizt hafa til höfuðborgarinnar Teheran segir að um sjö þúsund íbúar Maku hafi flúið heimili sín í gær og hafzt við undir berum himni í nótt af ótta við nýjar jarðhrær- ingar. Tveir miklir jarðskjálftar urðu þarna í gærkvöldi, sá fyrri klukkan átta, og sá síðari skömmu fyrir miðnætti. Varð jarðskjólftani|a vart víðar en í Maku, og hafa miklar skemmd- ir orðið í fjölmörgum þorpum og bæjum í nágrenninu. Björgunarsveitir og læknar hafa verið sendir til jarðskjálfta- svæðanna frá Teheran, og auk þess vistir til þeirra, sem misst hafa heimili sín. Jarðskjálftar eru algengir í íran, og er þess skemmst að minn ast að í septembér 1962 fórust um tíu þúsund manns í miklum jarðskjálftúm á Qazvin-svæðinu í vesturhluta landsins fyrir sunn- an Maku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.