Morgunblaðið - 05.05.1968, Page 1
LESBOK
32 SÍÐBR OG
90. tbl. 55. árg.
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hjomsveit Tónlistarskólans hélt tónleika í Háskólabíó í gær. Komu þar fram þrír einleikar-
ar, sem ljúka munu burtfararprófi frá skólanum. Hér sést Lára Rafnsdóttir við flygilinn, en
hún lék einleik með hljómsveitinni í píanókonsert eftir Mozart. Var myndin tekin á æfingu
daginn áður. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Vietnam-viöræðum
hvarvetna fagnað
Sagt er að þœr geti orð/ð langar og erfiðar
London og Washington, 4 maí
— AP —
FRÉTTINNI um að stjómir
Bandaríkjanna og Norður-Viet-
nam hafi komizt að samkomu-
lagi um að undirbúningsviðræð-
ur um frið í Vietnam skuli fara
fram í París, hefur verið fagn-
að í flestum höfuðborgum heims,
en þótt látin sé í ljós von um,
að viðræðurnar beri árangur
einkennast spádómar um þær af
varkárni.
Fréttinni hefur verið útvarp-
að í Sovétríkjunum og á Kúbu,
en ekkert hefur verið sagt frá
samkomulaginu í Kína og í öðr-
um kommúnistalöndum hefur
yfirleitt ekki verið látið í Ijós
álit á því af opinberri hálfu.
Forseti Suður-Vietnam, Ngu-
yen Van Thieu, sagði í dag, að
stjórn hans væri því samþykk
að viðræðurnar færu fram í
París, en þótt fulltrúar Suður-
Vietnam taki ekki þátt í við-
ræðunum munu þeir hafa náið
samband við bandarísku full-
trúanna í viðræðunum. í til-
kynningu sem utanríkisráðu-
neyti Suður-Vietnam gaf út er
hins vegar látin í ljós von um
að Frakkaf sýni óhlutdrægni, en
sambúð Frakka og Suður-Viet-
nam hefur verið stirð um nokk-
urt skeið. Einnig er varað við
því, að kommúnistar kunni að
nota sér viðræðurnar í áróðurs-
skyni og reyna að reka fleyg
milli Suður-Vietnama og banda-
manna þeirra, auk þess sem bú-
ast megi við að kommúnistar
herði á styrjöldinni og auki iiðs-
og birgðaflutninga til að bæta
samningsaðstöðu sína.
Suður-Kóreumenn, sem hafa
sent 50.000 hermenn til Suður-
Vietnam, hafa einnig fagnað
vali fundarstaðarins, enda geti
fulltrúar Suður-Kóreumanna og
bandamanna farið frjálsir ferða
Framh. á bls. 16
Hjartaflutningar:
Einn sjúldingnnna í hæltu
Rússar Tékkum stól-
inn fyrir dyrnar?
Talið, að þeir setji pólitísk
skilyrði fyrir lánveitingu
— Heilsa hinna tveggja sögð góð
NTB-AP —
Moskvu, 4. maí. AP-NTB
HELZTU leiðtogar nýju
stjórnarinnar í Tékkósló-
vakíu hófu í dag viðræður
við Leonid Brezhnev, aðal-
ritara sovézka kommúnista-
flokksins, og aðra sovézka
ráðamenn um málefni, sem
varða kommúnistaflokka
Tékkóslóvakíu og Sovétríkj-
anna, að því er skýrt var frá
í Moskvu. Því er haldið
leyndu, um hvaða málefni
hér er að ræða.
Té kkós ló v a k í sk.u leiðtogamir
komu til Moskvu í gærkvöldi án
þess að þar hefði veTÍð tilkynnt
fyrirfram um heimsóknina, sem
heifur komið talsvert á óvart, en
vitað er að sovézkir leiðtogar
hafa miklar áhyggjur af hinni
nýju og frjálslyndu stefnu
tékkóslóvakíska kommúnista-
flokksins. Átta klukkuistundum
etftir að tékkósilióvakísku leið-
togarnir komu til Moskvu, til-
bynnti Tass-fréttastofan, að
þeim hefði verið boðið í stutta
vimáttuiheimsókn, en áður hafði
verið skýrt frá heimsókninni í
Prag.
Fréttir frá Prag herma , að
tékkóslavnesku leiðtogarnir, þeir
Alexander Dubcek, Cernik for-
sætisráðherra, Josef Smrkovsky
þingforseti, Vasil Bilak, aðalrit-
ari kommúnistaflokksins í Sló-
vakíu, og aðrir meðlimir sendi-
nefndaTÍnnar muni gera vald-
höfunum í Kreml grein fyrir
hinni nýju stetfnu, sem tekin
hefúr verið upp. Dubcek hefur
þegar gert gre:n fyrir nýju stetfn-
unni á fundi með leiðtogum
annarra kommúnistalanda í
Dresden í Austur-Þýzkaiandi.
Samningar um lán
Kunnugir í Moskvu te.lja hins
vegar að ön.nur ástæða sé fyrir
viðræðunum og hún sé sú að
samningar standa nú yfir um
skynd lán frá Sovétrikjunum til
þess að leýsa hina miklu erfið-
leika sem Tékkóslóvakar eiga við
að striða í efnahagsmálum um
þessaT mundir. Að því er bezt
er vitað, hefur Dubcek einu sinni
áður komið til Moskvu síðan
hann komst til valda í janúar-
byrjun, þegar hinn tryggi sam-
herji herranna í Kreml, Antonin
Novotny, var sviptur starfi aðal-
Titara kom.múnistaflokksins.
Þessar heimiflidiT herma, að
mikilvæg mál hafi komið upp á
og beri brýna nauðsyn til að af-
greiða þau í flýti. Bent er á, að
í ræðu sinni 1. miaí sagði Duibcek
að Tékkóslóvakía gæti veenzt
bróðurlegrar aðstoðar frá Sovét-
ríkjunum. Samtímis var tilkynnt
í Prag, að Rússar hetfðu boðizt
til að lána Tékkóelóvöfcum 100
milljónir dollara í hörðum gjald-
eyri. Áður hafði verið frá þvi
skýrt í Prag að stjórnin atihug-
aði miöguleika á því að útvega
lán á Vesturlöndum ti’l að leysa
efnahagserfiðleikana.
Heimildirnar í Moskvu henma
að víst megi telja að ertfiðleikar
í þesum samningum Rússa og
Tékkóslóvaka séu helzta orsök
heimsóknarinnar að þessu sinni.
Sennilegt er talið, að erfiðleik-
ar þessir eigi rætUT að rekja til
þess að Rússa'r setji pólitísk sfcil-
Framh. á bls. 16
París, 4. maí — NTB-AP
FRÖNSK háskólayfirvöld
ákváðu í gær að loka fyrirlestra
söium Sorbonne-háskólans í
París, eftir að komið hafði til
heiftarlegra mótmælaaðgerða og
ofbeldisaðgerða af hálfu vinstri
sinnaðra stúdenta og árekstra
við lögregluna. Þetta er annar
háskólinn í Frakklandi, sem lok-
að er vegna stúdentaóeirða, en
á fimmtudag var kennslu hætt
að sinni í háskólanum í Nan-
terre ,einni af útborgum París-
ar.
Fjölmennt lögreglulið búið
kylfum og táragassprengjum
sótti inn í hina virðulegu sali
Sorbonne-háskóla og bókstaf-
lega drógu út stúdentana þar
inni, sem að óeirðunum stóðu.
Þeir voru settir inn í lögreglu-
bifreiðir og síðan ekið á brott,
en aðrir stúdentar skipuðu sér
í mótmælagöngu uhdir vígorð-
inu: ,,Niður með kúgunina" og
héldu til latneska hverfisins, þar
sem kom til harðra árekstra við
lögregluna.
Stúdentarnir, sem voru inni í
háskólanum, höfðu vopnazt m.a.
járnstöngum, áður en lögreglu-
lið var kallað saman, umkringdi
LÆKNAR fylgdust með athygli
með líðan mannanna tveggja,
sem skipt var um hjarta í í
Bandaríkjunum í gær, en annar
sjúklingurinn hefur nú fengið
alvarleg lungnasjúkdómsein-
kenni og má búast við, að hann
sé í mikilli hættu.
háskólabygginguna og ruddist
inn í hana .Öflugt lið lögreglu-
manna ruddi, á meðan þetta var
að gerast, göturnar umhverfis
og stöðvaði alla, sem vildu kom
ast inn í háskólann. Alls voru
um 200 vinstri sinnaðir stúdent-
ar dregnir út úr bygginguíini
og voru fluttir burt.
Fyrir utan kom til átaka milli
þúsunda annarra stúdenta, eink
um í grennd við latneska hverf-
ið, en endir á mótmælaaðgerðir
þeirra var einnig bundinn með
táragasi, en stúdentarnir slóg-
ust við lögregluþjónanna og köst
uðu að þeim grjóti.'
Seint á 'föstudagskvöld kom
enn til nokkurra átaka milli
stúdenta og lögreglu á nokkrum
stöðum á Boulevard Saint
Michel og margir stúdentar
voru handteknir.
Öll umferð á Boulevard Saint
Micheí og Boulevard Saint Ger-
main stöðvaðist á aðalumferðar-
tímanum. Einn fréttaljósmynd-
ari slasaðist og fólk, sem gekk
yfir göturnar varð að hafa vasa-
klúta fyrir vitum sér vegna tára
gassins.
Lögreglan hélt inn í háskól-
Framh. á bls. 4
Það eru lungun í hjartasjúkl-
ingnum Joseph Rizor, sem virð-
ast vera að gefa sig, en skipt
var um hjarta í honum í gær í
sjúkrahúsi Stanford-háskólans í
Kaliforníu. Norman Shumway,
sem stjórnaði aðgerðinni, sagði
í gærkvöldi að ástand lungna
sjúklingsins væri mjög alvar-
legt, því að þau megnuðu ekki
að veita nægu súrefni út í blóð
sjúklingsins.
Rizor fékk nýtt hjarta úr
íþróttaunnandanum Rudy And-
erson, sem var vanur að hlaupa
þrjá km. á hverjum morgni, en
hann hlaut heilablóðfall sl.
mánudagskvöld.
Heilsan er hins vegar góð eftir
atvikum í níunda manninum,
sem skipt hefur verið um hjarta
í, en það er Everett Thomas, 47
ára gamall, sem hjartagræðsla
var gerð á í Huston í Texas í
gær. Thomas fékk hjartað úr 15
ára gamalli giftri stúlku Kath-
leen Martin að nafni, sem látizt
hafði af skotsári á höfði. Hjarta
hennar hæfði líkama Thomasar
næstum fullkomlega, þrátt fyr-
ir aldursmismun þeirra. Thomas
var alvarlega sjúkur og myndi
hafa dáið, ef ekki hefði veríð
skipt um hjarta í honum. Það
var Denton Cooley, læknir, sem
stjórnaði hjartaaðgerðinni í
Huston, en hann er sérfræðing-
ur í skurðlækningum, þar sem
ekki er gefið blóð og hefur gert
marga uppskurði á meðlimutn
úr trúarhreyfingunni „Vottar
Jehova“, en trúarskoðun þeirra
leyfir ekki ,að þeim sé gefið
blóð úr öðru fólki.
Heilsa Frederic Wests, 45 ára
gamals atvinnurekanda og
fyrsta mannsins sem skipt er
um hjarta í á Bretlandi, var
sögð góð hálfum sólarhring eft-
ir að aðgerðin fór fram. Sögðu
læknar hans, að aðgerðin hefði
tekizt eins vel og unnt hefði
verið við að búasí við hvaða
Framh. á bls. 2
Miklar stúdenta-
óeirðir í París
— Tveimur háskólum lokað
og 200 stúdentar handteknir