Morgunblaðið - 05.05.1968, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNLJDAGUR 5. MAI 195»
Þar eru mannréttindin
Mannréttindanefnd Evrópuráðsins heldur alla fundi sína fyrir luktum dyrum. Her
ur hluti nefndarinnar á fundi — prófessor Theodór Líndal er annar frá vinstri.
einstaklingi, sem átti sér staö
í Þýzkalandi nazismans og íta-
líu fasismans — og fyrst ég er
að minnast á þá Hitler ,og Musso
lini, sé ég enga ástæðu til að
undanskilja „félaga“ Stalín.
— Hvaða munur er á þessum
tveimur mannréttindasáttmái-
um?
— Mannréttindasáttmáli Ev-
rópuráðsins er auðvitað mjög
svo líkur sáttmála Sameinuðu
þjóðanna efnislega ,en þó skii-
ur einkum tvennt þar á milli, en
það eru mannréttindanefnd
Evrópuráðsins og mannréttinda-
dómstóllinn.
ísland er aðili að báðum þess
um stofnunum ,en t.d. Frakk-
land og Sviss, sem bæði eru að-
ilar að Evrópuráðinu, eru ekki
aðilar að mannréttindasáttmál-
anum. Nú eru sextán aðildar-
ríki Evrópuráðsins einnig aðilar
að mannréttindasáttmála þess.
í heiðri höfð
— Rœtt við prófessor Theodór Líndat,
fulltrúa Islands í mannréttinda-
nefnd Evrópuráðsins
DAGUR Evrópu er hátíðlegur
haldinn í dag og hefur Evrópu-
ráðið forgöngu þar um. Prófess-
or Theodór B. Líndal hefur um
nokkurt skeið starfað í mannrétt
indanefnd Evrópuráðsins, sem
fulltrúi íslands, og í tilefni dags
ins heimsóttum við prófessor
Theodór til að fræðast svolítið
um starfsemi mannréttinda-
nefndar Evrópuráðsins.
— Árið 1968 er mannréttinda-
ár mikið, segir prófessor Theo-
dór, um leið og við komum okk-
ur fyrir við skrifborðið. —
Mannréttindasáttmáli Samein-
uðu þjóðanna er tvítugur á þessu
ári og er þess minnzt með alls
kyns fundum og ráðstefnum
víða um heim, m.a. stendur nú
yfir í Teheran Mannréttindaráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna og
má segja, að fjöldi aðildarríkja
samtóikanna láti mann-
réttindi sig sérstaklega skipta
þetta árið.
Á þessu ári eru einnig liðin
fimmtán ár síðan mannréttinda-
sáttmáli Evrópuráðsins gekk í
gildi. Það, sem fyrst og fremst
hrinti honum í framkvæmd og
reyndar sáttmála Sameinuðu
þjóðanna líka, var sú algjöra
fyrirlitning á manninum sem
Bridge-landskeppnin:
Unnum Skotana
með yfirburðum
ÍSLAND sigraði Skotland í lands
keppni í bridge, sem fram fór í
Reykjavík s..l föstudagskvöld
með 104 stigum gegn 70. í hálf-
leik var staðan 74:32.
Keppnin fór fram í Sigtúni og
voru áhorfendur margir og
skemmtu sér mjög vel, enda var
Jeiku'rinn sýndur á sýningar-
tjaldi og spilin skýrð jafnóðum
og þau voru spiliuð.
íslenzka sveitin spiilaði vel og
var sigurinn verðskuldaður. I
lok keppninnar afhenti Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug-
félags ísalnds h.f. sigurvegurun-
um bikar þann, er félagið hetfur
gefið til keppninnar, en áformað
er að keppn: milli landanna fari
fram árlega.
— Nýr seðill
Framh. af bls. 32
500 króna seðlana í umtferð með
an birgðir entuist. Fyrir um
þremur árum þraut birgðirnar
og kemur nú nýr 500 króna seðill
í umtferð. Er hann jafnstór 100
króna seðlinum, en á bakhlið
hans er mynd úr sjá-varútvegi.
Á framhlið seðilsins er mynd af
Hannesi Hafstein, ráðherra.
Hætt verður að getfa út 10 króna
seðil um leið og 10 króna myntin
kemur í umferð. 10 króna mynt-
in er fyrsti nýi peningurinn, sem
getfinn er út í 40 ár á íslandi.
Aðeins krónu- og tveggja-
krónupeningarnir, svo og að
sjáltfsögðu 10 krónapeningurinn
kosta minna en í framleiðslu, en
nafnvirði þeirra er. Einseyring-
uxinn kostar t. d. 31 eyri, 5-eyr-
ingurinn 76 aura og tíeyringur-
inn 33 auraa Minnstu seðlarnir
eru í rauninni töluvert dýrir
einnig. Fimm króna seði,ll kostar
t. d. 20 aura og endist að jafnaði
í 20 mánuði og geri-r 10 króna-
seðillinn það einnig, en hann er
þrefalt ódýra-ri en 10 króna
myntin, sem kostar um 85 aura
og endist kannski í áratugi.
Bankastjórar Seðlabankans
tjáðu blaðamönnum í gær að
bankinn myndi le-ggja til við rík-
isstjórnina niðurtfelling smá-
myntar verði gerð um næstu ára
mót. Mun þá hætt að slá mynt
smærri en 10 aura og ein-nig
mun 25-eyringur óþarfur. Mun
því að vænta 50 aura myntar í
staðinn. Einni-g mun 5 króna
mynt fylgja í kjölfar 10 króna
mynta-rinnar og verður sú mynt
líklega nokkuð minni en krónu-
peningarnÍT nú. Sennilega verð-
ur tveggjakrónujpeningurinn þá
óþarfur. Loks hetfur svo Seðla-
bankinn fyrirætlanir um, að
sleginn verði stæri mynt en 10
krónur og er skoðun bankans að
50 króna mynt sé hagkvæmust.
Sú mynt mundi verða að svip-
uðu verðgildi og stærstu myntir
nágrannalandanna.
Með myntsláttu stærri upp-
hæða verða að sjálfsögðu seðl-
arnir óþartfir og mun bankinn
því hætta að gefa út seðla minni
en 100 krónur. Hins vegar er
ráðgert að gefa út áður en langt
um líður 5000 króna seðil og
hefur það mál verið að nokkru
undi-rbúið og er ákveðið að á
framhlið han-s verði mynd af
Einari Benediktssyni, en á bak-
hlið myn-d af Dettifossi.
Eftir að Seðlaban-kinn hefur
innkallað óþartfa myntstærðir og
endurskipulagt mynt- og seðla-
útgáfuna mun-u íslenzkar pen-
ingastærðir verða þannig: 10
aurar, 50 aurar, 1 króna, 5 krón-
ur, 10 krónur og 50 k-rónur, allt
í mynt. Seðlar verða að verð-
gildi: 100 króraur, 500 krónur,
100 krónu-r og 5000 krónur.
íslenzka sveitin var þannig
skipuð: Ásmund-ur Pálsson,
Hjalti Eiía-sson, Stetfán J. Guð-
johnsen, Eggert Benónýsson,
Símon Símonarson og Þorgeir
Sigurðsson. Fyrirlið er Þórður H.
Jónsson.
Skozku spilararni-r keppa í dag
við A.-sveit íslands sem keppa
mun á Norðuriandamótinu í
Gautaborg síðar í þessu-m mán-
uði. Fer keppnin fram í Sigtúni
og hetfst kl. 13.30. Leikurinn
verður sýn-dur á sýningartjaldi.
Hér fer á etftir spil rar. 15 í
kepninni, en fyrir það fékk ísl.
sveitin 13 stig.
Norður.
A Á-K-8-7-6
¥ Á-10-6-2
* Á-8
* G-8
5 * 10-9-2
D-9 ¥ 8-7-3
D-9-7-5 ♦ G-10
3-2 K-9-6
D-10-7-5 3-2
Suður.
A D-G-4-3
¥ K-G-4-3
4 K-6-4
* Á-4
Á því borði er Stétfán og
Eggert sátu N.—S. gengu sagnir
þannig:
Suður.
1 Hjarta
3 Spaðar
5 Tíglar
6 Hjörtu
Norður.
2 Spaðar
4 Grönd
5 Grörad
Pass.
Vestur lét út Tígul 5 og spilið
vannst auðveldlega þar eð sagn-
hafi getur kastað laufi í 5. spað-
ann í borði. Spilið vinnst alltaf
með þessu útspiii, en sagn-
hafi verður að fara rétt í trompið
ef lauf kemur út.
Skotarnir spiluðu á sömu spil
4 hjörtu og unnu 6.
- HJARTA
Framh. af bls. 1
hjartaflutning annan. Sögðust
þeir búast við því, að græða
bæði ný lungu og nýtt hjarta í
annan sjúkling síðar á þessu ári.
Einn þeirra sagði, að West hefði
ekki lifað lengur en nokkra
mánuði enn, ef til vill aðeíns fá-
eina daga ,ef ekki hefði verið
skipt um hjarta í honum. West
er kvæntur og á tvö börn.
Prófessor Theodór B. Líndal. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Persónulega held ég, að afstaða
t.d. Frakklands og Sviss stafi af
ýmsum vangaveltum sem fram
hafa komið um sjálfstæði ríkja
í sambandi við aðild að þessum
sáttmála, en það er of löng saga
til að við séum að fara út í
hana hér.
— Nú, mannréttindanefndin
og mannréttindadómstóllinn eru
þá það, sem skilur í milli Ev-
rópuráðsins og Sameinuðu þjóð-
anna á sviði mannréttindamá’.-
anna. Gaman væri að fá lýs-
ingu á því, hvernig afgreiðsla
mála fyrir þessum stofnunum
fer fram.
—: Já, meðlimir Evrópuráðs-
ins kjósa fulltrúa í nefndina og
dómstólinn, einn frá hverju
aðildarríki, þannig, að fulltrú-
arnir eru nú sextán í hvorri
stofnun. Þess ber að gæta, að
þeir, sem í nefndinni og dóm-
stólnum sitja ,starfa algerlega á
eigin ábyrgð og hlíta engum fyr
irmælum annarra. Þau mál ein
koma • fyrir dómsstólinn, sem
nefndin ákveður að fái þá af-
greiðslu, en þau mál eru tiltölu-
lega fá miðað við þann mála-
fjölda, sem fyrir nefndina kem-
ur. Má því segja, að mannrétt-
indanefndin beri frekar hita og
þunga dagsins, hvað þetta snert-
ir.
Samkvæmt alþjóðarétti hefir
löngum verið litið svo á, að ríki
en ekki einstaklingar, væru að-
ilar á þessum vettvangi. Sam-
kvæmt 25. gr. mannréttindasátt
mála Evrópuráðsins geta hins
vegar einstaklingar fengið kröf-
ur sínar teknar til meðferðar
hjá nefndinni. Er það mjög þýð-
ingarmikið ákvæði til verndar
mannréttindum, enda hefur
þessi leið verið mikið notuð og
má í því sambandi geta þess, að
síðan slík erindi fóru að berast
nefndinni árið 1955, munu alls á
fjórða þúsund mála hafa komið
til hennar kasta.
Nú, en snúum okkur þá að
gangi málanna. Byrjunin er sú,
að ríkisstjórn eða einstaklingur
sendir bréf til aðalskrifstofu
nefndarinnar, sem er í Strass-
borg, og ber í því fram sína
kvörtun. í aðalskrifstofunni er
brugðið við og starfsmenn henn-
ar taka saman öll tiltæk gögn
um málið og semja svo aðgengi-
lega skýrslu, þar sem í eru rakt-
ar staðreyndir og málavextir
allir. Næsta skref er svo það, að
þriggja manna nefnd er skipuð
og eiga í henni sæti einhverjir
þrír fulltrúar úr mannréttinda-
nefndinni. Þessi nefnd athugar
málið gaumgæfilega og leggur
svo fyrir mannréttindanefndina
tillögu sína um það, hvort taka
eigi málið til efnismeðferðar eða
vísa því frá. Allt er þetta að-
eins undirbúningsvinna.
— Nú munu mál þurfa að
uppfylla viss skilyrði til að geta
komið til efnismeðferðar hjá
mannréttindanefndinni sjálfri?
— Það er rétt ,að ýmislegt
þarf að athuga vel.
Til þess, að mannréttinda-
nefnd Evrópuráðsins láti málið
til sín taka að efni til, þarf viss-
um skilyrðum að vera fullnægt.
í fyrsta lagi verða þau atvik
sem kærð eru að hafa gerzt eft-
ir að viðkomanði land gerðist
aðili að mannréttindasáttmálan-
um og í öðru lagi þarf dómstóla-
leiðin í viðkomandi landi að
hafa verið reynd til þrautar.
Enn ber þess að gæta, að kæra
verður til aðalskrifstofu mann-
réttindanefndarinnar innan sex
mánaða frá því að loka dómstig
ið fjallaði um málið. Ef þessum
skilyrðum er fullnægt tekur
nefndin málið til nánari m§ð-
ferðar en annars er því vísað
frá.
— En það eru fleiri ljón á
veginum en þessi?
— Já, það er ýmislegt, sem
þarf enn að athuga, segir prófess
or Theodór og brosir við. —
Kvörtunarefnið ,eða kæran,
verður að sjálfsögðu að falla
undir ákvæði mannréttindasátt-
málans, en það getur oft verið
vandi að skera úr um, hvort svo
sé í raun og veru. Orðalag sátt-
málans er mjög almenns eðlis.
Þegar skera skal úr um það,
hvort slíkt almennt orðalag eigi
við um tiltekið mál, eða með
öðrum orðum, hvort sáttmálinn
nái til þess, þarf mikillar að-
gæzlu við og í mörg horn er að
líta. Úrskurðir nefndarinnar eru
gefnir úr í „Yearbook of the
European Convention of Human
Rights", sem út er komin í 10
bindum (500—800 bls. hvert) á
ensku og frönsku. Þar má finna
nákvæmar skýringar á ýmsum
orðum og orðatiltækjum sáttmál
ans, sem nefndin síðan að jafn-
aði fer eftir, er sams konar at-
vik koma upp og áður hefur
gengið úrskurður um.
En ef málið stenzt þessa raun,
er enn einn björninn unninn.
— En ekki .. . ?
— Nei, nei, það þarf meira
til að málið komizt heilt í höfn.
Ef nefndin hefur fjallað um
sams konar mál áður, er það
látið nægja og málum af sama
toga vísað frá. Nú ef nefndin
kemst að þeirri niðurstöðu að
kæran sé ekki á rökum byggð,
eða ef kæran er nafnlaus, er mál-
inu líka vísað frá. Og þá má
heldur ekki vera um sýnilega
misnotkun á kæruheimildinni að
ræða. Ýmislegt fleira gæti ég
nefnt, en ætli við látum þetta
ekki nægja til að sýna að það
er engin tilviljun, sem ræður því
hvort mannréttindanefndin fjall-
ar um málið eða ekki — nei
annars, það er bezt að taka það
fram líka að kærandinn verður
að vera aðili að málinu.
— Nú uppfyllir málið öll skil-
yrði?
— Já, þá fer nú róðurinn að
lgjtast. Þriggja manna nefndin
semur tillögu um það hvort mál-
inu skuli vísað frá eða það hljóta
frekari meðferð, og þá eftir át-
vikum tillögu um hVað gera
skuli. Leggur nefndin síðan til-
Framhald á bls. 31.