Morgunblaðið - 05.05.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.05.1968, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MAl 13W» BORGARSPÍTALINN Staða sérfræðings í handlækningum við slysavarð- stofu Borgarspítalans er laus til umsóknar. Upplýsingar um stöðurnar veitir Haukur Krist- jánsson yfirlæknir. Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykja- víkur við Reykjavíkurborg. Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. eða síðar eftir sámkomulagi. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgar- spítalanum fyrir 30. maí n.k. Reykjavík, 3. 5. 1968. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Iðnfræðsluráð. Anglýsing um sveinspróf Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram um land allt í maí og júní 1968. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sína sem lokið hafa námstíma og burtfararprófi frá iðnskóla. Enn- fremur er heimilt að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sem eiga 2 mánuði eða minna eftir af námstímanum, enda hafi þeir lokið iðnskólaprófi. Umsóknir um próftöku sendist formanni viðkom- andi prófnefndar fyrir 15. maí n.k., ásamt venju- legum gögnum og prófgjaldi. Meistarar og iðnfyrirtæki í Reykjavík fá um- sóknareyðublöð afhent í skrifstofu iðnfræðsluráðs, sem einnig veitir upplýsingar um formenn próf- nefnda. Reykjavík, 2. maí 1968. Iðnfræðsluráð. Auglýsing um styrki úr Menningarsjóði Norðurlanda Árið 1969 hefur sjóðurinn til ráðstöfunar fjárhæð sem svarar til 22.9 milljóna íslenzkra króna. Sjóðn- um er ætlað að styrkja norrænt menningarsamstarf á sviði vísinda, skólamála, alþýðufræðsíu, bók- mennta, myndlistar, tónlistar, leiklistar, kvik- mynda og annarra listgreina. Meðal þess, sem til greina kemur að sjóðurinn styrki, má nefna: 1. Norræn samstarfsverkefni, sem stofnað er til í eitt skipti, svo sem sýningar, útgáfu, ráð- stefnur og námskeið, 2. samstarf, sem efnt er til í reynslu skjmi, enda sé þá reynslutíminn ákveðinn af sjóðstjórn- inni, 3. samnorræn nefndastörf, 4. upplýsingastarfsemi varðandi norræna menn- ingu og menningarsamvinnu. Styrkir úr sjóðnum eru yfirleitt ekki veittir til verkefna, er varða færri en þrjár Norðurlanda- þjóðir sameiginlega. Umsóknum um styrki til einstaklinga er yfirleitt ekki unnt að sinna. Þeir, sem sækja um styrki úr sjóðnum til vís- indalegra rannsókna, þurfa að hafa í huga, að styrkir eru yfirleitt því aðeins veittir til slíkra verk- efna, að gert sé ráð fyrir samstarfi vísindamanna frá Norðurlöndum að lausn þeirra. Að jafnaði eru ekki veittir styrkir úr sjóðnum til að halda áfram starfi, sem þegar er hafið, sbr. þó 2. lið hér að framan. Sjóðurinn mun ekki, nema alveg sérstaklega standi á, veita fé til greiðslu kostnaðar við verkefni, sem þegar er lokið. Umsóknir skulu ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku á sérstök eyðublöð, sem fást í mennta- málaráðneytum Norðurlanda og hjá Nordisk kult- urfond, Nybrogade 2, Kaupmannahöfn. Umsóknir skulu stílaðar til sjóðstjórnarinnar og þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 15. ágúst 1968. Tilkynningar um afgreiðslu um- sókna er ekki að vænta fyrr en í desember 1968. Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda, 3. maí 1968. Jason Bröttugötu 3 B Saumum jakka, kápur og dragtir. Rautt, orange, grænt og blátt nappaskinn. Rautt, ljósgrænt, drapp, blátt og dökkgrænt rúskinn. Jakkar frá 3060.—, kápur frá 4155.— og dragtir frá kr. 4600.— JASON, Bröttugötu 3 B. Gólfdúkur — plastdúkur Amerískur plastdúkur á böð og eldhús í miklu úrvali. Þýzkur D.L.W. plastdúkur með korkundirlagi. Enskur Dunlop plastdúkur. Línoleum. Þýzkur D.L.W. marmar- jaspe- og parketdúkur. Hálflínoleum, mörg mynstur gólf og stigagúmmí, margir litir. Gólfdúkalím. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H/F. Bankastræti- 11 — Skúlagötu 30. Fimmtugur í gœr: Haraldur Ásgeirsson í HUGUM samferðamanna „í lífsins ólgu sjó“ finnst manni jafnan að vissum áfanga sé náð, eða vissu marki, þegar aldurs- árin standa á heilum tugum, og síðar, er lengra liður, á hálfum og heilum. f þessari röð merk- isdaga ber þó jafnan hæst, ald- ursmörkin fimmtíu ár, sextíu ár o-s.frv. Öll ár sem samfylgd góðra vina helzt eru að sjálf- sögðu merkisár. En samt er það svo, að við grípum tækifærið við þessi hin stærri aldursmörk til að votta góðum samferða- mönnum sérstaka þökk og fram- tiðaróskir. Fimmtugur maður er á okkar tíð ennþá ungmenni í anda og að mætti. Hann er raunar ungmenninu langt um fremri. Þroski og reynsla hafa bæzt við. Margur er því við þessi aldursmörk á hátindi lífs- ferilsins. Haraldur Ásgeirsson, verk- fræðingur, er einn af mörgum í þeim flokki. Léttur í lundu, lipur og drenglundaður, áhuga- maður í starfi og lífi. Þetta tel ég hans einkenni og höfuðkojti. Það er því ekki að ófyrirsynju að Haraldur hefir haft mörgu að sinna á starfsferli sínum og náð langt í sinni grein, sem er ein hinna mikilvægustu í landi okkar. Varanleiki bygginga, með ferð efnis, nýjar leiðir um notk- un efnis og framkvæmdatækni eru hans hugðarmál og höfuð- starfssvið. Uppbygging rann- sókastarfs á sviði byggingar- mála í rúma tvo áratugi er hans verk, enda þótt hann hafi víðar lagt hönd á plóginn. Árangur af slíku starfi verður ekki auð- veldlega metinn. Margt er þar raunar ómetanlegt og verður aldrei mælt né vegið. Hér er ekki ætlunin að rekja störf hans eða meta gildi þeirra. Það er ekki tímabært um at- hafnamann á miðjum aldri. Ég óska Haraldi og fjölskyldu hans heilla í starfi og lífi, og þakka hin góðu kynni. Jóhann Jakobsson. Nómsstyrkur í Þýzkulondi STJÓRNARVÖLD Lubeckborg- ar í Þýzkalandi bjóða fram styrk handa fslendingi til náms í Lubeck skólaárið 1968-69. Styrkurinn nemur allt að 350 þýzkum mörkum á mánuði. Námsgreinar þær, sem til greina koma, eru tónlist, þ.á.m. organ- leikur, ýmsar greinar tækni- fræði, svo sem vélfræði, raf- magnsfræði, fjarskiptafræði, eðlistæknifræði og bygginga- fræði, svo og siglingafræði og loks síðara hluta nám í læknis- fræði. Styrkþega, sem áfátt er í þýzkukunnáttu, gefst kostur á að bæta úr því áður en skóla- námið hefst. Frekari upplýsingar um styrk þennan' fást í menntamálaráðu- neytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Umsóknum skal komið til ráðuneytisins fyrir 1. júní n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.