Morgunblaðið - 05.05.1968, Síða 31

Morgunblaðið - 05.05.1968, Síða 31
MORGUNBLAÐÍÐ; SU'NNUDAGUR 5. MAÍ 196« 31 — Evrópudagur Framliald af bls 2. lögur sínar fyrir mannréttinda- nefndina, sem ræðir þær og tekur síðan ákvörðun um næstu skref. Það eru mörg málin, sem vísað er frá vegna þess að þau uppfylla ekki öll nauðsynleg skilyrði, annaðhvort efnislega eða að formi til, nú eða þá hvort tveggja. — Og nú skulum við láta mannréttindanefndina sam- þykkja frekari afgreiðslu máls- ins. — Já, já, þá erum við komnir þetta langt og nú skulum við fá okkur kaffisopa svona í til- efni af því, segir prófessor Theó dór og brosir af stóiskri ró. Þegar kaffið er komið á borð- ið og við höfum gætt okkur á því hallar prófessor Theodór sér aftur á bak í stólnum og heldur áfram ... — Já, nú hefur mannréttinda- nefndin samþykkt að fjalla nán ar um málið. Aðalskrifstofunni er falið að skrifa málsaðilum, til- kynna þeim ákvörðunina og biðja um frekari skýringar þéirra, ef einhverjar eru. Þegar svörin berast getur margt borið þar í milli og er þá eftir at- vikum leitað frekari upplýsinga eða þá málsaðilum gefinn kostur á að flytja mál sitt munnlega fyrir mannréttindanefndinni. Slíkur munnlegur málflutningur er nú á döfinni í Grikklands- málinu, og hefur þegar farið fram í Belgíumálinu svonefnda, en það er risið út af tungu- máladeilum Flæmingja og Vall- óna í því landi. Þegar þessum málflutningi er lokið sezt nefndin aftur á rök- stóla og greiðir atkvæði um það, hvort málið eigi að fara fynr mannréttindadómstólinn eða ekki. Oftast er það nú svo, þeg- ar mál hefur náð þetta langt, að nefndinni þykir rétt að láta það koma til kasta dómstólsins, en þó er það ekki einhlít regla. Og nú þegar málið er komið fyrir mannréttindadómstól Evr- ópuráðsins, skenkir prófessor Theodór aftur í bollana. — Já, nú skulum við aðeins athuga vinnubrögðin frekar. Sjö manna nefnd frá mannréttinda- nefndinni fylgir málinu fyrir dómstólinn og gerir þar grein fyrir niðurstöðum hennar, en málsaðilar sækja og verja málið sjálfir. Loks fellur úrskurður dóm- stólsins: annað hvort er þarna um að ræða brot á mannrétt- indasáttmálanum eða ekki. Hlut- aðeigandi ríkisstjórn er tilkynnt um niðurstöðu dómstólsins og ætlast er til að hún breyti eftir henni. En mannréttindadómstóllinn hefur ekki framkvæmdavald og úrskurður hans fellir á engan hátt úr gildi efnislegan úrskurð æðsta dómsvalds viðkomandi lands. Það eina, sem á þessu umstangi öllu græðist er úrskurð ur mannréttindadómstólsins um það, hvort mannréttindasáttmál inn hafi þarna verið brotinn eða ekkl. — Hvaða gagn er þá í þessu eftir allt saman? — Ja, það er vop að þessi spurning komi fram. En aðeins tilvist mannréttindanefndarinnar bg mannréttindadómstólsis veit ir ríkisstjórnum aðildarríkjanna visst aðhald og sýnir um leið fram á, að mannréttindasáttmáli Evrópuráðsins er ekki aðeins til á pappírnum heldur einnig í raunhæfri framkvæmd. Það þyk- ir engri ríkisstjórn gott að tapa máli fyrir mannréttindadómstóln um og því eru hann og mannrétt- indanefndin allmikill öryggis- þáttur til þess að mannréttind- in séu raunverulega tryggð í þeim löndum, sem þessar stofn- anir ná til, segir prófessor Theo- dór að lokum. Við erum nú komnir á leið- arenda — höfum fylgt málinu alla leið og vonandi hefur þessi hugleikur okkar sannað ein- hverjum, að orðið mannréttindi er eitthvað annað en nafnið tómt — að minnsta kosti ein- hvers staðar í heiminum. Tréldossarnir margeftirspurðu nýkomnir aftur. SKÓSKEMMAN, Bankastræti. Sumardvalarheimilið í Reylqadal Mosfellssveit tekur til starfa 6. júní. Nánari upplýsingar í síma 12523. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Byggingartæknifræðingur með 3ja ára starfsreynslu óskar eftir atvinnu. Margs konar vinna kemur til greina. Tilboð merkt: „Áhugasamur — 8140“ sendist Mbl. fyrir 12. maí. Starfsmannafélag óskar að kaupa eða leigja jörð eða jarðarpart, sem hefur rétt til lax- eða silungsveiði eða möguleika til fiskiræktar. Tilboð merkt: „Starfsmannafélag“ sendist í póst- hólf 229, Reykjavík, sem alra fyrst. Aðalfundur Iðngarða lif., verður haldinn í skrifstofu Lands- sambands iðnaðarmanna, Iðnaðarbankahúsi, 4. hæð, föstudaginn 10. maí 1968 kl. 5 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Aðiiar að I. byggingaflokki mæti kl. 4 e.h. á sama stað. STJÓRNIN. Atvinnurekendur! Maður á bezta aldri, með góða verzlunarþekkingu og langa starfsreynslu, óskar eftir atvinnu. Er vanur erlendum og innlendum bréfaskriftum, bókhaldi, banka- og tollafgreiðslum, framkvæmda- og skrif- stofustjórn og allri venjulegri skrifstofuvinnu. Algjör reglusemi. . Tilboð óskast send í pósthólf 578, Reýkjavík. Skrifstofustúlka óskast Opinber stofnun óskar að ráða vana skrifstofu- stúlku. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Morgunblaðsins merktar: „5095“ fyrir 15. maí n.k. BORGARSPÍTALINN Stöður ritara (fulltrúa) við skurðlæknisdeild og geðdeild Borgarspítalans eru lausar til umsóknar. Upplýsingar í síma 81200. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar. Umsóknir, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur Borgarspítalanum fyrir 15. maí n.k. Reykjavík, 3. 5. 1968. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Aukavinna í síma 23190, mánudaginn ). maí kl. 2—6 e.h. Ungur maður eða kona óskast til sölu- og dreif- ingarstarfa í verzlanir í Reykjavík og næsta ná- grenni. Algerlega sjálfstætt starf. Hentugt fyrir þann, sem vinnur vaktavinnu. Viðkomandi þarf helzt að hafa bíl til umráða. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, núverandi og fyrrverandi störf sendist Morgunblaðinu merkt: „Aukastarf — 8094“. Sumarkápur - sumarkápur Ný sending áf sumarkápum í öllum stærðum frá 36—48, verð frá kr: 1450—2350. Kápur sem má nota á báða vegu kr: 2350. Enskir kjólar í úrvali. Stærstu og ódýrustu kápurnar eru á Laugavegi 2. Laufið, Laugavegi 2 og Austurstræti 1. Sumarkjólar - sumarkjólar Fjölbreytt úrval af sumarkjólum á krónur 450.— sumarkápur í öllum stærðum á kr: 1450.— og 1560,— Laufið, Laugavegi 2. Stórkostlegt úrval af alls konar sumarfatnaði. Hin margeftirspurðu rúmteppi, gluggatjöld og púðar er komið aftur. Nýir litir og gerðir. Sumarkjólar frá kr. 495.— Stórkostlegt úrval af allskonar sumarfatnaði. UPPBOÐ Að kröfu Guðjóns Steingrímssonar, hrl., verður trillubátur, talinn eign Baldvins Péturssonar, seldur á opinberu uppboði í húsi Bátafélags Hafnarfjarðar við Strandgötu í dag, laugardaginn 4. maí, kl. 2 síðdegis. Hef opnað tannlæknistofu í Skipholti 17 A 3. hæð. Viðtalstími eftir samkomulagi. SÍMI 195 85 Jón Snæbjörnsson tannlæknir. LITAVER Teppi — Teppi GRENSÍSVEGI22-24 Nylon-teppi, SIM4R: 302 80-322 SZ verð pr. ferm. kr 255.— \

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.