Morgunblaðið - 07.06.1968, Page 4
4
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 1908
-f==*B/LAl£/EJkM
Rauðarárstig 31
Simi 22-0-22
Hverfisgöta 103.
Sími eftir loknn 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14370 eSa 81748.
Sigurðnr Jónsson.
BÍLALEIGAINi
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRALT
NÝIE VW 1300
SENDUM
SÍMl 82347
Vélapalckningar
De Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Chevrolet, flestar tegundlr
Dodge
Bedford, disel
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Beðford, disel
Thames Trader
Mereedes Bena, fleststr teg.
Gaa ’59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Sími 15362 og 19215.
Braotarholti &
Verkefni lög-
reglunnar
Sævar I>. Jóhannesson, rann-
sóknarlögregluþjióiin, skrifar:
„Kæri Veivakandi!
Miðvik udaginn 29. mai sl.
ræðst J. S. Kvaran ómaklega
og að órannsökuðu málá á lög-
regluna, sakar hana um van-
rækslu i starfi og um lirikind
við þjófapakk, eins og hann orð
ar það, þó að það koani fram
síðar í grein hans, að „lögregl-
an virðist ekki mega skipta sér
af eða hafi nokkra möguleika
á að hýsa og geyma fyrmefnt
pakk“. Það er virðingarvert, að
J. S. Kvaran akuii reyna að
afsaka „getuleysi" lögreglunn-
ar, eftir að hafa vítt hama fyrir
það.
Þar sem ég sé á skrifum
greinarhöfundar, að hann er ó-
kunnur skipan lögreglu- og
dómsmála hér á landi, vildi ég
leyfa mér að upplýsa. hann um
eftirfarandi: Lögreglan annast
einungis frumranmsóknir af-
brotamála, en hefur ekkert
dómsvald. Þegar lögreglumað-
ur hefur lobið rannsókn sinni,
er dómara eða barnaverndar-
nefnd, sé um ungling innan 16
ára aldurs að rseða, fengið mál
ið í bendur, og er það þeirra
að ákvarða refeingu brotamann
inum til handa, hvort heldur
er um að ræða geymslu um
langan eða skamman tima eða
fjárseklir.
Vægari dómar hér
en í Danmörku?
Ég er aMs ófcunmigur sikipan
þessara máia á Spáni, en tel
samt (ég viíl geta þess, að ég
byggi ályktanir minar á lestri
frétta um lögreglumál frá þessu
sólríka landi), að ekki sé sam-
an að jafna framkvæmd lög-
reglu- og dómsmála í lýðræðis-
ríki og einræðisríki. Danir eru
okkur skyldir, og eru íslenzk
lög að miklu leyti sniðin eftir
þeim dönsku, en framkvæmd
þeirra „öil önnur“, þar sem
dómar eru öllu vægari hér en
fyrir sams konar brot í Dan-
mörku. Tel ég, að þar raði
miklu um hve fangelsisimálin
hér eru í miklum ólestri, ónógt
fangelsisrými, upptöku- og
gæzluheimili fyrir unglinga
ekki tii, og afleiðingar þessa
ófremdarástands bitna að sjálf
sögðu fyrst og fremst á borgur
um, þar sem stytta þarf fang-
elsisvist margra afbrotamanma
til að koæna öðrurn inn. Margir
þessara manna eru vart komnir
út fyrir ,, f angels is veggi na“,
tyrr en þeir hefjast handa að
nýju við fyrri iðju, innbrot,
árásir, þjófnaði, skemmdarverk
o. fl. Éig geri ráð fyrir, að
greinarhöfurtdur hafi gert sér
grem fyrix þvi, að það er rfkia-
stjórnairinnar að ráða fram úr
fangelsisvandamálunum, og hef
verzlun, qg eir kærðuir heáux
lögreglan þar dítið að segja.
í sjónvarpsiþættinum „Á
blaðamannafundi“, sl. vetur,
þar sem rætt var við Baldur
Möller, ráðuneytisstjóra í dóms
málaráðuneytiiiu, kom fram að
í fangeísismálum erum við 50
—60 ár á eftir tímajnum. Svo
segja má að ,J>yrnrrósu“ sé
mál að rumska þar sem farið
er síga töluvert á seinni hluta
aldarinnar, áður var þörf en
nú er nauðsyn.
Um linkind lögreglunnar er
það að segja að bún verður að
fara að lögum i umigengni sinni
við afbrotamenn, en ekki eigin
tilfinningtrm, þó að það sé vafa
laust oft freistandi, en það
skilja þeir einir, sem hafa þurft
að horfa upp á afleiðingar við-
urstyggilegra afbrota, og er
næ-stum óhætt að fullyrða að
þeir menn hafa litla sem enga
samúð með brotamanmnum.
Slæmur unglinga-
hópur
Frá því í návemibermánuði
1967 fram á þennan dag hefur
lögreglan orðið að hafa afskipti
Til leigu
nú þegar 1. flokks nýleg 4-
við Fellsmúla.
Upplýsingar í síma 35116.
-5 herb. íbúð 120 ferm.
Einbýlishús á sjávarlóð
til sölu, um 300 ferm. 6 svefnherbergi.
Þeir sem áhuga hafa á kaupum sendi nöfn og
símanúmer til Mbl. merkt: „Sjávarlóð — 5061“.
TIL SÖLU
iðnaðar- og verzlunarhúsnæði með 1800 ferm. lóð.
Upplýsingar í síma 20302 og eftir kl. 7 í síma 15791.
Þorsteinn Jónsson.
af sama unglingaihópnum fyrir
margskonar afibrot, stór og
smá, allt frá búðarþjófnuðum
upp í stórkostleg skemmdar-
verk, og meðal þeirra síðustu
aifreksverka voru árásir á litl-
ar telpur, er voru að selja blöð,
og hirtu þeir arðinn af sölu
blaðanna. Tjónið sem þessir
unglingar hafa valdið mun
nema á annað hundrað þúsund
krórtum og mun sennilega vægt
reiknað. Aírit af öllum lög-
regluskýrslum um framferði
þessara unglinga hafa verið
sendar barnaverndarneínd,
sem fjaMar um mál þeirra, en
að manni virðist með harla litl
um árangri, því að þeir fara
enn eins og logi um akur og
kannski ekki að undra, þar
sem ekkert gæzluheimili er til
fyrir afbrotaunglinga, eins og
áður er vikið að. Til frekari
fróðleiks vil ég geta þess að í
39. gr. fyrstu málsgr. laga um
vernd barna og ungmenna
stendur:
Rikisstjórninni er skylt, eft
ir því sem fé er veitt til þess
í fjárlögum, að setja á stofn
og reka heimili, þar sem
vistuð skuilu börn og ung-
menni, sem firamið hafa lög
brot eða eru á annan hátt á
glapstigum. Skuáu heimiM
þessi vera a.mjk. tvö, annað
fyrir stúikur, en hitt fyrir
pilta. Ráðherra setur reglur
um vist barta og ungmenna
á heimilum þessum, fræðslu
og aga.
Það er annað en gaman að
eygja sjaldan eða aldrei árang-
ur af starfi sínu, en sú stétt
manna, sem kemst næsrt því að
mínu áliti, er lögreglan.
Ef J. S. Kvaran á eftir að
lesa þessar línur þá er það von
min að hann skilji betur af-
stöðu lögreglunnar, tM þessara
mála, en áður.
+ Ávísanafals
Ein arðvænlegasta „iðja“ af-
brotamanna, seinni árin, hefur
verið útgáfa og sala á fölskum
ávísunum og fer þessi þáttur af
brotamála sifellt vaxandi, enda
er þeim er selja ávísanir gert
hægt um vik, þar sem aldrei
eða með örfáum undantekning-
um er beðið um „persónuskil-
ríki“, til staðfestingar á nafni
framseljanda. Ég hefi alloft
spurt verzlunarfólk og banka-
gjaldlkera hverju þetta sætti og
eru svörin öll á sama veg; verzl
unarfólkið er hrætt við að það
kunni að „móðga“ viðskiptavin
ina (ja, þvílík viðkvæmni) —
þannig að það missi af viðskipt
um þess í framtíðinni, en gjald
kerarnir, þeir sem ég hef talað
við, segjast ekki hafa tíma til
að standa í slíku og allra sízt
þegar mikið er að gera. Þetta
mætti kalla ábyrgðarleysi.
Þrátt fyrir marg-ítrekaðar að
varanír lögregtunnar um þetta
efni er þessu Mtill gaumtcr gef
inn, þó svo að það sé skylda
hvers borgara að koma í veg
fyrir hverskonar lögbrot, sé
þess nokkur kostur.
★ Tillaga til úrbóta
Hvernig væri raú ef Kaup-
mannasamtökin létu prenta
spjöld, sem dreift væri í allar
verzlanir og hengd upp á áber-
andi stað í hverri verzlun, með
áletrun, sem væri eittíhvað á
þessa leíð:
„Ávísanir ekki teknar nema
með framvísun nafn- eða öku-
skírteinis“, og síðan nafin sam-
takanna þar undir. Bankarnir
gætu haft svipaðan hátt á, sett
álberandi spjald við hverja
gjaldkerastúku. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að með þess
um hætti mætti koma í veg fyr
ir mikinn fjölda ávfeanafaQlsan-
anna og að hætta á því að
„móðga“ viðkvæma viðskipta-
vini mundi minnka til muna,
ennfremur mætti vatfalaust
spara mikið fé og geysilega
vinnu, er felst í því að hafa upp
á „rítihöfuradum" falskra ávís-
ana.
Þjófur, sem stelur, t.d. úx
verzlun, og er kærður hefur
þar með gerzt sekur um að
stela „úr vasa“ þínum, borgari,
þvi að þú greiðir þín gjökl til
borgariranar, sem aiftur greiðir
mönnunum er vinna að upp-
ijóstrun þeirra affbrota sem
framin eru í borginni þinni.
Er ekki kominn tími til að
stemma stigu við þessum ó-
fögnuðí og gera þeim, afbrota-
mönmim, erfiðara um vilk að
seilast, því sem næst fyrirhafn
arlaust, ofan í vasa hinma heið
arlegu borgara. Ti ,um strax
höraduim saman og stingum á
meinsemdinni áður en bún
verður „ólæknaraleg".
^ Ekki hann —
heldnr hinn
Þorsteinn Jónsson ritlhöfund-
ur (Þórir Bergsson) óskar þess
getið, að hann sé ékki sá Þor-
steinn Jónsson, sem átti hér
bréf 1. þ. m.
TIL SÖLU
MASSEY-Ferguson traktorar 135 og 165.
DIESEL 100% yfirfarnir. Verðið mjög hagstætt.
T. HANNESSON & CO. H.F„
Brautarholti 20, simi 15935.
íbúð - Vesturbær
4ra—5 herb. íbúð í nýlegu steinhúsi á bezta stað
í Vesturbænum til sölu.
fbúðin er nýstandsett. Tækifærisverð.
Upplýsingar gefnar á
Lögfræðiskrifstofu
Amar Clausen og Guðrúnar Erlendsdóttur
Barónsstíg 21.