Morgunblaðið - 07.06.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 19©8
wguitfrfftfrife
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Simi 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
ROBERT KENNEDY
Danatilræði Jórdaníumanns-
** ins og Arabans Sirhan
Sirhan við Robert Kennedy
öldungadeildarþingmann, frá
New York, tókst. Hinn ungi
og glæsilegi stjórnmálamað-
ur er látinn. Annar Kennedy-
bróðirinn er fallinn fyrir
hendi morðingja.
Þetta er hörmuleg stað-
reynd, sem ekki aðeins banda
ríska þjóðin heldur og megin
hluti heimsins stendur
frammi fyrir harmi lostinn.
Enn einu sinni hefur ískalt
mannhatur og ofstæki sett
sterkan blett á samvizku
mannkynsins. Enn einu sinni
hefur það sannazt hversu sorg
lega skammt maðurinn er
kominn áleiðis á andlegri
þroskabraut sinni.
★
Það er mannlegt að hugur-
inn reiki fyrst til fjölskyldu
Roberts Kennedys, konu hans
og 10 barna. Hyldjúp ógæfa
hefur knúð dyra hjá þessari
stóru fjölskyldu, sem ævin-
lega hefur komið fram af ó-
venjulegri og sérstæðri sam-
heldni. Glæsilegur eiginmað-
ur og umhyggjusamur faðir
stórs barnahóps er horfinn.
Harmur og missa Ethels
Kennedys, barna hennar og
allra ættingja og venzla-
manna, er mikil og óbætan-
leg.
En bandaríska þjóðin hef-
ur einnig orðið fyrir miklu
tjóni. Hún hefur á skömmum
tíma misst tvo glæsilega
stjórnmálamenn fyrir morð-
ingjahendi í blóma lífsins.
Sárust og tilfinnanlegust er
þó sú staðreynd, að slíkir
skelfingaratburðir skuli geta
gerzt í menningarþjóðfélagi,
og það í því landi, sem fremst
stendur allra í baráttunni
fyrir frelsi og mannréttindum
í heiminum.
Ýmislegt er enn óljóst um
morð Roberts Kennedys. Virð
ist þó liggja Ijóst fyrir, að
banamaður hans er arabísk-
ur ofstækismaður, sem taldi
sig vera að hefna ummæla
Kennedys um deiluna fyrir
botni Miðjarðarhafs. En
margt bendir til þess, að
hvergi logi nú eldar haturs
og hefndarhugar heitar en
einmitt á þeim slóðum.
Um orsakir voðaverksins
tjóar lítt að ræða. Það hef-
ur verið unnið, ógæfan hef-
ur dunið yfir.
★
Robert Kennedy var á
bezta aldri er hann féll.
Hann var einn af glæsileg-
ustu og mikilhæfustu stjórn-
málamönnum Bandaríkjanna.
Hann átti að sjálfsögðu eins
og allir mikilhæfir menn
harða andstæðinga. En flest-
ir viðurkenna, að hann hafi í
dómsmálaráðherratíð sinni í
stjórn John F. Kennedys
bróður síns, komið fram
miklum umbótum í réttinda-
málum blökkumanna í Banda
ríkjunum. Hann var djarfur
og hiklaus stjórnmálamaður,
sem átti mikla framtíð í
vændum. Hann hafði þegar
komizt til hins mesta frama
og unnið landi sínu og þjóð
margvíslegt gagn. Hann hafði
unnið marga sigra í baráttu
sinni fyrir framboði Demó-
krataflokksins í næstu for-
setakosningum. Óvíst var þó
um útnefningu hans á þingi
flokksins í sumar. En það
skiptir ekki meginmáli.
Kjarni málsins er, að hann
var mikill stjórnmálamaður,
sem þegar hafði unnið mikil
afrek í þágu þjóðar sinnar og
átti margar hugsjónir, sem
hann barðist fyrir af hug-
rekki og sérstæðum dugnaði.
„Við getum ekki þagað yf-
ir sorg okkar“, sagði Páll
páfi 6, er honum bárust fregn
imar af banatilræðinu við
Robert Kennedy. Hann sagð-
ist harma þennan atburð
mjög og kvaðst mundu biðja
til Guðs um að sú almenna
gremja og sorg, sem slíkur
atburður vekti yrði til þess
að bægja ofbeldishneigð úr
hjörtum allra manna.
Undir þessi ummæli páf-
ans mun áreiðanlega verða
tekið um víða veröld.
★
Það er ekki nóg að for-
dæma þá rótlausu illmensku,
sem liggur til grundvallar
morðum og öðrum ódæðum.
Hitt er miklu þýðingarmeira,
að sú sorg, sem þau skapa,
verði til þess að útrýma of-
beldishneigð og hatri úr
hjörtum manna. Mannkynið
verður að gera sér ljóst, að í
hinni miklu framfarasókn
þess, tækniþróun og lífskjara
bótum, hefur sálin dregizt
aftur úr, ef svo mætti að orði
komast. Siðgæði og andlegur
þroski er ennþá á alltof lágu
stigi. Boðskapur kærleika og
gagnkvæmrar virðingar fyrir
rétti og tilfinningum sam-
borgaranna, á ekki nægilega
ríkan hljómgrunn í hjörtum
mannkynsins. Stærsta verk-
efni framtíðarinnar er því
tvímælalaust það, að efla
andlegan þroska og mann-
kærleika meðal þjóða heims-
ins. Fall Kennedy-bræðra og
Martins Luthers Kings verð-
ur með því einu bætt, að upp
af leiðum þeirra vaxi ný trú
á lífið og mátt þess kærleika,
sem einn getur unnið bug á
ofbeldi og hatri.
UTAN ÚR HEIMI
Samband Austurríkis og
Tékkóslóvakíu
AÐ undanförnu hefur verið
á kreiki orðrómur um þriggja
ríkja bandalag milli Tékkó-
slóvakíu, Júgóslavíu og Rúm
eníu — Litla bandalagið, sem
var við lýði milli heimsstyrj-
aldanna og sem um tíma
veitti Austurríki vemd gegn
aðgerðum Mussolinis og Hitl
ers.
Bandalag „endurbótasinn-
aðra“ kommúnistaríkja á
Dónársvæðinu myndi vissu-
lega hafa í för með sér mik-
ilvæga breytingu fyrir stjórn
málalega aðstöðu Austurrík-
is. I stað þess að vera í út-
jaðri myndi Austurríki öðlast
talsvert af fyrri stöðu sinni
að vera miðsvæðis í Evrópu.
Eru hins vegar nokkrar lík
ur á því, að eitthvað þessu
líkt verði að veruleika? Á-
hyggjur manna vegna hugsan
legra hernaðarafskipta Sov-
étríkjanna í Tékkóslóvakíu
hafa minnkað vegna hinna
gagnkvæmu heimsókna sov-
ézku og tékkóslóvaskra leið-
toga að undanförnu. í Vín eru
atburðirnir í Ungverjalandi
1956 fólki enn í fersku minni.
Stjórnmálasérfræðingar í
Austurríki, sem fylgjast ná-
ið með atburðum í Tékkósló-
vakíu, telja að hindranirnar
séu ekki hernaðarlegs eðlis,
eins og sakir standa, heldur
efnahagslegs, því að stjórnar-
völdin í Moskvu hafa gert erf
itt fyrir um vik varðandi lán
þau, sem Tékkóslóvakar hafa
farið fram á.
Stjórnarvöld í Tékkóslóvak
íu hafa hinsvegar einnig leit
að til fjármálamanna í Vest-
ur-Þýzkalandi um lán, en þeir
hafa gert þá skyssu að gera
það að skilyrði fyrir lánveit
ingum, að Tékkóslóvakía
gangi úr Varsjárbandalaginu.
Fjármálamenn í Frakk-
landi hafa að því er virðist
verið sanngjarnari. Þeir
standa í nánu sambandi við
fjármálamenn úr hópi Gyð-
inga og hafa aðeins farið
fram á, að Tékkóslóvakía
hætti að láta Aröbum í té
vopn gegn ísraelsmönnum.
Almenningsálitið í Austur-
ríki er hlynnt hinni nýju rík
isstjórn Tékkóslóvakíu. Aust
urrískir sósíaldemókratar
byggja viðhorf sitt samt tals
vert á því, hvort raunveru-
legum sósíaldemókrataflokki
verði aftur komið á fót í
Tékkóslóvakíu. Sósíaldemó-
kratar í Austurríki eru al-
þjóðlega sinnaðir. — Þannig
er forseti alþjóðasambands
sósíaldemókrata, dr. Bruno
Pittermann, Austurríkismað-
„Lýðræðissköpunin“ tekur
sinn tíma
En er hér verið að ætlast
til of mikils að leiðtogunum
í Prag? Einstaka stjórnmála
flokkar, sem ekki eru komm
únistískir, eins og þjóðlegi
sósíalistaflokkur Masaryks og
Benes og kaþólski alþýðu-
flokkurinn hafi haldið áfram
að lifa skuggatilveru, á með
an kommúnistar hafa verið
við völd og eru nú farnir að
sýna á sér merki sjálfstæðrar
tilveru. En sósíaldemókrata-
flokkurinn, sem var neyddur
til þess að sameinast kommún
istaflokknum, er enn bann-
aður. Tveir hinna gömlu leið
toga hans, hafa lýst því yfir,
að það myndi ekki vera heppi
legt nú að endurlífga sósíal-
demókrataflokkinn sem sér-
stakan flokk. Ýmsir austur-
rískir sósíalistar eru þeirrar
skoðunar, að „lýðræðissköpun
in“ í Tékkóslóvakíu verði að
fá sinn tíma til þess að þró-
ast.
Blöð kommúnista í Austur
ríki hafa reynt að beina at-
hygli fólks frá því, sem af-
vega fer í ríkjum kommún-
ista í Austur-Evrópu, að því,
sem afvega fer á Vesturlönd
um eins og stúdentaóeirðun-
um.
Til þessa hefur stjórnleys
ishyggja á meðal stúdenta
haft á sér fremur meinleysis-
legan svip í Austurríki. Hinn
1. maí sl. reyndu nokkrir
vinstri sinnaðir stúdentar að
hleypa upp hljómleikum,
sem hljómsveit sósíademó-
krata hélt fyrir framan ráð-
húsið í Vín, með kröfu um,
að „umræður" færu fram í
staðinn.
Stúdentafélag sósíaldemó-
krata bar síðar fram afsökun
við formann flokksins, Bruno
Kreisky, og um 20 þeirra,
sem hlutdeild áttu í þessum
atburði, voru beðnir að segja
sig úr flokknum.
Fyrir skömmu var með
naumindum komið í veg fyr
ir vandræði í sambandi við
það, að Otto af Habsburg sem
áður gerði kröfu til austur-
rísku krúnunnar, kom í fyrsta
sinn opinberlega fram í Vín-
arborg, en hann er nú búsett-
ur í Bajern. Átti hann að
flytja fyrirlestur á fundi stú
denta. Kommúnistar skoruðu
þá á stuðningsmenn sína að
koma til skjalanna, en lög-
reglustjórinn í Vín, Joseph
Holaubek, sem er sósíaldemó
krati, tókst að telja um fyrir
stúdentum og fá þá á síðustu
stundu til þess að fresta fyr-
irlestri Ottos af Habsburg,
unz svokallaðri Vínarhátíð,
sem stendur í nokkrar vikur,
væri lokið, en hún skiptir
miklu máli fyrir komu ferða
manna til landsins.
Það er talið einstakt af
mörgum í Evrópu um þessar
mundir að lögreglustjóri geti
talið stúdentafélag til þess að
falla frá áformum sínum.
(Observer, öll réttindi á-
skilin.)
Úr setustofu einn fundardaginn.
Húsmæðravika í Bifröst
HIN árlega Húsmæðravika kaup-
félaganna og Sambands íslenzkra
samvinnufélaga var að þessu
sinni haldin í Bifröst dagana 19.
til 26. maí.
Vikuna sóttu 42 konur frá 12
kaupfélögum. Margar húsmæður
sem sótt höfðu vikuna gátu ekki
komið vegna vorharðinda og
erfiðra heimilisástæðna.
Á Húsmæðravikunni voru
flutt 13 erindi um margvísleg
efni auk sýnikennslu í mat-
reiðslu. Farið var í heimsókn til
Húsmæðaskólans að Varmalandi,
.skólinn skoðaður ásamt sýnis-
hornum af handavinnu nemenda
og notið hinna ágætustu veitinga
í boði skólans.
Á kvöldin voru um hönd höfð
ýmis skemmtiatriði og vikunni
lauk með kvöldvöku, sem gestir
vikunnar, húsmæðurnar sjálfar,
sáu um.
Heiðursgestur Húsmæðravik-
unnar að þessu sinni var frú Guð-
rún Árnadóttir skáldkona frá
Lundi.
Dagskrárstjórn hafði á hendi
Páll H. Jónsson frá Laugum, en
heimilisstjórn í Bifröst frú Þóra
Einarsdóttir, vegna fjarveru frú
Guðlaugar Einarsdóttur, sem
jafnan hefur staðið þar fyrir
móttökum á fyrri Húsmæðra-
vikum.