Morgunblaðið - 03.08.1968, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968
9
OLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Hafnarbíó
Leyniför til Hong Kong
Það eru enn til bjartsýnis-
menn, þrátt fyrir allt krepputal-
ið á þessu landi. Einn af þeim
er Jón Ragnarsson, sem nú hef-
ur keypt Hafnarbíó. Hefur hann
látið það boð út ganga að hann
ætli að byggja nýtt bíó, á þess-
ari sjónvarpsöld. Hann hefur nú
látið hressa upp á anddyri húss-
ins, stækkað það ofurlitið og
breytt. Þegar ég var þarna á
ferð, var nærri fullt hús og var
þá í fyrsta sinn í mörg ár hlé
í Hafnarbíó. Þó að anddyrið hafi
verið stækkað mn fáeina fer-
metra, er það fjarri því að vera
forsvaranlegt að hafa þarna hlé,
því aðeins lítill hluti gesta kemst
þar fyrir. Það verður fróðlegt
að sjá fyrsta hléið, með fullt
hús, þegar slydduhryðja gengur
yfir um leið.
En Jón er bjartsýnismaður og
hann hóf reksturinn, með því að
sýna þessa mynd. Eins og fyrr
segir var fullt hús og má það
teljast undarlegt. Yfirleitt verkar
það á fólk eins og blikkandi
aðvörunarmerki er nafnið Hong
Tangier og Marrakech eru
•nefnd. En það virðist vera hægt
að sýna hvað sem er á meðan
landið er sjónvarpslaust.
Mynd þessi er í stuttu máli
hörmuleg. Ég átti von á að hún
væri slæm og hefði ekki farið
að sjá hann, nema af því að
breytingar höfðu verið gerðar
og langaði mig að sjá þær. En
hún var verri en ég átti von á.
Hún fjallar um mann úr F.B.I.
í Bandaríkjunum, sem sendur er
til Hong Kong, þegar allt er
komið í hönk, og smyglarar flytja
efni í karnorkusprengjur ístór
um stíl um Hong Kong.
Veslings Stewart Granger, leik
ur þennan mann. Til að gera eitt
hvað úr honum er hann hafður
í mjög fínum fötum, 1 fínum íbúð
um o.s.frv. Ekkert getur þó leynt
því að hann leikur ekki, og er
auk þess af léttasta skeiði. Auð-
vitað verður að vera stúlka, al-
veg eins og í hinum JamesBond
stælingum. Stúlkan er leikin af
laglegri konu, vel I holdum, sem
striplast í náttfötum, sem eru yfir
leitt opin niður á rass að aftan.
Mun leitun á konu, sem er jafn
sneydd kynþokka.
Söguþráðurinn er hvorki betri
né verri en venjulega, en það
gefur þó nokkra hugmynd um
hversu losaraleg vinnubrögðin
eru, að þessir Þjóðverjar, sem
framleiða myndina, vita ekki að
F.B.I. er innanríkislögregla Band
aríkjanna og starfar ekki utan
þeirra. Og þannig mætti lengi
telja.
Ef ég vserl ....
Ef ég væri kvikmyndahússeig
andi, hvað myndi ég vera þegar
sjónvarpið fer í sitt mánaðarfrí?
Myndi ég nota tækifærið og
sýna lélegar myndir í þeirri von
að fólk kæmi hvort sem er, þar
sem ekkert annað væri við að
vera. Myndi ég nota tækifærið
og endursýna myndir, sem áður
fengu aðsókn, í þeirri von að
menn vildu enn koma að sjá
þær. Eða myndi ég leggja niður
sýningar og fara í sumarfrí eins
og sjónvarpið?
Allar ofangreindar leiðir hafa
verið farnar, að því er virðist,
af kvikmyndahúsunum hér í
Reykjavík og nágrenni, á þessum
síðasta mánuði.
Mér er nær að halda að ég
hefði tjaldað því sem til er, sýnt
bestu mynd, sem völ er á, til
að reyna að fá fólk til að koma
í bíó. Reyna að slíta eldra fólk-
ið að heiman, svo að það komi
frekar aftur. Þetta er gullið tæki
færi. En ég virðist eiga þessa
skoðun einn, eða að minnstakosti
eru kvikmyndahússeigendur mér
ekki sammála.
Það er áberandi hvað aðsókn
hefur verið meiri en undanfarna
mán uði, nú í júlí. Og ekki er
gæðum myndanna fyrir að fara.
Vfð höfum getað glatt okkur
við Uppvakninginn, lélega hryll
ingsmynd, í klóm Gullna Drek-
ans og Leyniför til Hong Kong
fjórða flokks James Bond stæl-
ingar, dauflegar stríðsmyndireins
og Hættuleg sendiför og Orrust-
an Mikla, o.s.frv.
í Reykjavík, Kópavogi og í
Hafnarfirði voru sýndar þrjátíu
og fimm kvikmyndir í júlí.
Þar af höfðu 16 ekki verið sýnd
ar áður, átta voru endursýndar
í Reykjavík og ellefu voru end-
ursýningar í Hafnarfirði, á mynd
um sem sýndar höfðu verið í
Reykjavík.
Nær þetta nokkurri átt?
Röksemdir eru vissulega til
fyrir því að sýna lélegar mynd-
ir yfir sumarið. Mikill fjíldi
manna er fjarverandi úr bænum.
Mikið los er á fólki og margir
tregir til að vera innanhúss í
góðum veðrum. Ekki tel ég þær
sannfærandi.
Það þarf ekki mikla athugun
til að sjá, að meginhluti gesta
í kvikmyndahúsum eru undir
þrítugt og sennilegt að helming
ur eða meira sé undir tvítugt.
Það er því eðlilegt að vali kvik-
mynda sé háttað með tilliti til
þessa. En það verður ekki kom-
izt hjá þeirri hugsun, að þetta
kunni að vera orsök þess að eldra
fólk sækir ekki kvikmyndahús,
frekar en afleiðing.
Nú kann einhver að segja að
flestar myndir sem einhvers virði
eru, séu sýndar hér á landi. Það
lætur nærri að þær séu um 250
á ári, sem sýndar eru hér á
landi. f Bandaríkjunum einum
eru framleiddar það margar mynd
ir, þegar undan eru teknar all-
ar undarlegheita myndir, og
mest af svokölluðum „drive-in-
quickies", ódýrum og lélegum,
sem aðallega eru ætlaðar úti-
kvikmyndahúsum. Þá er eftir all
ur kvikmyndaiðnaður Evrópu,
svo ekki sé talað um Indland
Japan og fleiri Austurlönd, sem
framleiða hundruð mynda á ári,
fæstar þó að vestrænum smekk.
Það er hægt að finna í heim-
inum betri myndir, til að sýna
í júlí. Það væri vonandi að ein-
hver leitaði.
Ég vil að lokum taka það fram
að ég vil ekki með þessum orð-
um vera á móti endursýningum á
góðum myndum, svo sem Tom
Jones, Porgy and Bess, svo dæmi
séu nefnd. Tel ég slíkar sýning-
Síminn er 24300
Til sölu og sýnis. 3.
Á Eyiabakka
Steinhús 126 ferm. kjallari,
hæð og geymsluris. í hús-
inu eru 2 íbúðir, 2ja og 3ja
herb. og er hæðin laus nú
þegar. Eigninni fylgir hest-
hús, fjárhús og hlaða. Sölu-
verð hagkvæmt. Skipti á
3ja herb. íbúð á hæð í borg-
inni æskilég.
Húseign 68 ferm. tvær hæðir
alls nýtízku 6 herb. íbúð í
Austurborginni. Bílskúrs-
réttindi, húsið er í sérlega
góðu ástandi og laust til
íbúðar nú þegar. Hagkvæmt
verð.
1, 2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 herb.
íbúðir, víða í borginni, sum
ar sér og með bílskúrum
og sumar lausar.
Húseignir af ýmsúm stærð-
um í borginni og í Kópa-
vogskaupstað og margt
fleira.
Komið og skoðið
Sjón er sögu ríkari
Nýja fasteignasalan
Símt 24300
Sími
14226
TIL SÖLU
2ja herb. íbúð við Borgar-
holtsbraut, hagkvæmir
gr eiðslusk ilmálar.
2ja herb. fokheld íbúð við
Geitland.
3ja herb. íbúð í háhýsi við
Sólheima.
3ja herb. íbúð við Laugarnes
veg, ásamt einu herb. í kjall
ara.
4ra herb. mjög vönduð ibúð
við Ásbraut í Kópavogi, til
greina kæmi að taka minni
íbúð uppí í skiptum.
3ja herb. íbúð við Langholts-
veg, ásamt 2 herb. í risL
3ja herb. jarðhæð í þríbýlis-
húsi við Skólagerði.
4ra herb. íbúð við Ljósheima
í háhýsi.
4ra herb. íbúð við Grundar-
gerði. Allt sér.
5 herb. íbúð við Hvassaleiti,
bílskúr meðfylgjandi.
Einbýlisihús í Kópavogi og
Silfurtúni.
Fokheld einbýlishús við Mark
arflöt.
Fasteigna. og skipasala
Kristjáns Eiríkssonar hrl.
Laugavegi 27 - Sími 14226
og 41173,
ar æskilegar, en ekki þegar þær
nálgast að vera helmingur allra
mynda, sem sýndar eru í Reykja
vík og nágrenni á heilum mán-
uði.
ós
Einkaritari óskar eftir starfi
3ja ára starfsreynsla við
þýzkar og enskar
bréfaskriftir við háskólabókasafn í Þýzkalandi.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „8249“.
Hei opnoð lækningostoiu
í Fischersundi (Ingólfsapótek). Viðtalstími 10—11,30 alla daga
nema laugardaga og þriðjudaga, þriðjudaga kl. 16—18.
Símatími alla daga kl. 9—10, nema þriðjudaga kl. 15—16,
sími 12636.
MAGNÚS SIGURÐSSON, læknir
Ég undirritaður
opna í dag
lögt'ræðiskrifstofu að Neðstutröð 4, Kópavogi.
Opið virka daga kl. 10—12 og kl. 2—6, nema laugar-
daga kl. 10—12.
Haukur Davíðsson, hdl., sími 42-700.
Auglýsing
Síðari hluti aðalskoðunar bifreiða í lögsagnarumdaemi
Reykjavíkur fer fram 6, ágúst til 31. október n.k., að
báðum dögum meðtöldum, svo sem hé segir.
Þriðjuidag 6. ágúst R-11551 tiO. 11700
Miðvikudag 7. — R-11701 11850
Fimantudag 8. — R-11851 12000
Föstuidag 9. — R-12001 12150
Mánudag 12. — R-12151 12300
Þríðjuidag 13. — R-12301 12450
Miðvikiudag 14. — R-12451 12600
Fimmtudag 15. — R-12601 12750
Föstudag 16. — R-12751 12900
Mánudag 19. — R-12901 — 13050
Þriðjuidag 20. — R-13051 — 13200
Miðvikudag 21. — R-13 20 3 — 13350
Fimmtudag 22. — R-13351 — 13500
Föstudag 23. — R-13501 — 13650
Mánudag 26. — R-13651 — 13800
Þriðjudag 27. — R-13801 13950
Miðvilkudag 28. — R-13951 14100
Fimmtudag 29. — R-14101 14250
Föstudag 30. \ R-14251 14400
Mánudag 2. s-eptember R-14401 — 14550
Þriðjudag 3. — R-14551 14700
Miðvikudag 4. — R-14701 14850
Fimmtuidag 5. R-14851 — 15000
Föstudag 6. — R-15001 15150
Mánudag 9. — R-15151 15300
Þriðjudag 10. — R-15301 15450
Miðvikudag 11. — R-15451 15600
Fimnmtudag 12. — R-15601 15750
Föstudag 13. —■ R-15751 _ 15900
Mániudag 16. — R-15901 16050
Þriðjudag 17. — R-16051 16200
Miðvfkudag 18. — R-16201 16350
Fimmtudag 19. — R-16351 16500
Föstudag 20. — R-16501 — 16650
Mánudag 23. — R-16651 — 16800
Þriðjudag 24. — R-16801 16950
Miðvikudag 25. — R-16951 17100
Fimmtudag 26. — R-17101 17250
Föstudag 27. — R-17251 — 17400
Máruudag 30. — R-17401 17550
Þriðjudag 1. október R-17551 — 17775
Miðviikudag 2. — R-17776 — 18000
Fimimtudag 3. — R-18001 — 18225
Föstudag 4. — R-18226 _ 18450
Mánudag 7. — R-18451 — 18675
Þriðj.uidag 8. — R-18676 — 18900
Miðvikudag 9. — R-18901 19125
Fimimtudag 10. — R-19126 19340
Fösfcudag 11. — R-19341 — 19565
Mánudag 14. — R-19566 19790
Þriðjudag 15. — R-19791 — 20015
Miðvikudag 16. — R-20016 — 20240
Fimimtudag 17. — R-20241 — 20465
Föstudag 18. — R-20466 — 20690
Mánudag 21. — R-20691 — 20415
Þriðjudag 22. — R-20616 _ 21140
Miðvikudag 23. — R-21141 — 21365
Firrmrtudag 24. — R-21366 — 21590
Föstudag 25. — R-21591 — 21815
Ménudag 28. — R-21816 — 22040
Þriðjudag 29. — R-22041 — 22265
Miðvikudag 30. — R-22266 — 22490
Fkmmtudag 31. — R-22491 — 22650
Bifreiðaeigendum ber að koma nveð bifreiðar sínar til
Bifreiðaeftólrts’ns, Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar dagtega, lcl. 9—12 og kl. 13—17 mámidaga,
þriðjudaga og miðvikudaga. fimmtudaga tiil kl. 18.30 og
föstudaga til kl. 16.30, í ágúst og september. Aðalsfcoðun
verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar,
tengrvagnar og farþegabyrgi skuki fylgja bifreiðunum
til skoðunar.
Skoðun á bifreiðum, sem eru í notkun hér í borg, en
sikráðar eru annars staðar, far fram í ágústmánuðL
Við skoðun skulu ökumenn bifieiðanna leggja frarn
fullgild öikuskírteini. Sýna ber skilríki fyriir því, að bitf-
reiðaskattur og vátryggingariðgiald ökumanna fyrir árið
1968 séu greidd eg lögboðin vátrygging fyritr hverja
bifreið sé í gildi. Þeir bifrieiðaeigendur, sem hafa við-
tæki i bifreiðum sínum, stoulu sýna kvrttun fyrir greiðslu
afnotagjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1968. Hatfi gjöld
þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmri
og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöidin eru gireidd. Enn-
fremwr ber að framvisa vottorði frá viðurkenind.u við-
gerðarverfcstæði um að ljós bitfreiðarinnar hatfi verið stilit.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á rétt-
ura degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um-
ferðalögum og Iögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tek-
in úr umferð hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 1. ágúst 1968.
Sigurjón Ólafsson.