Morgunblaðið - 10.08.1968, Side 11
MORGUNiBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1968
11
Listin ekki í tengslum við fölkið
Rœtt v/ð norskan myndhöggvara, Per Ung
PBR Ung, norski mynd-
höggvarinn, sem gerði
Rræðratréð, sem veitt var
Hákoni Bjarnasyni skógrækt-
arstjóri s.l. fimmtudag fyxir
störf í þágu skógræktar, er
oft, að opinberar stofnanir
kaupa af okkur listaverk.
>á er það líka mjög til hag-
ræðis, að nýlega var stoínað-
ur sjóður, svokallað „Material
fond“, og úr þessum sjóði eru
Per Ung og Valerie kona hans. Milli þeirra er Bræðratréð.
einn af fremstu myndhöggv-
urum Norðmanna í dag. Hann
er 35 ára gamiall.
Per Ung kom hingað til
lands, vegna afihendinga-
styttunnar, og við hittum
hann að máli og áttum við
hann stutt rabb um norska
myndlist.
„Það er gott að vera lista-
maður í Noregi“, sagði hann,
„þ.e.a.s. efnehagslega, því að
styrkir til þeirra eru ríkuleg-
ir, en fyrir okkur myndhöggv
ara er það ætíð vandamál, að
menn kaupa yfirleitt ekki
höggmyndir, því að þær eru
of dýrar. Hihsvegar er það
veitt lán til listamanna, t.d.
get ég fengið lán til að gera
afsteypur af verkum mínum,
og þarf ég ekki að borga lán-
ið fyrr en ég get selt verkið.
En það er annað vandamál,
sem listarnenn eiga við að
glíma í Noregi og það er, að
þeir eru farnir að einangrast,
eru ekki lengur í tengslum
við fólkið, og það er af því
að fólkið skilur þá ekki leng-
ur. Síðastliðin hundrað ár
hefur það verið ríkjandi, að
menn eigi ekki að taka tillit
til fólksins í listsköpun, held-
ur fara sínar eigin götur. Nú
er svo komið, að fólk ypptir
bara öxlum og villi ekki fylgj
ast með. Áður náði högg-
myndalist til fleiri manna, en
nú eru myndhöggvarar að
einangrast. Fólk þarf núna að
læra og skilja listina og þá
hefur það ekki áhuga leng-
ur“.
„Og ert þú einn af þessum
einangruðu listamönnum?"
„Ég vona ekki, og held
ekki. Ég vil að fólk skilji,
hvað ég meina með verkum
mínum, og mínar myndir eru
hlutlægar, þannig að ég reyni
að sýna í myndinni, hvað hún
á að tákna. Ég fjalla mikið um
kærleikann, bæði milli manna
og dýra, milli móður og
barns eða elskenda. Þannig
lýsi ég viðhorfuim míiium til
lífsins og set lífið í leir eins
Og ég skil það.
En eins og ég sagði áðan,
hefur fólk fjariægzt listina,
það er orðið hrætt við að hafa
skoðun á list, því að það veit
ekki lengur hvað hún er. Mér
finnst mun betra að menn
hafi skoðun á list, heldur en
enga“.
„Eru verk þín mikið
keypt?“
„Ekki mikið utan Noregs.
Þeir keyptu af mér mynda-
samstæðu í Hanmover, en
annars er það lítið. Ég vinn
núna við gosbrunn, sem á að
vera við einn skólann í Osló.
Hann er í kvenmannslíki og
ofan við hana sveima mávar,
— ég hef séð mikið af anzi
skemmtilegum mávum hér á
íslandi“, bætti Per við.
„Ég lifi á list minni í augna
blikinu, en auðvitað er það
misjafnt hvernig gengur.
Æskilegast er fyrir hvern
listamamn að gefa lifað á list
sinni, en því miður er það
ekki alltaf hægt. Og mér
íinnst, að ríkið eigi að styðja
við bakið á listamÖnnum, rétt
eins og það styður leikhúsin.
Ef það væri ekki gert væru
engin leikhús".
Þegar við kvöddum, bað
Per Ung okkur að koma því
á framfæri, að í Osló er hús
til afnota fyrir erlenda lista-
menn og þar geta þeir dvalizt
endurgjalds'laust ásamt fjöl-
skyldu sinni um tíma, einn —
tvo mánuði. Umsóknir eru
sendar norska utanríkisráðu-
neytinu. Per sagðist ekki vita
til þess að íslenzkur mynd-
listarmaður hefði dvalizt þar,
og hann taldi slikt mjög raauð
syniegt. „Þú veizt“ sagði hann,
„að læknar og verkfræðingar
og stjórnmálamenn eru alltaf
að þinga, og það eru haldin
alls konar norræn mót og
ráðstefnur. Af hverju eru
ekki haldin slík mót norrænna
listamanna?“
Drengur leikur við hund
Kortlð sýnlr Maríuhðfn, þar sem vélstjórarnir sáu annað hinna rússnesku skipa, staðinn, sem lög
reglumennirnir sáu það á og stö ðvar Atlantshafsbandalagsins í Hvalfirði.
- í HVALFIRÐI
Framhald af bl». 24
lag, þegar skipið var málað.
Mbl. skýrði einnig frá því
í gær, að það hefði reynt að
fá vitneskju um erindi skip-
anna í rússneska sendiráðinu,
„en það sagðist ekki geta
gefið neinar upplýsingar,
fyrr en í fyrsta lagi í dag.“ —
Vonandi er sendiráðið búið
að afla sér upplýsinga um
ferðir skipanna, svo að ekki
er undarlegt, þótt Morgun-
blaðinu hafi ekki tekizt að
ná í blaðafulltrúa þess í gær.
Sáust vlð Laxá í Kjós!
Tvö rússnesk skip sáust inni
á Hvalfirði — skammt úti fyrir
Hvaleyri í fyrrakvöld, svo sem
getið var á bls. 2 í Mbl. í gær.
Hfð sama kvöld komu skipin
síðan á ytri höfnina í Reykjavík,
en þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir Mbl. fékkst ekkert upp um
erindi þeirra. Rússneska sendi-
ráðið kvaðst í fyrradag geta gef
ið upplýsingar um skipin í gær,
en þegar það var reynt var
blaðafulltrúi Kommisaroff ekki
til viðtals.
Nú hefur það komið í ljós, að
tveir menn — Sigurður Guð-
mundsson, vélstjóri og Páll Ein-
arsson, vélstjóri — sem voru að
koma að norðan á miðvikudags-
morgun og voru staddir við Háls
nes um kl. 95, sáu hvítmálað
skip, sem þeir sáu strax að var
rússneskt. Virtu þeir skipin lengi
fyrir sér og samkvæmt viðtali
við annan skipstjóra rússnesku
skipanna, sem kemur hér á eftir,
viðurkennir hann að þetta hafi
verið annað hinna rússnesku
skipa.
Vélstjórarnir sögðu í viðtali
við Mbl. að þeir hefðu þegar í
stað þekkt skipin og vita'ð að
um rússnesk skip var að ræða.
Þeir undruðu sig á því að þau
skyldu vera á þessum stað — í
Hvalfirði — en töldu víst að ís-
lenzka strandgæzlan vissi um
það, svo langt inni á firðinum.
Tilkynntu þeir því ekki um skip
in, en Sigurður hringdi til Mbl.,
er hann hafði lesið fréttina í gær.
Sigurður sagði:
— Þetta skip, sem var þama
í víkinni fyrir framan Laxá í
Kjós var afskaplega rússalegt —
hvítmálað niður í sjólínu og við
félagarnir vorum ekki í vafa um j
þjóðernið. Við sáum það frá báð
um hliðum er við ókum fyrir |
víkurbotninn og það virtist eng- j
in hreyfing vera á því og ekki [
sáum við hvort það lá fyrir
akkeri. Stefnið sneri inn Hval-
fjörð. Þetta var um fimmleytið
á miðvikudagsmor.gun og okkur
var það mikil rá'ðgáta, hvert er-
indi skipsins var. Hins vegar
töldum við vist að strandgæzlan
vissi um skipið — svo langt inni
á firðinum.
Meira skjól í Hvalfirði
Skipstjórarnir tveir á rúss-
nesku skipunum, Fedotov á
Oceanograph og Ilin á Iceberg,
ásamt rannsóknarleiðangursstjór
anum Lebedev fóru í gær til
viðræðna 1 sendiráðið
Er þeir fóru um borð í skip
sín aftur síðdegis í gær fékk
blaðamaður Mbl, að fljóta me'ð,
en lóðsinn í Reykjavík flutti fé-
lagana út á ytri höfnina, þar sem
skipin lágu.
Fedotov, skipstjóri á Oceano-
graph sagði við Mbl. að skipin
hefðu komið hingað til þess að
sækja vatn og vistir.
— Það er vaninn hjá okkur —
sagði hann, að áður en við höld-
um til erlendrar hafnar, þá hreins
um við skipið og málum. Við
reynum að dytta eints vel að þeim
og frekast er unnt. Síðan ætlum
við að koma inn í höfnina hinn
12. ágúst — á mánudaginn.
; — Hvaða rannsóknir stundar
skipið?
— Skipin eru veðurathugunar
skip og við höfum átt mikla og
góða samvinnu við Breta á því
sviði. Við höfum mikið starfað
með ve'ðurskipunum Alfa og
fleiri og nú er verið að fara yfir
vélina hjá okkur.
— Hvers vegna fóruð þið inn
á Hvalfjörð?
— Á Hvalfirði er miklu skýlla,
en hér úti á flóanum. Þar er á-
gætt skipalægi og allar aðstæður
miklu betri til þess eð mála og
hreinsa. Hér á sundunum er ekki
eins skýlt.
— Þið sáust á miðvikudags-
morgun skammt frá Hálsnesi
miðja vega inn í Hvalfjarðar-
botn.
— Já við lágum út af Maríu-
höfn.
— Vissuð þi'ð ekki um þá að-
stöðu, sem Átlantshafsbandalag-
ið hefur í Hvalfirði, spölkorn
innar í firðinum?
— Nei, sagði Fedotov, og það
seig á honum brúnin við spurn-
inguna. — Þetta er í fyrsta skipti,
sem ég heyri minnzt á þetta.
— Hvaðan eru þessi skip?
— Iceberg er skráð í Mur-
mansk, en Oceanograph í Lenin-
grad.
— Hver sagði ykkur að koma
strax inn til Reykjavíkur?
— Við sendum skeyti til sendi-
ráðsins og var okkur þá sagt að
koma inn.
— Hvenær fóruð þfð frá Rúss-
landi?
— Við fórum frá Leningrad
31. maí, komum við á írlandi og
dvöldum þar í 4 daga — eins og
-hér — en höfum síðan verið á
rannsóknarferðalagi um Norður
atlantshaf. Héðan fönun við
aftur til Evrópu.
Fundi bunku-
stjérn lokið
UNDANFARNA daga hefur ver-
ið haldinn fundur bankastjóra
af Norðurlöndum á Höfn í Homa
firði og sóttu fundinn 22 menn
frá löndunum fimm. Á futdin-
um, sem lauk í gær, voru rædd
peninga- og bankamál.
Fundurinn var haldinn í Hótel
Höfn og sóttu hann seðlabanka-
stjórar Norðurlandanna og aðrir
bankastjórar. í fyrradag fóru
fundarmenn í stutta kynnisför
um nágrenni Hafnar.