Morgunblaðið - 10.08.1968, Síða 17

Morgunblaðið - 10.08.1968, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1968 17 Jón Þorsfeinsson, alþingismaður: „Ekki þarf að reikna sólbekki" Kveðjuorð til Einhamars SUMARIð 1965 varð það að samkomulagi með ríkisstjórn inni, verkalýðshreyfingunni og Reykjavík-urborg að ráðast í byggingu 1250 íbúða í Reykja- vík fyrir láglaunafólk. Við bygg ingu þessara íbúða skyldi reyna nýja byggingartækni og gera al varlega tilraun til lækkunar á byggingarkostnaði Sérstakri nefnd var falið að hafa á hendi yfirstjórn byggingarframkvæmd anna. Byggingarmeistarar í Reykjavik, sem hafa það að at- vinnu að byggja og selja íbúð- ir, litu svo á, að með stofnun jþessarar byggingaráætlunar væri gengið á 'hlut þeirra og þeim sýnt nokkurt vantraust. Sið an hafa þessir menn aldrei get- að litið staTfsemi framkvæmda- nefndarinnar réttu auga, enda þótt nefndin sé aðeins fram- kvæmdaraðili, sem á að fram- fylgja þeirri bygginaráætlun, er aðrii og valdameiri aðilar höfðu | stofnað til. Síðasta dæmið um andúð bygg ingarmeistaranna kemur fram í grein í Morgunblaðinu 1. þ.m. þar sem stjórn Einhamars send- ir mér sem formanni FB. sér- staka kveðju. Grein þessi ér samsafn af rangfærslum og sann ast þar glöggt, að reiðir menn eru ekki rökfastir. í greininni segir m.a.: „Það er heldur ekkert nýtt að menn hefjist handa um byggingu nýrra hverfa við margháttaða örðug- leika og ófullnægjandi aðstæður, svo sem vaftnsleysi, rafmagns- leysi, símaleysi og hitaveituleysi Byggingarmeistarar hafa oft þurft að bíða mán. saman eftir þessu öllu, en þess þurfti FB ekki“ Framkvæmdanefndin hóf fyrst allra byggingarfram- kvæmdir á fjölbýlishúsasvæðinu í Breiðholti og fékk í ríkum mæli að kenna á framangreind- um örðugleikum en úr ýmsu var búið að bæta þegar byggingar- meistararnir hófu sínar fram- kvæmdir á svæðinu. Staðhæfing Einhamars um sérstöðu FB er því hreinn uppspuni. f fréttatilkynningum, sem FB gaf út í byrjun maímánaðar, er langur kafli, alls 45 línur, þar sem verðið á Breiðholtsíbúðun- um er borið saman við verð samkvæmt byggingarvísitölu. Úr þessum kafla hafa Einhamars- menn birt 10 línur og telja sig þar með hafa gert málinu full skil. Ég ráðlegg greinarhöfund- ud að lesa þessar 35 linur, sem á vantar, og lesa þær vel. Þegar kostnaðaráætlun var birt í maímánuði 1967 gat FB ekki áætlað vexti á byggingar- tímanum vegna þess að vaxtafót urinn hafði þá ekki verið ákveð inn af þeim, sem ákvörðunar- vald höfðu um það anál. Hitt skal ég viðurkenna, að réttara hefði verið að taka það berum orðum fram, að vextir væru ekki meðtaldir í kostnaðaráætluninni í fyrri grein minni benti ég á hve framkvæmdahraðinn væri miklu meiri hjá framkvæmda- nefndinni heldur en bygginga- meisturunum og að þessi mis- munur yrði ekki skýrður með því einu að nefndin hefði greið- ari aðgang að fjármagni. í þessu sambandi skiptir mestu máli til samanburðar hvenær fram- kvæmdir hófust hjá hverjum að ila. Hitt skiptir minna máli, að nefndin fékk lóðum úthlutað löngu áður en byggingarsvæðið var tilbúið. Þó ber að hafa í huga að nýjar byggingaraðferð- ir krefjast lengri undirbúnings tíma en hinar gömlu. FB skilar sínum íbúðum full- gerðum. Því er eðlilegt að bera verð þeirra saman við verð á fuUgerðum íbúðum, sem aðrir byggingaraðilar reisa á sama tímabili. Um þetta gaf ég vís- bendingu í fyrri grein minni. Nú benda Einhamarsmenn mér á að þennan samanburð sé ekkert að marka vegna þess að byggingar fyrirtækinu, sem reist hefir sam anburðaríbúðirnar, sé stjórnað af verkfræðingi en ekki bygg- ingarmeistara. Bið ég velvirðing ar á þessum mistökum. Einhamar telur sýnilega rétt- ara að bera saman verð á íbúð- um nefndarinnar og verð á meist araíbúðum tilbúnum undir tré- verk og málningu og áætla síð- an kostnaðinn af að fullgera síð argreindu íbúðirnar. Þessa áætl un birtir Einhamar í Morgun- blaðsgreininni á grundvelli verð ins hjá FB og telur að FB full- geri fjögurra herbergja íbúð, sem er tilbúin undir tréverk og málmingu, fyrir kr. 149.743.00 Þetta væri mikið afrek, ef satt væri. Mun þetta eina dæmi þess að Einhamar telji framkvæmda- nefndina hafa unnið meiri þrek virki en raun ber vitni. Það er rétt, að framkvæmdanefndinni hefir tekizt á grundvelli fjölda framleiðslu og stórra innkaupa að fá innréttingar og búnað á lágu verði, þótt verðið sé mun hærra en Einhamar vill vera láta. Rangfærslur Einhamars fel ast einkum í eftirfarandi: Þórður Guðmundsson á Mána, sem hestamannafélagið er nefnt eftir. Hestamannamót við Garðskagavita 1. Verðið er miðað við verðtil- boð gerð veturinn 1966-67 með áskilnaði um hækkanir, ef breyting yrði á gengi krón- unnar eða kaupgjald hækkaði Þessum hækkunum sleppir Ein hainar. 2. Einhamar reiknar ekki með kostnaði við útboð og samn- ingagerð né heldur kostnaði við eftirlit með framleiðslunni eftirliti á byggingarstað og yf irverkstjórn og samræmingu á störfum undirverktaka. 3. Nokkrum kostnaðarliðum virð ist alveg vera sleppt. Utan þessa er það villandi að gefa í skyn, að einstaklingur, sem kaupir meistaraíbúð tilbúna undir tréverk og málningu, geti fengið innréttingar á fjöldafram leiðsluverði. íbúðirnar, sem Einhamar ber saman við íbúðir FB, eru í Hraun bæ 18-20 og Eyjabakka 2-6. Ekkert getur Einhamar um stærð ibúðanna og skortir því mikið á öruggan samanburðargrund- völl. Þá heldur Einhamar leyndri þeirri mikilvægu staðreynd, að íbúðirnar í Hraunbæ 18-20 voru fokheldar þegar byrjað var að grafa fyrir fyrstu blokkunum í Breiðholtinu og eru því byggð- ar á öðru og hagfelldara verð- lagstímabili en Breiðholtsíbúð- irnar. Einhamar lætur sér nægja að segja án allra skýringa, að FB Sclji fjögurra herbergja íbúð á kr. 1.132.000.00. Af þessu verði eru þó kr. 35.0'00.00 vextir á byggingartímanum, sem ekki eru reiknaðir með þegar íbúðirnar við Hraunbæ og Eyjabakka eru verðlagðar , Á hinu leytinu get ur Einhamar þess ekki, að meiri hlutinn af fjögurra herbergja íbúðum hjá FB er ekki (seldur á kr. 1.132.000.00. helur er verðið án vaxta Það líka hægt að blekkja með því að þegja fyrir staðreyndum Einhamarsmenn segja í Morg- unblaðsgreininni að ekki þurfi að reikna sólbekki í þeirra íbúð um af því að þá noti FB ekki. Þetta getur verið rétt að vissu marki þegar samanburður er gerður en þá þarf líka að reikna sitt hvað, sem FB leggur af mörkum, sem aðrir láta hjá líða. Ég nefni sem dæmi málningu ut anhúss, grasþökur á lóð og sam eiginlegar þvottavélar. Eru þá sólbekkirnir fullborgaðir. Á árinu 1967 veitti Byggingar sjóður rikisins almenn húsnæðis málalán að fjárhæð samtals 391 milljón króna. Þessu til viðbót ar veitti sjóðurinn á árinu 1967 87 milljónir króna til fram- kvæmda FB í Breiðholti. Fram- lagið til FB nam því 18prs. af heildarframlögum sjóðsins. Þessa staðreynd orða Einhamars menn svo: „að framkvæmdir FB hafi gleypt meginþorrann afþvi fjármagni, sem lánað hefur ver- ið til íbúðarbygginga". Annað hvort hlýtur sannleiksástinni að vera eitthvað ábótavant ellegar Einhamarsmenn hafa uppgötvað alveg nýja merkingu orðsins ,meginþorri‘. Hitt þarf svo naum ast að taka fram, að það er ekki hlutverk framkvæmdanefnd arinnar að útvega fé til hús- næðismálalána Kröfur um úr- bætur í þeim efnum verður að beina til réttra aðila. Að lyktum óska ég Einhamars mönnum þess í fullri einlægni, að þeir losni úr viðjum sinna eigin níðskrifa og að sannleik- urinn megi gera þá frjálsa. Með jákvæðu, einbeittu framtaki gætu þeir gert íslenzkum bygg- ingariðnaði mikið gagn jafnvel þótt þeim tækist ekki fremur en FB að fullgera fjögurra her- bergja íbúð, sem er tilbúin und- ir tréverk, fyrir kr. 149.743.00, en að sjálfsögðu með tilskildum fyrirvara — ekki þarf að reikna sólbekki. Jón Þorsteinsson. BESTAMENN9KAN á Suður- nesjum hefur á undanförnum þremur til fjórum árum tekið allmikinn fjörkipp. Áður fyrr voru hestar nauðsynlegir til að draga kerrur og inna önnur þungaverk með fótum sínum og fræknu afli. Þá voru þeir sem áttu reiðhesta og dunduðu við þá tímuinum saman, álitnir hálf skrítnir.en nú hefur skipt um sköp. Hestamannafélagið Mánd var stofnað fyrir nokkru og er fé- lagssvæði þess um Suðurnes öll, sunnan Hafnarfjarðar. í félag- inu eru 90 hrossaeigendur, sem eiga nú um 100 hesta og fara tiltölulega vel með þá, þó að aðstaða sé á stundum erfið, því landrými er nokkuð takmarkað fyrir utan húsagarða hinna hest lausu, en þangað eru hrossin ekki velkomin, því að „Gúllash- ið“ hleypur burtu og sparkar jarðveginum upp. Hrossamenn hafa nú nokkurn áhuga á að sá í melana fyrir utan Keflavík og verður það mjög vel þegið til viðbótar við það sem Lions-félagar hafa gert. Hrossamenn hafa stofnað til happdrættis til að afla fjár í þessu skyni og koma til móts við bæjaryfirvöldin í Keflavík, sem 'hafa fjárhagslega lagt mik- ið fram í þessu skyni. Svo mik- il hrossaeign, sem ihér um ræðir krefur síns athafnasvæðis og hafa bæjaryfirvöld heimilað hrossamönnum nokkurt svæði ofan við bæinn til bráða'birgða, til byggingar hesthúsa — og þar verða á næstunni þeirra hrossa- taðsvellir. Næstkomandi sunnudag mun bestamannafélagið Máni hafa hestamannamót við Garðskaga- vita ,sem hefst kl. 2 e.h. Þar fer fram firmakeppni og keppa góðhestar, bæði alhliða gang- hestar og klárhestar með tölti fyrir fyrirtækin. Keppt verður um 2 farandbikara sem síðast unnu verzlunin Lyngholt og verzlun Ingimundar Jónssonar í Keflavík. Þá verður keppt í 250 metra skeiði, 250 metra fola- hlaupi, 300 metra stökki og tölti. Um 60 hestar munu taka þátt í mótinu. Miðar í Grasgræðslu- happdrættinu verða að sjálf- sögðu til sölu á staðnum, en vinningur er gæðingsefni af Hólakyni. Hrossamenn eru alls góðs maklega meðan þeir fara vel raeð skepnurnar og angra ekki hrossleysingja. Hjólhestar eru tiltölulega meinlausir, en „þarf- asti þjónninn“ getur stundum verið erfiður, þegar hann er í fríi og gemgur um sem borgari bæjarins. Hrossamótið við Garðskaga er mjög athyglisvert og verður öll- um, sem þangað fara, til upp- lyftingar og ánægju, enda mun ekki skorta á að Suðumesja- menn sæki þangað á sunnudag- inn kemur. — hsj. 4 wiitnþ. að bezt er að auglýsa í Morgunblaðinu B RISTOL ^ GL % PÍPLR SLMARSIIMS Fróðlegur bæklingur fylgir hverri pípu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.