Morgunblaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUQNTBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1968 Frá söltuninní á síldinni úr Óskari Halldórssyni. - Fyrsta síldin til Seyöisfjarðar — Skipstjóri bátsins felur hillur í lest hafa bjargað síldinni Alþýðubandalagið á Vestfjörðum klofið IVIeirihluti fulltrúa á kjördæmis- ráðsfundi sagði sig úr flokknum Seyðisfirði, 9. september. 1 DAG kom Óskar Haildórsson með fyrstu söltunarsíldina til Haföldunnar. Báturinn var þrjá sólarhringa á landleið. Síldin var ísuð á hillur. Skipstjórinn Ambjörn Ólafsson telur hillum- ar hafa bjargað síldinni, enda hafði hann tvöfaldar hillur í allri afturlestinni og var hún jafngóð efst sem neðst í skip- inu. Vel var um síldina gengið og henni landað í máliun, en ekki með krabba, svo að lítið skemmdist í lönduninni. Það eru hvorki íslest né kældax iestar í Óskari Halldórssyni og ásinn var orðinn nokkuð gamall eða 16 daga er komið var að landi. Þrátt fyrir það var mikill ís óhráðinn, þeigar landað var. Bezt var sfldin Org stífust, þar sem ísinn var mestur. Síldin reyndist ágæt til söltunar, frem- ■ur stór og jöfn og mjög óveru- ’legar átudkemmdiT voru í henni, enda fengust 800 tunnur upp- saltaðar úr 120 lestum, sem bát- uriinm kom með að landi. ólafur Óskarsson, forstjóri Haföldunn- ar tók áhaettuna á að semda ósk- ar Halldórsson til að reyna að flytja söltunarsí’ld að landi, enda þótt hann yrði að kaupa síldina af öðrum bát á allmiklu hærra verði en fæst fyrir hana í bræðslu. Þessi tilTaun hefur tek- izt algjörlega, þar sem síldin reyndist ágæt. Síldina keypti Óskar Halldórs- son af bát frá sömu eigendum, Magnúsi Ólafssyni og var hún úr mjög stóru kasti eða um 350 til 360 lesta kasti. Að auki vaT Ósk- ar með 360 tunnur af sfld salt- aðri í hafi — Sveinn. Isafirði, mánudag. FUNDUR kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsins á Vest- f jörðum, sem haldinn var hér á ísafirði um síðustu helgi varð hinn sögulegasti. Verð- ur ekki annað séð en að flokk urinn sé þar nú algjörlega klofinn. Fundurinn hófst á laugardags kvöld og voru þá 24 fulltrúar mættir, en nokkra vantaði á fundinn. Formaður kjördæmis- ráðsin's Halldór Ólafsson á ísa- firði setti fundinn, en þegar eft- ir fundarsetningu kvaddi Karv- el Pálmason frá Bolungarvík sér hljóðs og lýsti vinnúbrögðum kommúnista innan Alþýðuhanda lagsins og deildi harðlega á þau. Lýsti hann því yfir að hann og skoðanabræður hans myndu ekki taka frekari ,þátt í fundinum. Síð an gengu 13 fulltrúar af fundi, en 11 sátu eftir, þar á meðal Steingrímur PáLs'son landkjörinn þingmaður Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum. Átök þessi innan Alþýðúbanda laigsins á Vestfjörðum spretta af langvarandi deilum innan Al- þýðubandala-gsins almennt. Það haldið áfram á sunnudag án þátt fólk, sem gekk af fundi kjördæm isráðsins telur sig ekki geta átt frekari samvinnu við kommún- ista innan Alþýðubandalagsin3. Það var meðal annars ósamþykkt tillögu um breytingu á lögum Alþýðubandalagsins, þar semsvo var komizt að orði, að Alþýðu- bandalagið væri „flobkur ís- lenzkra sósíalista." Heyrzt hefur að fulltrúar þeir, sem gengu af fundi kjördæmisráðsins hafi sent áskorun til Hannibals Valdimars sonar og Björns Jónssonar um að segja skilið við Alþýðubanda lagið, þar sem það sé algjörlega undir stjórn kommúnista. Fundi kjördæmisráðsins var haldið áfram á sunnudag án þábt- töku þeirra, sem af fundi höfðu gengið á laugardagskvöldið. En einihverjir - varafulltrúar mættu þá á fundinum og ennfremur nokkrir aðrir menn, sem hvorki voru kjörnir varafulltrúar eða aðalfulltrúar. Samkvæmt þessu eru samtök Alþýðúbandalagsins á Vestfjörð um í höndum kommúnistá, þar sem það fólk, sem gekk af fund inum og hefur verið stuðnin'gg- fólk Hannibals Valdimarssonar lýsti því yfir að það myndi segja sig úr Alþýðúbandalaginu, þar sem það vildi ekki eiga frekari samskipti við kommúnista. Ný gróðurkort gefin út: Uppblástur mestur á af rétt- Sinfoníuhljómsveit- in hefur vetrarstarfið Heldur alls 18 tónleika — Stjórnendur 7 STARFSÁR Sinfóníuhljómsveit- ar íslands er þegar hafið og hélt h'ljómsveitin fyrstu tómleika sina á starfsárimu laugardaginn 7. september í Vestmanmaeyjum. Stjórnandi var Martin Hunger. Einleikari með hljómsveitinmi var Björn Ólafsson konsertmeist- ari. Á síðastliðinu starfsári flutti hljómsveitin 42 tónleika alls, þar með taldir gkólatónleika, tón- leikaferðir utan Reykjavíkur, á Akranesi, í Garðahreppi, í Mos- fellssveit, í Keflavík, á Akur- eyri og Selfossi. Aðalhljómsveit- arstjóri var Bohdan Wodicziko og stjórnaði hann 22 hljómleik- um. Aðrir hljómsveitarstjórar voru dr. Róbert A. Ottóssom, Ragnar Björnssom, Jussi Jalas, Shalom Ronly-Riklis, Kurt Thom as og Þorkell Sigurbjörnsson. Einleikarar og einsöngvarar voru 27 og söngsveitin Fílharmonía flutti með hljómsveitinni Requi- em eftir Verdi undir stjórn Róberts A. Ottóssonar. Hljómsveitin flutti á árimu 103 tónverk eftir innlemd og erlend tónskáld. Frumfluit voru 5 ís- lemzk tónverk. Hljóðrituð voru á starfsárinu fyrir Ríkisútvarpið 48 tónverk eða tónverkaflofckar, þar með talin óperettan Meyjaskemman og óperan Mavra. Á starfsárinu 1968/69 verða hljómsveitarstjórar Sverre Bru- land frá Noregi, Alfred Walter, dr. Róbert A. Ottóssom, RagruaT Björnsson, Lawrence Foster, Páll P. Pálsson og Bohdan Wodiczko. Fyrsbu tónleikaramir verða 26. september. Eimleikarar verða m. a. Detlef Kraus, Arve Tellef- sen, Peter Serkim, Bjöm Ólafs- som, Imigvar Jónasson, Halldór Haraldsson, • Einar Vigfússon, Louis Kentner, Rögnivaldur Sig- urjónsson, Lee Luvisi, Ruth Litble Magnússon, Edith Peine- mann Robert Rieflirug, Wolif- gang Herzer, Hertha Töpper og Konstanty KuLka. Tónleikar verða alls 18. Sala áskriftarskíriteina er hafin í Rík- isútvarpinu og er föstum áskrif- endum ráðiagt að tilkymna um endurnýjun, því aðsókn er mikil. JONS LEIFS MINNST - Á 40 ÁRA afmælisdegi Banda- lagsins minntist heiðursforseti þess, Gunnar Gunnarsson, rit- höfundur, Jóns Leifs, tónskálds, og lagði fram kr. 10.000.00 til stofnunar sjóðs til minningar um Jón Leifs. Svo sem kunnugt er, var Jón Leifs stofnandi bandalagsins. Til viðbótar stofn- framlagi Gunnars hefur Magnús Á. Árnason afhent forseta Banda lags islenzkra listamanna kr. 10.000.00. Gengið verður frá stofnskrá sjóðsins næstu daga. Stjórn Bandalags íalenzkra listamanna tekur við framlögum í sjóðinn. (Frá stjórn Bandalags £sl. lista manna). um Suðurlands MENNINGARSJÓÐUR hefur gefið út 10 ný gróðurkort. Kort in ná yfir Gullbringusýslu allt svæði við Búrfell hluta af Land Imannaafrétt, Þórisjökul og Skjaldbreiður. Um 40 prs. af landinu hefur verið kortlagt alls eftir gróðri. Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins beitir beitir sér fyrir kortlagningunni undir yfirumsjón Ingva Þorsteins sonar, magisters og í samráði við Landmælingar. — Það er ekki seinna vænna að fara að vakna til meðvitund- ar um að gróðurmoldin er að blása á haf út, sagði Ingvi Þor-- steinsson á fundi með fréttamönn um í tilefni af gróðurkortaútgáf unni. — Landgræðsla og gróður vernd eru meðal brýnustu verk efna, sem úrlausnar krefjast. Það var ánægjulegt að áhugi er vax- andi fyrir að stöðva uggvæn- lega uppblástur gróðurlendisins — Ingvi sagði kortalagninguna hafa hafizt fyrir 8 árum og nú væri landið kortlagt eftir gróðri. í þetta sinn væru kortin 10 sem út væri gefin 6 yfir Gullbringu sýslu, en 4 frá nágrenni Þóris- jökuls, Búrfelli, Skjaldbreið og Landmannaafrétt. Gróður á undanhaldi — Kortin frá Suðurnesjum sýndu meiri gróður, en menn kynnu almennt að búast við. Sá gróður væri líka að langmestu leyti frumstæður mosagróður og þar sem æðri gróður finnist væri þróunin sú sama og annars stað ar. Hann væri á undanhaldi fyr ir eyðingaröflunum, þrátt fyrir skóg og landgræðslu Austan Búr fells sýndu kortin geysilega ör- fokasanda. Þegar hvassviðri væri stæði þar linnulaus sandbylur í líkingu við þá í Sahara. Um tíma hefði varla verið vært í nýju húsunum á virkjunarstaðn um og Landgræðslan þá hafizt ihanda. — Af rannsóknunum væri ljóst að verst væri ástatt fyrir gróðrinum frá Faxaflóa austur að Skaftá. Á Norðurlandi væri ástandið því betra að þar stæði gróðurlendi í -stað. — Ingvi sagðist vildu vekja athygli á þeirri samvinnu, sem tekizt hefði við bændur, bæjar- og sveitarfélög. Rannsóknirnar nytu nú fjárstyrks þessara að- ila auk framlags ríkisins NATO og vísindasjóðs. — Bændur biðu eftir niður- stöðum gróðurrannsóknanna með óþreyju og þeim væri afhentir jafnóðum útreikningar um beitar þolið. Þannig hefðu bænduT nú haft hliðsjón af útreikningunum við heit á Biskupstungnaafrétt. Á þeim slóðum væri ástandið líka svo alvarlegt að afréttin hefði verið að eyðast með öllu. í vor sem leið var útlit fyrir að svipuð samvinna tækist með öðru sveitarfélagi, því miður virðist þar ætla að verða minna úr samvinnu en vonir stóðu til. Stefna þeirra sem um landgræðsl una sæju væri„ að fá bændur með góðu til samstarfs. Ef það dygði ekki yrði að beita land- græðslulögunum, sem kveða á um hegningar við gróðureyðingu Árleg útgáfa. — f upphafi blaðamannafund arins sagði Vilhjálmur Þ. Gísla son, formaður Menntamálaráðs, frá útgáfu kortanna. Alls hefðu 25 kort nú verið gefin út. Menn- ingarsjóður kostaði útgáfuna, sem beindist bæði að gróður og jarð fræðikortum. Stjómandi gróðurrannsókn- anna, Ingvi Þorsteinsson. f framtíðinni yrði stefnt að því að gefa út a.m.k. sama fjölda og í ár. Tilgangurinn væri að sýna hvemig ástandi gróðursins væri háttað, það væri nauðsyn leg forsenda þess, að menn gætu bætt úr því sem miður færi og ræktað á nýjan Jeik. Að lökum þakkaði Pétur Gunn arsson forstjóri Rannsóknar stofnun landbúnaðarins þeim að flum sem að rannsóknum hefðu staðið fyrir góða samvinnu og Ingva Þorsteinssyni frábært starf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.