Morgunblaðið - 10.09.1968, Page 4

Morgunblaðið - 10.09.1968, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1068 0 Bjartsýni og kjarkur Benedlkt Bogason, verkfræðingur, skrif- ar eftirfarandi bréf: „Kæri Velvakandi! Ég var í gærkvöldi að hlusta og horfa á Harald J. Hamar ræða við þrjá bjart- sýna, kjarmikla athafnamenn í sjónvarp- inu, þá Einar Sigurðsson, Eyjólf K. Jóns- son og Steingrím Hermannsson, og hafði ánægju af. Býzt ég við, að svo sé einnig um alla sanna íslendinga nú, er við erum í tímabundnum efnahagserfiðleikum. En eitt skyggði á gleði mína. Það var rætt um sjávarútveg, iðnað, iðnað og sjáv- arútveg o.s.frv., en ekki minnzt orði á þann atvinnuveg, sem hefur fleytt okkur gegnum aldirnar og hefur vissulega miklu hlutverki að gegna nú sem í framtíðinni í þessu gósen-graslandi, og á ég þar við landbúnaðinn. Þegar sjávarútvegur var bara útræði á opnum áraskipum og hinn íslenzki iðnaðui að vísu ágætis heimilisiðnaður, mestmegnis stundaður í eftirvinnu eftir langa og stramg an vinnudag við landbúnaðarstörf, þá var það einmitt landbúnaðurinn, sem hélt líf- tórunni 1 þjóðinni, sérstaklega á hafísa- og eldgosaárum, t.d. um 100 og eftir 1783. Það hefði því gefið þessum ágætis þætti, sem ég minntist á í upphafi meiri breidd að hafa fjórða manninn með, t.d. Ingólf Jónsson, landbúnaðarmálaráðherra. Benedikt Bogson, verkfræðingur". -»• Velvakandi hlustaði á umræddan þátt og gladdist eins og bréfritari yfir þeirri bjart- sýni, sem þar rikti. — Möguleikar okkar eru sýnilega miklir, og með elju og dugn- aði ætti okkur að vera kleift að hagnýta þá. í þættinum var aðeins drepið á nokkra þeirra, en þar með ekki sagt, að fleiri komi ekki til greina, t.d. eins og mihka- rækt stóruppbygging landbúnaðarins o. fl. — Hefði þátturinn átt að vera tæmandi og fleiri aðilar kallaðir til, hefði kvöld- ið allt ekki nægt til umræðnanna. Aðalatr- iðið er að umræðurnr vóru gagnlegar, og vissulega ástæða til að taka fleiri greinar atvinnulífsins þannig til meðferðar. Er ekki ólíklegt að það sé einnig ætlun stjórnanda þáttarins eða sjónvarpsins. 0 Líður að hættulegasta tímanum Bragi Friðfinnsson skrifar eftirfaraindi bréf: „Velvakandi góður, Nú hefur H-umferð verið í gildi á 4 mán- uð, og verður ekki annað sagt, en allt hafi gengið vonum framar, eftir fréttum þeim, sem okkur eru fluttar. Þótt þetta sé ánægjulegt, verður að hafa það 1 huga, að nú líður senn að þeim tima, sem margir telja einna hættulegastan, þ.e. þegar dimma tekur og illra veðra fer að verða von. Ég furða mig á því, hve hljótt hefur ver- ið um þessi mál upp á síðkastið — taldi víst, að þeim nauðsynlega áróðri, sem beitt var fyrir og nokkru eftir breytinguna yrði haldið áfram ,þótt að sjálfsögðu yrði hann ekki eins mikill og áður. Nú virðist „rokk- urinn" hins vegar vera að þagna. Árið 1965 eða 1966 voru stofnuð lands- samtök um umferðarmál sem skírð voru „Varúð á vegum“. Þetta var lofsvert fram- tak, enda stóðu að þvi margir aðilar, félög Slysavarnafélagið bifreiðastjórafélög og ég held allir þeir aðilar, sem umferðamálin snerta að einhverju leytL Ég minnist þess ekki, að félag þetta, sem að mínu áliti ætti næst H-nefndinni að láta þessi mál til sín taka, hafi lagt neitt til þeirra, eða am..k. hefur lítið farið fyrir því, svo ekki sé dýpra 1 árinni tekið. Nú spyr ég, — hvemig stendur á þessu? Getur verið að einhver annarleg sjónarmið séu hér á ferðinni? Þessu slæ ég fram, vegna þess að ég hefi lesið greinar í dagblöðun- um skrifaðar af Baldvin Þ. Kristjánssyni, en hann virðist láta sér annt um þennan félagsskap. Hefur Baldvin í greinum sín- um látið þung orð falla í garð Slysavarna- félagsins — beinlinis sagt, að Slysavama- félagið hafi af ásettu ráði drepið „Varúð á vegum“, og annað fleira, sem vart er hægt fyrir Slysavarnafélagið að liggja und- ir. Mér til mikillar undrunar hef ég hvergi séð þessum áburði B.Þ.K. svarað af hálfu Slysavamafélagsins, en það leiðir hugann aftur að því, að ásakanir B.Þ.K. séu e.t.v. á fullkomnum rökum reistar. Nú mælist ég eindregið til þess, að viðkomandi aðilar geri fólki grein fyrir þessu, svo og hvern- ig búast má við, að málum þessum verði háttað í framtíðinni Mikil ábyrgð er í því fólgin að vera trúað fyrir jafn mikilvægum þætti og um- ferðarmálin eru, — svo mikil, að sundur- þykkja, — eins og útlit er fyrir, að hér sé á ferðinni, má ekki undir nokkrum kring- umstæðúm, geta átt sér stað, en hún er vísasti vegurinn að aðgerðarleysi sem þessu t.d. í áróðrinum o.fL o.fl. Aðgerðarleysið getur aftur á móti verið fyrsti vísirinn að því að bjóða hætturmi heim, og hver vill eiga hlut að slíku. Nú bið ég þig um, Velvakandi góður, að koma þessum línum mínum á fram- færi við tæifæri, í þeirri von, að skýring fáist, og þar með að ég og aðrir, sem láta sig þetta einhverju skipta, verði einhvers vísari. Bragi Friðfinnsson". £ Ættu að fara til Rússíá Húsmóðir skrifar: „Kæri Velvakandi. Þegar ég nú er búin að hlusta á fréttir af innrásinni í Tékkóslóvakíu, langar mig til þess að biðja þig einnar bónar. Það var 1 vor, þegar rússnesku hersveit- inrar voru við landamæri Tékkóslóvakíu, að nokkrar félagskonur úr Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna voru á ferðalagi í Rússlandi, og undirrituðu þá skjal nokkurt. Það litla, sem ég frétti, var, að þær væru svo hræddar um að Vestur- Þjóðverjar ætluðu að ráðast á Tékka, og þá ætluðu auðvitað Rússar að koma þeim til hjálpar. Mig langar til þess að fá, heimilisfang og helzt myndir af slíkum konum íslenzk- um, sem hafa svona fallegt nafn á félags- skap sínum, en eru bana þý rússneskrar heimsvaldastefnu. Rússneskir kommúnistar vilja auðsjáanlega fá aðstoð til þess að mega einir segja öllum fyrir verkum. Heim urinn hefur frá alda öðli alltaf barizt fyrir hugsana- og athafna-frelsi, en það er bann- fært af rússneskum kommúnistum. Þær ís- lenzkar konur, sem vilja siíka kúgun handa sér og sínum, ættu að vera í Rússlandi og lofa okkur hinum að lifa hér eftir okk- ar eigin kokkabókum. Húsmóðir.“ 0 Lok á sorpílát „Nokkrar húsmæður í Keflavík" hafa skrifað Velvakanda bréf og langar til að koma þeirri s purningu á framfæri við yfir völdin, „hvort enginn heilbrigðisfulltrúi sé í Keflavík". Og ef svo er „hvort hann eigi ei að fylgjast með því að fólk hafl. lok á ruslatunnum sínum“. Þær segja í bréfi sínu að máfurinn herji á loklausu tunnurnar og fari með ruslið upp á húsþök og víðar. Þá kvarta þær yfir því, að „ruslabílarnir“ standi heima við íbúðarhúsin, þegar ekki sé verið að nota þá, og spyrja hvort Keflavíkurbær eigi ekki land þar sem hægt væri að geyma þá, til dæmis yfir helgar. 0 Island — Færeyjar Einn af stofnendum félagsins „ísland — Færeyjar" hefur skrifað Velvakanda bréf og kvartar undan því, hve mikil deyfð ríki meðal stjórnenda félagsins. Síðan fé- lagið var stofnað hafi aðeins einn aðal- fundur verið haldinn. Hann segist með lín- um sínum vilja „stugga við“ formanninum, og ef hann „treysti sér ekki til að boða til fundar til endurreisnar félaginu" vonist hann til að einhverjir áhugasamir menn og konur geri það. Þá segir í bréfinu „Það er margt sem við íslendingar eigum sameiginlegt með frændum okkar Færeyingum, og ættum því að endurvekja félagið „ísland — Færeyjar" hið allra fyrsta." — Og bréfi sínu lýkur hann með von um að þessi skrif verði til þess að skriður komist á þetta máL BÍLALEIGAIM - VAKUH - Sundlaugavegi 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Simi 22-0-22 Rauðarárstíg 31 Keflavík — Suðumes Terylene eldhúsglúigga- tjaldaefni, stáris- og dralon gluggatjalda efni. Nýjar sendingar, aíllt á gamla verðinu. Verd. Sigr. Skúla dóttur, sími 2061. Keflavík — nágrenni TerylenekjólaeÆni einlit, köflótt, rósótt, mikið úrval. Allt á gamla verðinu. — Verzl. Sigríðar Skúladótt- ur, sími 2061. Richard Tiles H® VEGGFLÍSAR Fjölbreytt litaval. h. mmmm hf. Suðurlandsbraut 4. Sími 38300. Bezt ai) auglýsa í Morgunblaftinu Atvinna Opinber stofnun óskar eftir skrifstofustúlku 1. októ- ber n.k. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf afhendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 15. september, merkt: „61 — 2220“. , ^ !iM' I-44-44 Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. •r- BÍLALEIGAN AKBRAUT SENDUM SÍMI 82347 MAGIMUSAR 4kiphckji21 hmar 21190 ef+ir ioWurt - 403S1 # KARNABÆR TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330. HAUSTVÖRURNAR eru komnar DÖMUDEILD: ★ STAKAR BUXUR ★ PEYSUR ★ PILS, SfÐ og STUTT ★ PEYSUR ★ BLÚSSUR ★ KÁPUB ★ VESTI — JAKKAR — BUXUR O. FL. HERR ADEILD: ★ STAKAR BUXUR f ÚRVALI ÖLL EFNI ULL OG TERYLENE ★ STAKIR JAKKAR ★ ENSK FÖT, NÝ SNIÐ ★ PEYSUR ★ SKYRTUR ★ BINDI — KLÚTAR — SETT O. FL. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstaett leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748. Sigurður Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.