Morgunblaðið - 10.09.1968, Page 15

Morgunblaðið - 10.09.1968, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1968 15 COLDWATER SEAF00D CORP. • fyrirtæki SH i Bandarikjunum hefur starfrækslu nýrrar fisk- iðnaðarverksmiðju • 10 jbúsunc/ fermetra verksmiðjuhús • 700-900 millj. kr. árleg velta • 20-30 milljónir punda árleg framleiðsla fiskrétta • 320 starfsmenn COLDWATER Seafood Corp., fyrirtæki Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna í Bandaríkjunum hóf í maí sl. rekstur nýrrar og fullkominnar fiskiðnaðarverksmiðju í Cambridge, Maryland. Cambridge er smábær á Marylandskaganum 400 kílómetra suð- vestur af New York. Með nýju verksmiðjunni hefur rekstrarað- staða Coldwaters styrkzt og gerir fyrirtækinu væntanlega kleift að mæta betur stöðugt harðnandi samkeppni á bandaríska mark- aðnum. Coldwater Seafood Corp., stofnað árið 1947 til að annast sölu hraðfrystra sjávarafurða fyrir SH í Bandaríkjunum, er stærsta fyrirtæki fclendinga erlendis. Síðustu árin hefur árleg heildar- velta verið 7—900 millj. kr. Forsenda þessa mikla árangurs er uppbygging sterks markaðskerfis, fiskiðnaðarverksmiðjur og öfl- ug sölu- og auglýsingastarfsemi, sem hefur verið stjórnað af fram- sýnum og dugmiklum forstjóra, Þorsteini Gíslasyni, verkfræðingi, sem tók við rekstri fyrirtæk'isins árið 1962. í tilefni merkra tímamóta í sögu Coldwater, er ný fiskiðnaðar- verksmiðja tekur til starfa, sneri Morgunblaðið sér tii Þorsteins Gíslasonar í aðalstöðvum fyrirtækisins í Scarsdale, sem er útborg frá New York, og bað hann um að skýra nokkuð frá starfseminni og markaðnum í Bandaríkjunum. Þorsteinn Gíslason tókst tiltölulega ungur á herðar að veita hinu umfangsmikla fyrirtæki forstöðu, er hann tæplega fertugur tók við rekstri þess. Hann hefur mikla þekkingu á bæði íslenzkum hraðfrystiiðnaði og aðstæðum í Bandaríkjunum. Að afloknu verk- fræðinámi þar réðst hann til SH árið 1948 og starfaði sem verk- fræðingur fyrir samtökin í 6% ár. Þá fluttist Þorsteinn og frú Ingibjörg kona hans og tveir synir, sem nú eru þekktir íþrótta- menn heima á tslandi, Þorsteinn og Ólafur, aftur til Bandaríkj- anna. Vann hann við margvísleg verkfræðistörf, einkum í sam- bandi við frystivélar, fram á mitt ár 1962 er hann tók að sér rekstur Coldwater. Þorsteinn, vildirðu segja í fá- um orðum, hvert er hlutverk Coldwater? Hlutverk Coldwater er aðselja frystar sjávarafurðir í Bandaríkj unum fyrir hraðfrystihús innan SH. Upphaf þessarar starfsemi var, að SH opnaði söluskrifstofu í New York árið 1944, sem Jón Gunnarsson verkfræðingur veitti forstöðu. Árið 1947 var fyrirtækið Coldwater Seafood Corp., stofnað í þeim tilgangi að gæta alhliða hagsmuna samtak- anna á bandaríska markaðnum. Fyrstu árin voru fyrst og fremst seld hraðfryst fiskflök, en árið 1954 var hafinn rekstur á fiskiðnaðarverksmiðju í Nanti- coke, Maryland, er framleiddi fiskrétti, svonefnda fiskstauta og fiskskammta, sem eru þekkt- ar vörur hér fyrir vestan. Þessar vörur, sem oft eru nefndar þæg- indavörur, voru þá að byrja að ryðja sér til rúms. Eftirspurnin eftir fiskréttum hefur síðan aukizt jafnt og þétt eins og sjá má af því, að á sl. 10 árum befur heildarframleiðsl- an á fiskstautum og fiskskömmt um aukizt úr 21.8 millj. pund- um (lbs) árið 1958 í 158.4 millj. pund árið 1967 eða sjöfaldast. Coldwater hefur jafnan verið framarlega á sínu sviði og er þáttur fiskiðnaðarverksmiðjunn- ar stöðugt mikilvægari í að tryggja stöðu fyrirtækisins og framþróun þess. Er okkur því mikilsvert að vera komnir með verksmiðju, sem mætir betur kröf um tímans. Hefur fjölbreytnin í vöru- framboðinu ekki aukizt mikið? Mjög mikið. Fjöldi vöru- Þorsteinn Gíslason, forstjóri. tegunda, sem sýndur er á verð- lista Coldwater er nú 127 tals- ins. Auk þess framleiðum við mikinn fjölda vörutegunda, sem ekki koma fram á verðlistanum. Eru það framleiðsluvörur, sem fullnægja sérkröfum viðskipta- vina. Fjölbreytnin er þannig raunverulega mun meiri en verð listinn segir til um eða um 250 mismunandi vörutegundir og um búðir. Á verðlistanum er samkvæmt helztu vöruflokkum: Fiskflök, fiskblokkir heilfryst ur flatfiskur, fiskstautar, fisk- skammtar, fiskkökur, fisksteikur, sérfryst fiskflök o.fl. Vöruframboðið og fjölbreytni einstakra framleiðslutegunda byggist á helztu fisktegimdum, sem veiddar eru við ísland og hugkvæmni að framleíða sem eft irsóknarverðastar vörur. Sem dæmi um fjölbreytileik í framboði vörutegunda mætti m.a. nefna, að frystur humar er flokk aður í 8 mismunandi flokka eftir stærð og ennfremur, hvort humar inn er í skel eða skelflettur. Fiskstautar eru framleiddir úr 5 fisktegundum, þorsk-, ýsu-, ufsa-, löngu- og lýsublokkum. Þyngd fiskstauta er mismunandi frá 0.8 oz. (23 gr.) til 1% oz. (43 gr.). Ytri og inmri umbúðir eru mismunandi eftir því, hvort selt er til stofnana eða í smá- sölu. Algengustu umbúðir í smá- sölu eru 8 oz. (227 gr.) og 16 oz. (454 gr). Áður en lengra er haldið vild- ir þú ef til vill skýra frá því, hvað verksmiðjuframleiddir fisk réttir eru? Það getur verið um margskon- ar verksmiðjuframleidda fisk- rétti að ræða eftir því, hvernig samsetningu þeirra er háttað Meginefnið í t.d. steiktum fisk- réttum er að sjálfsögðu fiskur, síðan kemur bökunardeig, ekki bandsfrysti, sem frystir þau á ný á nokkrum mínútum. Eru þau þá tilbúin til pökkunar. Frá því að fiskblokkin er söguð niður þar til varan er komin tilbúin og innpökkuð í frystigeymsluna líða 5-25 mín. eftir því á hvaða línu framleiðslan fer fram og hvaða vöru verið er að framleiða. Með línu er hér átti við samstæðu véla færibanda, frysta o.þh. sem fram leiðslan á sér stað í. Við framleiðsluna notum við mikið af fiski, geysimikið magn af tugum tegunda af brauð mylsnu, mikið magn af hveiti o.s. frv. Framleiðslan þarf að vera nákvæm og fiskgæðin mikil til þess að unnt sé að fá góða og seljanlega vöru. Hvað segir þú um nýju verk- smiðjuna? Framkvæmdir hófust í apríl 1967 og var verksmiðjuhúsið til- búið fyrir áramót sama ár. Fram leiðsla byrjaði síðan 20. maí s.l. eftir flutninga og niðursetningu á helztu vélum og tækjum, sem tekin voru úr eldri verksmiðj- unni samhliða uppsetningu nýrra véla. Flatarmál verksmiðjunnar er 10.000 fermetrar. Aðalhlutar eru: Vinnslusalur, frystigeymslur, birgðageymslur fyrir brauð- mylsnu o,þ.h., vélasalur, viðgerð arverkstæði, hleðslustöð fyrir rafmagnslyftara, efnarannsóknar stofa, skrifstofur, borðsalur o.fl. I verksmiðj unni vinna yfir 300 manns og er yfirleitt unnið á tveimur vöktum. Af aragrúa véla sem notaðar eru, má nefna: Sög- unárvélar, m.a. sjálfvirkar, brauð mylsnuvélar, steikingarvélar, færibandafrysta, pökkunarvélar Fiskstautar í framleiðslu. Fiskiðnaðarverksmiðja Coldwaters — framhlið. ósvipað þunnu pönnukökudeigi og brauðmyfcna. Samkvæmt op- inberum stöðlum skal vera minnst 60% fiskur í steiktum fisk- stauti. Brauðmylsnuefnin gru not uð í margvíslegum samsetningum sem eru um 40 talsins. Hvernig fer framleiðsla fisk- réttana fram? Fyrsta stig framleiðslunnar er eiginlega á Islandi, þar sem fram leiðsla meginhráefnisins, fisk- blokkanna fer fram í hraðfrysti húsunum. f fiskiðnaðarverksmiðjunni eru fiskblokkirnar, sem eru 10% — 18% pund að þyngd, sagaðar í frosnu ástandi niður í fiskstauta og fiskskammta. Eftir að blokkin hefur verið söguð í réttar stærðir, fara hin niðursög uðu stykki á færibandi í gegnum sérstaka vél, sem úðar þau með bökunardeiginu. Stykkin fara á- fram á færibandi í gegn- um vél, sem sáldrar á þau brauð mylsnu. Á næsta stigi framleiðsl unnar fara stykkin í gegnum steikingarvél og úr henni í færi- lyftara og fullkomið færibanda- kerfi. Gólf og veggir í vinnslusal eru flísalagðir. Rúmtak verk- smiðjunnar er mikið vegna mik- illar lofthæðar í vinnslusai og i frystigeymslum, en framleiðslu- j kerffð útheimtir það. Það er verk i smiðjan loftkæld og er hún hin j eina sem svo er háttað um í Cam I bridge. Sumarloftslag er mjög j heitt í Maryland og þess vegna þýðingarmikið að verksmiðjan sé loftkæld. Kemur þetta sér vel í sambandi við vörugæði fram- leiðslunnar, auk þess s m það auðveldar mjög ráðningu á hæfu starfsfólki. Áherzla er lögð á, að fram- leiðsla og flutningar gangi hratt og skipulega fyrir sig og að hvert framleiðslu- eða flutnings- stig eigi sér stað í beinu fram- haldi af öðru. Sérhver töf eða mistök geta verið dýr í verk- smiðju, sem framleiðir fyrir hundruðir milljóna króna á ári. Hvcrnig er skipulagi og sölu- starfi Coldwater háttað? Fyrirtækið hefur aðalskrif Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.