Morgunblaðið - 10.09.1968, Síða 24
24
MORGU'NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1968
á hana. Kannski getum við haft
játningu út út henni. Við getum
meira að segja látizt vita meira
en við gerum. Þú getur meira
segja látið í veðri vaka, að Ruth
ers hafi verið opinskárri um það
en hann var. Ég veit, að það er
ekki alveg heiðarleg aðferð, en
þegar við er að eiga manneskju
eins og Phyllis, má maður haga
sér eins og hún gerir sjálf. Það
er ekki hægt að berjast heiðar-
lega við hana, eins og maður við
mann. Hún berst ekki heiðar-
lega sjálf.
Pam hafði líka rétt úr sér.
— Hvenær eigum við að fara?
spurði hún og röddin var hás.
Kay hikaði. En svo sagði hún
einbeittlega:
— Við skúlum fara strax. Það
er altaf bezt, þegar eitthvað
hefur verið ákveðið, að fram
kvæma það tafarlaust. Ég skal
gefa Hugh einhverja skýringu á
þessu. Hann er hvort sem er
þreyttur eftir ferðina og hefur
gott af að hvíla sig ofurlítið.
Við ættum að geta verið komn
ar aftur fyrir kvöldverð.
Pam hikaði ekki nema andar-
tak.
—En verður ekki Jeff ösku-
vondur, þegar hann heyrir, að
við höfum farið þangað og í
hvaða erindi? Hún hlýtur að
segja honum það.
Kay kipraði ofurlítið saman
augun. — Ég er alls ekki viss
um,að hún fari að segja honum
það, hver svo sem árangurinn
verður af viðtali okkar við hana.
Phyllis er ekki þannig gerð, að
hún fari að segja karlmanni frá
neinu, sem gæti orðið henni til
hnjóðs. Og ef ég má nokkru
ráða, skal þetta viðtal okkar við
hana verða það. Hún brosti
hörk-ulega — Við skulum fara
strax, sagði hún með ákefð —
Það er tilgangslaust að vera að
bíða með það. Auk þess gæti
okkur fallizt hugur til morguns.
Hún bað svo um bílinn. Hugh
var ekki nema feginn að geta
lagt sig svolitla stu-nd, og Jeff
hafði farið til Rio í einhverjum
erindum, svo að þetta var allt
eins og sniðið.
Hús Phyllis stóð handan við
lágan háls, í þriggja mílna fjar-
lægð. Það var orðið alveg dimmt
þegar þær komu þangað. Og
tunglsins naut ekki nema sára-
lítið.
— Þetta er einm-analegur stað
JÁðSCO
DÆLURNAR
með gúmmíhjólunum
• Ódýrar
• Afkastamiklar.
• Léttar í viðhaldi.
• Með og án mótors.
• Með og án kúplingar.
• Stærðir % — 2”
• Varahlutir jafnan fyrirliggjandi.
Góðfúslega leitið upplýsinga hjá oss.
Gísli J. Johnsen hf.
Vesturgötu 45. ______
Confexim Confexim
Lódz. Lódz.
Pólsk viðskipti
Pólski fatnaðurinn
er þekktur um allt land fyrir gæði og hag-
stætt verð.
Fulltrúi frá Confexim Lódz, herra Dmoc-
howskie er staddur í Reykjavík og veitir
góðfúslega upplýsingar um framleiðslu-
vörur Confexim, sem er stærsti útflytjandi
pólsks fatnaðar.
Einkaumboð: Confexim Lódz.
íslenzk - erlenda - verzlunarfélagið hf.
Tjamargötu 18 — Sími 20400 og 15333.
ur, finnst þér ekki? sagði Kay,
og setti að henni hroll. — Mér
hefur alltaf fundizt það svo
dauðans leiðinlegt.
Stúlkain-, sem kom til dyra,
sagði að frúin væri að heiman,
en væntanleg á hverri stundu.
— Við æflum þá að bíða eftir
henni, sagði Kay einbeittlega, og
síðan var þeim vísað inn í setu-
stofuna.
Þetta var stór og skemmtileg
stofa, sem var hvorttveggja í
senn setustofa og lestrarsitofa.
Þarna voru legubekkir og hæg-
indastólar lág borð og ösku-
bakkar og m-argir bókaskápar,
og fornlegt skrifborð.
Pam mundi eftiæ þerrsu skrif-
borði, vegna þess, að henni
fannst það vera þarna utan-
garna. Það hefði átt betur við
í eikarþiljaðri lesstofu í Eng-
landi.
Kay fylgdi henni með augun-
um. Hún hrökk ofurlítið við.
— En hvað þetta er skrítið,
sagði hún. — Ég minnist þess, að
þega-r ég var krakki, þá átti afi
minn skrifborð, sem var næstum
nákvæmlega eiins og þetta. Það
var frá tíma önnu drottningar
og það var skrítið leynihólf aft
an til í því. Maður snerti fjöður
inni í borðinu og hólfiS opnaðist
Afi var vanur að segja okkur
krökkunum að þetta væri álfa-
hólf. Þegar við vorum lítil og
áttum að taka inn meðöl lét
hann álfana opna hólfið og þá
var peningur í því. Mér þætti
gaman að vita h vort nokkurt
leynihólf er í þessu borði?
Um leið og hún sagði þetta,
gekk hún að borðinu. Hlerinn í
borðp'lötunni var ekki læstur,
svo að hún lyfti honum upp.
— Finnst þér ég ekki hnýsin?
sagði hún, og gretti sig, — En
ég hef bara svo gaman af svona
gömlum húsgögnum.
Hún þagði andartak og laut
niður að borðinu. Allt í einu
hrökk hún við.
— Hæ, hvað er nú þetta? sagði
hún æsit.
Pam gekk til hennar. — Hvað
er hvað?
— Þetta pappírsblað, sagði
Kay. Hún stóð á öndinni.
Pam kom til hennar. Svo
horfðu þær saman á pappírsörk
sem var að nokkru hulin af
þerriblaði. Þetta var nokkuð
stór örk og á hana var nafnið
„George Bevan“ skrifað sjálf-
Blómaúrval
Blómaskreytingar
mmm
GRÓÐRARSTÖÐIN
Símar 22822 og 19775.
GRÓÐURHÚSIÐ
við Sigtún,
sími 36770.
Hljóðfæri
fil sölu
Nokkur notuð píanó Horn-
ung og Möller, flygill,
orgel, harmoníum, raf-
magnsorgel, blásin, einnig
transistor orgel, Hohner
rafmagnspíanetta og notað-
ar harmonikur. Tökum
hljóðfæri í skiptum.
F. Björnsson,
sími 83386 M. 2—6 e. h.
— Áralagið sveinar — og svo slá trum við kjötsvíninu þegar land
sést.
s-agt hundrað sinnum. Fyrst var
það skrifað skjálfandi og fálm
andi hendi, en þegar neðar dró,
skjálftalaust.
— Þetta er skrítið, sagði hún
dræmt. — George var maðurinn
hennar sálugi. En hversvegna
ætti nafnið hans að vera skrif-
að 'hérna svona oft og mikið.
Mér sýnist helzt einhver hafa
verið að reyna að stæla rifhönd
ina hans. En til hvers er það úr
því hann er dauður? Og þessi
skrift er nýleg. Þetta er sannar
lega skrítið.
Pam svaraði engu. Hún vissi
ekki, hvað hún ætti að halda.
— Þetta er nú hreint ekki heið
arlegt, sagði Kay, — en ég ætla
samt að leita dálítið í skrifborð
inu hennar. Hafðu auga með dyr
unum á meðan Pam.
Röddin var köld og ákveðin.
Pam vissi vel, að ekkert þýddi
að fara að stæla við hana jafn
vel þótt hún hefði viljað. Kay
var einbeitt kona. Pam gætti svo
dyranna og Kay leitaði í skrif-
bor’ðinu. Báðum var innanbrjósts
eins og ’sekum samsærismönnum.
Vissulega var engin afsök-un til
við þessu athæfi þeirra — nema
þetta, sem Kay hafði áður sagt
að íþegar við er að eiga mann-
eskju eins og Phyllis Bevan, er
ekki hægt að vera neitt að súta
bardagaaðferðirnar.
Allt í einu blístraði Kay, sigri
hrósandi.
— Hvað finnst þér um þetta,
Pam?
Þetta var annað blað, alsett
samskonar rithönd, en nú var
lesmálið: „Síðan ég komst að
þessu ástarbralli þínu með ...
hér kom eyða. .— _ er lífinu
ekki lengur lifandi. Ég ætla að
binda enda á það í kvöld. Ef
maðurinn er ekki f-antur þá gift
ist hann þér.“
Kay sagði lágt: — Þetta eru
einmitt sömu orðin, sem voru
skrifuð í bréfinu, sem Jeff sýndi
mér, en þar var bara engin eyða
fyrir nafninu. Þar var nafnið
hans Jetffs. Þá hljóðaði það Iþann
ig: „Síðan ég komst að þessu
ástarbralli þínu með honum Jeff
Maitland, er lífið ekki lengur
þess virði, að því sé lifað. Ég
íbúð til leigu
6 herb. nýtízku íbúð til leigu á fögrum stað við
Háaleitisbraut frá í. okt. n.k.
Tilboð merkt: ,4’oúð — 2330“ sendist Morgunbl.
10. SEPTEMBER.
Hrúturinn 21. Marz — 19. apríl.
Hver er sjálfum sér næstur, og það er vert að t-aka það til sín.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Aftan bíður ófróms sök, en sumir hafa gaman af því að leika
sér að öðru fólki eins og köttur að mús.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Láttu ekki aðra misnota sér hjartagæzku þína, það er nóg
komið af svo góðu.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Aldrei of seint að gera gott úr gömlum erjum. Bezt er að
hefjast handa sem fyrst.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þér mislíkar eitthvað í fari vinar þins, sem auðvelt er fyrir
þig að benda honum á, og því fyrr því betra.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Eitthvert umtal, sem þú hefur vakið, en þó af sáralitlum
ástæðum, skalt þú leiðrétta, í stað þess að láta það á þig fá.
Vogin 23. september — 22. október.
Nú skaltu reyna að hrinda í framkvæmd áhugamáli, sem hefur
þola nokkra bið. Jarðveguriiin viðrist vel til þess fallinn.
Sporðdrekinn 23. október 21. nóvember.
Ef þú bíður öllu lengur með að létta á samvizku þinni,
getur svo farið, að þú verðir of seinn.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Hvernig væri að fara til gamals vinar, og hressa upp á vin-
áttuna. Hann hefur lengi beðið, og er nú farinn að ókyrrast.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Svo virðist, sem þér hafi gengið vel, og þú skalt halda áfram
á sömu braut. Árangurinn verður góður.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Nú er velgengni þín á hápunkti. Þú ska-lt ekki fara að neinu
óðslega, gæfan er áfram með þér.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Þótt dómgreind þín virðist góð, skaltu samt fara varlega, því
að svo virðist, sem einhver sé í þann veginn að snúa á þig.