Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 2

Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 19-68 Papandreou skorinn upp Aþenu, 31. október, AP. GEORGE Papandreou, fyrrver- andi forsætisráðherra Grikk- lands, var skorinn upp við maga sári í dag og virðist aðgerðin hafa heppnazt vel. Læknar segj- ast vera vongóðir um að hinn átt Úr iönn eftir mnnuð Bæ, í Skagafirði, 31. október. LAUGARDAGINN 28. september gerði stórhríð um allt Norður- land og setti þá niður töluverða fönn. Mikið af fénaði var þá óvíst og ennþá vantar margt fé. Nú fyrir nokkrum dögum komu úr fönn á Litlu-Brekku í Skagafirði fjórar kindur, þrjár dauðar ær og eitt lifandi lamb. Lambi’ð var furðu hresst eftir allan þennan tíma í fönninni, en var magurt og eitthvað kalið. —Björn. ræði stjórnmálamaður nái sér aft ur. Papandreou var fluttur í sjúkrahús á föstudaginn í síð- ustu viku, eftir að hann hafði fengið miklar innvortis blæðing ar. Tengdadóttir hans, Margrét, kom ásamt tveim börnum sínum frá Stokkhólmi og beið á sjúkra húsinu með mörgum vinum gamla mannsins meðan á aðgerðinni stóð. Maður hennar, Andreas Papandreou, getur ekki komið til Aþenu því hann á það á hættu að vera handtekinn vegna ásak- ana um að hafa tekið þátt í að undirbúa banatilræði yið George í’pandopoulos forsætisráðherra. Hann er einnig leiðtogi Grísku i frelsishreyfingarinnar, sem berst gegn herforingjastjórninni. Margrét Papandreou sagði fréttamönnum við komuna að hún hefði fengið loforð gríska utanríkisráðuneytisins fyrir því, að hún og börn hennar yrðu lát- I in í friði. f opinberri fréttatil- j kynningu var sagt að Papado- | poulos, forsætisráðherra, fylgd- J ist náið með líðan Papandreous. | Karl Kvaran við eina af myndum sinum. Strandamenn kveðfa sýslumann sinn Mary og Ernest Hemingway í Feneyjum. Hólmavík 31. október. í GÆRKVÖLDI var á Hólma- vak haldið kveðjusamsæti fyr ir sýslumannshjónin Björgvin Bjarnason og Sigurbjörgu Guð- mundsdóttur, sem í dag flytjast búferlum til ísafjarðar þar sem Björgvin tekur nú við sýslu- mannsembætti og bæjarfógeta- embætti á ísafirði. Fjölmenni var í samsæti þessu, en þó voru færri en ætlað var vegna sam- gönguerfiðleika, en vegur hef- ur teppzt í bili í Árneshrepp og Kaldrananeshrepp vegna snjó- komu. Kveðjuskeyti bárust úr þeim hreppum. Veizlustjóri í samsætinu var Benedikt Grímsson hreppsstjóri, Kirkjubóli. Fjölmargar ræður voru fluttar og þeim sýslumanns hjónum færðar margvíslegar þakkir í bundnu og óbundnu máli, en Björgvin hefur verið sýslumaður Strandamanna í rúm 10 ár. Þeim hjónum var fært að gjöf vandað sjónvarpstæki frá sýslu búum. Að lokum talaði Björg- vin Bjarnason, þakkaði auð- sýnda vináttu, góða gjöf og árn aðaróskir og óskaði sýslubúum allra heilla í framtíðinni. í dag kemur hér varðskip til þess að flytja þau hjón til ísafjarðar. Einnig mun það koma með hinn nýja sýslumann, Andrés Valdi- marsson og fjölskyldu hans og bjóða sýslubúar þau velkomin. A.Ó. Karl Kvaran opnar málverkasýningu \á morgun KARL Kvaran opnar mál- 1 verkasýningu í Bogasal á I morgnn. Sýnir hann þar milli I 30 og 40 „gouace“-myndir, og | eru þær flestar frá þremur ; síðustu árum. Þó eru nokkrar eldri myndir eða aUt frá síð- | ustu sýningu hans árið 1959. I Flestar eru myndirnar til sölu, en nokkrar eru í einkaeign. Sýningin verður opin dag- ' lega frá kl. 2—10 næstu tíu I daga, a.m.k., en ekki hefur \ verið fullákveðið, hversu lengi ( . sýningin mun standa. Karl ’ hefur haldið 6—7 einkasýn- 1 ingar áður, og einnig tekið | ) þátt í samsýningum. Thule-ölið lækkar FRÁ og með deginum í gær lækkar útsöluverð á Thule öli úr 18 kr. í 14 kr. að því er Ey- steinn Árnason framkvæmda- stjóri Sana-verksmiðjunnar á Ak ureyri tjáði Mbl. í gær. Sagði Eysteinn að sama útsöluverð yrði á Akureyri og í Reykjavík. Ölið verður áfram selt í 35 sentilítra flöskum, en ekki í 25 sentilítra flöskunum, glæru, sem hafa verið á markaðnum að undanförnu. RANGFÆRSLUR TÍMANS UM STYKKISHÓLM Handrit Hemingways í Manhattanbanka í grein í New York Times Book Review, segir Philip Young, meðal annars, að Hem ingway hafi lítt hirt um verk sín, önnur en þau, sem hann vann að í svipinn. Hafi frú Hemingway síðan haft mikið erfiði af að safna þeim saman, víðs vegar að, og koma þeim fyrir í bankahólfi „einhvers- staðar á Manhattan." Hann hafi svo boðið sér að líta á þau, og seinna þegið, að hún tæki að sér að fara í gegnum þau og raða þeim niður. Hafi hann þá fengið sér til aðstoðar formann rannsóknar deildar Ríkisháskóla Penn- sylvaníu, og hafi þeir síðan unnið vel saman að verkinu. Segir hann: Verkin voru merkilega vel á sig komin, ef með er tekið, a'ð þau voru bæði veðruð, músbitin og orm étin. En meðal þeirra sextán þúsund síðna af handritum, bæði eiginhandar og annars konar, voru áreiðanlega þrjú þúsund síður, sem aldrei hafa komið út, eða yfirleitt fyrir manna sjónir. Þar á meðal má telja: „Skáldsögu um hafið“, „Afríkubók", „Aldingarðinn Eden“, sögu sem eingöngu gerist á Rívíerunni. Ófull- gerða sögu, sem aðeins virð- ist hafa verið að komast í hápunkt, um það bil tuttugu kaflar, margar sögur, í stíl mitt á milli skáldsagna og sjálfsævisagna. Ennfremur mörg ljóð, rituð frá 1919 og allt fram yfir seinni heimsstyrjöld. Óákveðið er ennþá, hversu mikið af þessu verður gefið út, því mun Mary Hemingway ráða með ráðgjöf Scribner for lagsins. En eitt hefur þó verið ákveðfð, og það er það, að ekkert það mun út koma á prenti, sem hætta er á að minnki hróður rithöfundarins, — og einnig, að brot verka hans megi prenta í frumriti, eða óendurbætt, en enginn þar neinu við bæta“. Persónulega segist Young hafa haft mest gaman af sögu persónu, sem Nick Adams nefnist, og hann vill meina, að Hemingway hafi fengið mest af skáldsagnaefni sínu frá. Segist hann og að af ýms um ástæðum hafi hann haft ánægju af að sinna verkum Hemingways. Fyrst til að hnekkja þeim Gróusögum, að frú Mary Hemingway væri að koma fyrir kattarnef miklu magni verka hans. í öðru lagi vegna þess, a'ð þetta hafi ver- ið hrein gullnáma, sagnfræði lega og bókmenntalega, og í þriðja lagi vegna þess, að þar hafi hann fengið staðfesta þá skoðun sína, sem Hemingway hafi lengst af sjálfur borið á móti, nefnilega, að söguper- sónur hans væru raunveruleg- ar! (Lausl. þýtt). Stykkishólmi 31. október. Á forsíðu Tímans s.l. þriðju- dag er stór frétt um „hrun og | flótta“ úr Hólminum. Okkur hér er þessi frétt algjörlega ó- skiljanleg og væri fróðlegt að vita eftir hverjum hún er höfð. Rangfærslurnar eru svo marg- ar að þær verða ekki raktar hér. Hins vegar skal þess getið að atvinnuástandið hefur verið gott í Hólminum fram að þessu. Hér hafa m.a. verið í byggingu viðbætur við sjúkrahúsið, sjón- varpshús og ýmsar aðrar fram- kvæmdir. Það er ekki nema rúm vika síðan rafveiturnar voru í vandræðum með að fá menn til hjálpar við að leggja rafstreng upp í sjónvarp3hús, sem er stað- sett 4 km. fyrir ofan bæinn og í ágúst sl. stöðvaðist t.d. einn báturinn, sem hér var á hand- færaveiðum vegna þess að menn irnir fóru í vinnu í landi. Hvað flóttanr, snertir getum við ekki fundið út að nema 30 Sótt um lóðir Á FUNDI borgarráðs sl. þriðju- dag var fjallað um nokkrar lóða umsóknir fyrir fjölbýlishús, dag heimili og kvikmyndahús. Lögð var fram umsókn Fram- kvæmdanefndar byggingaráætl- unar um lóðir fyrir þrjú fjöl- býlishús og var þeirri umsókn vísað til lóðanefndar. Þá var lögð fram umsókn Hafn arbiós h.f. um lóð undir kvik- myndahús í hinum fyrirhugaða nýja miðbæ austan Kringlumýr- arbrautar og var þeirri umsókn vísað til skipulagsnefndar. Einnig var vísað til skipulags- og lóðanefndar umsókn frá Styrktarfélagi vangefinna um lóð undir dagheimili fyrir van- gefna. manns hafi flutt búferlum héðan í ár og er það minna, en undan- farin ár. Hins vegar hafa 6 fjölskyld- ur og nokkrir einstaklingar flutzt hingað og munu það vera 28 manns. Hvað framtíðin ber í skauti sínu er ekki á margra færi að segja til um, en svona fréttir þjóna engu, nema illu einu og eru til leiðinda þeim sem fyrir þeim standa. Fréttaritari. RAPACKI í ÓNÁÐ? Varsjá, 31. október. NTB. NAFN Adam Rapacki utanrikis- ráðherra er ekki á lista yfir full trúa, sem valdir hafa verið til að sitja 5. þing pólska kommúnista- flokksins, sem hefst um miðjan næsta mánuð. Rapacki, sem kunn ur er fyrir tillögur sínar um kjarnorkuvopnalaus svæði í Evrópu, hefur haft leyfi frá störfum vegna veikinda síðan í apríl, en talið er að veikinda- leyfi hans eigi sér pólitískar or- sakir. Á það er bent að fullvíst megi telja að Rapacki hafi verið and- snúinn herferð þeirri, sem hald- ið hefur verið uppi í Póllandi gegn Gyðingum, og þátttöku Pól verja í innrás Varsjárbandalags- ríkjanna i Tékkóslóvakíu. Auk þess hefur Rapacki skrifað mið- stjórninni bréf, þar sem hann lýsir sig ósammála afstöðu ann- arra, sanntrúaðri kommúnista- leiðtoga. Gamlir kommúnistale i'ð togar hafa nú treyst valdaað- stöðu sína í Póllandi, en hófsam- ari leiðtogar eiga í vök að verj- ast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.