Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 26
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968 26 FH VANN FRAM 22:21 - og hefur þá i haust unnið meistara þriggja sterkustu hlorðurlandaþjóðanna FH reyndist sterkara Framliðinu í kappleiknum í nýja íþróttahús- inu á Seltjamarnesi i gærkvöldi. Fjaðrirnar eru því enn í hatti FH og við getum í gamni sagt, að FH haldi Norðurlandatitlinum, því í haust hafa þeir nú unnið dönsku, saensku og íslenzku meist- arana, en HG, Saab og Fram eru óumdeilanlega lið á heimsmæli- kvarða — og FH er því sannarlega í þeirra hópi. Ingólfur Óskarsson og Gunnlaugur bmnavörður Hjálmarsson vom báðir fjar- verandi í þessum leik, en þess í stað tjaldaði Fram með Guðjón Jónsson nú í fyrsta sinn í vetur og „leynivopnið" mikla var Axel Axelsson ung- ur maður en bráðefnilegur svo ekki sé meira sagt. Hann birtist á vellinum eftir 12-14 mín leik, skoraði fjögur mörk Þjóðverjar óánægðir STJÓRN V-Þýzkalands hefur beðið innanríkisráðherra lands- ins Ernst Benda að gera skýrslu til stjórnarinnar um orsakir hins lélega árangurs sem vestur- þýzku þátttakendurnir sýndu í Mexikó. Stjórnin hefur ákve'ðið, að leita orsaka ófaranna og einnig að hefja undirbúning þess að keppendur V-Þýzkalands nái betri árangri á næstu leikjum sem fram fara í Múnchen. V-Þjóðverjar unnu 5 gullverð- laun, 10 silfurverðlaun og 10 bronsverðlaun í Mexikó, en A- Þjóðverjar sem eru að fjölda til aðeins þriðjungur á við V-Þjóð- verja unnu 9 gull, 9 silfur og 7 bronsverðlaun. Árangur V-Þjóð- verja í leikunum hefur hlotið mikla gagnrýni hjá Xeiðtogum ■hópsins á leikunum, í blö'ðunum og hjá almenningi heima fyrir. Allir höfðu búizt við mun betri árangri en raun varð á. í röð og breytti gangi leiksins Fram í hag á eftirminnilegan hátt. Eftir jafna byrjun tókst FH að ná 3 marka forskoti, 7-4 eftir rúmar 13 mínútur. En þá hófst kafli Axels Axelssonar sem á 6-7 mín breytti stöðunni í 8-7 Fram í vil. Þetta setti fídonsanda í Fram- liðið ásamt því að Þorsteinn varði sérlega vel á þessum kafla leiksins. Forskot Fram jókst og varð 12-9 í hálfleik. Jafnað eftir 50 mín. Allan fyrri hluta síðari hálf- leiks hafði Fram undirtökin í leiknum og forystu með 1-3 mörk um. En hvað eftir annað tóku FH-ingar að ógna sigrinum og loksins er 10 mín voru til leiks- loka tókst þeim að jafna, 19-19. Á þeirri örlagastundu mis- tókst Gylfa Jóhannssyni víta- kast og litlu síðar náði Birgir forystu fyrir FH en Axel jafn aði úr vítakasti á sömu mín- útu, 20-20. Þá varði Birgir Finnboga- son vítakast Axels og litlu síðar nær Geir Hallsteinsson forystu fyrir FH, 21-20. Það var ekki sízt fyrir frábæra markvörzlu Birgis í marki FH að FH hélt þessu forskoti og jók það (Örn) í 22-20 er 2 mín voru eftir. Sigurbergur skoraði síðasta mafk leiksins er mínúta var eft- ir og fékk gullið tækifæri til að jafna á síðustu sekúndunum en mistókst illilega skot í dauða- færi. Sigurvilji. Þar með var sigurinn FH-meg in, en eftir öílum gangi leiksins gat þetta allt einis verið á hinn veginn. Það sem reið baggamun- inn var að FH-liðið er gætt meiri sigurvilja og það er eins og það eflist við sérhvert mótlæti og nái fram því sem munar til að breyta lakari stöðu í vinnings- stöðu. Þetta tókst liðinu í þess- um leik, sem lengst af var held- ur betri hjá Fram. 'Salurinn á Seltjarnarnesi er nokkuð undir löglegri vallar- ■stærð í stórleikjum. Þetta setti sinn svip á leikinn. Menn sem lítt eða ekki skora mörk í Laug- ardalshöllinni voru nú marka- kóngar og þeir sem standa sig ■bezt á fullstórum velli nutu sín ekki. Það fékkst t.d. aldrei það út úr leik Geirs Hallsteinssonar sem hann sýnir leik eftir leik í Laugardal. Línuspil verður og erfitt vegna þrengsla, stymping- ar meiri og lakari heildarsvipur á leiknum. ÍBeztir hjá Fram voru Axel Axelsson, Gylfi Jóhannsson og Þorsteinn í markinu en hjá FH Auðunn Óskarsson, Birgir í mark inu, Birgir Björnsson og Örn. Geir var að venju mjög drjúgur, en naut sín ekki fyllilega. Mörk Fram skoruðu Gylfi Jó- hannsson 8, Axel Axelsson 5, Sigurbergur og Guðjón Jónsson 3 hvor og Sig. Einarsson 2. Mörk FH skoruðu Birgir 6, Geir 5, Örn 4, Auðunn 3, Einar Sigurðsson 2 og Jón Gestur og Páll Eiríksson 1 hvor. Dómarar í þessum erfiða leik voru Björn Kristj ánsson og Ósk- ar Einarsson. A. St. Nómskeið í hondknottleik Glímufélagið Ármann heldur námskeið í handknattleik fyrir stúlkur 11—16 ára. Hefst það sunnudaginn 3. nóv. í íþróttahús- inu við Réttarholtsskóla kl. 3.30. Æft verður 2svar í viku á fimmtud. kl. 6 að Hálogalandi og sunnud. kl. 3.30 í íþróttahúsinu við Réttarholtsskóla. Klæðnaður leikfimiföt og strigaskór. Allar stúlkur eru velkomnar. Þátttökugjald er kr. 40.00. Unglingameistarar 1968 Myndin er af unglingum þeim úr sundfélaginu Ægi, sem sigr- uðu á síðasta unglingameistara- móti Islands í sundi. Hlaut Ægir 132,5 stig og vann til eignar bik- ar gefinn af Albert Guðmunds- syni stórkaupmanni. Nr. 2 var KR með 95 stig og nr. 3 H.S.K. með 80,5 stig. Mörg góð aírek voru unnin á mótinu og má þar nefna Islands- met Ellenar Ingvadóttur 1:20,9 í 100 m bringusundi, metjöfnun Sigrúnar Siggeirsdóttur í 100 m baksundi 1:16,0 og telpnamet Helgu Gunnarsdóttur í 50 m bringusundi 38,3 en það er bezti kvennatími á þessari vegalengd sl. 3 ár. Á myndinni með unglingunum eru þjálfara Ægis þeir Guðmund ur Þ. Harðarson og Hreggviður Þorsteinsson. Þegar verðlaun voru afhent fyrir 200 m. fjórsund karla á Mexikóleikunum stigu þrír B andaríkjamenn á verðlaunapall- inn. Er þeir hlýddu á þjóðsönginn tók „silfurmaðurinn“ John Ferris að riða og féll í yfirlið. Landar hans réttu honum hjálp arhönd — og ekki var hér um alvarleg veikindi að ræða. Vera gaf leiðtogum Tékka gullin fjögur VERA Caslavska-Odlozilova — eins og hin fræga tékk- neska fimleikamær heitir nú, tók í gær við heiðursmerki miklu úr hendi Ludvig Svo- boda forseta Tékkóslóvakíu. Fór afhendingin merkisins fram í hófi er forsetinn hélt tékkneska Olympíuliðinu. Með al gesta var auk annarra Al- exander Dubcek flokksforingi Smirkovsky, þingforseti og Oldrich Cernik forsætisráð- herra. Vera vann fern gullverðlaun á Mexikóleikunum, eins og frægt er orðið. I ræðu sinni talaði Svoboda forseti sérstaklega til Veru og þakkaði henni frábær afrek og heiður er hún hefði unn- ið föðurlandi sínu. „Við elsk- um þig öll, ekki aðeins fyrir afrek þín heldur einnig fyrir þína frjálslegu framkomu og elskulega viðmót“ sagði for- setinn. I þakkarræðu sem Vera Cas lavska hélt sagði hún að tékk nesku keppendurnir í Mexikó hefðu alltaf fundið að leiðtog ar tékknesku þjóðarinnar stóðu með þeim. „Samúð ykk ar, umhyggja og áhugi sem við urðum svo vel vör við skapaði árangurinn. Við er- um þakklát." Síðan tók Vera upp gull- peninga sína f jóra er hún vann í Mexikó og gaf hverjum hinna f jögurra leiðtoga Tékka sitt gullið „sem tákn um þakk læti fyrir það starf er þeir hafa unnið fyrir Tékkslóvak- Nefndir hjá HSÍ Á stjárnarfundi 15. þ.m. skipaði stjórn H.S.Í. eftirtaldar nefndir: Landsliðsnefnd karla: Hannes Þ. Sigurðsson. Hjörleifur Þórðarsan. Jón Erlendsson. Landsliðsnefnd kvenna: Þórarinn Eyþórsson. Heinz Steimann. Viðar Símonarson. Landsliðsnefnd pilta Jón Kristjánsson. Hjörleifur Þórðarson. Karl Jóhannsson. Landsliðsnefnd stúlkna Þórarinn Eyþórsson. Heinz Steiman. Viðar Símonarson. Dómaranefnd: < Hannes Þ. Sigurðsson. Karl Jóhannsson. Valur Benediktsison. Mótnefnd: Rúnar Bjamason. Einar Þ. Mathiesen. Birgir Lúðvíksson. Stjórn H.S.I. hefir skipt með sér verkum þannig: Axel Einarsson, formaður, Rún ar Bjarnason, varaformaður, Val- geir H. Ársælsson, gjaldkeri, Axel Sigurðsson, bréfritari, Einar Þ. Mathiesen, fundarritari, Jón Ásgeirsson, meðstjórnandi, Sveinn Ragnarsson, meðstjóm- andi. Svíar IMorður landameist- arar LOKIÐ er keppni Norðurland- ■anna í ár um meistaratitil í knattspymu, en eins og kunnugt er er keppni tvískipt — annars- vegar árleg keppni, en jafnframt er keppt yfir 4 ára tímabil, og tveir leikir leiknir í hverju landa milli allra landanna. Svíar hafa unnið að þessu sinni og er staðan þannig eftir sumarfð í sumar og 1. árið í 4ja ára keppninni. Svíþjóð 3 2 1 0 6- 2 5 Danmörk 3 2 0 1 9- 4 4 Noregur 3 1116-73 Finnland 3 0 0 3 2-10 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.