Morgunblaðið - 27.11.1968, Qupperneq 20
20*
MQRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAQUR 27. NÓV. 1968 ,
- ÁRMANN KR.
Framhald af bls. 8
skoðun fari fram eftir tvö ár, en
þá rennur út kjörtímabil núver-
andi nefndarmanna.
— En rithöfundarnir sjálfir.
geta þeir ekkert gert?
— Rithöfundarnir ræða að
sjálfsögðu i samtökum sínum af
brennandi áhuga um öll þau mál
sem varða listir og önnur menn
ingarmál. En það er bara ekki
nóg, samtökin verða að fylgja
hagsmunamálum sínum eftir af
meiri festu og djörfung hér eftir
en hingað tiL
— Sundraðir fallið þið?
— Já sannarlega. Og úthlutun
listamannalauna er stórmál í
augum rithöfunda, og varðar þá
meira en hinn beini fjárhagslegi
styrkur gefur til kynna. Það er
einnig litið á úthlutunina sem
viðurkenningu og mér er kunn-
ugt um, að í sendiráðum erlend-
is eru geymdar úthlutunarskrár
og flett upp í þeim, ef leita skal
eftir t.d. í sambandi við þýðingu
og útgáfu bóka, hve viðkomandi
höfundur er hátt metinn í sínu
heimalandi.
— En hvað um úthlutun úr
Rithöfundasjóði fíflands?
— Þar ber einnig allt aðsama
brunni. Þó sýna skýrslur um út-
lán bóka í bókasöfnum að barna
og unglingabókahöfundar eru í
efstu saetum, og hafa verið það
um árabil, eða allt frá þeim tíma
er talning um útlán bóka var
tekin upp hér á landi. Sama hef-
ur einnig orðið uppi á teningn-
um hjá nágrannaþjóðum okkar.
Það sjá því allir heilvita
menn, að lítið réttlæti er í að úti
loka þá frá sjóðnum, sem mest
leggja af mörkum í hann.
— Víða er nú pottur brotinn?
— Rithöfundar geta bannað út
lán á bókum sínum, en ég tel
það vafasama lausn.
— Bregðist þið þá ekki þeirri
ábyrgð sem á ykkur hvílir?
— Jú, ég teþ að þeir fáu höf-
undar, sem enn skrifa fyrir æsku
þessa lands bregðist skyldu sinni
ef þeir létu setia bækur sínar
bak við lás og slá, svo lengi sem
ungu kynslóðina fýsir að lesa sög
ur þeirra og ljóð.
M. Thors.
- FRAMSÓKN
Framhald af bls. S.
þreytt á iðjuleysinu — og valda
leysinu — og vill nú fá úrlausn
sinna mála, vili fá tækif^'rtii
að kenna heimskum almenningi
að lifa lífinu. En þetta fjölmenna
aðflutningslið hefir ekki þyrpst
til einskis til Reykjavíkur. Þetta
er hinn harði kjarni Framsókn-
arflokksins hér, kjarni sem hef-
ir unnið baki brotnu — og ekki
árangurslaust — að því að
hyggja upp fylgi flokksins hér
í Reykjavík. En því finnst líka,
að það hafi unnið til launanna
og tími sé til kominn, að Fram-
sóknarflokkurinn komist í að-
stöðu til að veita því umbun
fyrir störf sín í nefndum og yfir
leitt á jötu hins opinbera. Við
fengjum sjálfsagt að sjá Þórar-
inn Þórarinsson sem utanríkis-
ráðherra, Kristján Thorlacius
sem fjármálaráðherra og kannski
Tómas Kalsson sem skömmtun-
armálaráðherra og allt nefnda-
og bitlingaliðið þar undir.
SKULDABYRÐIN ERLENDIS
En Tómas Karlsson lætur sér
ekki nægja að lýsa því yfir, að
þjóðinni sé um megn að sjá sér
farborða án alls konar skömmt-
unarnefnda. Hann hleypir í sig
hroka og ræðst að þingmeiri-
hlutanum og rikisstjórninni fyr-
ir að hafa efnt til skulda er-
lendis, sem hann og börnin hans
eigi að standa straum af. Hvað
segir nú sú kynslóð, sem komin
er yfir miðjan aldur við svona
kveðjum? Hvaða kjör hefir kyn
sflóð Tómasar Karlssonar, sem er
nýbyrjuð að ganga um 1940, bú-
ið við? Og hvað hefir eldri kyn-
slóðin á sig lagt fyrr og síðar
til þess að hin yngri gæti lifað
við betri kjör, en hana sjálfa
gat órað fyrir í sinni bernsku?
Vonandi skilur Tómas Karlsson
og hans kynslóð börnum sínum
þvílifum arfi, sem feður hennar
hafa skilað henni. Þá er ég viss
um að „hugsjónir" haftadraugs
Framsóknarflokksins verða að
fullu kveðnar niður. Þar fyrir
utan sýnist mér að það muni ekki
koma í hlut Tómasar Karlsson-
ar og hans jafningja að greiða
þær erlendu skuldir, sem nú hef
ir verið stofnað til, heldur muni
það ekki siður koma í hlut hinna,
sem eldri eru, því að ég ætla að
ekki sé úr þeim allur kjarkur
eins og Tómasi og ýmsum flokks
bræðrum hans.
Við, sem Iifðum bemsku okk-
ar á kreppuárunum, þegar veldi
Framsóknarflokksins var mest
og síðan æsku- og námsár og
fyrstu manndómsár undir oki
hugsjónalausra áhrifa og stjóm
ar Framsóknarfloiksins,en höf-
um á þessum áraitug fengið að
kynnast stjórn framsýnn,a og
frj álslyndra marma munum áreið
anlega vinna að því öllum árum
að halda við því góða, sem við
höfum búið við, en hindra upp-
vakning þess hafta- og ofstjórn
ardraugs, sem hvíldi sem skuggi
á bernsku, æsku og fyrstu mann
dómsárum okkar. Við trúum því
heldur eldd, að æska lands-
ins, sem þekkir minna eða ekk-
ert til hinna erfiðu ára, sem
hægt væri að kalla „Framsóknar
flokksárin“,láti glepja sér sýn
og styðji við bak þeirra manna,
sem vilja ráða því, hversu marga
diska og gaffla það kaupir til
búa sinna. Það hefir fengið við
vörunina með því að hlýða á
þann æskulýðsforingja, Tómas
Karlsson, sem flokkurinn hefir
nú um langt skeið sýnt hvað
mest traust með því að tryggja
honum sæti á Alþingi, að vísu
aðeins um sinn, og gefa honum
þar með færi á að láta að sér
kveða verulega í augum alþjóð-
ar. En þessi maður, sem er þrot-
ainn kjarki og hefir misst trúna
á fram'tíðarvelgen.gni þjóðarinn-
ar og kann á engar aðrar skýr-
ingar en þær, að feður hans hafi
stofnað til of mikilla skulda er
framarlega í flokki þeirra manna
sem veitast að forsætisráðherr-
anum fyrir vantrú á landið
vegna þess að hann vill meta á
réttan og raunsæjan hátt mögu-
leika og aðstæður, sem við búum
við, einmitt til þess að átta sig
á, hvert stefna skuli og hvað
gera skuli til þess að snúast við
erfiðleikum, sem að kunna að
steðja og gera ráðstafanir til að
sigrast á þeim.
Ingimar Einarsson.
- JÖHANNES
Framhald af bls. 17
sökum, það er óraunsætt. Ég er
allskostar óhræddur við að nota
Reykjavíkurflugvöll fyrir þot-
una, og hef ég til viðmiðunar
þá þekkingu, sem ég hef á
Reykjavíkurflugvelli á löngum
ferli og þá sáralitlu nottoun, sem
yrði á homirn með þessari einu
flugvél. Hávaði þotúnnar ætti
ekki haldur að þurfa að trufla
íbúa Reykjavíkur, því brottfarar-
og komutímar véliarinnar eru á
þeim tíma dags, er allir eru vak-
andi. Að auki er þessi vél sérstak
lega þekkt fyrir að vera hljóðlát.
— En fyrsit við erum byrjaðir
að ræða um flugvallarmál, hvert
er þá álit þitt á Álftanesflug-
velli?
— Mér hefur alltaf þótt út-
koman i þeim málum heldur sorg
leg. Ég sá fyrir mörgum árum
hilla undir framtíðarflu'gvöíl á
Álftanesi, og tel að alrangt hafi
verið að hefjast ekki handa þegar
eftir rannsókn finnska sér-
fræðingsins frá ICAO ,sem hing-
að kom á vegum Flugimálastjórn
ar til að igera tillögur í þessum
málum. Harm mælti eindregið
með Álftanesinu. f sambandi við
þetta mál hafa verið nefndar
svimandi upphæðir varðandi
kostnað við að byggja svona flug
völl, en að mínum dómi hefði
mátt byggja hann í áföngum og
hvert einasta atriði sem gert
hefði verið, átt að miðast við
framtíðina en ekki þetta eilífa
bráðabirgðabasl. Við ítslendingar
höfum aldrei byggt flugvöll fyr-
ir þéttbýlið hér sjálfir, svo að
varla væri tffl of mikffls ætlazt
að við byggðum eina braut fyr-
ir framtiðina. Og samkvæmt þvi
sem ég hef heyrt frá öðrum flug-
mönnum, eru þeir langflestir sam
mála um að Álftanesið sé heppi-
legasta svæðið fyrir framtíðar-
flughöfn. Það hefur marga kosti
fram yfir Keflavík. í fyrsta lagi
er Keflavík of langt í burtu,
veðurskilyrði þar rniun verri, og
loks er flugvöllurinn ekkert sér
staklega vel útbúinn, — heldur
t.d. ekki ILS (blindflugsaðflug)
nema inn á eina braut. f verstu
veðrunum þurfum við oft að basl
ast við, að komast inn á braut,
sem liggur til suð-suðvesturs, en
leiðbeiningartæki inn á þá braut
enu áikaflega ofufflkomin. Og
þetta er brautin sem þarf að nota
í sunnan og suð-vestan þoku-
fýlunni þarna syðra. Reykjavík
urflugvöllur er þá heppilegri,
því að í sunnan og suðvestan
veðrum er skyggni og skýjahæð
yfirleitt betri hér í Reykjavík,
og þar sem aðalflugbrautin snýr
til suð-suðvesturs hér, er í mörg
um tilfellum æskilegra að lenda
í Reykjavík við bærileg skil-
yrði en við lágmarksskilyrði í
Keflavík. Við megum nota Reykja
vík sem varafliugvölí, lenda hér
þegar ólendandi er í Keflavík.
Ég skil ekki ástæðuna fyrir því,
að við skulum mega lenda þot-
unni hér í vestu veðrum en
ekki þegar skilyrði eru góð. Sam
kvæmt þessu virðist mér, að
ekki sé um tækni’legan vanbún-
að að ræða, heldur sé ástæðan
einhver önnur og væri gaman að
fá að vita hana.
Og Jóhannes víkur talinu frek
ar að varatflugvöMunuim: — Ég
heyrði ekki alls fyrir löngu, að
til stæði að byggja varaflugvöll
norður í Aðaldalshrauni fyrir
millilandaflugið. Þessa hugmynd
fæ ég alls ekki skilið, því að
við höfum ágæta flugbraut á
Akureyri með malbikuðu yfir-
borði og ágætu blindflugsaðflugi
miðað við staðhætti. Þar er byggð
og henni fylgir öll nauðsynleg
þjónusta fyrir ferðamenn, hótel
matsölustaðir o.s.frv. Ég fæ því
ekki séð hvaða grundvöllur er
fyrir því, að reka fyrsta flokks
varaflugvöll fyrir mil’lilandaflug
ið, þar sem sáralítil bvggð er
og byggja þarf allt upp frá
grunni. Auk þess hygg ég það
ákaflega sjaldgæft, að ólendandi
sé á Akureyri en lendandi í
Aðaldal, þegar við þurfum að
flýja norður vegna veðurs hér
fyrir sunnan. Vil ég í því sam-
bandi geta þess, að ég hef flog-
ið milli landa að staðaldri í 20
ár, og oft með Akureyri sem
varaflugvöll, en ekki í eitt ein-
asta skipti hef ég í öll þessi
ár þurft að fara norður. Geta
menn því séð af þessu, að vara-
flugvöllur á Akureyri ætti að
nægja fyrir Norðurland. En fyrst
farið er að ræða um varaflug-
velli á annað borð, þá hef ég
veitt því athygli í öll þessi ár,
sem ég hef stundað flug, að
Hornafjörður er einna ákjósan-
legasti sttaðurmin fyrir vara-
flugvöll í milli-landaflugi, með
tilliti til veðurfars auk þess sem
hann er svo til í fluglínunni til
meginlandsins.
— Að lokum Jóhannes, óttast
þú ekki um afkomu litlu flug-
vélanna, þegar risaþotur eins og
t.d. Concord og Boeing 747 koma
fram á sjónarsviðið Nú liggur
það Ijóst fyrir, að svo lítil þjóð
sem fslendingar munu seint hafa
bolmagn til þess að eignast eina
slíka?
— Hvað snertir samkeppnina
um flutninga, sem fara si vax-
andi og munu með tilkomu þess-
ara flugvéla verða hagkvæmari
fyrir bæði flugfélögin og far-
þegana, þá verðum við að treysta
á alþjóðasamtökin IATA og vona
að hlutur hinna smáu verði ekki
fyrir borð borinn. Þessi samtök
hafa gert meira gagn fyrir flug-
ið í heild en margan grunar.
En svo ég víki að hinu atrið-
inu, með fsland og risaþoturnar,
þá er hollt að skyggnast svo-
lítið aftur í tímann. Það eru
ekki ýkjamörg ár síðan það var
talið vafasamt að við, fáir, fá-
tækir og smáir mundum geta
eignazt flugvél, sem stæði í
fremstu röð, hvað allan tækni-
útbúnað, hraða og þægindi snert
ir, en þetta hefir nú skeð, og
það er ekki útséð um að slíkt
geti ekki endurtekið sig. Það
blæs að vísu ekki byrlega sem
stendur, og nýtízku flugvélar
kosta geysilegt fjármagn. Ég befi
mikla trú á íslenzkum flugmál-
um og framtíð þeirra, en við
þurfum að rétta okkur úr þeim
kút, sem flugmálin eru í, nú á
dögum og á ég þar við framtíð-
aráætlanir í flugvallamálum höf
uðborgarinnar og svo hitt, að
sjálft Flugmálaráðuneytið skuli
vera að skipta sér af því hvort
einhver sérstök flugvél í einhverj
um sérstökum tilfellum megi
lenda á flugvelli borgarinnar eða
ekki. Ég tel að þama eigum við
eitt heimsmetið enn, miðað við
fólksfjölda.
- BJÖRN
Framhald af bls. 17
bandarísk flugmálayfirvöld sam
þykktu að leyfa lægra skýjalág
mark við lendingu en áður
þekktist, þ.e.a.s. að þar sem áð-
ur gilti 200 feta lágmarksskýja-
hæð voru samþykkt 150 fet fyr-
ir þessa þotu. Þá þetta eina far-
þegaflugvélin, sem getur flogið
allt að því með hraða hljóðsins,
en einnig farið niður fyrir 90
mílur á kl.st„ og sýnir þetta
ljóst hvílíkum eiginleikum hún
er búin
Við spyrjum Björn um tækja-
búnað vélarinnar: — Þotan er
búin mjög fullkomnum tækjum,
svarar hann og sérstaklega er
gengið vel frá öllum stjórntækj-
mu. Þau ganga fyrir þremur mis
‘munandi kerfum, og skiptir
engu þótt tvö þeirra bili, flug-
vélin er fullkomlega flughæf
áfram. Um hreyflana er það að
segja, að þeir eru mjög gangör-
uggir og jafnvel þó að tveir bili
flýgur vélin ágætlega á einum.
flnnars er ákaflega sjaldgæft
að þotan bili, hefur t.d. ekki bil-
að alvarlega frá því hún kom til
landsins.
Þessu næsit víikjum við aðeins
að f 1 ugvallarmálimu sem mjög hef
ur verið á dagskrá í sambandi
við þotuna, og spyrjum við
Björn álits á því:
— Ég hef lent þotunni í Reykja
vík nokkrum sinnum og af
reynslu minni af vellinum hér,
er mér gjörsamlega óskiljanlegt
að ekki skuli fást leyfi fyrir
vélina til lendingar hér að stað-
aldri. Og einkaim kemiur mainini
þetta spánskt fyrir sjónir, þegar
það er haft til hliðsjónar, að vél
in er með sérstakan búnað til
að lenda á stuttum brautum. í
Bandaríkjunum eru smástaðir
með hliðstæða flugvelli, eða jafn
vel minni en í Reykjavík, og
hafa íbúar þeirra sérstaklega
óskað eftir B-727 til lendinga
þar. Og annað dæmi get ég nefnt.
Á Azoreyjum er flugvöllur með
5 þús. feta braut (1000 fetum
styttri en í Reykjavík) og lenda
vélar frá Portúgal þar að stað-
aldri. Áður voru notaðar Con-
stell'ation - vélar tffl þessa flugis, en
eftir að Boeing 727 komu á mark
aðinn, er farið að nota þær á
þessari leið. Portúga lskir fhng-
menn telja hana mun öruggari
og heppilegri vél við þessar að-
stæður en hinar fyrri.
— Það er skoðun mín, sagði
Björn í lok þessa spjalls, — að
Boeing-þotan sé í flokki beztu
og fullkomnustu flugvéla, sem
fljúga í veröldinni nú á dögum.
Ég tel að Flugfélagið hafi valið
mjög skynsamlega, því að þotan
hentar sérlega vel á þeim leið-
um, sem henni er flogið á og
jafnvel á lengri leiðum. Hún hef
ur t.d. reynzt mjög vel í leigu-
flugi til Spánar að undanförnu.
Fundur um
bókhaldsstjórnun
á Akureyri
STJÓRNUNARFÉLAG Norður-
lands hyggst efna til fundar um
bókhald fyrirtækja, sem tæki til
stjórnunar. Ætlun félagsins með
fundi þessum er m.a. sá að ræða
sérstaklega með hvaða hætti fé-
lagið gæti orðið að sem mestu
liði þeim aðilum, sem óska upp-
lýsinga þess og aðstoðar, til þess
að betrumbæta bókhald sitt í því
skyni að það komi að meiri not-
um við stjórnun viðkomandi fyr-
irtækja.
Á fundinum mun Finnbogi
Jónasson, yfirbókari K.E.A. halda
erindi um bókhald og efnt verð-
ur til hópumræðna um niður-
stöður bókhalds fyrirtækis og
umræðna um þær niðurstöður
sem hóparnir komast að. Fund-
armönnum mun einnig gefast
kostur á að skoða vélbókhald
K.E.A.
Fundurinn hefst kl. 10 f.h. á
Hótel K.E.A. laugardaginn 30.
nóv. n.k. og er opinn öllum áhuga
aðilum um bókhald.
- ÁVAXTAMARKAÐUR -
Ódýrir ávextir til jólanna
Ferskjur 41.70 kg.ds., Perur 49.— kg. ds., Jarðarber 49.75 kg.ds.,
Ananas 37.40 kg.ds., Jarðarberjasulta 21.75 Vi kg.ds., Jarðarber
27.30 Vz kg.ds., Rauðkál 29.— kl., Enskt texkex 15.55 pk., Hafra-
kex 19.— pk., Piparkökur 19.— pk.
Sendum heim. — Næg bílastæði.
Matvörumiðstöðin Laugalœk 2
Sími 35325 — á homi Rauðalækjar og Laugalækjar.
Aukaslarl
Kona óskast til sölustarfa. Þarf að hafa góðan b£I
til umráða.
Upplýsingar í síma 15941.