Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 1
24 SÍÐUR
1. tbl. 56. árg. FÖSTUDAGUR 3. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjórveldafundur um ástandiö
fyrir botni Miðjarðarhafsins?
V/ðræður hafnar i Paris, London og Washington
París, London og Washington,
(NTB-AP)
VIÐRÆÐUR um löndin fyrir
botni Miðjarðarhafsins fara
nú fram milli háttsettra
franskra og sovézkra embætt
ismanna og kunna ef fil vill
að leiða til sams konar við-
ræðna milli de Gaulle forseta
og bandaríska og brezka
sendiherrans í París. Þessar
viðræður kunna að leiða til
undirbúningsviðræðna um
stórveldaráðstefnu varðandi
Austurlönd nær, eins og de
Gaulle hefur lagt til.
í London ræddi sovézki
sendiherrann Mikail Smirn-
ovski samtímis við brezka
utanríkisráðherrann, Michael
Stewart, um þróun mála í
Austurlöndum nær. Á eftir
var skýrt frá því, að þeir
hefðu rætt möguleika á sam-
eiginlegu frumkvæði í því
augnamiði að leysa deilur
landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafsins.
Framhald á bls. 16
Flugvélarrán yfir
Miðjarðarhafi —
Crísk flugvél neydd til />ess oð lenda
í Kairo — Flugvélarrœninginn grískur
y
London, 2. janúar AP
MIKILVÆG brezk Ieyniskjöl
sem fjalla um Tékkóslóvakíu-
málið 1938 eru horfin. í þeim |
er meðal annars f jallað um i
' ástæðuna til þess að Bretar
völdu sveigjanlega pólitík í'
! samskiptum sínum við Þýzka-1
Framhald á bls. 3
Aþenu, 2. jianúar NTB—AP
4 GRÍSKRI flugvél var rænt í
dag yfir Miðjarðarhafi, og flug-
stjórinn neyddur til þess að
lenda henni í Kairo. Var þetta
farþegaflugvél af gerðinni DC
6 B á Ieiðinni frá Heraklion, á
Krít til Aþenu. f flugvélinni
voru 97 farþegar, en vélin var
frá flugfélaginu Olympic Air-
ways, en eigandi þess er auð-
jöfurinn Aristoteles Onassis.
♦ Það var 29 ára gamall Grikki,
Georg Flamorides, sem neyddi
flugstjórann til þess að fljúga
til Kairo. Hann hefur nú verið
ákærður af grískum yfirvöldum
fyrir tilraun til manndráps að
yfirlögðu ráði.
Flugstjórinn í flugvélinni, Den
is Mayrokefalos, skýrði frá því í
daig, að flugvélarræninginn betfði
ruðst inn í flugstjómarklefann
rétt eftir brottförina frá Kríit og
krafizt þess, að stefnu flugvélar-
innar yrði breyft og henni flog-
ið til Kairo. Er flugstjórinn kom
með mótbárur og gérði tilraun
til þess að hafa lofts'keytasam-
band við Aþenu, dró ræninginn
upp skiamm byssu og skaut af
henni einu skoti beint yfir höf
uð flugstjórans og braut þann-
ig rúðu í stjórnklefanum. Eng-
inn þeirra 97 farþega, sem voru
í flugvélinni, urðu varir við,
hvað gerzt hafði, fyrr en flog-
vélin lenti í Kairo.
Tvær gríiskar orrustuþotur,
eem heyrðu skeytasendingu frá
farþegaflugvélinni, reyndu að
fclita hania og neyða hana til
þess að breyta stefnunni, en
fengu fyrirmæli um að hætta
því, er flugvélarræninginn hót-
aði að sprengja flugvélina í loft
upp, ef þær hættu því ekki.
Þetta er síðasta atvikið atf
mörgum, sem átt hafa sér stað
að undanförnu fyrir botni Mið-
jarðarhafeins, þar sem stjórn-
málaástandið hefur skapað örð-
ugleika fyrir almennar flugsam
göngur. Tveir arabiskir hermdar
verkamenn eyðilögðu ísraelsíka
farþegaflugvél á flugvellinum í
Framhald á bls. 16
Vinur Dubceks forsœtis-
ráðherra í Slóvakíu —
Þrjár rikisstjórnir i Tékkóslóvakiu
Prag 2. janúar — NTB
STEFAN Sadovsky, náinn vinur
Alexanders Dubceks var í dag
skipaður fyrsti forsætisráðherra
hins nýja „Sósíalistalýðveldis
Slóvakíu“. Jafnframt hefur Lud-
vik Svoboda forseti skipað nýja
sambandsstjórn undir forustu
Oldrich Cerniks forsætisráðherra
og mun hún stjóma landinu sam-
kvæmt nýrri stjómarskrá, sem
gerir ráð fyrir að Tékkar og Sló-
vakar ráði málum sínum sjálf-
ir. Stanislav Raz, fyrrv. iðnaðar-
ráðherra, verður forsætisráð-
herra hins tékkneska hluta sam-
bandsrikisins.
Slóvákar, sem Ungverjar kúg-
uðu á dögum Habsborgarakeisar-
anna og seinna voru atfskiptir á
dögum 'hinna stalínistiisku ríkis-
stjórna eftir heimisstyrjöldina, fá
frá og með deginum í dag sína
eigin ríkisstjórn og jatfnrétti á
við Tékka.
Margt bendir til þess að Sló-
vakar muni ekki styðja tillögu
um, að æðstu emíbættum lands-
ins verði skipt á milli þjóðanna,
en það hefði í för með sér að
Boranir sýna að hitinn er meiri á
Reykjanesi en menn þorðu að vona
Mjög uppörvandi, segir Baldur Lindal
— ÞAÐ hefur greinlega
komið í ljós við tilrauna-
boranirnar á Reykjanesi,
að hitinn þar er meiri en
flestir þorðu að vona. Það
er mjög uppörvandi og
skiptir miklu máli að fá
staðfestan svo mikinn hita
þarna, sagði Baldur Lín-
dal, efnafræðingur, sem
annazt hefur bráðabirgða
áætlunargerð um fyrirhug-
aða efnavinnslu á Reykja-
nesi. í 1150 m djúpri bor-
holu á Reykjanesi mældist
nýlega 286 stiga hiti og hef
ur aldrei fyrr mælzt meiri
hiti í jörðu hér á landi.
Fyrir jólin var lokið v»ð
að bora aðra 1000 m djúpa
holu með gufubornum, en
ekki er enn búið að mæla
hana. Og nú verður byrj-
að á þriðju og síðustu
djúpu holunni í útjaðri
jarðhitasvæðisins.
Áður en þessar rann-
sóknir hófust, var ákaflega
lítið vitað um þetta svæði,
en við höfum, nú að und-
anförnu að minnsta kosti,
reiknað með að gufa væri
þar nægileg til að hafa þar
saltvinnslu, sem þarf fyrst
og fremst gufu, sagði Bald-
ur. En þegar lengra er
komið og farið að fram-
leiða ýms efni úr saltinu,
þá þarf auðvitað mikla raf-
orku. Þessi hái hiti gerir
það að verkum, að raforku
framleiðsla væri hugsanleg
jafnframt gufunotkuninni,
en það hefur ekki komið
til athugunar enn. Ekki er
Frambald á bls. 16
framtfarasinniim Josef Smrkov-
sky, forseti þjóðþingsins, sem er
Tékki, yxði leystur frá störfuim.
SMRKOVSKY SETTUR AF?
Svoboda forseti og Oernik for-
sætisráðlherra eru báðir Tékkar,
en Dubcek flokksleiðtogi er Sló-
vaki. Leiðtogi Silóvaka, Guista v
Husaik, hefur hafldið því fram, að
Slóvaki eigi að gegna fjórða
æðsta embætti landsins, embœtiti
þing'forseta, til þess að ná réttu
jafnivægi, en framfarasinnaðir
Tékkóslóvaikar túlka atfstöðu
Husaks þannig, að hann vidji
með þessu reyna að koma því til
leiðar að eini framfarasinnaði
stuðningsmaður Dubcekls í hinni
átta manna forsætisnetfnd flokks-
ins verði settur af. Meira en ein
milljón tékkneskra verkamanna
hefur lýst yfir stuðningi við
Smrkovsky og hótað verkföllum
ef hann verður iátinn víkja. í dag
voru einnig birtar yfirlýsingar
til stuðnings Smrkovsky í Sfló-
vakíu.
í bréfi frá Komenöky-ihláskóla
í Bratilslava, höfuðborg Slóvakíu,
til unigkommúnistablaðsins
Milada Fronta segir, að etf Smr-
kovsky verði settur af muni það
veikja stöðu Dubceks, en það
hefði aftur á móti í för með sér
mikla ólgu.
Þess verður vart að þær kröf-
ur verða sífellt háværari að þjóð
þingið verði kallað saman hið
fyrsta til þess að ákveða hver
gegna skuli embætti þingfortseta.
Verkamenn í hinum miklu Tesfla-
verksmiðjum í Prag hafa skritfað
þingmönnum bréf og liátið í ljós
von um að kjör þingforseta end-
urspegli þjóðarviljann þannig,
að Smrkovsky verði valinn. í
Frambald á bls. S