Morgunblaðið - 03.01.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.01.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1969. 5 Grátmúrinn í Jerúsalem. Ólundar-jól í Jerúsarlem Eftir Gavin Young Jerúsalem, 23. deeember IJM þessi jól er Jerúsalem sól rík borg, full ólundar og tauga spennu. Stöku sinnum hvín í þotum ísraelska flughersins yf ir borginni. Ferðamennirnir frá Ameríku og Evrópu hrökkva við þegar Arabar skjóta úr viðhafnar-fallbyss- um til að minnast Id el Fitr hátíðar múhameðstrúarmanna; eru það ef til vill sprengjur skæruliða frá Palestínu? I>að ríkir engin friðarkennd í borgínni helgu. Velvilji rík- ir eingöngu milli ánægðra og fáfróðra ferðamanma og starfs manna ísraelsku ferðaskrif- stofunnar, setm byggir rekstuir sinn á því að haldia þeim glöð- um og fáfróðum. Að baki jóla ljósanma, minjaigripasölunnar, síðskeggjaðra patríarkanna pípuhatta rétttrúarprestanna og langferðabifreiða pílagrím anna (sem eru miklu færri í ár), felst sú staðreynd að borgin er hernumin. f rauninni hafa múrairnir milli litla Arababorgarhlutainis í Austur-Jerúsalem og ísra- elska borgarhlutans verið rifn ir niður. Andlega er borgin þó enn aðskilin í tvennt. Eins og áður ríkir þar hryggð oð ó- lund. Undanfarið ár hefur verið lítið um komur Araba til ísraelska borgarhlutans. Svo til alveg tók fyrir þær ferðir þegar arabiskir skæruliðar sprengdu sprengju á markaðs torgi ísraelsmanna í borginni fyrir nokkrum vikum. ísra- elsku hermennirnir, sem eru við gæzlu í arabiska borgar- hlutanum virðast eiga þar á- líka illa heima og sovézkir herraemn á götum Prag. Hver einasti Arabi, sem ég hef átt tal við nú í vikunni hefur lýst viðbjóði sínum á ástandinu. fsraelsk kona kom inn á hótel mitt eitt kvöld og sagði svo að arabiskt starfsfólk hótels- ins heyrði: „Það kemur að því að Arabar sætta sig við þetta. Við erum þrátt fyrir allt að sýna þeim kosti lýðræðis. Og ef þeir ekki gera það? Nú, þeir verða að sætta sig við okkur. Við unnum stríðið eins og þið munið“. Hún virtist lifa í einhverjum öðrum hug arheimi. Flestir fsraelsmenn sem ég hef hitt álíta siambúðina milli borgarhlutanna tveggja hafa versnað á undanförnum vik- um. Þeir viðurkenna að tauga spenna ríki í ísraelska borgar hlutanum. Hverjum augum sem yfirvöldin kunna að líta á ,,fedayeen“ (Palestínuskæru liða), þá óttast þær ísraelsku húsmæður, sem ég hef hitt, sprengjur þeirra. Jafnyel hjá opinberum að- ilum gætir hörkulegs raunsæ- is. Borgarstjórinn í Jerúsal- em, ísraelsmaðurinn Teddy Kolleek, er hugvitsamur og öt ull stjórnandi, og dregur dkk- ert úr ástandinu. Hann hefur gert sitt til að hreinsa til og fegra umhverfi gamia borg- arhlutans. Hiann hefur reynt að koma á nýjum þjóðfélags- umbótum, en hefur rekið sig á fyrirbrigði, sem þekkt eru við svipaðar aðstæður annans staðar í heiminum; hugsjónir andstöðunnar, sem segir: „Við kjósum frekar okkar eigin ringulreið, en skipulag ykk- ar“. Og að sjálfsögðu ríkti eng in ringulreið í arabiska borg- arhluta Jerúsalem fyrir styrj öldina. „Hvað sem við reynum að gera til úrbóta“, segir Koll- eck í fyrri viku, „verðum við alltaf hernámsveldið. Gagn- vart þeirri röksemdafærslu á ég engin svör“. Hann reynir ekki lengur að vinna hugi og hjörtu Araba með því að sitja og rabba við þá á kaffi- húsunum í Arabahverfinu. Þegar Moshe Dayan henshöfð- ingi, varnarmálaráðherra ísra els, kemur hingað, eins og hann gerði í fyrri viku, fylgja honum vopnaðir verðir. Fáir Arabar virðasit hafa hrifizt af — hvað þá fallið fyr ir — umbótum Kollecks, sem eru mjög víðtækar og fela í sér allt frá sjúkrahúsi fyrir arabiskar konur til nýrra næt urklúbba og baettrar símaþjón ustu, sem gerir Aröbum kleift að ná beinu símasambandi við Haifa. „Hver í fjáranum kær- ir sig um að hringja beint tií Haifa?“, hrópaði reið arabisk stúlka að mér á stúdentasam- komu hér. „Við viljum hringjia til Amman“. Gyðingastúlkur í mini-pilsum og hippí-klædd- ir unglingar heimsækja kaffi- húsin og næturklúbbana i Austur-Jerúsalem. En ekki til að blanda geði við íbúana. Gyðingar og Arabar skiptast þar í tvo hópa. „Við eigum' ekkert sameiginlegt", sagði ’arabiskur stúdent. Óánægja Araba er víðtæk. Þeir eru feikilega reiðir yfir hernáminu. Arabar hafa feng ið nóg af því að eiga stöðugt á hættu að vera stöðvaðir á götum úti til að láta leita á sér og svara spurningum landa mæravarða ísraels. Þeim finnst skömm að því að fá símareikninga sína, tilkynn- ingar um stöðumælabrot og opinberar tilkynningar á hje- bresku, sem þeir skilja ekki. Hóteleigendur og ferðaskrif stofumenn saka feirðafullitrúa ísraels um að beima ferða- mönnurn til Gyðinga. Og það virðist rétt að herbergjanýt- ing í hótelum Araba er aðeins um 50% í ár meðan hótel Gyð inga eru yfirfull. í ferðamála- skrifstofu ísraels var mér sagt að öll hótel Araba væru full- -sötin um jólin. En það er ekki rétt. Þar verða færri ferða- menn en áður. „Jafnvel árið í fyrra brást okkur“, sagði borgarstjórinn í Betlehem. Einn starfsmanna hans bætti við: „Við misstum 17 menn í júní-stríðinu. Allt óbreyttir borgarar. Það veirður erfitt fyrir borgarbúa að venjast her setunni“. Það hefur vakið sérstaka gremju Araba að ísraelsk yf- irvöld halda áfram að tafca jarðir þeirra eignamámi. Hafa ísraelsmenn lagt hald á stór svæði í gamla borgarhlutan- um. Fyrir norðan arabiska borgarhlntann hafa þeir lagt undir sig rúmlega 320 hektara lands og eignarnáminu verður ekki áfrýjað. Verið er að breyta jórdamska hersjúkra- húsinu í ísraelska lögreglu- stöð, og þótt furðulegt megi teljasit, verður þar — á ara- bisku landssvæði — aðalmið- stöð ísraelsku lögreglunniar. Kolleck borgarstjóri reynir ekki að réttlæta þessa ráð- stöfun. Hlutlausir diplómiatar og jafnvel ísraelsmenn sjálfir gagnrýna hana. „Þetta er al- gjör lögleyaa", sagði mikils- virtur Palestínubúi, „alveg ó- viðunandi". Svairið sem fsraelsmenn gefa hvað eftir annað er: „Við bárum sigur af hólmi, skiljið þið það ekki“. En þegar ég spurði borgarstjórann hvort hann gæti hugsað sér samein ingu Gyðinga og Araba í Jer- úsalem, svaraði Kolleck: „Ekki næstu, ja, ég veit ekki hve lengi. Við skulum segja ekki næstu 150 árin“. f þess- ari rólegu yfirlýsingu felist við urkenning á því hve ástandið er óleysanlegt. — Vinur Dubceks Framhald af blc. 1 bréfi til miðstjórnarinnar frá stærstu flokksdeildinni í Prag er lýst yfir stuðningi við Smrkov- sky og sagt, að Tékkar hafi aldrei sett það fyrir sig að Dub- cek sé Slóvaki Verkalýðsblaðið Prace hefur skýrt fná öðrum ályktunum til stuðnings Smrkovsky. HÓFSAMUR LEIÐTOGI Hinn nýi forsætisráðherra Sló- vakíu er hófsamur stjórnmála- maður. í ríkigstjóm hans sitja tveir aðstoðarforsætibráðherrar og 1® ráðherrar, að sögn Ceteka. Embætti innanríkiisráðherra gegnir Egid Pepiöh, 45 ára, sem í desember 1967 varaði flokksfor- ustuna við fyrirætlunum um her byltngu ti!l þess að haida stjóm Antonin Novotnys forseta við völd. Novotny var steypt eiinum mánuði síðar. Meðal annarra ráðherra eru Lusan Matej kennslumiálaráð- herra, Miroslav Valek menning- armálaráðherra, sem var áður formaður rithöfundasambands Slóvakíu, og Ladislav Dobo, ráð- herra án stjórnardeildar, sem er fulltrúi ungverska þjóðarbrots- ins í Slóvakíiu. Ungverjar eru 20% íbúa Slóvakíu. LITLAR BREYTINGAR Litlar breytingar voru gerðar á hinni nýju samibandsstjórn, sem Ludvik Svoboda forseti skpað í gær. Aðstoðarforsætis- ráðherrar voru skipaðir Peter Colotka, Samuel Faltan, Franti- sek Hamouz og Vaclav Vales. Jan Marko var skipaður utanrík- isráðherra, Martin Dzur varnar- miálaráðherra, Jan Pelnar innan- ríkisráðherra, Frantiiseik Vlsak skipulagsmálaráðherra og Bo- humil Sdharfa fjiármálaráðherra. Vaclav Pleskot, sem hefur ver- ið starfandi utanríkisráðherra, hefur verið skipaður ráðuneytis- stjóri í utanríkisriáðuneytinu. Fyrrverandi aðstoðarutanríkis- ráðherra, Jan Pudlak, hefur ver- ið skipaður forsetaritari. Margir ráðherranna áttu sæti í fráfar- andi stjórn Cerniks, en meðal þeirra sem ekki eiga sæti í henni lengur, eru Gustav Husak fyrrv. aðstoðarforsætisráðherra og Lu- bomir Strougal fyrrv. aðstoðar- fonsætisráðherra, sem Sam.uel Faltan leysir af hólmi. KVEÐJA FRÁ MOSKVU í dag sendi Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, Oldrich Cernik forsætisráðherra, nýárskveðju og kvaðst sannfærð ur um að sönn vinátta ríkti með þjóðum Sovétríkjanna og Tékkó- slóvakíu. Bætt sambúð þjóðanna yrði báðum fyrir beztu og einnig samheldni sósíalistalanda í bar- áttunni fyrir sigri sósíalismans. Cernik forsætisráðberra, lýisti yfir því er stjórn hans tók við störfum í dag, að halda yrði áfram baráttu fyrir nokkrum þeim umbótum, sem innrás Rússa kom í veg fyrir. Svoboda forseti lagði á það álherzlu er hann tók eiða af ráðherrunum, að aðkallandi væri að leysa þá pólitísku og efnabagslegu erfið- leika er við væri að etja. Með þessu átti hann við fyrirhugaðar efnahagsumbætur og sambúðina vð Rússa, að sögn fréttartara. ALLT MEÐ EIMSKIF Á næstunni ferma skip voi | i til Islands, sem hér segir; ANTWERPEN Skógafoss 13. janúar Reykjafoss 20. janúar Skógafoss 30. janúar Reykjafoss 10. febrúar. ROTTERDAM Reykjafoss 3. janúar Skógafoss 14. janúar Reykjafoss 21. janúar Skógafoss 31. janúar Dettiíoss 7. febrúar. Reykjafoss 12. febrúar. HAMBORG Lagarfoss 6. janúar * Skógafoss 16. janúar Hofsjökull 20. janúar. Reykjafoss 24. janúar Skógafoss 3. febrúar Dettifoss 10. febrúar. Reýkjafoss 15. febrúar. LONDON Mánafoss 3. janúar * Askja 13. janúar Mánafoss 24. janúar Askja 13. janúar. HULL Mánafoss 6. des. * Askja 15. janúar. Mánafoss 27. janúar Askja 3. febrúar * LEITH Mánafoss 8. janúar * Askja 17. janúar.- Mánafoss 29. janúar Askja 8. febrúar * GAUTABORG Tungufoss 7. janúar * Tungufoss 22. janúar Tungufoss 6. febrúar * KAUPMANNAHÖFN Gullfoss 4. janúar. Tungufoss 9. janúar * Gullfoss 18. janúar. Gullfoss 23. janúar Gullfoss 1. febrúar Tungufoss 7. febrúar * KRISTJANSAND Tungufoss 6. janúar * Tungufoss 20. janúar Tungufoss 4. febrúar * GDYNIA Fjallfoss 3. janúar. Fjallfoss 4. fe'brúar. KOTKA Fjallfoss 7. janúar. Fjallfos's 31. janúar. VENTSPILS Fjallfoss 2. febrúar. * Skipið losar í Reykja vík, ísafirði, Akureyri og Húsavík. Skip, sem ekki eru merkl með stjörnu. losa aðeins í! Rvík. ALLT MEÐ EIMSKIF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.