Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 11

Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1969. 11 Áslaug Jðnsdóttir—Minningarorð FRÚ Áslaug Jónsdóttir er d'áin og verður borin til moldar í dag. Svipleg og sár hafa umskiptin orðið nánustu ásbvinum hennar. Fjölmennur vinahópur harmar lát hennar og mun lengi minnast hennar með söknuði. Kunnugir vissu að frú Áslaug var mjög þrotin að heilsu eftir erfiðan hjartasjúkdóm og lang- vinnar þjáningar, sem hanm olli. En bún virtist vera vel á bata- vegi og því vonuðu allir, að með þeirri nærgætnu umhyggju, sem hún naut hjá eiginmanni sínum og börnum, mætti henni auðnast lengra lif. En dauðinn lét ekki tefja sig. Frú Áslaug lézt óvænt á aðfangadag jóla, 64 ára að aldri. Áslaug Jónsdóttir fæddist í Hjarðarholti í Borgarfirði, 26. maí 1'904. Faðir hennar var Jón Tómasson, hreppstjóri og bóndi í Hj arðarholti, sveitarhöfðingi og mikill umbótamaður á sinni tíð. Móðir Áslaugar var Sigríð- ur Ásgeirsdóttir, Finnbogasonar bónda frá Lundum í Stafholts- tungum. Að frú Áslaugu standa sterkar ættir og traustar, þótt eigi verði þær raktar frekar hér. Áslaug stundaði nám í Kvenna- skólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi, en síðar framlhalds- námi í Húsimæðraskóla í Sorö í Danmörku. Árið 1935 giftist hún Ingvari Vilhjálmissyni skipstjóra, og lifir hann konu sína. Barna þeirra get ég síðar. Frú Áslaug sameinaði á frábær an hátt ytra látleysi og persónu- lega reisn. Hún var kona glæisi- leg sýnum, en henni var fjarri skapi að berast mikið á. Htún var að eðlisfari glaðlynd og rólynd, kunni vel að meta græzklulausa glaðværð, en fann einnig til sam- úðar með þeim, sem fara halloka í lífsbaráttunni eða eiga bágt af öðrum ástæðum. Ég leit snöggv- ast inn til þeirra hjóna á Þor- láksmessu, daginn áður en frú Áslaug dó. Hún hafði þá miklar álhyggjur út af vinkomu sinni, sem hún hafði heimsótt í sjúkra- hús þá uim morguninn, sagði, að hún hefði þjóðst lengi og myndi nú eiga skammt eftir. Hún reynd ist sannspá um það, því að sú kona lézt á jóladagsmorgunn. Á sín eigin veikindi minntist frú Áslaug ekki, en brá á gaman, þegar ég spurði um líðan henn- ar. Ekftir sólarhring var hún lát- in. Þannig var hún. Hennd var tamara að bera umhyggju fyrir öðrum en sjálfri sér. f einkalífi sínu var frú Áslaug mikil gæfu'kona. Hún naut ham- ingju og kunni að veita hana ástvinum sínum. Hiúin lifði í ást- ríku hjónabandi, dáðist að stór- hug og atorku eiginmanns síns og sá börn þeirra vaxa upp og þroskast. Hún var listfeng að eðlisfari og lagði í það metnað 1 sinn að búa eiginmanni sínum og börnum hlýlegt heimili og aðlað- andi. Einnig eiginmaður hennar er gæddur næmu eðliislægu feg- urðarskyni, svo að þau urðu sam- hent í því sem öðru að byggja upp heimili sitt af hagsýni og smekkvísi; það er prýtt völdum Iistaverkum og öðrum hlutum til augnayndis og gleði. Þó að ég kalli frú Áslaugu gæfukonu, veit ég vel, að sorgin sneiddi ekki fram hjá heimili hennar. Þau hjónin misstu ung- an son sinn, hið mannrvænlegasta barn, sem þau hörmuðu mjög. Á ytra borði bar frú Áslaug þann harm með ró og þolgæði, þó að söknuður bærðist stöðugt í við- kvæmu móðurhjarta. Þannig hefir birtu og akugg- um brugðið á víxl yfir líf frú Áslaugar eins og margra ann- . arra. Eiginmaður hennar er atór- huga framkvæmdamaður og !■ stendur í fremstu röð- þeirra ' imanna, sem á seinuistu áratug- < um hafa unnið að því að breyta '1 ■ a ðal a tvinnu vegi þj óðarinnar, V fidkvelðum og fiskvinnalu, í hag- kvæmara honf. Þó að otft hatfi vel gengið, hefir hann ósjaldan fenig- ið að takast á við mikla örðug- leika eins og aðrir þeir, sem eiga atvinnurekstur sinn undir gæft- um, atfla og ótryggum markaði. Slíku fylgja áhyggjur. Frú Ás- laug leit á það sem sitt sérstaka hlutverk að búa manni sínum rólegt og ánægjulegt heimilislíf, þar sem hann ætti athivarf og gæti notið hvíldar frá önnum dagsins og áhyggjum. Miðdepill í heimilislífi þeirra voru börnin, sem þau bæði unnu mjög og létu sér annt um að fengju menntun í samræmi við hneigðir sínar og starfsfyrirætl- anir. Nú eru börnin öll tfull- vaxta, Vilhjálmur Ingvarsson forstjóri, Jón Ingvarsson lög- fræðingur og Sigríður Ingvars- dóttir flugfreyja. Bömin létu sér mjög annt um móður sína og reyndu á allan hátt að létta henni vanlíðan í veikindum hennar. Nú ■syrgja þau ástríka móður. O'g fjölmennur hópur frænda og vina mun einnig sakna frá Ás- laugar. Andspænis dauðanum verða orð einhvern veginn innantóm, eins og það væri tilgangsla'Ust að hafa talað þau. Og vissulega nær skynsemi vor ekki yfir marka- skil lífs og dauða, það gerir að- eins vonin og sú vissa, sem af hennar kann að tendrast. En það má vera syrgjendum nokkur huggun, að látinn vinur hverfur oss ekki að fullu, meðan hann lifir sem hugljúf minning í vit- und vorri. Þannig mun Áslaug Jónsdóttir lifa í huga fjölmargra vina sinna, þótt hún hverfi nú sjónum vorum. í þeim skilningi tjái ég ást- vinum hennar innilega samúð mína og bið þeim blessunar. Matthías Jónasson. Ása fræn'ka er látin. Eins og heilsu hennar var komið, mátti við þessari fregn búast, en samt sem áður ól ég þá von í brjósti, að hún myndi ná sér nokkuð og geta lifað enn um skeið við bærilega líðan. Það verða margir, sem sakna hennar og þeir mest, sem stóðu henni næst og þekktu hana bezt. Með henni er horfin yndisleg kona, sem skilur etftir dýrmœtar minningar í hjörtum allra, sem henni kynntust, sakir mannkosta sinna. Hún var falleg og höfðingleg í sjón og ekki sáður í raun. Mér þótti óumræðilega vænt um Ásu frænku, ekki aðeins vegna þess, að hún var móðursystir mín, held ur af því, að hún var sú sann- asta, bezta og skilnimgsríkasta vinkona, sem ég hef eignazt. Innsta eðli hennar var mann- gæzka, gjatfmildi og fögur fórnar l'und. Hún hjálpaði ávaldt þeim, sem minnimáttar voru og hugs- aði minna um eigin heilfeu en æskilegt hefði verið. Umhyggjusemi Ásu frænku í heimilinu, sem hún helgaði líf sitt og kratfta, var takmarka- laus. Hún var framúrSkarandi barn góð, og það var ætíð mínum börn um hið mesta tilhlökkunarefni að fara í heimsókn til hennar. Hún var mikill og tryggur vin- ur vina sinna. Þeir voru líka au- fúsugestir á hinu glæsilega heim- ili þeirra þeirra Ingvars, hvenær sem var og hvernig sem á stóð, en þau hjónin voru bæði gest- risnir höfðingjar heim að sækja. Þegar Ása frænka er kvödd Hiimztu kveðju, hrannast upp minn ingarnar frá löngu liðnum árum. Hugurinn reikar upp í Borgar- fjörð, að bernskuheimi'linu henn ar, Hjarðarholti, sem alltaf átti mikil ítök í henni, á meðan amma og Valdi frændi bjuggu þar. Þar var oft margt um mann inn í hinu glaðværa og góða heim ili, og margra ueaðslegra sumra minnist ég þaðan sem smátelpa með þakklátum huga. Þar var Ása frænka í essinu sínu, hvort sem hún var við erilsöm inni- istörf og gestamóttökur, við hey skap úti á túni eða í tjaldimu úti á engjum, þar sem vinnugleðin var allsráðandi. Þá var himneski að lifa. Ég minnist eienig með þakk læti morgunstundanna ljúfu þagar ég rak inn nefið á Haga- mel 4, er ég átti leið um Vest urbæinn. Við höfðum alltaí svo mikið að segja hvor annarri „Æi, farðu ekki strax, það ei svo margt, sem ég þarf að tala við þig“, sagði hún við mig um leið og ég fór frá henni í síðasta sinn. Allir fundir með henni urðu skemmtilegir. Skopskyn hennar var mikið og kímnigáfu átti hún í ríkum mæli. Hún var vel lesin, áhugasöm um menn og málefni og hafði sínar eigin sjálf stæðu skoðanir, sem umfram allt stöfuðu af andlegum styrkleika hennar. Með þessum fátaðklegu orðum, kveð ég Ásu frænku mína og þakka af alhuig allar hugljúfu minningarnar, allar samveru- stundirnar, tryggð hennar og hlýja vináttu við mig og fjöl- skyldu mína þar tiíl yfir lauk. Blessuð sé minning hennar. Kristín Guðmundsdóttir. FRÚ Áslaug Jónsdóttir, kona Ingvars Vilhjálmseonar útgerðar manns, varð bráðkvödd á heim- ili þeirra á aðfangadag jóla, 64 ára gömuil. Hún hafði veikzt alvarlega á síðastliðnu sumri, en virtist á góðum batavegi síðuistu mánuð- ina og bar fráfall hennar óvænt að, í byrjun sjálfrar jólahátíðar- innar. Höfðu þau Ingvar verið giift í rúmlega 33 ár, er hún andaðist. Frú Áslaug var myndarkona i sjón og raun. Hún var heimilis- kær og gestrisin, enda heimili þeirra Ingvars meðal hinna glæisi legustu í landinu. Hlún var hjálp- söm við þá, er minnimáttar voru og vildi hvers manns böl bæta og færa allt til hins betri vegar. Frú Áslaug var fædd 2i6. maí 1994. Hún var í báðar ættir kom- in af nafnkunniu sæmdarfólki. Var hún yngst af börnuim hjón- anna Jóns hreppstjóra Tómas- sonar í Hjarðarholti í Stafiholts- tungum og Sigríðar Ásgeinsdótt- ur, sem ættuð var frá Lundum í sömu sveit. Jón var somur Tóm- asar bónda Jónssonar á Skarði í Lundarreykj adal. Eitt systkina Jóns var Guðríður, fyrri kona Jón asar bónda Jónssonar í Sól- heimatungu, en meðal barna þeirra var Ragnhildur, kona Jóns kaupmannis Björnssonar frá Svarfihóli. Sigríður, móðir Áslaugar, var elzt þriggja dætra Ásgeirs Finn- bogasonar af seinna hjónabandi hans. Ásgeir bjó lengi á Lamba- stöðum á Seltjarnarnesi, en síð- ar á Lundum. Hann var sjómað- úr ágætur, búhöldur góður og bókbindari og vinur Jóns forseta Sigurðssonar. Fyrri kona Ásgeirs var Sigríður Þorváldlsidóttir prests og skálds Böðvarssonar i: Holti undir Eyjafjöllum. Meðal barna þeirra var Kriistín, kona Lárusar sýslumanns Blöndals á Kornsá. Seinni kona Ásgeirs var Ragnhildur Ólafsdóttir frá Bakka koti (Hvítárbakka), ekkja Ólafs hreppstjóra Ólafissonar á Lund- um. Alsystur Sigríðar í Hjarðar- holti voru: Oddný, sem giftist Hinriki Jónssyni frá Kirkjúbóli í Bjamardal í önundarfirði og Guðrún, er giftisrt Finni Jóns- syni bóksala í Winnipeg, ættuð- um frá Melum í Hrútafirði. Voru þær báðar búsettar vestanhafs. Sammæðra Sigríði í Hjarðar- holti voru Ragnhildur Ólatfsdótt- ir í Engey, Ólafur hreppstjóri í Lindarbæ í Holtum og Guð- mundur oddviti á Lundum. Þeim Jóni og Sigríði í Hjarðar- holti var átta barna auðið, og var frú Áslaug þeirra yngst, eins og fyrr segir. Systkini hennar voru: Ásgeir bóndi á Haugum, seinast á Akranesi. Ásgeir var frægur hestamaður. Hann var kvæntur Mörtu Oddsdóttur frá Eskiholti. Ásgeir lézt 13. febr. 1963, 77 ára að aldri. Kristján í Hjarðarholti, andaðiist þar uppkominn. Ragn- hildur, gift Guðmundi Kr. Guð- mundssyni, fyrfum skrifistofu- stjóra hjá Olíuverzlun íslands og Olíufélaginu. Þorvaldur Tómas, fyrrurn fulltrúi við verzlun Jón- anna frá Bæ og Svarfhóili í Borg- arnesi og síðar hreppstjóri í Hjarðarholti, forustumaður Borg firðinga í margvíslegum félags- málum. Hann andaðist 31. júlí sl., 76 ára gamall. Þorvaldur var kvæntur Laufeyju Kristjánsdótt- ur Blöndal, frá Gilsstöðum í |J|. Vatnsdal. Elísabet, gift Núma Sigurðssyni, birgðaverði hjá Loft leiðum. Tvær dætur þeirra Jóns og Sigríðar, Ragnhildur og Vig- dís, létust í æsku. Frú Áslaug var gæfukona. Hún lifði vor ævi sinnar í skjóli góðra foreldra og systkina í Hjarðar- holti í Stafiholtstungum á mynd- arheimili í einni bflómlegustu byggð landsins. Hún tók að erfðum í ríkum mæli atgervi ættstofna sinna. Hinn 8. júní 1935 giftist hún Ingvari Vilhjálmssyni, togara- skipstjóra, sem gerðist út- gerðarmaður og einn af mestu framkvæmdamönnum landsins í útgerð og fiskiðnaði, svo sem kunnugt er. Þau hjón eignuðust fjögur mannvænleg böm: Jón, er fórst af slysförum fjög- urra ára gamall, Vilhjálm framkvæmdaetjóra, kvænban Önnu Ottósdóbtur, umboðs- manns Magnússonar á Seyðis- firði, Jón lögfræðing, kvæntan Önnu Sigtryggsdóttur, Klemenz- sonar bankastjóra, Sigríði, trú- lofuð Jóni E. Ragnarssyni, lög- fræðingi, fulltrúa borgarstjórans í Reykjavík. Mikil störf hvíldu á húsfreyj- unni á stóru og gestkvæmu heim- ili og þangað var gott að koma fyrir skylda og óskyflda. Eiga vin ir og kunnngjar þeirra hjóna margar ánægjulegar minningar frá komum sínum á heimili þeirra og frá viðkynningu við þau fyrr og síðar. Þannig leið æviskeið sumars og haustsins í miklum önnum og starfi og ríkulegri uppskeru eins og til hafði verið sáð. Þegar veturinn kom með sínu kuldagjóstri og erfiðleikum, var uppskeran komin í garð og lan- ir og börnin uppkomin. Heilsa og afikoma er jafnan meira og minna háð ytri aðstæðum í lífi manna, þar skiptast á skin og skúrir. Frú Áslaug hafði veikzt alvar- lega á sl. sumri, en virtist á bata vegi. Á þriðja degi eftir vetrar- sólstöður hvarf hún til æðri heima, einmitt á þeim tíma, er jólahátíðin var að hefjast. Var það dapurlegur atburður fyrir ættingja hennar og vinL Jólin eru ævaforn hátíð ljóss og friðar meðal mannanna. Þá er daginn aftur farið að lengja og nýjar vonir bærast og glæðast í brjóstum jafnt ungra sem ald- inna jarðarbarna. Samfylgd ástkærra vina er það bezta, sem við eigum á jörðu hér, en hinzta skilnaðarstundin við góðan vin, það þyngsta og sár- asta. Vonin um endurfundina dregur úr söknuðinum. Jólin og hækkandi sól eru vorboðar, sem draga hjúp sinn yfir söknuð og vetrarmyrkur og boða birtu og yl: að senn muni lýsa af betri og bjartari tímum. Öll él birtir um síðir, en hugljúfar minning- ar um hina látnu húsfreyju munu endast vandamönnum og vinum til æviloka. Sveinn Benediktsson. SVO vel man ég hana þar sem ég sá hana fynst, litla fagur- eygða stúlku í Hjarðarholts- kirkju í Stafholtstungum, hún stóð þar á gólfinu falleg og feim- in þegar presturinn kom til að spyrja okkur eldri krakkana, sem áttum að fermast um vorið, hún varð mér þá strax ógieyman- leg og þessa mynd hennar hef ég geymt æ síðan, seinna átti ég eftir að kynnast henni betur og skynja hvaðan hýra brosið í augum hennar kom — henni hafði verið gefið svo gott og kær- leiksríkt hjartaþel, og það var hennar stóra vöggugjöf. Áslaug Jómsdóttir var fædd í Hjarðarholti 26. maí 1904 og þar ólst hún upp á fyrirmyndar- heimili foreldra sinna og var yngsta barn þeirra, af sex sem upp komust, hún var af merku og góðu fólki komin í báðar ætt- ir. Hún var dóttir Jóns Tómas- sonar, hreppstjóra og bónda í Hjarðarholti, en hann var sonur Tómasar bónda á Skarði í Lund- arreykjadal og Vigdísar, fyrstu konu hans, alsystur Jóns voru þær: Guðríður, fyrri kona Jón- asar í Sólheimatungu og Guðrún, kona Ólafs á Fellsenda í Dala- sýslu, en hálfisiystkini hans voru Vigdís, Jóhann og Gunntfríður, sem giftist Ólafi Waage, en Bene dikt sonur þeirra var ungur tek- inn í fóstur að Hjarðarholti og var þar til tvítugs aldurs, sem eitt af systkinunum. Yngsti hálf- bróðir Jóns var Þorsteinn á Skarði, greindur sómamaður, kvæntur Árnýju Árnadóttur frá Þimgnesi, en hann féll frá fyrir miðjan aldur, var einkar kært milli þeirra bræðra. Móðir Ás- laugar var Sigriður Ásgeirsdóttir Finnbogasonar og seinni konu hans, Ragn'hildar Ólafsdóttur á Lundum og var hann seinni mað- ur hennar, en með fyrri manni sínum átti Ragnhildur Guðmund bónda á Lundum, Ólaf í Lindar- bæ og Ragnhildi í Emgey konu Péturs Kristinssonar, bónda þar, hamn var fyrri maður hennar, en seinni maðurinn var Bjarni Magnússon í Engey. Frá Ragnhildi í Engey er komið margt þjóðkunnra manna og kvenna. Alsyistur Sigríðar í Hjarðar- holti voru Guðrún og Oddný, sem báðar fluttust til Ameríiku, en hálfsystkini hennar af fyrra hjónabandi Ásgeirs föður hennar voru Kristín, kona Lárusar Blöndal sýsluimanns í Húnavatns- sýslu, er frá þeim mikill og merk ur ættleggur kominn, séra Þor- valdur á Hjaltabakka og Arndís, en nennar maður var Þonsfeinn Egilson í Hafnarfirði. Foreldrar Sigríðar, þau Ásgeir og Ragn- hildur, bjuggu allan sinn búskap meðan hann lifði, á Lundum, þar fæddist hún og ólst upp, þar til hún um tvítugsaldur giftist Jóni Tómassyni, bónda í Hjarð- abholti, þar bjuggu þau saman miklu fyrirmyndarbúL Börn þeirra sex, sem upp komust, öli alsystkini Áslaugar voru: Áisgeir söðlasmiður og póstur, var giftur Mörtu Oddsdóttur frá EskiholtL er dáinn fyrir fáum árum, Krist- ján, dó ungur efnismaður, Þor- valdur, var yngstur bræðranna, hann tók við óðali föður síns að Hjarðarholti, bjó þar með konu sinni, Laufeyju Kristjánsdóttur Blöndal og var þar tÖ. heimiliis til dánardags á síðastliðnu sumrL Systurnar tvær, sem einar eftir lifa af systkinum hennar eru Ragnhildur, kona Guðmundar Kr. Guðmundssonar fyrrv. skrif- stofustjóra og Ragnheiður Elísa- bet, gift Núma Sigurðssyni, sijó- manni. Áslaug var frændrækin og trygglynd þeim sem hún tengdist Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.