Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 22

Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 22
22 MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1969. Landslið í handknattleik valið gegn pressuliði Nýliðar í landsliðinu en helmingur pressuliðsmanna reyndir landsliðsmenn A MORGUN fer fram í ILaugar- dalshöllinni leikur milli lands- Jiðs og liðs er íþróttafréttamenn hafa valið í handknattleik. Leik- urínn hefst kl. 4, en á undan fer fram leikur milli tveggja liða er Unglingalandsliðsnefnd HSÍ hef- ur valið. Liðin sem leika í aðal- leiknum hafa verið valin og eru jiannig: LANDSLIÐIÐ Markverðir: Emil Karlsson KR og Birgir FinnbogaSon FH. Leikmenn: Sigurður Einarsson Fram, Örn Hallsteinsson FH, Geir Hal'lsteinisson FH, Aiuðunn Óskarsson FH, Einar Magnússon Víking, Jón Hjaltalín Víking, Ólafur Jónsson Val, Bjarni Jónsson Val, Ágúst Svavarsson ÍR, Ingólfur Óskarsson Fram, og er hann fyrirliði. Leikiö 21. og 24. júlí | Og leitað eftir I fleirri landsleikjum J AKVEÐIÐ er nú að lands- leikir j>eir sem ísl. knatt- spymumenn leika erlendis í sumar verði 21. júlí gegn Norðmönnum í Oslo og 24. júlí gegn Finnum í Helsing- fors. Hefur Björgvin Schram fyrrv. form. KSÍ annast áfram bréfaskriftir og samninga um þessa leiki og samningarnir voru staðfestir í símtali við núverandi formann í gær- morgun. Albert Guðmundsson sagð’ að einnig stæðu yfir tilraunir að fá leiki hér heima og/ hefðj þegar verið leitað til Tékka, auk þess sem fyrrv. stjóm hefði fengið tilboð um að Bermudamenn kæmu hér við á Ieið til Evrópu. Þá sagði Albert að hann hefði mikinn hug á að leita tii Skota um íandsleik áhuga- manna og myndi gera tilraun til að fá slíkan leik með vor- inu ytra, ef samningar við Skota tækjust. En þessi mál eru öll enn óákveðin. „PRESSULIÐIÐ" Markverðir: Hjalti Einarsson FH og Pétur Jóakimsson Haukum. Leikmenn: Sigurður Jóakiimssan Haukum, Sigurbergur Sigsteinss. Fram, Sigurður Óskarstóon KR, Stefán Jónsson Haukum, Sturla Haraldsson Haukum, Þórður Sigurðsson Haukum, Þórarinn Ólafsson Víking, Þórarinn Tyrfingsson ÍR, Halldór Bragason Þróbti, Guranlaugur Hjálmarss. Fram, og er hann fyrirliðL Stjórnandi landsliðsino verður Hilmar Björnsson þjálfari, en ut- an vallar stjórnar Pétur Bjarna- son pressuliðinu. Þeir Ólafur Ólatfsson Haukum og Einar Sigurðsson FH voru valdir til að leika í preseuliðinu, en geta ekki leikið vegna veik- inda. Eins og sjá má reynir lands- liðanefndin nú nok'kra nýja menn og óreynda í stórleikjum m.a. vinstri handar skyttuna úr ÍR. Breiddin er svo mikil í handknattleiknum, að í pressuliðinu er helmingur leik manna reyndir landsliðsmenn. Þar hefur sýnilega verið lögð meiri áherzla á þéttta vöm og ef allt fer að líkum, verð- ur hér um harða og jafna har- áttu að ræða — en oftar en ekki hafa pressuliðin farið með sigur af hólmi siðarí árin. rang- staða í auka- spyrnum ÞAÐ mun ákveðið hjá KSÍ að hér verði gerðar tilraunir með þá breytingu á rangstöðureglu í knattspyrnu, að rangstöðureglan gildi ekki þá er aukaspyrnur eru framkvæmdar. Aliþjóðasamband knattspyrnu- manna bað KSf að láta s'líka leiki fana fram til reynslu og skila síðan áliti til FIFA. Er talið víst að þessi tilraun verði gerð í einhverjum af æfingaleikum landsliðanna og tækninefnd KSÍ síðan gefa s'kýrslu til alþjóða- sambandsins. Tiiraun þessi er gerð í mörgum löndum vegna til- mæla um breytingu á knatt- spyrnulögunum þetta varðandi. Hvort svo verður nú fyrir stór átökin við lið heimsmeistar- anna um-aðra helgi skal ósagt látið, en sjón er sögu ríkari og það ætti enginn að verða svik inn af því að fylgjast með árangri handknattleiksmann- anna að undanförnu í þessum leik. ÍTALIR UNNU ÍTALSKA knattspyrnulandsliðið er nú á ferð í Mexikó. Liðið vann landslið Mexikana á Aztek- leikvanginum 3—2 í gær. Heima- liðið hafði forystu í leikhléi 1—0. Gunnlaugur Hjálmarsson er fyrirliði pressuliösins. 30 æfingaleikir hjá landsliöinu 2. þáttur œfingaáœtlunar KSÍ ákveðin á hverjum sunnudegi í janúar og febrúar BLAÐAMONNUM var boðið í gær að sitja hluta af stjórnar- fundi KSÍ og þar var m.a. sam- þykktur 2. hluti æfingaáætlunar landsliðanna og ýmsar aðrar ákvarðanir teknar og lýst því sem á döfinni er hjá stjórn KSÍ. Næsti hluti áætlunar um æfinga- leiki nær yfir janúar og febrúar og koma þá inn í æfingamar leikir við utanbæjarliðin, Akur- nesinga, Akureyringa og Yest- Bikarkeppni milli ís- lenzku Evrópuliðanna FRAM er komin hugmynd um að stofna hér árlega til keppni milli þeirra tveggja íslenzku liða sem rétt eiga til þátttöku í keppn- inni um Evrópubikaranna tvo, meistaraliða og bikarmeistara. Sagði Albert Guðmundsson svo frá í gær að stungið hefði verið upp á að þessi lið léku árlega sín á milli 4—6 leiki (2—3 á hvorum heimavelli) og kepptu um ákveðinn bikar. Ágóði af þessum leikum færi í sameigin'legan sjóð viðkomandi félaga og hann kæmi ekki til skipta fyrr en séð væri, hvernig liðin bæði færu út úr þátttöku sinni í Evrópukeppninni fjár- hagslega. Kvaðst Albert hafa rætt hug- myndina við fulltrúa beggja að- ila .sem í sumar eiga þennan rétt, KR-inga og Vestmanney- inga og hefðu undirtektir í byrj- un verið góðar. Albert sagði að afráðið hefði verið að landsliðið ætti æfinga- leik við Eyjamenn þá er selzt hefðu miðarnir „Styðjum lands- Sænska unglingaliðið hingað ? UNGLINGANEFND KSl hefur lagt til við stjórn KSÍ að hingað verðj fengið í sumar unglinga- landslið Svía til að skapa ís- lenzka unglingaliðinu verðugt verkefni. Stjórn KSÍ hefur þetta mál til meðferðar og mun athuga það og væntanlega gera viðeig- andi ráðstafanir ef hún telur til- löguna framkvæmanlega kostn- aðar vegna. Eins og menn muna léku fs- lendingar og Svíar til úrsiita í norræna unglingamótinu hér sl. sumar. Svíar unnu það eftir framlengdan leik á vítaspyrnu- keppni. Þótti frammistaða ungl- ingaliðsins einn af fáum sólar- geislum í knattspyrnulífinu í fyrra. Nú hefur norræna unglinga- keppnin verið lögð niður og væri það því mjög tii eflingar ungl- ingastarfinu ef þessi hugmynd gæti orðið að veruleika. liðið“ fyrir 50 þús. kr. í Eyjum. Nú væri því marki senn náð. Auk þess mun verða seldur að- gangseyri að leik Eyjamanna og landsliðsins á sunnudaginn og fyrir það sem þá kæmi inn kæmu Eyjamenn til Reykjavíkur og léku við meistaralið KR og byðu KR-ingum aftur heim. Með því fengjust dýrmætar æfingar fyrir Evrópuliðin íslenzku. mannaeyinga svo og 2. deildar- liðin. Lokaleikur í áætluninni er leikir landsliðanna tveggja og velja þá íþróttafrétttamenn Iandsliðið í stað einvaldsins, Haí- steins Guðmundssonar. Sá leik- ur verður 23 febrúar. Albert formaður og Haf- steinn, einvaldur um val í Iandslið, sögðu, að það væri takmark KSf að landsliðið hefði fengið um 30 æfinga- leiki, áður en liðið mætir Norðmönnum og Dönum í júlí. Hefur landslið i knatt- spymu aldrei fengið slíkan undirbúning. Æfingaáætlunin er þannig hjá hjá báðum liðum. (Leikið er hvern sunnudag og aMtaf kL 2 síðdegis): 5. janúar: Landslið — Eyjametnn Unglingalið — Víkingur 12. janúar: Lamdislið — Akranes Unglingalið — Breiðablik 19. janúar: Landslið — Fram Unglingalið — Keffaivik Framhald á bls. 16 Landsliö og unglinga- lið fyrir sunnudaginn EINVALDUR KSÍ um val lands- liðs, Hafsteinn Guðmundsson hefur valið æfingalið það er á sunnudaginn á að leika við Vest- mannaeyinga í Eyjum. Er það þannig skipað. Markvörður: Sigurður Dagsson Val. Bakverðir: Jó'hannes Atlason Fram og Þorsteinn Friðþjófsson Val. Framverðir: Hallór Björnsson KR, Guðni Kjartansson ÍBK Ár. sæll Kjartansson KR. Framherjar: Hreinn Elliðason, Fram, Þórólfur Beck KR, Her- mann Gunnarsson Val, Eyleifur Hafsteinsson KR og Heígi Núma- son Fram. Varamenn eru Þorbergur Atla- son Fram, Sigurður Albertsson ÍBK, Ingvar Elísson Val og Reyn ir Jónsson Val. Þá hefur unglingalandslið gegn liði Víkings verið valið þannig: Markvöður: Hörður Helgason Fram. Bakverðir: Björn Árnason KR og Torfi Magnússon Val. Framverðir: Sigurður Ólafsson Val, Rúnar Vilhjálmsson Fram, Marteinn Geirsson Fram. Framherjar: Ágúst Guðmunds- son Fram, Jón Pétursson Fram, Einar Gunnarsson ÍBK, Snorri Hauksson Fram og Kjartan Kjartansson Þrótti. Varamenn eru: Ómar Guð- mundsson Breiðablik Þór Hreið- arsson Breiðablik, Pétur Carls- son Val og Helgi Ragnarsson FH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.