Morgunblaðið - 03.01.1969, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1969.
23
Aðaláfangi Breiðhoitsfram-
kvæmdanna boiinn út —
— Útboðið vœntanlega tilbúið í janúar
eða febrúar — Byggðar verða 850
íbúðir og þeim lokið 1972
FYRSTI fundur borgarstjómar
Reykjavíkur á þessu ári var
haldinn í gær. óskaði Auður
Auðuns forseti borgarstjórnar
mönnum gleðilegs árs og þakkaði
samvinnuna á liðnu ári. Nokkrar
nmræðnr urðu í borgarstjóminni
um byggingarframkvæmdir borg
ainnar í Breiðholti, og kom fram,
að framkvæmdirnar munu drag-
ast fram til ársloka 1972. Af-
bendingartími þeirra íbúða, sem
Beykjavikurborg fær mun þó
ekki dragast nema um eitt ár.
Akveðið er að bjóða út þær
framkvæmdir, sem ráðist verður
1 næst, þ. e. byggingu 850 íbúða.
Umræðurnar urðu vegna fyrir.
spurnar Kristjáns Benediktsson-
ar (F) um framkvæmdirnar, en
■borgarráð hefur nýlega fjallað
um þær. Ræddi Kristjánm.a. um,
að nú hefði aftur verið horfið
að útboðum, en upphaflega hefði
Byggingarnefndin ekki viljað út-
boð.
- VEÐURSPA
Framhald af bls. 24
koma. Tunglin boða gott veð-
urfar.
Það þarf enga veðurathug-
unarstöð til þess að sjá þetta,
gamla fólkið fór eftir þessu
og það dugði“.
í Hvítársíðu í Borgarfirði á
bænum Hallkelsstöðum býr
gömul kona, draumspök, Hall.
dóra Sigurðardóttir 92 ára
gömul. Hana dreymdi draum
fyrir veðrinu í vetur og hljóð-
aði hann á þessa leið: „Hún
va-r að vinna ull, mikið af ull
og öll ullin var mórauð, nema
dálítill hvítur ullarlagður.
Svo fannst henni að hún færi
að vefa úr þessu voð, vaðmál,
og varð voðin hér um bil öll
mórauð, nema fyrst í henni
þar sem var dálítil hvít rönd“.
Það er falleg draumlíking,
mórauð ull með hvítum rák-
um og landið okkar hvítrákað
að Iitlum hluta.
Gunnar Marel Jónsson 78
ára gamall skipasmiður í Vest
mannaeyjum og fyrrum skip-
stjóri sagði að það væri úr
móð að spá um veðrið með
þeim skynfærum sem hefðu
orðið að duga áður fyrr. Nú
væri bara hlustað á útvarpið
eða faorft á kortið í sjónvarp-
inu, en alltaf þætti sér nú
tryggast að horfa á tunglin og
hnusa út í loftið. „Gamla
fólkið spáði fyrir verðinu með
því að fylgjast með gangi
tungla", sagði Gunnar, en
maður fer svo lítið út nú orð-
ið. Nú, bændurnir mörkuðu
veðrið eftir því hvernig garn-
irnar röktust úr kindunum í
sláturtíðinni. Það fór m. a.
eftir því hvernig gorið lá í
görnunum, stundum voru auð
ir blettir í görnunum og þeir
voru fyrir barðindaköflum á
komandi vetri. Já, svo er nú
það.
Ég spái vorkuldum í vor,
eftir þennan milda vetur, sem
kann að haldast um sinn.
Gömlu pápisku dómarnir
eru að leggjast niður, menn
leggja sig ekki eftir veðrinu
eins og þeir gerðu hér áður
en þá gat yfirleitt hver og
einn sagt til um veðrið, ef
hann lagði sig eftir því og
lærði lögmálin, sem mátti
byggja á. Oftast voru það
skipstjórarnir sem lögðu sig
mest fram.
Það er nú svo. Þetta getur
haldið svona áfram eitthvað,
en ég er hræddur við vorið,
það getur orðið kalt, án snjóa.
Ég er hræddur við apríl og
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
skýrði frá áætlunum Bygging-
arnefndar Breiðholtsframkvæmd
anna, sem eins og fyrr segir
voru til umræðu í borgarráði.
Samkvæmt þeirri greinargerð er
nú að mestu lokið fyrsta bygg-
ingaráfanganum. Voru byggðar
335 íbúðir, þ. e. 23 íbúðir í ein-
býlishúsum úr tim'bri og 312
í'búðir í fjölbýlishúsum á neðra
svæðinu í Breiðholti.
Unnið hefur verið í tvö ár að
undirbúingi aðalbyggingaráfang-
ans, byggingu 850 íbúða í fjöl-
býlishúsum, sem verða í efra
Breiðholti.
Þessar 850 íbúðir verða í 18
fjölbýlishúsum, samtals 100 stiga
hús, og eru húsin öll fjórar hæð-
ir og kjallaralaus. Húsin verða
af tveimur gerðum, annars vegar
þar sem sjö fjögurra herbergja
ibúðir eru i hverju stigahúsi og
hins vegar þar sem fjórar
tveggja herbergja og sex þriggja
herbergja íbúðir eru í hverju
stigahúsi.
Byggðar verða 200 tveggja
herbergja íbúðir, 300 þriggja
herbergja íbúðir og 350 fjögurra
herbergja íbúðir. Verður meðal-
stærð 285,6 rúmmetrar, og er það
allmiklu minna en á neðra svæð-
inu, en þar var meðalstærðin 349
rúmmetrar. Hins vegar eru fjög-
urra herbergja íbúðir hlutfalls
lega fleiri á efra svæðinu.
Allar íbúðir af sama herbergja
fjölda verða eins að stærð og
gerð, og verða því aðeins þrjár
gerðir á efra svæðinu, en hins
vegar voru íbúðargerðir alls níu
á neðra svæðinu.
Gert er ráð fyrir að bygging
íbúðanna 850 taki hálft fjórða ár
hefjist í maí nk. og ljúki í nóv-
ember 1972. Hefur byggingar.
framkvæmdunum verið skipt nið
ur í þrjár annir, og verður að
vinna þær nokkuð í sameiningu
þannig að hefja verður aðra önn,
nokkru eftir að fyrsta er hafin
og þá þriðju áður en annarri
lýkur.
Annirnar skiptast svo: 1. 180
íbúðir, tveggja og þriggja her-
bergja, tilbúnar á tímabilinu
marz-sept. 1970. 2. 350 íbúðir
fjögurra herbergja, tilbúnar okt
1970 — des. 1971, 3. 320 íbúðir.
tveggja og þriggja herbergja, til-
búnar á tímabilinu jan. — nóv.
1972.
Verkið verður boðið út
Eins og sagði í inngangi, verð-
Ur verkið boðið út. Skal velja
aðalverktaka á grundvelli út-
boðs að undangengnu forvali. En
að því stefnt, að útboð geti farið
fram í þessum eða næsta mán-
uði. Eru teikningar miðaðar við
byggingarmáta svipaðan og beitt
var við neðra svæðið, en frjálst
er verktökum að leggja til aðrar
byggingaraðferðir.
Gert er ráð fyrir að láta útboð
í aðalverkið verða þríþætt, þ. e.
bjóða í fyrstu önnina eina, bjóða
í tvær síðari og í allt verkið.
Fjármagnsþörfin er áætluð um
eina milljón á íbúð eða 850
milljónir. Á þessu ári er hún
áætluð 155 miÚjónir, 1970 er hún
áætuð 310 milljónir, 1971 áætluð
310 milljónir og 1972 er hún
áætluð 85 milljónir. Þessi áætlun
er þó miðuð við stöðugt verðlag
ailan byggingartimann.
í niðurlagi skýrslunnar er
fjallað um skiptingu íbúðanna
milli ríkis og borgar. Er gert
ráð fyrir að Reykjavíkurborg fái
250 íbúðir af 1250. Þegar hafa
verið reistar 335 íbúðir, og fær
borgin þar eitt fjölbýlishús með
52 íbúðum. Af því mætti ætla
að borgin vildi fá 185 íbúðir á
næsta áfanga svo að i hluti íbúð-
anna félli í hennar hlut. Borgin
hefur þó sýnt meiri áhuga á
smærri íbúðunum. Er farið fram
á það að borgin skýri hið fyrsta
frá því, hvar hennar íbúðir eiga
að vera.
Að endingu er skýrt frá því, að
enn vanti áætlun um 65 íbúðir.
Er sagt, að ekki sé að svo komnu
máli tímabært að taka ákvarð-
anir með þær, en fullur hugur
sé á að hafa þær í ráðhúsi.
fbúffir borgarinnar
Borgarstjóri skýrði frá því í
framhaldi af þessu, að hann
hefði svarað byggingarnefnd
Breiðholtsfram'kvæmdanna.
bréfinu skýrir borgarstjórí frá
ósk borgarráðs um, að í fyrstu
önn síðari áfangans fái borgin
tvö hús með samtals 80 2ja og
3ja herbergja íbúðum, í mið-
önninni eitt hús með 42 fjögurra
herbergja íbúðum og í lokaönn-
inni eitt hús með 60 2ja og 3ja
herbergja íbúðum.
Gísli Halldórsson (S) tók einn-
ig til máls og sagði, að það væri
nú verið að undirbúa útboðin.
Hefðu þegar sjö aðilar lýst því
yfir, að þeir mundu taka þátt í
útboði. Hann benti einnig á, að
þótt framkvæmdirnar drægjust
um tvö ár drægist afhending
borgaríbúðanna aðeins um eitt
ár.
Harffur árekstur varff á mótum Hringbrautar og Sóleyjargötu
klukkan 06:20 á nýjársdagsm orgun. Tveir farþegar, sem voru
í öðrum bílnum, meiddust lít ils háttar og voru fluttir í Slysa-
varffstofuna, þar sem gert var aff meiðslum þeirra. Bilamir s
kemmdust báðir nokkuð og sýn ir myndin annan þeirra eftir á
reksturinn.
Eitt ár síðan hjarta
var grætt í Blaiberg
Baðaði sig í ísköldum sjó á afmœlinu
Höfðaborg, 2. janúar — NTB
ÞESS var minnzt i Höfffaborg i
dag ,að liffiff er eitt ár síffan skipt
var um hjarta i suffur-afríska
tannlækninum Philip Blaiberg,
sem lifaff hefur lengst allra
þeirra sem fengiff hafa nýtt
hjarta. Blaiberg hélt upp á af-
mælið í dag meff ísköldu sjóbaði
á baffströnd skammt frá Höfffa-
borg. Honum varff ekki aff þeirri
ósk sinni að halda upp á afmæl-
iff í kyrrþei, því aff ekki hefur
linnt símhringingum fólks, sem
hefur viljaff óska honum til ham-
lngju.
Blaiberg var hinn hressasti er
hann ræddi við blaðamenn á bað-
ströndinni og sagðist aildrei hafa
liðið betur síðan hann fékk fyrst
hjartaslag fyrix 13 árum. Hann
skýrði frá því, að hann hyggðist
Tilræði við
Japanskeisara
Tókíó, 2. janúar — NTB
HIROHITO Japanskeisara var
sýnt banatilræffi í dag, en sak-
affi ekki. Skotið var á hann 5 skot
um úr haglabyssu, en ekkert
þeirra hæfði. Tilræðismaðurinn,
sem var samstundis handtekinn,
hefur sex sinnum höfðað mál í
þeim tilgangi aff afnema konung
dæmi í Japan. Hann reyndi aff
myrða keisarann er hann kom
fram á svalir hallar sinnar
ásamt fjölskyldu sinni til aff
taka við kveðju mikils mann-
fjölda, sem safnazt hafði saman
til þess að hylla hann á afmæli
hans.
- A AKUREYRI
Framhald a( bls. 24.
um bæinn. Ekki er vafí á því
að sjónvarpið átti sinn hlut að
því.
Logandi kyndlar mynduðu hið
nýja ártal í hliðum Vaðlaheið-
ar um miðnætti, en miklu minna
var um flugelda en verið hefur
undanfaTÍn áramót.
Engin slys urðu um áramótin,
ef frá er talið að ungur maður
vaT sleginn f rot í Sjálfstæðishús.
inu. Hafði hann boðið hópi
manna gleðilegt nýár, en því var
ekki betur tekið en svo að hann
var eltur upp í danssalinn og
rotaður þar. Hann var veill fyrir,
hafði gengizt undir höfuðaðgerð
i Kaupmannahöfn sl. sumar.
7 menn voru vistaðir i fanga-
geymslu lögreglunnar á nýárs-
nótt, vegna áfloga, en að þessu
slepptu fór áramótahátíðin vel
'fram. Dansleikir voru í sam-
komu'húsum bæjarins og ókeypis
dansleikur í gagnfræðaskólanum
fyrir nemendur skólans sam-
kvæmt venju. — Sv. P.
Ted Kennedy
keppir um
þingembætti Tvær íkviknanir
fara í langt ferðalag áisamt
Eileen konu sinni í marz eða
apríl. í kvöld hélt Blaiberg
nokkrum vinum sínum veizlu,
þeirra á meðal Christian Bam-
ard lækni, sem skipti um hjarta
í honum. í gær sait Blaiberg ný-
ársveizlu þeldökkra íbúa Höfða-
borgar og sat við hliðina á
Dorotihy Haupt, konu Ciive
Haupts, sem gaf hjartað er grætt
var í Blaibeng.
Hjartað var grætt í Blaiberg
tíu dögum eftir að fyrsti hjarta-
þeginn, Louis WaSkanSky, lézt.
Síðan Christian Barnard fram-
kvæmdi fyrsta hjartailutninginn
3. desember 1967, hefur verið
skipt um hjarta í 101 sjúkling.
Þar af hafa 72 verið yfir fertugt
og 7 eins árs eða yngrL Önnur
hjartaígræðslan var reynd á ung
barni í New York 3. desember,
en barnið lézt samdiægurs og
Blaibeng varð þriðji sjúklingur-
inn, sem fékk nýtt hjarta.
Um það bil helmingur allra
hjartaflutninga hefur verið fram
kvæmdur í Bandaríkjunum, flest
ir í Houston í Texas og í Palo
Alto í Kaliforníu. A£ banda-
rísku sjúklingunum eru 20 enn á
Ifefi.
í Frakklandi hafa verið fram-
kvæmdir tíu hjartaflutningar og
þar af eru fjórir hjartaþegar enn
á lífi, þeirra á meðal kaþólskur
preatur, Daniel Boulogne, sem
Blaiberg talaði við í síma í gær.
Tveir hjartaflutningar hafa ver-
ið framkvæmdir í London, en
báðir sjúk’lingarnir létust.
Allis eru 35 hjartaþegar enn á
lifi.
Washington, 2. janúar — NTB
EDWARD Kennedy öldunga-
deildarþingmaður, hefur til- (
kynnt, aff hann muni gefa
kost á sér sem varaformaffur
þingflokks demókrata í öld-
ungadeildinni, þegar nýkjörið
þjóðþing kemur saman siffar
í mánuðinum. Núverandi vara
leiðtogi demókrata í öldunga-
deildinni er íhaldssamur Suð- ,
urríkja-demókrati, Russel
Long frá Louisiana, en aðal-
leiðtogi demókrata er Mike
Mansfield frá Montana.
Kennedy nýtur stuffnings
Hubert Humpbreys og vara-
forsetaaefnis hans í forseta-
kotsningunum í 'haust, Bd-
mund Muskies. Bf Kennedy
nær kosningu, fær hann mik-
inn pólitískan frama, sem gæti
aukið möguleika hans á því
að verða fonsetaefni demó-
krata 1972 eða 1976, að dómi
stjórnmálafréttaritara.
AKUREYRI 2. janúar. — Tvær
íkviknanir urðu á A'kureyri á
gamlársdag. Sú fyrri varð kl.
9.40 um morguninn í saltfiskhúsi
Útgerðarfélags AkuTeyringa. Þar
hafði eldur komizt í olíu á gólfi
í kyndiklefa, en varð fljótlega
slökktur án þess að teljandi
skemmdir yrðu.
Hinn síðari varð laust eftir kl.
20.30 á gamlárskvöld í ris'hæð
hússins nr. 4 við Reynivelli, en
þar býr Stefán Vilmundarson.
Mestar brunaskemmdir urðu í
stofu sunnan til á hæðinni, en
einnig urðu nokkrar skemmdir
á annarri gtofu, eldhúsi og gangi
og eldur komst í einangrun á
þa'ki hússins. Tvö herbergi norð-
an til sluppu óskemmd og einnig
itvær neðri hæðirnar.
Þetta var síðasta útkall slökkvi
liðs Akureyrar á árinu 1968, en
jþau urðu samtals 50, þar af eitt
:gabb, 9 færri útköll en á árinu
,1967. Tveir verulegir eldsvoðar
urðu á árinu í Niðursuðuverk-
ismiðju K. J. og Co. og í Hrafna-
giisstræti 21. — Sv. P.
Systir mín og móðursystir
Guðbjörg Auðunsdóttir
Giljalandi 11,
lézt 2. janiúar.
ITnnor Auðunsdóttir
Auður Sigurðardóttir.
Konan mín
Hiltrud Thomsen
andaðist á nýjársdag.
Útför hennar fer fraim frá
Dómkirkjunini þrfðjudag 7.
janúar kL 3.
Henning Thomsen
ambassador sambandslýðveld-
isins Þýzkalands.