Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 24

Morgunblaðið - 03.01.1969, Side 24
 AU6LYSING4R SÍMI 22.4*80 FÖSTUDAGUR 3. JANUAR 1969 RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 10.100 Tvö slys aí völd- um sprengja — SAUTJÁN ára piltur í Grinda- vík meiddist illa, þegar púður- flaska sprakk framan í hann á gamlárskvöld. Var hann fluttur til Keflavíkur, þar sem gert var að meiðslum hans. Á nýársdag Seldu íyrir 9,3 itiilljónir T‘RÍR togarar seldu í Bretlandi nú um áramótin, samtals um 500 tonn fyrir um 9,3 milljónir Is- lenzkar krónur. í fyrradag seldi Akureyrartog- arinn Svalbakur ytra 152 tonn fyrir 13.279 pund, og daginn eftir seldi Harðbakur 180 tonn fyrir 16.586 pund. Þá seldi Þorkell máni í Grimsby í gaer 171 tonn fyrir 14.808 sterlingspund. fór Bjöm Pálsson í sjúkraflug til Egilsstaða og sótti þangað mann frá Borgarfirði eystra en hann meiddist illa á auga, þegar sprengja sprakk hjá honum. Nokkrir komu í Slysavarðstof- una í Reykjavik um áramótin til að fá búið um minni háttar brunasár en í engu tilfelli var þó um meiri háttar meiðsl að ræða. Pilturinn í Grindavík hafði sett púður í flösku og borið eld að en hélt að ekki hefði kvikn-að í púðrinu. Hugðist hann þá bera eld að öðru sinni og laut yfir flöskuna en hún sprakk þá fram- an í hann. Pilturinn skarst í andliti skaddaðist á eyra og brenndist illa í andliti og á höndum; fékk m. a. brunabletti á bæði sjáöldr- in. Þá slitnuðu afltaugar tveggja fingra hægri handar. Flugeldar í Reykjavík voru með fæsta móti á gamlárskvöld miðað við það flugeldaregn sem verið hefur undanfarin áramót- Himininn rákaðist þó ævintýralega annað veifið og fjöldi brenna í borginni sló bjarma á hús og fólk. Snarkaði glaðlega í köstunum vegna rigningarinn- ar. Myndina tók Sveinn Þormóðsson á miðnætti á gamlárskvö*d í Reykjavík. Heildaraf linn úr 1240 þúsund lestum lnuithaldssnga 1966 niður í 550 þúsund lestir 1968 — bolfiskaflinn nokkuð stöðugur síðastliðin ár, en síldin brást HEILDARAFLI landsmanna á árinu 1968 er áætlaður um 554 þús. lestir samkvæmt upplýsing- um Fiskifélags Islands. Árið 3967 var heildarfiskaflinn 847 l>ús. lestir og árið 1966 var heild- araflinn 1240 þús. lestir. Á sl. tveim árum hefur aflinn þvi minnkað um liðlega helming eða 686 þús. lestir. Kemur þessi afla- Róleg áromót á Akureyri AKUREYRI 2. janúar. — Ára- mótaveður var ágætt hér um slóðir, hlýtt og þurrt að mestu, og tungl óð í skýjum. Fólk hélt sig mest heima við fram eftir gamlárskvöldi og var mjög fá- mennt við þær 14 eða 15 brenn- ur, sem efnt var til víðs vegar Framhald á bls. 23 mismunur aðallega til vegna aflabrests á síldarmiðum síðast- liðin ár. Af 564 þús. lestum af fiski árið 1968 er áætlað að bolfiskur sé um 347 þús., síld um 130 þús. lestir og loðna 78 þús. lestir. Af þessum 347 þúsund lestum af bolfiski er bátaafli um 276 þús. lestir og togaraafli um 71 þús. lestir. Hæsta verstöðin er Vest- mannaeyjar með um 43 þúsund lestir af bolfiski eða um 16% af öllum bolfiskafla fiskibáta- flotans. Árið 1967 var heildaraflinn eing og fyrr getur um 847 þús. lestir á móti 1240 þús. lestum 11 Friðsælustu árumót í 30 ár “ Ekkert brunaútkall um áramótin „ÞETTA voru einhver friðsæl- ustu áramót, sem ég man eftir í tæp 30 ár,“ sagði Greipur Kristjánsson, aðalvarðstjóri, þeg ar Morgunbaðið spurði hann um áramótin í Reykjavík. Og hjá slökkviliðinu í Reykjavík fékk Morgunblaðið það svar, að ekk- ert brunaútkall hefði orðið um áramótin, sem er einsdæmi. Lög- reglan í Hafnarfirði, Keflavík, Vestmannaeyjum og Kópavogi höfðu allar þá sögu að segja, að hjá þeim hefðu áramótin veri'ð róleg og friðsöm. Fátt fólk var á ferli í mið- borginni um áraskiptin. Löigxegl- an tók kínverja af nok'krum unglingum og nokkrir menn voru teknir úr umferð sakir ölvunar. Lögreglunni var ekki tilkynnt um neitt slys eða óhapp á gamlárskvöld. Veðurspár gamla fólksins fyrir veturinn: „Mórauð voð, dálítið hvítrákuð" — ,,Tunglin boða gott veðurfar" — ,,Eg er hrœddur um vorkulda — í apríl og mai'll ÞAÐ er margt undir veðrinu komið á okkar landi og alltaf fylgist mikill fjöldi fólks með veðurspám Veðurstofunnar. En þó að flestar veðurspár byggist nú orðið á tækni og tölvuútreikningum, er þó nokkuð um veðurglögga menn á íslandi ennþá, sem marka hugmyndir sinar um veður- far, af gangi himintungla, draumum, görnum í kindum, lyktinni í loftinu eða hljóðinu í hafinu. Það hefur Iöngum reynzt haldgott það sem gamla fólkið segir af sinni reynslu. Við hringdum í tvo menn á sjö- tugs- og áttræðisaldri og eina konu á tíræðisaldri og spurð- um um veðurspár þeirra fyrir veturinn. Jón Arnfinnsson 68 ára gam all garðyrkjumaður í Reykja- vík svaraði á þessa leið: „Ég spái líku veðri og hefur verið, frostlitlu veðri með smá frostköflum, en engum hörk- um. Það reyndist vera rétt það 9em ég spáði frá hausti til jóla og það hefur reyndar oftast komið fram það sem ég hef sagt í þessu efni. Ég marka veðurfarið af tunglunum, hvenær þau springa út, hvaT fyllingin kemur og hvar kvartelaskipt- ingin er, eða hálfu tunglin Framhald á Us. 23 árið 1966. Síldaraflinn árið 1967 var um 470 þús. lestir, loðnu- aflinn um 97 þús. lestir, heildar- bolfiskafli var um 330 þús. lestir, en þar af var afli fiskibáta um 260 þús. lestir og togara 71 þús. lestir. Humar og rækjuafli árið 1967 var um 4 þúsund lestir, en ekki liggja fyrir tölur, sem hægt er að byggja á frá síðasta ári um þann afla. Af þessum tölum sést að bol- fiskaflinn hjá fiskibátunum er stöðugastur siðastliðin ár miðað við aðra veiði svo sem síld og loðnu. 1 MORGUNBLAÐINU í dag hefst ný myndaframhalds- saga, sem í þýðingu hefur hlotið heitið: „Hætta á næsta leiti“. Sagan segir frá tveim- ur bandarískum fréttamönn- um. Troy og Raven, sem vinna hjá fréttastofunni Global Newg og lenda i ýms- um ævintýrum og hættum í i starfi sínu. Fiskverðið væntanlegt YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv- arútvegsins sat á fundi í gær til að ákvarða fiskverðið fyrir vetr- arvertíðina. Er búizt við að fisk- verðið komi nú næstu daga. Julius Bomholt látinn VAR FORSETI DANSKA ÞJÓÐÞINCSINS OC RÁÐHERRA UM LANGT SKEIÐ - JULIUS Bomholt, fyrrum ráð- herra og forseti danska þjóð- þingsins, lézt í fyrrinótt í sjúkra- húsi í Kaupmannahöfn, þar sem hann hafði legið frá 19. desem- ber sl. Með Bomholt er genginn einn svipmesti stjórnmálamaður Dana á árunum eftir strið og ein- lægur vinur íslands og íslenzku þjóðarinnar. Julius Bomholt fæddist árið 1896 í Alderslyst við Silkeborg, sonur verkamanns. Hann tók stúdentspróf og las siðar guð- fræði við Kaupmannahafnarihá- skióla. Bomholt gerðist kennari við lýðháskólann í Askov og verkamannalýðhásikólann í Es- bjerg og var'ð hann siðar skóla- stjóri þess skóla. Ungur gerðist Bomholt félagi í jafnaðarmannaflokknum. Hann átti sæti í bæjarstjóm Esbjerg árin 1933—1941. Hann átti sæti í útvarpsráði og var fionmaður þess um langt skeið. Eftir heimsstyrjöldina var Bomholt forseti danska þjóð- þingsins árin 1945—1950, en ár- ið 1950 var hann kennslumála- ráðherra og aftur árin 1953— 1957. Félagsmálaráðherra var hann árin 1957—1961 og mervnta málaráðherra 1961—1964, en þá varð hann þimgfiorseti á ný þar til í ársbyrjun 1968. Juliug Bomholt varð einn helzti leíðtogi jafnaðarmanna og lét hann sér einkum annt um mennta- og menningarmál. Hann hefur skrifað fjölda boka, skáld- sögur, ævisögur og fræðirit um félags- og menningarmál. Julius Bomholt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.