Morgunblaðið - 11.02.1969, Side 4
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1989.
BÍLALEIGANFQLUFf
car rental service ©
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
Hverfis{ötu 103.
Sitni eftir lokun 31100.
MAGIMÚSAR
4kiphouti21 5ímar21190
eftlr tokun simi 40381
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
Einangrun
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
K.cal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
x engan raka eða vatn í sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegri
einangrun.
Vé. hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verði.
REYPLAST H.F.
Armúla 26 - Sími 30978
BIFREIÐASALA
EGILS
TIL SÖLU
Willy’s 62 með Egilshúsi.
Willy’s 64 í góðu lagi.
Willy’s 64 lengri gerð.
Jeepster 67, ekinn 11 þ. km
Willy’s jeppi 67 m. blæjum
Austin Gipsy 67.
Landrover 62.
Gas 69 árg. 66.
Willy’s 46.
Humber Super Snipe 60.
Plymouth 66.
Ford Bronco 66.
Dodge Power wagon.
Benz 220, 55.
Skoda 1000 MB árg. 65.
Vauxhall Velox 63.
Skoda 1000 MB 1967.
Opel Caravan 62.
Simca 1000 63.
Citroen BS 19, 67.
Volkswagen, rúgbrauð, 63.
Tökum vel mað farnar bif
reiðir í umboðssölu.
Egili Vilhjátmsson hf.
Laugav. 116. Sími 22240.
Q Sjónvarpskostnaður
Velvakandi þykist all-gestris-
inn á stundum, eins og sjá má
af næsta bréfi, þar sem ritstjóri
blaðsins A fær rúm í blaðinu B
til þess að senda ritstjóra blaðs-
ins C kveðjur sínar.
Jóhann Briem, ritstjóri Frjálsr
ar verzlunar, skrifar:
„Ritstjóri Alþýðublaðsins og for
maður útvarpsráðs ræður sértæp
ast af kæti yfir að geta tilkynnt
okkur sjónvarpsnotendum i rit-
stjórnargrein í Alþýðublaðinu á
þriðjudaginn, að afnotagjöld sjón
varpsins eigi ekki að hækka, þrátt
fyrir gengisbreytinguna í haust.
Mig minnir, að í frétt frá
menntamálaráðuneytinu, sem birt
ist í dagblöðunum, hafi verið
skýrt frá þessari ákvörðun mennt
málaráðherra, eftir að hann hefði
þegið holl ráð útvarpsstjóra og
útvarpsráðs.
Þessi tíðindi eru vissulega gleði
leg fyrir sjónvarpsnotendur, sem
óefað vita flestir, hvað við pen-
inga skal gera þessa dagana og
næstu mánuði. Hins vegar veit
ég ekki, hvort útvarpsráðsmenn
hafa sagt okkur allan sannleik-
ann í málinu ennþá. Þá hlýtur
að vakna sú spurning, hvort fjár
hagur þessa opinbera fyrirtækis,
sjónvarpsins, sé svo traustur og
góður, að það þurfi ekki að
hækka tekjuliðina, eins og mörg
önnur þjónustufyrirtæki ríkisins
hafa gert að undanfömu. Það er
þó kynlegt, því að við vitum
öll, að langmestur hluti þess efn-
is, sem sjónvarpið flytur, er er-
lent að uppruna og væntanlega
þurfa sjónvarpsmenn að greiða
það í erlendri mynt, sem keypt
er hér í íslenzkum bönkum á
skráðu gengi — nema um ein-
hvers konar menningarlega hjálp
arviðleitni hinna erlendu sjón-
varpsstofnana sé að ræða. Um það
er mér ekki kunnugt
Með hliðsjón af þessum tíð-
indum um óbreytt afnotagjald
væri fróðlegt að fá upplýsingar
á opinbenrm vettvangi um horf-
ur i rekstri sjónvarpsins á næstu
mánuðum eða árum — hvort það
geti haldið áfram sömu starfsemi
og áður með batnandi dagskrá,
þrátt fyrir gengisfellinguna og
sömu afnotagjöld. Ekki er heldur
hægt að reikna með verulegri
aukningu auglýsinga, þar sem
þröng verðlagsákvæði gefa alis
ekki möguleika til auglýsinga.
Er það rétt mynd af fjárhags-
legri stöðu sjónvarpsins, sem
okkur er gefin með þessu, eða
verður sjónvarpið kannski óhjá-
kvæmilega að takmarka þjónustu
sína nú á næstunni einmitt vegna
þess, að notendur eiga ekki að
þurfa að borga meira fyrir af-
not af því, en þeir hafa gert
til þessa.
Fróðlegt væri að fá upplýsing-
ar um þessi mál frá réttum að-
ilum.
Virðingarfyllst,
Jóhann Briem“.
0 fþróttasjónvarp
„íþróttaþættirnir í sjónvarpinu
eru að öllum líkindum það efni
sjónvarpsins, sem dregur að sér
einna flesta áhorfendur.
Mikill iþróttaáhugi er í þessu
landi og hefur verið frá dögum
landnámsmanna og einstök íþrótta
afrek í heiðri höfð. Fylgzt er enn
og í síauknum mæli með íþrótt-
um og íþróttaviðburðum, hérlend
um og erlendum.
Það var því sannarlega lofs-
verð viðleitni sjónvarpsmanna er
þeir hófu reglubundnar útsend-
ingar á laugardögum frá brezkum
knattspymuleikjum. — Þetta fór
vel af stað í byrjun, rætt var
við áhugamenn, er fylgzt höfðu
með þessum leikjum, og var þess
vandlega gætt að ræða við áhang
endur þeirra knattspyrnufélaga,
er léku hverju sinni. Snéiust um-
ræður gjarnan um uppruna félags
ins og ágæti þeirra leikmanna,
er skipuðu fylkingar þeirra hverj
um tíma.
Það sorglega er, að þetta hefur
með öllu lagzt niður og var að-
eins búið að kynna örfá knatt-
spyrnufélög.
Sjónvarpsmenn mega ekki
sofna á verðinum, því að bæði
er það, að sjónvarpsáhorfendum
hefur fjölgað síðan þetta var,
og auknar kröfur eru gerðar til
þeirra nú, þegar sjónvarpið hef-
ur að nokkru slitið „barnsskón-
um“.
Fróðlegt væri nú að taka þetta
upp aftur og auka fjölbreytni
með þvi að ræða við áhugamenn
þjálfara, dómara og jofnvel leik
menn, um einstaka leiki. f leik-
hlé mætti t.d. ræða við þjálfara
og fá þeirra útskýringar á leik-
mönnum og leikaðferðum og þá
hefðu íslenzkir knattspyrnumenn
meira gagn af þessum leikjum
og svo við þessir áhugasömu á-
horfendur skilja betur gang leikj
anna.
Brezk knattspyrna er að sjálf-
sögðu gott sjónvarpsefni, en hún
er þó ekki einhlítt íþróttaefni.
Því að vitað er að þetta um
íþróttir eru meðal vinsælasta sjón
varpsefnis hér á landi, sem og
annarsstaðar, enda þótt ráðamenn
sjónvarpsins virðast ekki hafa
gert sér það ljóst.
Það er orðin viðurkennd stað-
reynd að sjónvarpið er 1 dag á-
hrifamesta fjölmiðlunartækið, sem
völ er á, og ætti því að nota
það meira en gert hefur verið til
þess að auka áhuga fólks á al-
mennri líkamsrækt. f því sam-
bandi væri ekki illa varið þeim
íþróttaþáttum í sjónvarpi sem
vektu upp áhuga á gildi al-
mennra hollra íþrótta því að það
er nú einu sinni svo að gildi
íþrótta og íþróttaþátttaka verður
ekki mælt með skeiðklukku eða
málböndum.
Fleira má til taka, t.d. væri
það fróðlegt og án efa gott sjón
varpsefni, að ræða um íþróttir,
kosti þeirra og galla í umræðu-
formi, koma mætti af stað get-
raunum milli félaga og héraðs-
sambanda o.fl. o.fl.
Eins og £ upphafi þessa bréfs
getur, er mikill áhugi hér á landi
á íþróttum og fer sívaxandi, og
er það þá ekki aðUlegt, að £
iþróttaþáttum spegUst þessi al-
menni áhugi?
Þetta kostar að sjálfsögðu meiri
vinnu en nú er lögð í íþrótta-
þættina, en myndi varla kosta
mikið fé. Erlent Iþróttaefni er
tæplega mjög dýrt, því að oft
hafa erlendir íþróttaviðburðir sýn
ingargildi hér, þótt ekki séu alveg
nýir af náUnni. Innlent efni, svo
sem að framan greinir o.fl. ætti
ekki að kosta mikið heldur, að
minnsta kosti ef miðað er við
margt annað efni, þvi að íþrótta
hreyfingunni sjálfri hlýtur að
vera annt um að koma sínu á
framfæri.
Sífellt er verið að gagnrýna
dagskrárefni sjónvarpsins, innlent
sem erlent, sem eðUlegt er, einn
ig eru flytjendur fastra dagskrár
liða gjarnan gagnrýndir, en um
íþróttaþætti sjónvarpsins virðist
meira rætt en ritað og þvi sting
ég niður penna í þeirri von að
Velvakandi taki þessar ábending
ar til birtingar.
íþróttaunnandi".
£ „íþróttamaður ársins“
„Kæri Velvakandi!
Ég sendi nokkur orð £ tíma
töluð. Hvers á fjölfærasti íþrótta
maður okkar íslendinga að gjalda.
Nýlega hafa íþróttafréttaritarar
kjörið íþróttamann ársins. Þá
bregður svo við, að einn okkar
vinsælasti og þekktasti .frjáls-
íþróttamaður, átta- eða nífaldur
íslandsmeistari á árinu 1968, Val-
björn Þorláksson, er ekki nefndur
I þeirri nafnarunu, er i blöðum
og útvarpi kom.
Þetta er ekki til að glæða á-
huga ungs fólks að frjálsiþrótt-
um. Að mínum dómi er það hið
minnsta, að þeirra sé getið að
verðleikum, sem það eiga skilið.
Það væri gaman að heyra álit
annarra áhugamanna á þessum
málum.
Virðingarfyllst,
Karl Einarsson, Melhaga 10“.
I
ónlagn ing
SPÓNLEGGJUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
EIGUM FLESTAR TEGUNOIR AF SPÓN
RJÓT OG GÓÐ AFGREIDSIA
ÁLMUR sf.
ARMOLA 10 - SÍMI 81315
Hefi til sölu m.a.:
2ja herb. íbúð í timbumhúsi við Lauigarveg, úbborguin
200 þús. kr.
3ja herb. íbúð í kj.a'Llana við Hjalllaveg, 800 fenm.., útb.
300 þús. kr.
4ra herb. risíbúð við Dnápuhlíð, 90 fenm_, úUb. 400 þús. kr.
4ra herb. íbúð við Ásvai/lagötu, 120 fenm., útb. 450 þús. kr.
4ra herb. íbúð við Háaleitiabr. 127 fenm., bílökúr fylgir.
KAUPENDUR,
Hefi kaupanda að 3ja — 4ra herb. íbúð nálægt Miðbæn-
nm, ætlaða fyrir tannlæknastofu.
Hefi kaupanda að 3ja herb. íbúð í Rvík, útb. 600 þús. kir.
Hefi kaupanda að 2ja—3ja herb. íbúð í HAFNARFIRÐI,
miá vera ófrágiengiin að einlhve'rju lieyti.
Kolrli/in Innoc ,nn jlr| 155445 — 14965
DdlUVIII JullhS lUII III I* Kirkjutorgi 6.
NÝTT FYRIR HÚSBYGGJENDUR
UTAVER
50MIMEH
Aö 22 - 24
t30280-32262
somvyl
Þeir sem eru að byggja eða lagfæra eldri hús aettu
að kynna sér hina miklu kosti sem Somvyl-vegg-
klæðningin hefur. Klæðir vel hrjúfa og holótta veggi.
Hentar vel á böð, eldhús, ganga og stigahús. Á lager
í mörgum litum.
\ NOTKUN-
REGNA — GRAND TOTAL
REGNA — STANDARD
REGNA — 2 TOTAl
REGNA — 4 TOTAL
NORSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA.
E. TH. MATHIESEN H.F.
SUÐURGOTU 23 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 50152