Morgunblaðið - 11.02.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1969.
5
Var alveg laus við ótta
— segir Friðrik Óiafsson, stórmeistari, um skák sína
við Botvinnik hinn rússneska
FIIIÐRIK Ólafsson er koniiny
heim eftir frækna för til Hol*
lands, þar sem hann varð
fimmti á skákmótinu í Bever-
wijk, svo sem kunnugt er, en
ekki munaði nema einum
vinningi á honum og sigur-
vegurunum; þeim Botvinnik
og Geller. Morgunblaðið
hafði samband við Friðrik og
kvaðst hann vera nokkuð
ánægður með útkomuna.
í síðustu umferð mótsins
tefldi Friðrik við Botvinnik,
fyrrverandi heimsmeistara, og
lauk þeirri skák með jafn-
tefli eftir 13 leiki. Þetta var
fyrsta skák þeirra kappanna
og spurðum við Friðrik um
hana.
„Jú, ég var alveg laus við
ótta, þegar við settumst að
slcákinni“, sagði Friðrik og
hló við. „Ég var hálft í faivoru
að vona ,að Botvinnik myndi
tefla til vinnings, en svo kom
hann mér í faálfgerðan bobba
með að bjóða jafntefli eftir 13
leiki. Þar með þurfti ég að
taka ákvörðun og mér fund-
ust aðstæður ekki þesslegar,
að það 'hefði neitt upp á sig
að hafna boði hans. Að visu
var ég kominn með frjálsari
stöðu að mörgu leyti, en staða
Botvinniks var föst fyrir o,g
enga veikieika í henni að
finna. Svo ég ákvað að hætta
ekki á neitt“.
— Hver var þín skemmti-
legasta skák að þínum dómi?
— Ja, ég telfdi margar
skemmtilegar skákir þarna
Skákin við Kavalek í fyrstu
umferð var mjög góð; stutt
og áhrifamikil og einnig skák
in við Portisch í annarri um-
ferð. En sumar jafnteflisskák
irnar voru líka anzi skemmti
légar, t.d. við Ree.
— En hvaða skák ertu
óánægðastur með?
— Ég hlýt að vera óánægð-
ur með tapið gegn Doda. í
þeirri skák lokaðist ég alveg
og lék henni út úr höndunum
á mér.
— Fékkstu éinhver verð-
laun?
— Já. Það voru verðlaun
alveg ofan í áttunda sæti.
Þetta mót er dálítið sérstakt
að því leyti, áð það eru mikl-
ar stálverksmiðjur þarna,
sem halda það, og var teflt í
mörgum flokkum, auk meist-
araflokksins.
— Hvað er svo næst?
— Ég reikna með því, að
ég taki þátt í næsta svæðis-
móti fyrir heimsmeistara-
keppnina. Enn er óákveðið,
hvenær og hvar það mót verð
ur en - sem stendur er helzt
talað um Rúmeníu og Austur-
ríki í því sambandi.
— Hefur þú fengið boð um
að taka þátt í eiruhverjum
mótum þar fyrir utan?
— Ég er alltaf að fá boð
en get auðvitað ekki þegið
þau öll. Ég hef mína atvinnu
utan skákarinnar og verð að
sinna henni.
— HeÆuir iþér attdrei fk>gið
í huig að lifa af skákinni?
— Nei. Ég hef ekki taiið
hana æskilegan grundvöl'l að
liífsaltanfi, sagðli stórmieistar-
inn Ólafsson að lokum.
Frá borgarstjórnarfundi:
Rætt um vandamál heimilis-
lausra einstaklinga
ítarlegar umræður urðu um
hcimilislausa einstaklinga í höf-
uðborginni á borgarstjórnar-
fundi sl. fimmtudag. Var mál
þetta tekið fyrir að beiðni Fram
sóknarmanna. 1 lok umræðnanna
var samþykkt samhljóða tillaga
Kristjáni Benediktssyni( F) og
frá Sigurjóni Björnssyni (K),
dr. Þóri Kr. Þórðarsyni (S),
þar sem félagsmálaráði borgar-
innar er falið að kanna aðstæð-
ur og aðbúnað heimilislausra
manna í Reykjavík, og 1-eita sam
komulags við ríkisvaldið um við
unandi lausn þessa vanda.
Kristján Benediktsson (F) hóf
umræður og rakti áll ítarlega í
ræðu sinni, þau vandamál, sem
eru vegna drykkjusjúkra manna
hér í borg, sem hvergi ættu
höfði sínu að halla. Þessir menn
hefðust víða við, og væri knýj-
andi nauðsyn að reyna að ráða
bót á því, og koma þessum mönn
um fyrir á hæli til lækninga.
Vissulega væru margir þessara
manna ólæknandi, en aðrir
vildu reyna að komast úr óham-
ingju sinni. Þeirra böl væri, að
hælisvist væri ekki nema tak-
mörkuð, og þegar þaðan kæmi,
vantaði þá samastað, og þeirra
félagsskapur væri hinir gömlu
drykkjubræður, og hrapið hæf
ist á nýjan leik.
Kristján sagði, að nauðsynlegt
væri að koma á fót endurhæf-
ingarstöðvum fyrir þessa menn,
þar sem þeir gætu dvalist með-
an þeir sigruðust endanlega á
sjúkdómi sínum. Gæzluvist-
arsjóður væri ti'I og hefði fram-
lag verið allríflegt í upphafi,
7,5 milljónir 1964 en sú upphæð
hefði ekki vaxið síðan, þótt sala
á áfengum drykkjum færði rík-
issjóði auknar tekjur árlega.
Taldi Kristján það skyldu ríkis-
ins að efla þennan sjóð til að
geta rækt hlutverk sitt, svo sem
lög mæltu fyrir.
Dr. Þórir Kr. Þórðarson (S)
þakkaði Kristjáni fróðlega ræðu
um mikið vandamál, sem bæri
fyrir augu daglega hér í borg.
Drykkjusjúkir umkomúleysingj-
ar væru að vísu ekki mjög marg
ir hér, en þeir væru flestir í
tengslum við heimili og sköp-
uðu oft erfiðleika þar. Nauðsyn
legt væri að líta á áfengissýki
sem alhliða félagslegt vandamál,
en ekki sem einangrað fyrirbæri.
Þórir sagði, að augu manna
opnuðust æ meir fyrir þessari
staðreynd, sbr. það, að félags-
málaráð hefði ýmis af fyrri verk
efnum áfengisvarnarráðs. Félags
málaráð hefði oft rætt um fyrr-
greinda umkomuleysingja og
hefði m.a. verið rætt um nátt-
stað fyrir þá, sem rekinn yrði
á vegum borgarinnar. Þórir
varpaði einnig fram, að vel
mætti hugsa sér, að einstakling-
ar rækju slíkan stað, og væri
það jafnvel gæfulegra en að fé-
lagssamtök önnuðust slíkt eða lög
reglan.
Þá gat ræðumaður um hælis-
vist fyrir þessa menn, og sagði
hann að því miður væru marg-
ir þessara manna ólæknandi. Því
þyrfti mismunandi hæli fyrir
sjúklingana, bæði gæzluhæli og
vistheimili fyrir þá sjúklinga,
sem koma af s'líkum hælum og
vilja berjast gegn sínum sjúk-
dómi.
Páll Sigurðsson (A) sagði í
sinni ræðu, að meginhluti hinna
heimilislausu einstaklinga í
borginni væru áfengissjúkling
ar. Væri deilt um það meðal
sérfræðinga, hvað sé til lausnar
þeim. Margir teldu að lækning
væri ómöguleg, og væri þá eina
lausnin dvalarstofnun, eins og
rekin væri á Gunnarsholti. Þar
væru u.þ.b. 30 manns, og væru
þar yfir'leitt sömu mennirnir,
sem þar dveldust. Slíka stofnun
mætti vel setja á og þá hyrfi
þessi hópur, sem sjá mætti dag
hvern úr borgarlífinu. Eins
mætti koma á fót næturgististað
Framhalð & bls. 15
BUNAÐARBANKINN
^ er banki bíllisins
BLAÐBURÐARFOLK
OSKAST
í eStirtolín hverfi:
Laugarásveg.
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 10100
íbúð í Vesturborginni
Höfum til sölu glæsilega 137 ferm. hæð á góðum
stað í Vesturborginni.
SKIP & FASTEIGNIR
Austurstræti 18.
Sími 21735, eftir lokun 36329.
Stúlka óskast
á heimili í Englandi. Æskilegt væri að hún hefði ein-
hverja reynslu eða áhuga til að aðstoða við hjúkrun.
Upplýsipgar Skólavörðustíg 2, sími 16128 eftir kl. 6
eftir hádegi.
Hestamannafélagið Sörli, Hafnarfirii
25 ára afniælishátíð Hestamannfélagsins Sörla, Hafn-
arfirði, verður haldin í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði,
laugardaginn 15. febrúar n.k., og hefst með borðhaldi
kl. 19.30.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi miðvikudaginn 12.
febrúar í Bókabúð Böðvars, sími 50515.
NEFNDIN.
Einbýlishús í Arnarnesi
ekki fullbúið er til sölu. Makaskipti koma til greina.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einar B. Guðmundsson,
Guðlaugur Þorláksson,
Guðmundur Pétursson,
Axel Einarsson.
Sími 12002, 13202, 13602.
PLASTRENNUR
Nýjasta gerð af PLASTRENNUM.
Lím er hvergi notað, einingum
aðeins smellt saman.
Rennurnar eru mjög ódýrar í upp-
setningu, ryðga ekki né tærast og
þurfa ekki að málast.
Auk þess sem verð er hagstætt, er
hér um að ræða beztu og örugg-
ustu rennur á markaðinum.
KYNNIÐ YÐUR VERÐ OG GÆÐI. —
T. HANNESSON & CO.
Brautarholti 20 — Sími 15935.