Morgunblaðið - 11.02.1969, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.02.1969, Qupperneq 28
INNIHURÐIR ilandsins mesta úrvali SIGURÐUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI. ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1969 17700 Eitt simtal og þér enið trgggður ALMENNAR TRYGGiNGARg Aðild að EFTA auðveld- ar þróun nýs iðnaðar Grundvallaratriði að hœkkun framleiðslu- kostnaðar verði haldið í algjöru lágmarki segir í OECD-skýrslu um ísland MORGUNBLAÐINU, barst í gær frá viðskiptamálaráðuneytinu ársskýrsla OECD um ástand og horfur í efnahagsmálum íslands. Er hún birt í heild á bls. 10. í skýrslunni segir m.a. að að- ild íslands að Fríverzlunarsam- tökunum mundi veita greiðari að gang að stórum markaði og auð velda þróun nýrra greina út- flutningsiðnaðar. Stærri markað ur fyrir íslenzka framleiðslu á- samt frekari niðurfærslu inn- flutningstolla mundi stuðla að þróun samkeppnishæfari at- vinnuvega. Skýrslunni lýkur með þessum orðum: „f þessu efni er það aug- Ijóslega grundvallaratriði, að hækkun framleiðslukostnaðar eftir gengisbreytinguna verði haldið í algjöru lágmarki. Reynsla fyrstu 12 mánaðanna eftir gengisbreytingar á sam- keppnisaðstöðu atvinnuveganna og kaupgetu neytenda geta rýrn að ört af víxlhækkunum verð- lags og kaupgjalds er fylgja sjálfkrafa verðlagsuppbótum á kaupgjaldi og búvöruverð. Að- lögun raunverulegra tekna að hinni óhagstæðu aðstöðu út á við er vissulega sársaukafull. Það er því mikilvægt, að fullur og almennur skilningur á allra hlutaðeigandi aðila sé vakinn á Drengir íyrir bíl TVEIR sex ára drengir, Sveinn Grímsson, Skeiðarvogi 31, og Stefán Þormar, Skeiðarvogi 45, urðn fyrir bíl í gær. Hlaut Stefán litli áverka á hnakka og lærbrot og var hann fluttur í Landspítalann, en Sveinn mun hafa hlotið minni meiðsl og var gert að þeim í Slysavarðstofunni. Óhapp þetta varð á móts við verzlunarhúsin í Álfheimum. >ar á móts við er gangbraut yf- ir Álfiheimana og fóru litlu drengirnir yfir götuna við gang- brautina. í því kom fólksbíll norður götuna og skipti það eng- um togum, að drengirnir urðu báðir fyrir bílnum og köstuðust til um 3—4 metra við höggið. Gatan, sem er malbikuð, var blaut þegar óhappið varð, en rigningarlaust var. Hemlaför bílsins mældust 27 metrar. nauðsyn slíkrar aðlögunar og á þeirri staðreynd, að gengisfell- ing krónunnar er grundvallarað gerð til þess að ná því marki.“ Verður sáttatillaga lögð fram ? — Samningafundur hófst í gœrkvöldi SATTAFUNDUR hófst í sjó- mannadeilunni á ný kl. 20.30 í gærkvöldi og stóð hann enn þegar Mbl. fór í prentun. í gærkvöldi var talið hugsan- legt að Torfi Hjartarson sátta Atvinnuleysistryggingasjóður: H0FUÐST0LL 1300 MILLJ. KR. Atvinnuleysisbœtur í Reykjavík 4,4 milljónir króna í janúarmánuði ATVINNULEYSISBÆTUR í jan úarmánuði síðastliðnum eru lík lega um það bil 18 milljónir króna á öllu landinu, sé gert ráð fyrir að meðalfjölskyldu- stærð atvinnulausra úti á landi sé hin sama og í Reykjavík og að hlutfall kvenna meðal at- vinnulausra sé einnig hið sama í Reykjavík og úti á Iandi. Hér er miðað við tölur er Félags- málaráðuneytið gaf út eftir mán aðamótin, en þá var tala at- vinnulausra á landinu 5368, en í Reykjavik 1295. í Reykjavík voru greiddar í atvinnuleysis- bætur í janúar 4,4 millj. króna. Um síðastliðin áramót var höf- uðstóll Atvinnuleysistrygginiga sjóðs um 1300 milljónir króna. Á árinu 1968 hafði til 1. desem ber verið greitt í bætur úr sjóðn um 21.4 milljónir, en þeir einir, sem hafa ákveðnar lágmarkstekj ur og hafa haft 6 mánaða vinnu á síðustu 12 mánuðum eiga rétt ti'l bóta. Samkvæmt upplýsingum Eyj- ólfs Jóns/sonar, skrifstofustjóra Tryggingarstofnunar ríkisins mun erfitt að gera sér grein fyrir meðalgreiðslu hvers mán- aðar úr sjóðnum, þar sem greiðsl Framhald á bls. 27 Vestfjarðabátar: Fá um 20 tonn í róðri AFLI Vestfjarðabáta hefur verið góður undanfarið eins og þegar hefur komið fram í Mbl. Þrir Bolungarvíkurbátar, sem /6 ára veskjabjófur — hefur blaðasölu að yfirskini RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavik hafði um helgina upp á 16 ára dreng, sem hefur lagt það fyrir sig að stela veskjum og hirða úr þeim peninga. Hef- ur drengurinn viðurkennt 21 veskisþjófnað frá því í sumar, en þá komst hann í hendur rann sóknarlögreglunnar fyrir sama af brot; viðurkenndi þá um 20 vesk isþjófnaði. Drengurinn kveðst hafa þann háttinn á, að hann kemur á vinnu staði undir því yfirskini, að hann sé að selja blöð, og þefar þá uppi jakka og kvenveski, sem eigendurnir hafa lagt frá sér, og tekur úr þeim peningaveski. í>eg ar hann hefur hirt peningana úr veskjunum, eyðileggur hann þau svo og öll skjöl og skírteini, sem í þeim eru. f þeim 21 veskisþjófnaði, sem drengurinn hefur nú viðurkennt, segist hann hafa haft um 22 þús und krónur og kveðst hann hafa eytt þvi fé öllu. komu að aðfaranótt sunnudags voru með 18—20 tonn hver og í gær voru þeir komnir út aftur og voru á svipuðum slóðum og Patreksfjarðarbátar, sem hafa aflað mjög vel að undanförnu. Þrír Flateyrarbátar voru á sjó í gær, en fjórði báturinn, sem þaðan hefur róið komst ekki vegna bilunar. í síðasta róðri fékk einn bátanna 16 tonn, en hinir minna, 5—6 tonn. Pétur Thorsteinsson frá Bíldu- dal hefur fengið mjög góðan afla undanfarið þegar gefið hefur og fékk hann 20 tonn í siðasta róðri. Er hann með troll, en vél- báturinn Andri mun hefja línu- veiðar einhvern næstu fiaga. Þeir 9 Bíldudalsbátar, sem stunda rækjuveiðar hafa fengið sérlega góðan afia undanfarið og um hádegið hafa þeir yfirleitt verið búnir að fá 600 kiló, en það er það magn sem þeir mega koma með úr ferð. semjari mundi leggja fram sáttatillögu, ef samkomulag næðist ekki á fundinum, en slík tillaga var ekki komin fram nokkru eftir miðnætti, er blaðið fór í prentun. Leggi sáttasemjari fram sáttatillögu er skylt að leggja hana fyrir fundi í félögum allra deiluaðila og fer þá fram atkvæðagreiðsla um hana í félögum yfirmanna, undirmanna og útvegsmanna um land allt. Aðilar verða þá að koma sér saman um fram- kvæmd þeirrar atkvæða- greiðslu og þann tíma sem hún tekur. m m % Margt var um manninn á ísn-1 um á Rauðavatni um helgina | er Sveinn Þormóðsson tók < þessa mynd. En skjótt skipast veður í lofti — í gærmorgun I var komin úrhellis rigning og ( vatnselgur mikill á vegum en( í gærkvöldi var komin norð- . anátt, sem fór vaxandi, svo að' Þess verður líklega skammt ( að bíða að menn, hestar og( bílar geti á ný leikið listir sin ( ar á hálum ís Rauðavatns. Togoiinn fnrinn ÞÝZKI togarinn Glúcksburg frá Kiel lét úr höfn í Reykjavík síð- degis á laugardag, en hann kom hingað á fimmtudagsmorgun eft- ir að fjórir skipverjar hötfðu í öl- æði hótað að drepa skipstjóra og stýrimann. Sitja fjórmenningarn ir enn í Hegningarhúsinu í Reykjavík, en í stað þeirra sendi útgerð togarans tvo menn hing- að og fóru þeir út með togaran- um á laugardag. Vinna við hitaveitu í Ar- bæjarhverfi aö hefjast Framkvæmdir við að leggja hitaveitu í nær allt Árbæjar- hverfið eru nú að hefjast. Er verið að ganga frá samningum við verktakana Hlaðprýði h.f. og Ólaf Guðbjörnsson, sem hafa tek ið að sér lagnir í götur og heim að húsunum í hverfinu fyrir 14 milljónir 42 þúsund krónur. Er þetta mikla verkefni um það bil að hefjast og er ætlunin að sam- býlishúsin í hverfinu verði bú- in að fá hitaveitu fyrir næsta vetur. Munu 35—45 menn að jafnaði fá vinnu við þessa hitaveitu- lagningu, og hefur þessvegna verið fengið lán hjá Atvinrxu- trygginigarsjóði til að flýta verk inu, sem hefst strax eins og áður er sagt. Mbl. spurði Jóhannes Zoega, hitaveitustjóra, nánar um þess- ar framkvæmdir hjá Hitaveit- unni. Hann sagði, að ætlunin unin væri að leggja hitaveitu í Ár bæjarhverfi, Breiðholtshverfi og hluta af Fossvogshverfi á þessu ári og næsta, en til þess þyrfti mieiri boranir í sumar og einnig fullnaðarfrágang á holunum við Elliðaárnar. Yrði byrjað að bora í vor og haldið áfram fram eftir sumri. Fyrsta verkefnið af þessum, sem að ofan eru nefnd, er lagn- ing í Árbæjarhverfið, sem nú er að hefjast. Hefur fengizt lán hjá Atvinnuleysistryggingarsjóði till þess og fleiri verka, siem verður til þess að hægt er að auka hitaveituframkvæmdir, að því er hitaveitustjóri sagði. Er ætlunin að heitt vatn verði komið í öll sambýlishúsin í Árbæjarhverfi í haust, og í húsin neðan við Hraunbæ á næsta ári, eða jafn- vel næsta haust, ef aðstæður leyfa en hitaveitustjóri kvað ekki séð fyrir hvort það reynd- ist mögulegt. JÓLAPAKKAR ÓKOMNIR ÝMSIR erfiðleikar hafa ver- ið á sambandi fslands við um- heiminn undanfiarið. Sæsímakap- allinn Scotice er enn slitinn og fer því ta'Jsamband við Evrópu gegnum Kanada. Símritarar 1 Bretlandi gerðu mörgum grikk með verkfalli sínu og verkfall hafnarverkamanna á austur- strönd Bandaríkjanna sem stað- ið hefur frá því fyrir jól hefur valdið því að ýmsir, sem áttu von á jólagjöfum í sjópósti frá Bandaríkjunum eru enn ekki búnir að fá þær. Matthías Guðmundsson póst- meistari sagði Morgunblaðinu 1 gær, að póstinum bærust öðru hverju kvartanir frá fólki, sem ekki væri enn farið að fá pakka, sem það hefði átt von á að fá í skipspósti fyrir jól. Væri ástæð- unnar sennilega að leita í hafnar verkfallinu í USA og því þýddi lítið að reyna að grennslast fjrr ir um þessar sendingar fyrr en því væri 'lokið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.