Morgunblaðið - 11.03.1969, Page 1

Morgunblaðið - 11.03.1969, Page 1
32 SÍDUR 58. tbl. 56. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins Cífurlegt fjölmenni við útför yfirmanns egypska herráðsins, Abdel Riad, sem féll r átökunum — Kairó, Tel Aviv, Amman, 10. marz — AP — Allt var með kyrrum kjörum við Súezskurðinn í dag, en harðir bardagar Egypta og Israela geisuðu þar klukkustundum saman, bæði á laugardag og sunnudag. Enn logaði þó víða í olíuhreinsunarstöðvunum við Súez og mökk- ur lá yfir nærliggjandi borgum. Mikil ólga er með mönnum, bæði í Egyptalandi og ísrael og AP-fréttastofan sagði í kvöld að bardagar kynnu að blossa upp hvenær sem væri. í skýrslu eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um átökin, segir að Egyptar hafi byrjað skothríðina á laugardag, en niðurstöð- ur um bardagana á sunnudag liggja ekki fyrir. Yfirmaður herráðs Egyptalands, Abdel Moneim Riad var meðal þeirra sem létust í bardögunum á sunnudag, er sprengja féll skammt frá þeim stað, í borginni Ismailia þar sem hann hafði leitað skjóls. tJtför hans var gerði í Kairó í dag og segja fréttastofur, að ekki hafi annar eins mann- fjöldi sézt þar á götum síðan Nasser komst til valda. Utför- in snerist síðar upp í mótmælagöngu, og menn hrópuðu vígorð gegn Israel, til dæmis „Tortímum Israel“ og „Við heimtum vopn, við erum að fara til Súez“. Nasser Egyptalandsforseti gekk fremstur í líkfylgdinni og síðan komu fulltrúar A1 Fata skæru- liðasamtakanna, og margir hátt- settir embættismenn Arabaland- anna. Nasser sagði er honum barst fréttin um lát Riads, að Sam- einaða Arabalýðveldið hefði misst einn af hraustustu sonum sínum. „Hann var á vígvellinum í gær og féll sem hetja við skyldustörf", sagði Nasser. Ri- ad var fimmtugur að aldri. Hann hiaut herþjálfun í Banda- ríkjunum, Bretlandi og Sovét- ríkjunum, eftir að hann útskrif- aðist úr egypskum herskóla með láði. í júní styrjöldinni var Riad FRIÐRIK IX Danakonungur á sjötugsafmæli í dag. Er þess minnzt í forystugrein Morgun- biaðsins í dag og einnig er birt grein um konung á bls. 16. Margt tiginna gesta kemur til Kaupmannahafnar í tilefni afmælisins, þeirra á meðal Ólafur Norejgskonungur og Konstantín konungur Grikk- lands, sem er tengdasonur dönsku konungshjónanna. — Komu þeir til Kaupmanna- hafnar i gær, og tók Friðrik konungur á móti þeim á Kastrup-flugvelli. Einnig er Bertil Svíaprins væntanlegur í dag. Ljósm.: Ól. K. M. Frá útför Abdel Mineim Riad, yfirmanns egypska herráðsins. Gí furlegt mannhaf var á götunum og voru hrópuð vígorð gegn ísra el og krafizt hefnda vegna falls Riads. yfirhershöfðingi á jórdönsku víg stöðvunum, en var að stríðinu loknu skipaður yfirmaður her- ráðs Egyptalands. AP fréttastofan segir, að Riad hafi farið áleiðis til vígstöðvanna laust eftir íhádegi á sunnudag, þar sem sýnt hafi verið, að bar- dagar kynnu að brjótast út á hverri stundu. Klukkan 15.15 blossuðu bardagarnir upp að nýju og stóðu í nær þrjár kluikkustund ir og með öllum Súezskurðinum, frá E1 Qantara í norðri og til Port Taufiq í suðri. Báðir aðilar kenndu hinum um að hafa átt upptökin á sunnudag og sagði talsmaður ísraels, að Egyptar hefðu byrjað skothríð og sprengju kast yfir skurðinn, skammt fyrir norðan Port Taufiq og hafi ísra- elar verið tilneyddir að svara í Framhald á bls. 15 Nýja Kína: „Glæpaklíka sovézkra endurskoðunarsinna versti fjandmaður mannkynsins" Tó'kíó, Hong Kong og Moskvu, 10. marz. (AP-NTB). HLÉ hefur nú verið gert á mót- mælaaðgerðunj í Feking og Moskvu vegna árekstranna milli kínverskra og sovézkra landa- mæravarða á mörkum ríkjanna skammt frá Vladivostok fyrir rúmri viku. Ekki hefur þó dregið úr átök- unum Kínverja í garð Sovétríkj- anna, og segir fréttastofan Nýja Framhald á hls. 51 Nýkjörinn forseti landsins — ávítaður fyrir ummœli um varnir Vestur-Þýzkalands Frankfurt, 10. marz (AP) GIJSTAV Heinemann, nýkjörinn forseti Vestur-Þýzkalands, hefur vakið mikla gremju stjórnmála- leiðtoga og hlaða vegna um- mæla, sem höfð eru eftir honum í viðtali við blaðið „Stuttgarter Zeitung“ nú um helgina. Sagði Heinemann þar, að Vestur- Þýzkaland yrði að vera viðbúið því að afvopna her sinn og ganga úr Atlantshafsbandalaginu, ef þær aðgerðir gætu leitt til sam- einingar Austur- og Vestur- Þýzkalands. Heinemann var frambjóðandi jafnaðarmanna (sósial-demó- (krata) við forsetakosningarnar í Berlín á miðvikudag i fyrri viku, og naut einnig stuðnings fjölda Frjálsra demókrata. Keppinautur hans var Gerhard Schröder, varnarmálaráðherra, og fór Heinemann með mjög nauman sigur af hólmi. Tekur Heine- mann við forsetaembættinu 1. júlí. í viðtalinu við Stuttgarter Zeitung segir Heinemann m.a., að þýzki herinn yrði að vera við- búinn því að hann yrði lagður niður, ef sú ráðstöfun væri til hagsbóta fyrir stjórnmálaástand- ið. Svipað væri að segja um At- lantshafsbandalagið. „Aðild að NATO, eins og ég hef svo marg- sinnis sagt á liðnum árum, getur ekki verið lokatakmark þýzkra stjórnvalda, því að útilokað er að endurvekja samfélag þýzku þjóð arinnar innan NATO, al'veg eins og það er útilokað innan Var- sjárbandalagsins. Við verðum að vera reiðubúin til að koma okk- ur út úr þessum banda'lögum“, sagði Heinemann. Meðal þeirra, sem gagnrýnt hafa Heinemann fyrir ummælin, er Franz Josef Strauss, efnalhags- málaráðlherra. Sagði hann, að þessi hugsanagangur Heine- manns gæti haft alvarlegar af- leiðingar, og kvaðst vona að hann hætti að reyna að hafa áhrif á gang stjórnmála í land- inu. Heinemann ber að hætta öli- um stjórnmálaafskiptum er hann tekur við forsetaembættinu 1. júlí, en fram að þeim tíma hef- ur hann frjálsar hendur. Bruno Heck, aðalritari flokks kristillegra demókrata, gaf út yf- irlýsingu í dag vegna ummæia Heinemanns, og segir þar, að meðan Sovétríkin haldi fast við „árásarstefnu“ sína sé aðild að Framhald á bls. 15 Bardagarl í írak LONDON 10. marz — AP. \ ÍHarðvítugir bardagar hafal tgeisað milli íraka og Kúrda L / í fjallahéruðum Norður-íraks / l síðustu daga, að því er brezka \ \ blaðið Daily Telegraph skýrði i i frá í dag. Hafði blaðið frétt-1 / ina eftir fréttaritara sínum / I í aðalbækistöðvum Kúrda í \ i Kala Diza. Segir þar, að írak- i iar hafi gert loftárásir á ýmist /þorp og stöðvar Kúrda og/ J víða hafi brotizt út harðir \ \ bardagar. Margir óbreyttiri í kúrdanskir borgarar hafa far-1 ? izt, og tekið er fram að þar á / \ meðal sé fjöldi barna. )

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.