Morgunblaðið - 11.03.1969, Page 5

Morgunblaðið - 11.03.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969. r Þegar þið Lesið jpetta bréf, verð ég dáinn... Hinn 20. febrúar sl. bar tékkneski stúdentinn Jan Zajic eld að sjálfum sér og brenndi sig til bana í Prag til þess að mótmæla hernámi Sovétríkjanna í Tékkó- slóvakíu. Hann var 18 ára gamall. Áður hafði Zajic skrifað fjölskyldu sinni bréf, þar sem hann kveður foreldra sína og systkin og gefur þeim skýringu á verkn aði sínum. Hér á eftir fer þetta bréf í heild. „Elsku móðir mín, faðir, bróðir og systir: Þegar þið lesið þetta bréf, verð ég dáinn eða að dauða kominn. Ég geri mér grein fyrir, hvílíkum sársauka ég veld ykkur með verknaði mínum, en ég bið ykkur um að vera ekki reið. Því miður, ég veit, að ég er ekki einn í heiminum. — Ég geri þetta ekki, sökum þess að líf mitt sé óhamingju- samt heldur einmitt sökum þess að ég elska lífið of mikið. Ef til vill geri ég lífið betra fyrir ykkur með verknaði mínum. Ég veit, hvers virði lífið er og ég veit, hvers það cr mest virði. En ég vil of mikið fyrir ykkur, fyrir alla, og það er þess vegna, sem ég verð að gjalda svona mikið. Missið ekki kjarkinn eftir verknað minn. Látið Jacek( bróðir hans) nema meira svo að hann geti hefnt sín og sama máli gegnir um Marticka (systir hans). Það er aldrei unnt að vera samþykkur óréttlætinu og skiptir ekki ináli, hvað það er. Dauði minn bindur ykkur því. Mér þykir iniður, að ég gat ekki séð ykkur aftur né alla þá, sem ég unni svo mikið. Fyrirgefið mér fyrir að gera svo mjög ykkur á móti skapi. Ég sendi Jacek ljósmyndina af honum aftur. Ég unni honum mjög og virti en það var ekki aðeins hann heldur þið öll. Leyfið þeim ekki að gera vitfirring úr mér. Berið kveðjur mínar til piltanna, fljótsins og skóganna. Verið sæl og fyrir- gefið mér. Honza (gælunafn hans)“. 1 eftirskrift bað hann um að verða jarðsettur í Pra«» svo að verknaður lians gæti verið skráður ,,í augum heiinsins“. F E R M I N G A R M y N D A T Myndatökur um helgar og á kvöldin ytir ^ fermingartímann K Þantið tímanlega (j LJÓSMYNDASTOFA ÞÓRIS R Laugavegi 20 B — Sími 15602 — Heimasími 13451. ILIL4III\í KARLMANNASKÓR 8P1LAKVÖLD Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði verður fimmtud. 13. marz kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu. Góð verðlaun. — Kaffi veitingar. N E F N D I N . STAÐLAÐI sehsmíðiI I hverjgm Y VASKI SKOLVASKAR ELDHÚSVASKAR * ORAS» /lHURÐASTAL blondunarI I , TÆKI \/ STALVÖRUR SMIÐJUBÚÐIN VIÐ HÁTEIGSVEG -- 21222, Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.