Morgunblaðið - 30.03.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 196®
%
»
B(IA1£IGANFALQRhf
car rental service ©
. ' ' N '
22*0*22*
rauðarArstíg 3;
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðaotræti 13.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
Fullkomin
steypusföð
Steypustöðin hf. býður yður stein-
steypu, milliveggjaplötur, gangstétt-
arheilur, fyllingarefni og bruna.
Steinsteypan er uppistaðan í húsi
yðar og er mikilvægt að vel sé t'l
hennar vandað. Steypustöðin hf.
hefur öll þau steypuefni, sem fáan-
leg eru á markaðnum, auk þess sem
hún framleiðir og selur öörum
steypustöðvum steypuefni.
Steypustöðin hf. er fuflkomnasta
steypustöð landsins og eina steypu-
stöðin sem verksmiðjuhrærir steyp-
una. Vegna þessara nákvæmu sjálf-
virku tækja, er öruggt að rúmmál,
sigmál og v/c tala séu hárrétt.
T.d. var steypa frá Steypustöð-
inni hf. valin í Kópavogsbrúna þar
eð ströngustu kröfur voru gerðar
til gæða og styrkleika steypunnar.
Verzlið við Steypustöðina hf., það
er yður hagkvæmast.
- /.o.G.r. -
I.O.G.T.
Barnastúkan Æskan nr. 1,
heldur fund í Templarahöllinni
við Eiríksgötu kl. 1,30 í dag. —
Inntaka nýrra félaga, leikþættir,
þrautir, upplestur og fleira.
Rætt um skemmtun á vegum
barnastúknanna, kórfélagar eru
allir beðnir að mæta.
Gæzlumenn.
FÉLAGSLÍF v
Páskadvöl í Skálafelli.
Hin árlega páskadvöl í skíða-
skála KR í Skálafelli hefst
fimmtudaginn 3. apríl. Dvalar-
kort verða afhent í KR-heimil-
inu við Kaplaskjólsveg á morg-
un (mánudag) milli kl. 20,30 og
22,00. Félagsmenn skiðadeildar
ganga fyrir um páskadvöl. Inn-
ritun nýrra félaga fer fram á
sama stað og tíma. Uppl. verða
gefnar í síma 34959.
Skiðadeild KR.
0 Mjólkur-fernurnar
Húsmóðir skrifar:
Velvakandi góður. Þú birtir
fyrir nokkru hressilegt bréf frá
„Samsölukerlingu". Tími var til
kominn að hljóð heyrðist úr þeirri
átt svo mjög sem rætt hefur verið
um mjólkurmálin. Nafnið „sam-
söluk erling" kann ég þó ekki við,
því þar sem ég þekki til vinna
við afgreiðslu bráðmyndarlegar
stúlkur eða vingjarnlegar, full-
orðnar konur.
Sjaldan hef ég orðið var við
dónaskap viðskiptavina, en þó
hefur komið fyrir að einstaka hef
ur snúið upp á sig, verið með
nöldur eða ósanngjarnar athuga-
semdir. En sé mikið um slikt skil
ég að eríitt geti verið við að
una og kyngja því möglunarlaust,
að „viðskiptavinurinn hafi alltaf
rétt fyrir sér“.
Eitt er það þó í bréfi samsölu-
frúarinnar, sem ég er ekki vel
ánægð með. Henni finnsit það ó-
þarft, að þeim í mjólkurbúðun-
um sé borið á brýn, að þær selji
fernur á „bakvið". Ég vona að
rétt sé að svo lítið sé af því gert
að ekki sé orð á gerandi, en það
á sér þó stað. Ég verzla til skipt-
ist í þremur mjólkurbúðum og I
öllum þeirra hef ég orðið þess
vör. Rétt fyrir hádegið einn dag
inn kom virðulegur lögfræðingur
inn i eina búðina og án nokk-
Nýkomin sending
AF ENSKUM KJÖLUM
KJÖRGARÐUR
vefnaðarvörudeild.
í KJÖRGARÐI
Peer Gynt garnið komið.
Mikið litaúrval.
Ný mynstur.
KJÖRGARDUR
Sími 18478.
Sumarbústaðaeigendur
SVAMPDÝNUR MEÐ AFSLÆTTI.
TILVALDAR i SUMARBÚSTAÐI OG VEIÐIHÚS.
SNIÐNAR EFTIR MÁLI.
VELJUM ÍSLENZKT-//'T\
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Pétur Snæland hf.
VESTURGÖTU 71. SÍMI 24060.
ítalskar peysur,
margar gerðir,
mikið Iitaúrval.
Glugginn
Laugavegi 49.
urra orðaskipta náði afgreiðslu-
konan í tvær fernur „á bakvið"
og lét hann hafa. í annað sinin
kom ungur piltur inn í búðina
þar sem ég var. „Æ, þú er kom-
inn, þú ert seint á ferðinni í dag“,
sagði sú, sem afgreiddi. „Ég hélt
að þú kæmir ekki og er búin að
selja fernuna þína, en ég skal
muna eftir þér á morgun." — í
þriðju búðinni var náð i fernu
fyrir litla telpu orðalaust.
En samkvæmt bréfi samsölu-
frúarinnar eiru þetta undantekn-
ingar. Ég ren.gi ekki orð hennar,
en vona vegna okkar hinna, sem
höfum ekkert nema gott eitt um
afgreiðslufólkið í mjólkurbúðun-
um að segja, að alveg verði tek-
ið fyrir það. Ástæðulaust er að
gefa þeim, sem alltaf eru að
nöldra, vopn upp í hendumar.
Húsmóðir.
0 Hélt að stúlkurnar
gætu flett upp í
símaskrá landsins
Hér eina nóttinia bráðlá mér á
að hriragja til manns, sem fyrir
alllöngu hafði flutzt suður í Garða
hrepp. Síminn hafði meinað hon-
um að halda sínu gamla núm-
eri, svo að bann hafði fengið nýtt
sem ekki var í símaskrá. Ég
hringdi þá í 03 til þess að fá
upplýsingar um númer mannsins,
en þar sem klukkan var orðin
00.10 fékk ég ekkert svar.
Það var þá ekki um annað að
ræða — ef ég átti að fá vitn-
eskju um númerið, en hringja í
02. Hugsaði ég með mér að stúlk-
umar þar gætu eins vel flett upp
í eimi réttu símaskrá landsins og
sagt mér númerið. En viti menn.
Stúlkan sagðist því miður ekki
geta flett upp í skránni. Yflr-
menn hennar bönnuðu henni það.
Ég spurði þá, hvort þeir bönn-
uðu starfsstúlkum Landssímans að
sýna viðskiptamönnum símans
lipurð og svaraði stúlkan þá:
„Það má ef til vill orða þetta á
þanm veg.“
Landsíminn bregzt skyldusinni
— sem á að vera að halda úti
fullkominni símaskrá. Hvaða gagn
er I síma, sem enginn veit núm
erið á? Þess vegna getur Uands-
siminn ekki lokað 03 — þar verð
ur að vera opið allan sólarhring
inn. Krafan um slíkt er réttmæt
og skýlaus. Nógu dýrt er drott-
ins orðið og hvers eiga þeir sím-
notendur að gjalda, sem ekki eru
í skránni gömlu. Þeir hafa ekki
full not af síma sínum.
Þar eð ég er nú farinn að ræða
um þessa eldgömlu símaskrá þá
sakar ekki að geta þess, að sjálf-
ur hef ég ekki komizt í hana.
Ég varð nefnilega ekki simnot-
andi, fyrr en hún var nýkomin
út. Hins vegar er annar maður
skráður fyrir mínu númeri I
skránni og í rúmt ár hefur ekki
linnt látunum. Allir vilja tala við
hinn manninn, sem áður hafði sim
ann. Þaranig er það að hafa eld-
gamlar sírraaskrár — Símaskrána
á að endurskoða á hálfs árs fresti
í ört vaxandi borg.
Með kærri þökk fyriir birting-
uraa.
Símnotandi.
Veitingareksfur
Óska eftir að taka á leigu veitingastofu eða hús Rekstur á fé-
lagsheimili og sumargistihúsi og fleira kemur til greina. Hef
margra ára reynslu í veitinga- og gistihúsarekstri.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. apríl merkt: „2648".
100°Jo LÍFRÆNN
BLÓMAÁBURÐUR
FÆST I FLESTUM BLÓMABÚÐUM.
MAXICROP
foí höttí&níÆj
H E R R A D E I L D
Fermingarkápur
NÝIR UTIR
Laugavegi 31.
**