Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 6

Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1969 LOFTPRESSUR Tökum að okkur alla lott- pressuvinnu. Vélaleiga Símonar Símonarsonar Sími 33544. IBÚÐIR 1 SMlÐUM Til sökj eru 3ja og 4ra herb. íbúðir við Eyjabakka 13 og 15. Óskar og Bragi sf. Uppl. á staðnum. Heimas. 30221 og 32328. HANGIKJÖT Ennþá bjóðum við nýreykt lambahangikjöt á gamla verðinu. Kjötbúðin Laugaveg 32, Kjötmiðstöðin Laugalæk. HEIMSrNDíNGAR Bjóðum eitt fjölbreyttasta kjötúrval borgarinnar. Heim- sendingargj. 25 kr. Kjötmið- stöðin Laugalæk, s. 35020; Kjötb. Laugav. 32, s. 12222. ARBÆJARHVERFI - HREINSUN Fatamóttaka f. Efnal. Lindina. Pressun, frágangshreinsun, hraðhreinsum allan algengan fatnað samdægurs. Hrað- hreinsun Arbaejar, Rofabæ 7. KLÆÐI OG GERI VIÐ bólstruð húsgögn. Bólstrun Helga, Bergstaðastraeti 48, s 21032 MÁLMAR Kaupi eins og áður alla málma nema járn langhæsta verði, staðgreitt. — Arinco, Skúlag. 55 (Rauðarárport). Símar 12806 og 33821. RÁÐSKONA Embættismaður úti á landi óskar eftir ráðskonu. Ágætt húsnæði. Lítið heimili. Til viðtals að Hótel Vík eða í síma 32920. KONA UM ÞRÍTUGT sem alltaf hefur starfað 3ð verzlunarstörfum, nú síðustu sex ár erlendis, óskar eftlr afgreiðslustarfi. Uppl. í sima 34754. GOTT HEY til sölu. Upplýsingar í síma 36324. TIL SÖLU alfræðasafnið Encyclopedia Britannica, nýtt. Hagstætt verð. Uppl. í síma 32725. VINNA Starfsmaður óskast. Mætti vera úr sveit. Upplýsingar i síma 30314. EF ÞÉR EIGIÐ gamla klukku, stól, rokk eða aðra gamla muni þá vinsam- legast hringið í síma 34699 eftir ki. 7. TAKIÐ EFTIR Dagstofuhúsgögn, borðstofu húsg., svefnherbergishúsg., vegghúsgögn. Gamla verðið. Húsgagnaverzlunin Hverfis- götu 50, simi 18830. SUMARDVÖL fyrir telpur 5—8 ára Þorbjörg Þorbjamardóttir, Stóru-Gröf, Skagafirði. Uppl. í síma 41689. Til styrktar Tjaldanesi N.k. miffvikudag, 2. aprfl, held- ur Lionsklúbburinn Þór almennan vorfagnað að Hótel Sögu. Er fagn- aðurinn haldinn til styrktar barna heimilinu að Tjaldarnesi og ann- arri líknarstarfsemi, sem klúbbur- inn hefur styrkt und&nfarin ár. Það var ætlun Þórsfélaga að halda fagnaðinn 9. marz sX, en þá varð að aflýsa honum á síðustu stundu vegna bilunar sem varð í hitakerfi Súinasaiar Hótel Sögu. Fjölbreytt skemmtiatriði verða á vorfagnaðinum. Þar mun írú Sig- urlaug Rósinkranz syngja einsöng við undirleik Carl Billich, Bryn- jólfur Jóhannesson leikari flytur gamanþátt, 14 Fóstbræður syngja, Andrés Björnsson útvarpsstjóri les upp og Indriði G. Þorsteinsson, Helgi Sæmundsson og Friðfinnur Ólafsson fara með visnaspaug. Þá verður einnig efnt til happ- drættis, og eru vinningar í því rnargir og góðir. Ber að nefna Gullfossferð til Skotlands, mál- verk eftir Jakob Hafstedn, flug- ferð til Akureyrar o.fl. og fl. Lionsklúbburinn Þór hefur á und anförnum árum aðallega unnið að því að styrkja barnaheimilið að Tjaldanesi með fjárframlögum, og þar dveljast sem kunnugt er, van- gefin börn. Mjög miklar og aðkall- andi framkvæmdir eru framundan í Tjaldanesi, og segja má að þar vanti allt fyrir utan húsnæði og brýnustu nauðsynjair. Þarer t.d. jarðhiti á staðnum, en ekkert fé er til þess að byggja sundlaug og leikfimisal vantar einnig algjör- lega. Annað aðalverkefni Lionsklúbbs ins Þórs er að styrkja þá sem þurfa að leita hjartalækninga ei'- lendis. Hafa Lionsfélagamir haft samband við féiaga sína erlendis og með því móti náð að greiða verulega götu margra þeirra er hafa orðið að leita hinna mjög svo kostnaðarsömu aðgerða erlend is. Fólk hefur jafnan brugðist vei við þegar Lionsklúbburinin Þór hef ur leitað aðstoðacr þess, og er að vænta að svo verði einnig nú. Með þvi að sækja vorfagnaðinn að Hó- tel Sögu á miðvikudagskvöldið ger ir fólk tvennt í senn: Nýtur ágætra skemmtikrafta, er allir gefa sitt framlag, og sityrkir gott málefni. Það skal ítrekað að vorfagnað- urinn er öllum opinn. Hefst hann kl. 9, en kvöldverður verður fram- reiddur frá kl. 7. Aðgangur kost- ar 150 kr. (Frá Lkl. Þór). 75 ára er á morgun, 31. marz, Jónas Fr. Guðmundsson, Hring- braut 80, Reykjavík. FRÉTTIR Þakkir til Leikfélags Reykjavík- ur. Blinda fólkið í Ingólfsstr. 16 og Bjarkairgötu 8 semdir Leikfélagi Reykjavíkur sínar innilegustu þakkir fyrir leikhúsboð þess á Marrn og Konu sL fimmtudag. Kvenfélagið Keðjan Fundur á Bárugötu 11, fimmtudag- inn 10. april kl. 9. Hið íslenzka náttúru fræði f élag heldur fræðslusamkomu í 1. kennslustofu Háskólans mánu- daginn 31. marz kl. 8.30. Pró- fessor Þorbjöm Sigurgeirsson, flytur þar erindi um segulsviðs mælingar úr lofti og gerð jarð- skorpunnar á suðvesturlandi, og sýnir geislamyndir, erindinu til skýringar. Vottar Jehóva í Reykjavík, að Brautarholti 18 kl. 4, sumnudaginn 30. marz, verður fluttur fyrirlestur „Hvers vegna þjóðirnar verða að athlægi í aug- um Guðs“. Þessi fyrirlestur verður einnig flutt ur í Hafnarfirði og Keflavik á sama tíma kl. 4. sunnudaginn 30. miarz. Dansk Kvindeklub afholder sit næste möde tirsdag d. 1. apríl. Vi mödes í „Nordens Hus“ kl. 20.30. Bestyrelsen. Starfiff á Bræðraborgarstí g34 Vei'ið velkomin á samkomu okk- ar á Pálmasunnudag kl. 8.30. Æskulýðsstarf Neskirkju Fundir fyrir stúlkur og pilta verða 1 Féíagsheimilinu mánudag- inn 31. marz kl. 8.30 Opið hús frá kl. 8. Frank M. Halldórsson. Boðun fagnaðarerindisins Almenn samkoma Hörgshlið 12, Reykjavík sunnudaginn 30. marz kl. 8. Kvenfélagskonur Njarðvíkum Athugið að fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl kl. 9 í Stapa. Skemmtiatriði. Kaffiveit- ingar. Heimatrúboðið Almennar samkomur verða hvert kvöld Kyrru vikunnar fram á föstu dag og hefjast þær kl. 8.30 hverju sinni. AUir velkomnir. Bústaðasókn Aðalfundur Bústaðasóknar verð- ur haldin að lokinni guðsþjónustu í Réttarholtsskóla sunnudaginn 30. marz kl. 2. Sóknamefndin. Kvenfélagið Hrund, Hafnarfirði heldur skemmtifund í Félagsheim- ilinu miðvikudaginn 2. apríl kl. 8.30 Bingó og fleira. Kvenfélag Langholtssóknar heldur fund í Safnaðarheimilinu þriðjudaginn 1. april kl. 8.30. Filadelfia Keflavík Almenn samkoma sunnudaginn j 30. marz kl. 2 Allir velkomnir. Sjálfsbjargarfélagar, Reykjavík Þriðjudagskvöldið 1. apríl verð- ; ur „Opið hús“ að Marargotu 2 Æskilegt að fólk mæti frá kl. 8—9 : Félagsmálanefnd. Hjilpræðisherinn Foringjar og hermenn taka þátt Kl. 8.30 Hjálpræðisherssamkoma. Vitnisburður. Guðs orð. Allir vel- komnir. Bænastaðurinn Flókagötu 10 Kristilegar samkomur sunnudag inn 30. marz. Sunnudagaskóli kl. 11 f.h. Almenn samkoma kl. 4 Bæna- stund alla virka daga kl. 7 e.m. Allir velkomnir. Kristileg samkoma í samkomu- salnum Mjóuhlíð 16 sunnudagskv. 30. marz kl. 8. Allt fólk hjartan- lega velkomið. Filadelfia, Reykjavík Almenn samkoma sunnudagskv. kl. 8. Allir velkomnir. KFUM og K, Hafnarfirði Kristniboðssamkomá á sunnudags kvöldkl. 8.30 Séra Frank M. Hall- dórsson talar. Vinstúlkur syngja. Tekið á móti gjöfum til kristni- boðsins í Konsó. Allir velkomnir. Kvenfélagið Seltjörn Fundur verður haldinn í Mýrar- húsaskóla miðvikudaginn 9. apríl kl 8.30 Spiluð verður félagsvist. Kvenfélagskonur, Njarðvíkum Athugið þriðjudaginn 1. apríl kl. 9 í Stapa. Skemmtiatriði. Kaffi- veitingar. Kvenfélag Garðahrepps Félagsfundur verður haldinn á Garðaholti þriðjudaginn 1. apríl kl. 8.30 Spilað verður Bingó Kvenfélagskonur, Keflavík * Fundur í Tjarnarlundi þriðjudag inn 1. apríl kl. 8.30 Orlofsnefnd Keflavíkur verður með páskabingó eftir fund. Gestir velkomnir Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund í Sjómannaskólan- um þriðjudaginn 1. apríl kl. 8.30 Skemmtiatriði. Litskuggamyndir. Sjá, herrann Drottinn kemur sem hetja, og armleggur hans aflar hon- um yfirráða (Jes. 40: 10). I dag er sunnudagur 30. marz og er það 89. dagur ársins 1969. dagur ársins 1969. Eftir lifa 176 dagar. Pálmasunnudagur. Dymbil- vika. Dymbildagar. Efsta vika. Ár degisháflæði kl. 4.35. Slysavarðstofan i Borgarspitalan- um er opin allan sólarhringinn. Sími 81212. Nætur- og helgidagalæknir er í síma 21230. Neyðarvaktin svarar aðeins & virkum dögum frá kl. 8 til kl. ? sirni 1-15-10 og laugard. kl. 8-1. Keflavikurapótek er opið virka daga kl 9-19, laugardaga k!. 9-2 og sunnudaga frá kl. 1-3. Borgarspítalínn í Fossvogi Heimsóknartími er daglega kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30 Borgarspítalinn i Heilsuverndar- stöðinni Heimsóknartimi er daglega kl. 14 00 -15.00 og 19.00-19.30 Kvöld- og helgidagavarzla í lyf ja búðum í Reykjavík vikuna 29. marz til 5. april er í Holtsapóteki og Laugarvegsapóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði, helgarvarzla laugard.—mánudagsm 29.—31. marz er Jósef Ólafsson, sími 51820. Kópavogsapótek er opið virka daga kl. 9—19, laugardaga kd. 9—2 og sunnudaga kl. 1—3 Næturlæknir í Keflavík 25.3—26.3 Guðjón Klemenzsoti 27.3 Kjartan Ólafsson 28.3.29.3 og 30.3 Arnbjörn Ólasfson 31.3 Guðjón Klemenzson Ráðleggingarstöð Þjóðkirkjunnar er í Heilsuverndarstöðinai (Mæðradeild) við Barónsstíg. Við- talstími prests er á þriðjudögum og föstudögum eftir kl. 5. Viðtals- cími læknis er á miðvikudögum eftir kl. 5. Svarað er í síma 22406. Bilanasimi Rafmagnsveitu Rvík- •jt á skrifstofutima er 18-222 Næt- ur- og helgidagavarzla 18-230. Geðverndarfélag fslands. Ráð- gjafa- og upplýsingaþjónusta að Veltusundi 3. uppi, alla mánudaga kl. 4—6 síðdegis, — sími 12139. Þjónustan er ókeypis og öllum heimil. AA-samtökin i Reykjavík. Fund- lr _eru sem hér segir: í félagsheimilinu Tjarnargötu 3c. Á miðvikudögum kl. 9 e.h. Á fimmtudögum kl. 9 e.h. Á föstudögum kl. 9 e.h. í safnaðarheimilinu Langholts- kirkju: Á laugardögum kl. 2 e.h. f safnaðarheimili Neskirkju: Á laugardögum kl. 2e.h. Skrifstofa samtakanna Tjarnar- götu 3c er opin milli 5-7 e.h. alla virka daga nema laugardaga. Sími 16373. AA-samtökin i Vestmannaeyjum. Vestmannáeyjadeild, fundur fimmtudaga kl. 8.30 e.h. í húsi KFUM, Orð lifsins svara í síma 10000. RMR-2-4-20-VS-FR-HV I.O.O.F. 3 = 1503318 = G.H n Gimli 59693317 — Frl. Frðsl. n Edda/Hamar 5969417 — 1 Hvítabandið heldur fund í Hallveigarstöðum þriðjudag 1. apríl fundurinn hefst kl. 8.30 Ungmennafélagið Afturelding í Mos fellshreppi minnist 60 ára afmælis síns með samsæti að Hlégarði laug- ardaginn 12. apríl kl. 3 og býður þangað félögum sínum og öðrum sveitungum, vinum og stuðnings- mönnum. Skemmtun verður haldin kl. 9 á sama stað. Bræðrafélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík heldur aðalfund sunnudaginn 30. marz kl. 3 í Tjarnarbúð, uppi stjórnin Jtvenfélagið Hrönn heldur afmælisfund í tilefni af 20 ára afmæli félagsins miðviku- daginn 2. apríl kl. 20, að Báru- götu 11. Skemmtiatriði. VISUKORN BÓKIN Fagrar listir, ljóð og söng létt un» hugann streyma, línur allar þruma í þröng, þrótt og leikni geyma. Eiríkur Einarsson frá Réttarholti sá NÆST bezti Frú Hansen kvartaði við lækni sinn yfir því, að reikningurinn væri of hár. „Þér megið ekki gleyma, kæra frú, að ég vitjaði sonar yðar ellefu sinnum, meðan hann lá í mislingunum.“ „Já, en þér megið heldur ekki gleyma, að hann smitaði allan skólann.“ Hin kunna hljómsveit, Sextett Óiafs Gauks, sem ásamt söngkon- unni Svanhildi hefur skemmt gest- um Hótel Borgair í vetur, er niú að færa út kvíarnar, og hefur ráð- izt til að leika í samkomuhúsinu Þórscafé tvö kvöld vikunnar á næstunni, nefnilega á mánudags- og þriðjudiaigskvöldum. Hljomsveitin mun sem fyrr skemmta að Hótel Borg síðairi hluta vikunnar og um helgar, enda er hún fastráðiin þar. Væntanleg er á markaðinn innan skiaimms ný hljómplata með Sext- ett Ólaís Gauks, Svianlhildi og Rún ari Gunnarssyni, nýr sjónvarpsþátt ur í flokknum „Hér gala gaukar" er í uppsiglingu, og sitthvað fleira er að snúast hjá hljómsveitinni. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Rúnar Gumnarsson, Andrés Ingólfs son, Svanhildur, Ólafur Gaukur, hljómsveitarstjóri, Cairl Möliem og Páll Valgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.