Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 8

Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1069 g S6CAKÞATTUR í UMSJÓN SVEINS KRISTINSSONAR SKÁKÞING ÍSLANDS 1969 „Kyníegt að vera næstum ald- ursforseti mótsins" sagði Friðrik Ólafsson. F,ins og fram hefur komið í fréítum, hófsi Skákþing íslands s.l. laugardag og lýkur þriðju- daginn 8. apríl næstkomandi. f laridsliðsflokki eru tólf þátttak endur, og eru það eftirtaldir m m: Arinbjörn Guðmundsson Björn Sigurjónsson Björn Þorsteinsson Eysteinn Þorbergsson Friðrik Ólafsson Gnðmundnr Sigurjónsson HaUdór lónsson Haukur Angantýsson Jóhann Þórir Jónsson Jóhann örn Sigurjónsson Jón Hálfdánarson Jón Kristinsson. Þeir fjórir menn sem efstir verða í þessari keppni, munu skipa landslið íslands til jafn- Iengdar 1970. Varla þarf, að efa það, að Friðrik ólafsson hreppi efsta sætið á mótinu, og sennilegt er, að núverandi Skákmeistari ís- lands, Guðmundur Sigurjónsson, hreppi annað sætið, því hann býr bæði yfir miklu öryggi og sókn arkrafti, eins og meðal annars kom fram í híniní fallegu vinn- ingsskák hans gegn Ungverj- anum Szabó á alþjóðlega skák- mótinu hér í fyrravor. Það var einhver glæsilegasti vinning ur, sem fslendingur hefur nokkru sinni hlotið gegn erlendum stór meistara. Hverjir munu hreppa hin tvö landsliðssætin? Það fer að kárna gamanið, ef maður á að geta sér til um það. Fjórir menn þykja mér þó einna líklegastir til þess. Það eru þeir Jón Kristinsson, Freysteinn Þorbergsson, Hauk- ur Angantýsson og Arinbjörn Guðmundsson. Ég nefni þarna Hauk Angantýsson, sem er lang yngstur þessara fjögurfa manna — eitthvað mjög nálægt tvítugu — vegna hinnar glæsilegu frammistöðu hans á Skákþingi fs- lands í fyrra, þar sem hann hlaut annað sætið á eftir Guð- mundi Sigurjónsisyni, svo og vegna góðrar frammistöðu hans á erlendum vettvangL — Hauk- ur er djarfur og bjartsýnn sókn armaður — stundum kannski ein um of bjartsýnn, hann er vel að sér í taflbyrjunum og hefur mjög vaxið að öryggi hin síðustu árin. Jón Kristinsson, sem varð skák meistari Reykjavíkur í febrúar s.l., er án efa sá skákmaður okk mm SUKKULAÐI VANILLA - NOUGAT NÝR IS NÝJAR UMBÚÐIR ER AÐ KOMA í VERZLANIR I ar, sem einna mesta rækt leggur við skákina og stundar hana af einna mestri einbeittni um þess ar mundir. Arangur hans á Ol- ympíuskákmótum þeim sem hann hefur tekið þátt í, er mjög at- hyglisverður. Jón býr yfir dæmi gerðri íslenzkri seiglu og lætur ekki hlut sinn að óreyndu, þótt erlendum meisturum. - Má vænta hann sitji andspænis frægum erlendum meisturum. Má vænta hins bezta af Jóni á þessu móti. Freysteinn Þorbergsson hefur dvalizt mestmegnis utan höfuð- borgarsvæðisins síðari árin, og trúlega hefur það háð honum nokkuð og þó líklega ekki eins mikið og ætla mætti í fljótu bragði. Kemur hvort tveggja til, að hann hefur á þessu tíma- bili tekið þátt í mótum hér í borg við aðskiljanleg tækifæri — ekki síður alþjóðlegum mót- um en alinnlendum — og auk þess er hann sérfræðingur í að halda sér í æfingu og góðit standi utan móta, með byrjana- rannsóknum og ýmis konar við- haldsaðgerðum öðrum. Freysteinn er líklega einhver lærðasti meistari okkar í tafl- byrjunum, enda dvaldi hann áll- lersgi í Gósenlandi skákbyrjenda fræðinnar, Rússlandi, og sem skákmaður munh ann hafa haft gott af þeirri dvöl, þótt ekki sé hann hlynntur því að taka upp kommúnistiska þjóðskipulags- hætti hér á landL Arinbjörn Guðmundsson er ein hver gætnasti skákmaður okkar, mjög öruggur varnarmaður, en lætur mun lakar að tefla sókn. jafnteflum á mótum, jafnt gegn veikum sem sterkum mönnum. — Ég spái því, að Arinbjörn vinni fáar skákir á þessu móti, en tapi fáum, en þó geri ég ráð fyrir, að hann vinni fleiri en hann tapar og verði þannig alla vega fyrir ofan miðju í mótinu. Enn mætti nefna Björn Þor- steinsson hráðskákmeistara sem mann, er til greina kæmi, að næði æsti í landáliði að þessu sinni, en gallinn er sá, að Björn er svo mistækur skákmaður, að það er ávallt varasamt að spá nokkru fyrir fram um frammi- stöðu hans á mótum. Björn hef- ur tvímælalaust mikla hæfileika sem skákmaður, en virðist stund um tefla af hálfgerðu kæruleysi, en sMkt er ekki gott til árang urs í skák. Svo mætti auðvitað nefna Hall dór Jónsson, Skákmeistara Norð- urlands og Jón Hálfdánarson, þeir gætu báðir lent ofarlega í mótinu. Og raunar er þetta svo — að Friðrik auðvitað frá töld- um — að mjög erfitt er að spá um, hver annan vegur í þessari keppni, og legg ég því hér með frá mér spádómskuflinn. Daginn áður en mótið byrjaði, hringdi ég í stórmeistarann og spurði hann að því, hvort hann byggist ekki við því, að vinna mót þetta Iéttilega. — Ekki léttilega, svaraði Frið rik. — En þú vinnur það samt? — Það má kannski segja, að ég hafi góða möguleika til þess. — Hverja teTurðu skæðustu andstæðinigana? Guðmund Sigurjónsson og Jón Kristinsson, og svo Freystein og Arinbjörn, enda þótt Arinbjörn stæði sig ekki sérlega vel á Skák þingi Kópavogs á dögunum. — Þú nefnir að sjálfsögðu fs landsmeistarann, Guðmund Sig- urjónsson fyrstan. — Já, hann sýndi bæði á al- þjóðlega skákmótinu hér í fyrra vor, svo og á síðastliðnu Olym- píumóti, að hann er orðinn mjög sterkur skákmaður. — Eru fremstu skákmenn okk ar upp til hópa álíka sterkir og fremstu skákmenn Hollendinga? — Líklega eru nú Hollending- ar nokkru sterkari, og stafar það einkum af því, að þeir eru bet- ur að sér í taflbyrjunum og öðr- um skákfræðum. — Auk þess höf um við meiri minnimáttarkennd gagnvart erlendum skákmeistur um en Ho'llendingar. Að öðru ieyti höfum við sennilega ekkert minni hæfileika í skák en Hol- lendingar. — Stúderar þú nokkuð undir svona létt mót? — Ég hef nú bara ekki haft tíma til þess undanfarið, þó ég hefði viljað. — Nokkuð fleira, sem þú getur frætt mig um? — Ekki, nema það væri það, að mér finnst hálfkynlegt að vera næstum aldursforseti í Landsliðsflokknum nú. Frey- steinn og Arinbjörn eru víst þeir einu, sem eru eldri en ég. — Já, þú ert að verða gamall. — Ekki finnst mér það nú, segir Friðrik, og ég sé fyrir mér bros hans hinum megin á línunni. Svo kveð ég stórmeistarann með þeirri ósk, að það megi taka hann sem lengstan tíma að verða gamall. Svo slæ ég á þráðinn til ís- landsmeistarans unga, Guðmund ar Sigurjónssonar. — Þú reiknar auðvitað með því að vinna þetta mót, Guð- mundur? — Nei, ekki geri ég það nú. — Hvað kemur til? — Andstæðingarnir eru marg- ir skæðir. — Kannski einn öðrum frem- ur? O, já ekki ber því að neita. — Þú nærð þó öðru sæti? — Ég geri mitt bezta, en tel hvergi nærri öruggt að ég nái öðru sæti. Ég hefi eiginlega ekk ert teflt í vetur. — Nú er Landsliðið skipað fjórum mönnum. Setjum svo, að þið Friðrik verðið i tveimur efstu sætunum, hverja teldirðu þá lík legasta í þvö þau næstu? Fyrst og fremst Hauk Angan- týsson. Hann er mjög sterkur skákmaður, og ég held hann sé í stöðugri framför. Nú svo koma auðvitað Arinbjörn og Freysteinn mjög til greina. Arinbjörn er að vísu sagður æfingarlítill, ef hann er mjög traustur skákmaður. — Ég var að tala við Frið- rik áðan og honum fannst hálf kynlegt, að hann skyldi vera þriðji elzti maðurinn í flokkn- um, ekki eldri en hann er. —- Hvað heldur þú um það, Guð- mundur. Heldurðu að Friðriki fari brátt að hætta að fara fram fyrir aldurs sakir? — Það finnst mér næsta ólik- legt. Ég las einhvers staðar ný- lega, að skákmenn stæðu uppá sitt bezta þrjátíu og níu ára að aldrL Og Friðrik er enn ekki nema þrjátíu og fjögurra. Sam- kvæmt því ætti aldur ekki að há honum að minnsta kosti næstu fimm árin. Friðrik sýndi líka greinilega á Fiskemótinu í fyrra, til dæmis hve hann er sífellt hugmynda- ríkur og snjall skákmaður. Hann íefldi þar margar mjög litríkar sóknarskákir, sem minntu mig talsvert á skákir Bent Larsens, þegar hann teflir sem skemmti- legast. — Hvað hafið þið Friðrik teflt margar skákir ykkar í milli? — Þrjár. — Hvernig hafa leikar farið? — Ég hefi fengið eitt jafn- tefli Það var á Fiskemótinu í fyrra. Ég þakka íslandsmeistaranum fyrir viðtalið. Hann á marga stranga daga fram undan. Dormeyer hrærivélar Höfum fenqið nokkurt magn af þeyturum í Dormeyer hrærivélar. RAFBRAUT S.F., Suðurlandsbraut 6, sími 81440.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.