Morgunblaðið - 30.03.1969, Síða 15

Morgunblaðið - 30.03.1969, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1009 15 Stóll og borð forseta Sameinaðs Alþingis, Jóns Pálmasonar var þakið glerbrotum og grjóthnullungum áður en yfir lauk. Mátti mildi heita að forseti skyldi ekki slasast. Stjórnaði Jón Pálmason þingfundi af stakri rósemi, þótt mikið gengi á úti fyrir. - þegar kommún- istar gerðu atlögu að íslenzku lýðræði ÓLGANDI MANNHAF AAUSTURVELLI Fólk brást skjótt og vel við tilmæl- um forystumanna stjórnarflokkanna og á meðan á fundi kommúnista stóð hafði rriikiTl mannfjöldi safnast saman á Aust- urvélli Varð völlurinn á skammri stundu ólgandi mannhaf yfir að líta. Þarna var komið fólk úr öllum at- vinnustéttum, karlar, konur og börn. Auk þess fór einnig fólk að hópast út í glugga í nærliggjandi byggingum, og kom sér jafnvel fyrir á húsþökum. Er gizkað á að klukkan rúmlega eitt hafi um 10 þús. manns verið samankomin á Austurvelli. Ailt fór fram með ró og spekt og fæstir munu hafa átt á neinu illu von. Brátt kom fylking útifundarmanna og blandaðist nokkuð saman við fólkið sem fyrir var. Nefndin hélt að dyrum Alþingishússins, en fékk ekki að fara inn í húsið. Réttu forsvarsmennirnir til- lögu fundarins inn um opnar dyr til Sigurðar Guðnasonar sem var tilbúnn að veita henni viðtöku. Las Sigurður tillöguna upp á þingfundinum, og hefur áður verið skýrt frá viðtökum þeim er hún fékk. JAPL OG JAML OG FUÐUR í herbúðum kommúnista upphófst nú mikið japl og jaml og fuður. Sigurður Guðnason hljóp í einum spretti upp á loft í þinghúsinu og ti'l fundarherberg- is kommúnista þar. Voru þar fyrir a.m. k. tveir af skeleggustu baráttumönnum flokksins. Ekki var viðdvölin í flokks- herberginu löng, heldur var skundað niður og út til aðalhópsins sem bomið hafði frá Miðbæjarskólanum. Skýrðu þeir frá því sera fram hafði farið innan þings og þeim viðtökum sem tillaga þeirra hafði fengið. Upp úr þessu hófust mikil köll kommúnista. Kallkór þeirra kállaði í sífel'lu — þjóðaratkvæði — þjóðarat- kvæði. Gekk svo um hríð að kommún- istar stóðu á öskrinu, en lítið virtist það hafa að segja. Hópurinn var það fámennur að raddir þeirra köfnuðu í kli'ð þeim sem jafnan verður þar sem margt fólk er samankomið. Tóku kommúnistarnir það þá til bragðs að rétta upp hendurnar í lok hverr- ar öskurhrinu. Átti það að vekja á þeim meiri athygli, og einnig að undir- strika kröfur þeirra um þjóðaratkvæða- greiðslu. Reynt var að kasta tölu á þær hendur sem á lofti voru, og er gizkað á að þær hafi verið tvö til þrjú hundruð Fólk horfði almennt með undrun á vanstil'lingu þessarra manna, en undr- unarsvipurinn breyttist fljótlega í háðs glott og voru menn jafnvel farnir að hlæja að þessum tiltektum. Þegar kommúnístar sáu að öskur þeirra og handauppréttingar mundu lít- il áhrif hafa, sáu þeir fram á að nýrra úrræða var þörf. Tóku þeir sig þá til og fóru að syngja ættjarðarsöngva, eins og t.d. ísland ögrum skorið og Ég vil elska mitt land. Hlaut þetta góðar við- tökur hjá mannfjöldanum sem tók und- ir og gerðist forsöngvari nýrra laga. En söngurinn reyndist kommúnistum þreytandi þegar til lengdar lét. Klukk- an var farin að ganga þrjú og eina sjáanlega uppskera þeirra var andúð og h áð fólksfjöldans. Þeir vissu að þingsályktunartillagan mundi brátt koma til atkvæða, og nú var að hrökkva eða stökkva fyrir þá. MOLD OG EGG Lögregian hafði skipað sér í einfalda röð eftir Kirkjustrætinu og voru lög- regluþjónarnir búnir kylfum og hjálm- um. Að baki þeirra, upp við vegg Al- þingishússins, hafði skipað sér hópur stuðningsmanna stjónnarflokkanna, komnir til að standa vörð um friðhelgi Alþingis. Inni í þinghúsinu var svo varalið lögreglunnar staðsett. Höfðu varaliðsmenn armbindi með merki lög- reglunnar sér til auðkenningar. Brátt tóku kommúnistar að kasta moldarkögglum og eggjum að Alþingis- húsinu og lögreglunni, Höfðu þeir áður komið sér fyrir í smáhópum innan mann fjöldans og var því ekki gott fyrir lög- regluna að átta sig á því hvaða ein- staklingar það voru sem köstuðu. Höfð- ust þeir því lítið að í fyrstu og ungu mennirnir sem stóðu upp við þinghúsið skeyttu því heldur ekki þótt mold og egg lentu á þeim, með einni undan- tekningu þó. Eggi var kastað að einum þeirra, sem henti það á lofti og sendi það aftur til föðurhúsanna. Fékk sá til- tal af félögum sínum, sem ákveðið höfðu að svara í engu árásum komm- únista. Meðfram gangstigum Austurvállar var raðað hraungrýti og ekki leið á löngu þar til ofbeldismennirnir tóku að rífa það grjót upp og kasta að húsinu. Brotnuðu þá þegar nokkrar rúður í fundarsal neðri-deildar og einnig í skrifstofu forseta íslands, sem er á neðstu hæð hússins. Þegar hér var kom- ið sögu mundaði lögreglan kylfur sínar og ýtti fólkinu sem næst stóð eilítið frá húsinu. HLJÓÐ UR HORNI Meðan á þessum átökum stóð var at- kvæðagreiðslu um tillöguna að ljúka. Hé'ldu þingmenn rósemi sinni þótt grjót og glerbrot flygju inn á gólfið og á borð forseta þingsins. Mátti það vissu- lega mildi teljast að enginn þingmað- ur skyldi slasast alvarlega. Einu telj- andi meiðsli sem urðu var að Hetmann Guðmundsson fékk stein í hendina og flumbraðist af, og Skúli Guðmundsson fékk glerflís í augað. Kommúnistarnir fylgdust ve'l með því sem var að gerast innan veggja í þing- húsinu, og nú kom hvað gleggst fram að þeir höfðu undirbúíð sig vendiléga. Hljóð heyrðist úr horni. Tveir af for- sprakksmönnum kommúnista höfðu kom ið fyrir hátalara í jeppabíl og kölluðu í gegnum hann að Alþingi hefði fellit að viðhöfð skyldi þjóðaratkvæðagreiðsla um málið, — kölluðu fram ýmis slag- orð sem áttu að æsa fólkið upp. Gekk svo skamma stund eða unz lÖgreglan kom á vettvang og gerði hátalarann ó- virkan. En áður en það tækist æpti annar forsprakkanna upp að þingmönnum sóselistaflokksins væri haldið sem föng- um í þinghúsinu. Við þessa frétt esp- uðust ungkommúnistarnir fyrst að marki og tókú í ákafa að kalla upp nafn læriföðurs síns, Einars Olgeirsson- ar, og hertu á grjótkastinu. Lögreglustjóri gaf þá skipun um að dreifa mannfjöldanum. En áður var til- kynnt að svo yrði gert. En slík voru öskur og læti kommúnistanna að sú orðsending komst ti'l fárra og hafði því ekki tilætluð áhrif. Þegar lögreglan sótti fram reyndu kommúnistar að veita þeim viðnám og nokkrar sviptingar urðu. Tókst samt að riðja svæðið fyrir framan þinghúsið sem var þó hægara sagt en gert þar sem mannfjöldinn á vellinum var gífurlegur og þeir sem aftastir stóðu vissu ekki hvað fram fór við þinghúsið og hreyfðu sig því lítið. Margir fóru þó að hugsa til heimferð- ar. SLÆR í BRÝNU En fólkið sótti aftur að þinghúsinu með kommúnistana í fremstu röð, sem nú höfðu safnað meira grjóti, auk þess sem nokkrir höfðu rifið upp trérimla við Listamannaskálann og jafnvel rimla ut- an afhúsinu.Hertu þeir nú grjótkast sitt að mætti. Þegar sýnt þótti að lögregluþjónun- um sem úti fyrir voru myndi ekki takast að dreifa fó'lkinu, gaf lögreglustjóri skipun til varaliðsins í þinghúsinu um að það leitaði út, og aðstoði lögregluna. sótti varaliðið fram við hlið lögregl- unnar og hrökk mannfjöldinn frá eftir mætti, nema kommúnistarnir sem nú fyrst tóku alvarlega á móti. Notuðu þeir vopn sín grjótið og trérimlana gegn Framhald á bls. 18 Skrifstofa forseta Islands ! Alþingishúsinu fékk einnig sinn skerf. A myndinni sjást grjót- hnullungar, sem kastað var inn um rúðumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.