Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 16

Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1«Ö9 tíitglefandi H.f. Árvakur, Eeykjaivik. FnamlcvæmcliaHtj óri Haraldur Sveinsaun. 'Ritstjórax' Sigurður Bjarríason frá Viguir. Mattíh'fas Jbfcannessíen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Eitstj ómarfullteúi Þorbjöm Guðmundsson-. Fréttastjóri Rjöm Jólhannssön!. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsaon. Kitstjórn oig afgreiðs'la ASalstræti 6. Sími lö-löO. Auglýsingar ASaistraeti 6. Sími 212-4-80. Áskxiftargj'ald kr. 160X10 á miánuði innarilands, í lausasöltc kr. 10.00 eintakið. Á A USTUR VELLI FYRIR 20 ÁRUM OA ár eru nokkuð langur tími. Þó muna margir það sem gerðist á Austurvelli 30. marz árið 1949. Þá fram- kvæmdu kommúnistar á Is- landi hótanir sínar um ofbeldi gegn Alþingi, ef það sam- þykkti aðild íslands að Atl- antshafsbandalaginu. Komm- únistar skipulögðu þá stór- árás á Alþingishúsið, brutu flestar rúður þess, og gerðu þannig tilraun til manndrápa og stórfelldra líkamsmeiðinga á friðsömum borgurum og lög gæzlumönnum. Var það mesta mildi að ekki urðu mörg mannslát og stórfelld meiðsl af grjóthríð er fámenn ur hópur kommúnista hóf árás sína á þinghúsið og hundruð borgara er höfðu skipað sér þar til varnar. Nokkrir lögreglumenn og al- mennir borgarar urðu fyrir meiðslum af grjóthríðinni og einn lögregluþjónn særðist mjög alvarlega. í Morgunblaðinu 21. marz árið 1949 var þessari árás m.a. lýst með þessum orðum: „Stóð grjóthríðin alla leið inn í þingsalina, þar sem Al- þingi sat að störfum. Ekki urðu þó önnur meiðsl á þing- mönnum en þau, að einn þing maður fékk smástein á gagn- augað og hruflaðist lítillega. Var það Hermann Guðmunds son. Annar skrifari Alþingis, Skúli Guðmundsson, sem sat í skrifarasæti rétt innan við einn glugga þingsalarins fékk steinhnullung í hendina, en sakaði lítt. Dreifðust glerbrot in frá rúðunum langt inn í fundarsalinn.“ Tilgangur kommúnista með þessari skrílárás var auðvitað sá að hindra löglega kjörna löggjafarsamkomu í að taka afstöðu til mikilvægs utan- ríkis- og öryggismáls. En Al- þingi lét sig árás kommún- ista engu skipta. Alþingi sam þykkti þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þátt- töku íslands í Norður-Atlants hafsbandalaginu með 37 at- kvæðum gegn 13. Tveir þing- menn greiddu ekki atkvæði. Með þingsályktunartillögunni greiddu atkvæði 19 Sjálfstæð- ismenn, 7 Alþýðuflokksmenn og 11 Framsóknarmenn. STAÐREYNDUM SNÚIÐ VIÐ ¥ öllum alþingiskosningum, * sem fram hafa farið síð- an hefur sú stefna, sem lýð- ræðisflokkarnir mörkuðu í utanríkismálum með aðild að Atlantshafsbandalaginu hlot- ið yfirgnæfandi meirihluta fylgis meðal íslenzkra kjós- enda. Það er því fáránleg staðhæfing, þegar kommún- istar halda því stöðugt fram, síðast í kommúnistablaðinu í gær, að Alþingi hafi sam- þykkt aðild íslands að Atlants hafsbandalaginu „í strássi við vilja yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar.“ En þannig er málflutningur kommúnista. Þeir snúa stað- reyndum æfinlega við, segja svart hvítt og hvítt svart. Einn þeirra atburða, sem mörgum er minnisstæður eftir 30. marz 1949 var það atferli eins þingmanns komm únista að laumast inn í Al- þingishúsið síðari hluta dags og snúa brjóstmynd af Jóni Sigurðssyni öfugt. Það atferli er táknrænt um alla fram- komu kommúnista. Þeir snúa öllu öfugt. Það sýnir svo einstæða óskammfeilni hins marg- klofna kommúnistaflokks á íslandi, að hæla sér nú af of- beldisárásinni er þeir frömdu fyrir 20 árum. Svo langt ganga kommúnistar í þessum fíflalátum, að þeir boða jafn- vel til „afmælishátíðar“ af þessu tilefni. TIL VERNDAR FRIÐIOG FRELSI Vófirgnæfandi meirihluti ís- lenzku þjóðarinnar fylg- ir þeirri stefnu, sem lýðræðis flokkarnir mörkuðu á sínum tíma sameiginlega og er m.a. fólgin í aðild íslands að Atlanthafsbandalaginu. Atl- antshafsbandalagið hefur stað ið trúan vörð um friðinn í Evrópu. Það hefur stöðvað framsókn hins alþjóðlega kommúnisma. 20 ára reynsla hefur sannað að það er fyrst og fremst varnarsamtök hins frjálsa og lýðræðissinnaða heims gegn hinu kaldrifjaða ofbeldi og yfirgangi. Varsjár- bandalag kommúnista hefur hins vegar gerzt sekt um sví- virðilega árás á eitt af aðild- arríkjum sínum, Tékkóslóvak íu. Eru þeir hörmungaratburð ir öllum heimi í fersku minni. Hinn 30. marz 1949 afhjúp- uðu kommúnistar sitt innra eðli. Þeir komu fram sem A W UTAN (ÍR HEIMI Forseti Anguilla er ekki gleðskaparmaður — Sem Aðventisti hefur hann lagzt harðlega gegn öllum áformum um spilavíti á eynni Rnguilla og New York — RONALD Webster hefur eytt mestum hluta lífs síns á smá- eynni Anguilla í Karíbahafi, sem svo mjög hefur verið í fréttum vegna innrásar brezks herliðs. Er eyjaskeggjar lýstu yfir sjálfstæði sínu fyrir tveimur árum eða svo, vakti fréttin athygli á þeim grund- velli að hér væri um að ræða furðulegasta lýðveldi heims. Webster, sem er forseti eyjarinnar, er nú maður um- deildur sem aldrei fyrr, og hann virðist ekki gera sér algjörlega ljóst hvaða leiðir hann á að velja til þess að spyrna fótum við innrás Breta á eyna í sl. viku,. Hann hefur hvatt eyjax- skeggja til mótmaelaaðgerða, en á sama tíma hvatt þá til að sýna stillingu og hófsemi. Hann reynir að treysta stöðu sína sem forse'ti sjáiifstæðrar þjóðar, en aðeins á þeim gruindvelli „að sj-álfstæðinu var þröngvað uppá okkur.“ Betra væri, ef Anguilla væri í tenigslum við eirihverja aðra, en hann er leiðtogi and- spyrmjfhreyfingarinnar gegn því að taka upp aftur sam- ba.nd við eyjarnar St. Kitts og Nevis, sem eru í nágrenn- inu .Bretar gerðu sjálfstætt ríki úr þessum þremur eyjum fyrir tveimur árum. VELGENGNISMAÐUR Ronald Webster, sem einn helzti velgengnismaðuT á Anguilla, verður tilfinnanlega var við framkvæmdaskortinn á eynni, og hann keimir St. Kitts, ag þó sérstaklega Bret- um um vanræksluna í þessum efnum. Webster er maður lágur vexti, dökikur á brún og brá og skarpleitur. Hann er ekki sérlega mælskur og naumast getur hann talizt brosmildur. Webster ræddist 2. marz 1926, sonur fiskimanns, og hóf að vinna við dagleg störf þegar að loknu barnaskóla- námi. Þessi framitíðarleiðtogi eyjaskeggja hóf búskap á smáeynni St. Martin, um 10 km. suður af Anguilla, og tókst h-onum svo vel til í bú- skapnum að hann eignaðist 365 ekrur lands, sem hann nú leigir út. Hann segir, að han,n hafi á St. Martin, sem lítur sam- eiginlegri stjórn Frakka og Hollendinga, séð hvernig þró- unin hafi verið, frarrikvæmd- um fleygt fram. Hann kom því aftur til fæðingareyjar sinnar og æSkti þess að sjá samSkonar framfarir þar. Webster rekur þar verzlun með byggingar og jármvörur, og hefur einnig keypt land á Anguilla. Hahn neitar því, að hann sé aúðugasti maður eyj- arinnar, hvorki í löndum eða lausum aurum. „Ég befi það gott, og bý þægilega“, segir hann. Er Anguilla sagði skilið við St. Kitts var Webster einn helzti frumikvöðullinn að þeirri athöfn. Annar Rnguillabúi, Peter Adams, tók þá við völdum á eynni. Er hann sýndi merki þess, að hann vildi reyna samningialeiðina, var honum Steypt af stóli og Webster tók við völdum, hefur haldið þeim síðan, og notið mikilla og almennra vinsælda meðal eyjaSkeggja. En hann nýtur eklki stuðn- ings allra og sumir gagnrýn- enda hans á Aragui'lla salka hann um þvermóðsfcu og þröragsýni. En hann er einnig gagnrýndur fyrir að auðvelt sé að hafa áhrif á hann. Bret- ar gagnrýna ha.nn einkum fyrir að hafa að sögn þeirra, átt skipti við nokkra aiBrada- rí.kjamen.n,, sem eigi sér vafa- sama fortíð. Webster harð- neitar þeim ásökunum. Leiðtogi Anguilla er Sjö- unda dags Aðventisti, með rrajög sterka siðgæðisvitund, sem hefur orðið til þess að ha.nn hefur eindregið lagzt gegn huigmyndum um að spilavíti verði einn þáttur- inn í uippby.ggingu efnahags- líf3 eyjarinnar. Webster býr í ljósrauðu einbýiishúsi á austanverðri eynni ásamt konu sinni, fimm börnum og 83 ára móður sinni. Ronald Wehster — lítt brosmildur Kanada áfram í Atlants hafsbandalaginu — er tillaga utanríkismálanefndarinnar til þingsins í Ottawa Ottawa, 26. marz — NTB VARNAR- og utanríkismála- nefnd kanadíska þingsins lagði í dag tii að Kanadamenn héldu áfram þátttöku í Atlantshafs- bandalaginu (NATO) og að Kanadamenn héldu áfram að hafa her í Evrópu. í bráðabirgðaáliti til neðri deildar þingsiras segir nefndin, að Kanada ætti að nota aðild sína að NATO til þess að reyna að draga úr spennu í Evrópu. Jafnframt því, sem fullkomnu hernaðarlegu öryggi yrði að halda uppi, beri einnig að reyna að semja um að hernaðarhlut- falli í álfunni verði ekki breytt, og jafnvægi komizt þannig á milli austurs og vesturs, svo. sem lagt er til í Harmel-skýrslunni svonefndu, en hún er kennd. við Pierre Harmel, utanríkisráð- herra Belgíu. Varnar- og utanríkismála- nefnd kanadíska þingsins hefur rætt aðild landsins að NATO frá því í janúar, og lýsti því yfir í dag, að í heild séð ætti ekki að framkvæma neinar grundvallar- breytingar á afstöðu Kanada til NATO. „Kanada á að gegna mikil- vægu hlutverki til þess að vernda friðinn með þátttöku sinni í NATO, og á að hafa áfram her í Evrópu sem framlag til sameiginlegra varna N,ATO“, seg ir í nefndarálitinu til þingsins. grímulausir ofbeldis- og árás- armenn. Enginn þarf að efast um að þeir væru reiðubúnir til þess að endurtaka slíkar aðgerðir, ef þeir hefðu minnsta tækifæri til þess. En kommúnistaflokkurinn á ís- landi er í dag margklofinn og innbyrðis sundurþykkur. Þess vegna reyna kommúnist ar nú að nota „afmælishátíðar höld“ sín og minningarhátíð um grjótárásina frá 1949 til þess að breiða yfir þau log- andi illindi, sem geysa innan flokksins. Þetta er kjarni málsins. Kommúnistar munu þess vegna hafa skömm eina og fyrilitningu allra góðra manna af brambolti sínu nú. Þeir hefðu átt að hafa vit á því að þegja um grjótárás sína á Alþingi fyrir 20 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.