Morgunblaðið - 30.03.1969, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1069
31
Gjaldeyrissparnaður 9,6 millj. séu
mjólkurumbúðir framleiddar hér
— segja forráðamenn Kassagerðar
FORRÁÐAMENN Kassagerðar
Revkjavíkur kölluðai á blaða-
menn s.l. föstudag, vegna þess að
þeir töldu fréttir óljósar frá um-
búðanefndinni og málið of lítið
skýrt, að því er Kristjám Jóhann
Kristjánsson forstj. sagði. Höfðu
þeir tekið saman nokkur minn-
isatriði um mjólkurbúðamálið,
sem hér eru birt á eftir, og svör-
uðu jafnframt spurningum blaða
manna. Kom þar fram að Mjólk-
ursamsalan reiknar með að að-
eins sé framleitt í fernur í 4%
klst. á dag í hinni dýru vél, en
önnur gijólk sett í hyrnur, en
Kassagerðarmenn telja fjarstæðu
að nýta efcki 16 milj. kr. vél
betur og setja þá miklu meira
af mjólk í fernur. En þá mundi
sparast mikið að kaupa umbúðir
af Kassagerðinni. Með því að nýta
vélina svo illa og halda fram-
leiðsluháttum Mjólkursamsölunn
ar, sé sami kostnaður við að
framleiða fernurnar í Svíþjóð og
í Kassaigerð Reykjavífcur, en
gjaldeyrissparnaðurinn er samt
fyrir hendi við að láta framleiða
umbúðir hér og auk þessa veitir
það vinnu. Og 3 millj. króna
munur stendur enn að þvi er
vélar varðar. Minnisatriðin með
ýmsum útreikningum Kassa-
gerðarinnar fara hér á eftir:
Mjólkursamsalan hefur áfyll-
ingarvélar sínar á leigu frá Sví-
þjóð og borgar fyrir þær grunn-
leigu, ársfjórðungsleigu og fram-
leiðslugjald. Þessi kostnaður
nemur 19.6 aurum á hvern lítra
mjóLkur, ef mjólkin er látin í
eins lítra fernur, nemur kostn-
aðurinn 33.5 aururn á hvern
lítra, samifcvæmt upplýsingum
Mjólkursamsölunnar til Fram-
leiðsluráðs, og 67.1 eyri þegar
hún er látin í hálfs lítra fernur.
Hinsvegar býður Kassagerð
Reykjavíkur Mjólkursamsölunni
áfyllingarvél til kaups frá Seal
Rigbt, sem er elzta og reyndasta
fyrirtæki í Bandaríkjunum og
næst stærsta í fnamleiðslu á
mjólkuruimbúðum úr pappa, og
veitir Kassagerð Reykjavíkur
framleiðslurétt á umbúðum fyrir
þessar vélar gegn einkaleyfis-
gjaldi, sem er innifalið í verði
umbúðanna frá Kassagerð Reykja
víkur, sem er 10 aurum hærra en
— Drykkjuskapur
Framhald af bls. X
hafa mikla athygli og fram
koma í grein, sem prófessor
Juri Tsjatskejevski ritar í
Pravda. Ber hann þar fram
áskoranir um, að stofnuð
verði félög, sem berjist gegn
ofdrykkju.
Prófessor Tsjatskjevski
skýrir frá því, að 85% þeirra
áfloga, sem hafa haft dauð-
daga í för með sér á árinu,
hafi átt rætur að rekja til
drykkjuskapar, en 65% þess
fólks, sem drukknað hafi, hafi
drukknað beinlínis venga
áfengisneyzlu.
Yfir 96% allra morða voru
framin af fordrukknu fólki,
sem framdi morðin án þess að
nokkrar sérstæðar ástæ'ður
lægju þar að baki. 40% þeirra
hjónabanda, sem lauk með
skilnaði á árinu, leystust upp
sakir drykkjuskapar annars
hjúskaparaðilans.
Prófessorinn gagnrýnir, að
margar stofnanir kommún-
i istaflokksins láti sig ofneyzlu
áfengis litlu skipta og segir
hann, að ýmsir meðlimir
flokksins misnoti áfengi.
LEIÐRÉTTING
NAFN konunnar, sem er með
Eisenhower og Ásgeiri Ásgeirs-
syni á myndinni í blaðinu í gær,
er Dýrfinna Oddfreðsdóttir.
Pure Pak umbúðirnar, enda verði
umbúðirnar framleiddar að öllu
leyti hjá Kassagerð Reykjavíkur
en etoki að hluta, eins og fram
hefur komið í dagblöðunum.
Ef Mjólkursamsalan keypti
umrædda Seal Right vél og væri
hún nýtt eðlilegan vinnudag og
afskrifuð á átta árum með 9%
vöxtum yrði kostnaðurinn á
hvern lítra í tveggja lltra fernu
11.1 eyrir í stað 19.6 aura, eða
8.5 aurum lægri á hvern lítra.
Enn meiri yrði munurinn á eins
lítra og hálfs lítra fernum, því
að þá næmi kostnaðurinn 14.3
auruim á lítra í stað 33.5 aura
og 67.1 eyris. Aufc þess ætti
Mjólkursamsalan þá vélarnar
skuldlausar eftir átta ár.
Gera má ráð fyrir, að Mjólkur-
neyzla í pappaumbúðum á svæði
Mjólkursamsölunnar nemi 90.000
lítrum á dag. Ef öll mjólkin væri
sett í tveggja lítra fernur, mundi
8.5 aura mismunurinn nema
7.650 krónum á dag og 2.8 millj-
ónum króna á ári, en þax sem
eitthvað fer í minni umbúðir,
y rði munrinn enn meiri, eða yfir
3 milljónir króna á ári.
MjóJkursamsalan hefur fengið
tveggja lítra fernur frá Svíþjóð
og hafa þær kostað 3.06 kr. komn
ar til Mjólkursamsölunnar.
Kassagerð Reykjavíkur hefur
boðizt til að afgreiða nákvæm-
lega sömu umbúðir fyrir 2.70
aura stykkið. Mismunurinn nem-
ur 36 aurum á hverja fernu, eða
18 aururn á hvern lítra.
Miðað við 90.000 lítra neyzlu
á dag nemur þessi mismunur
16.200 krónum á dag eða 6
milljónum króna á ári. Tjónið
af því að fara ekki eftir eðli-
legum viðskiptaháttum nemur
því 3 + 6 = 9 milljónum á ári.
En tvennt gerðist, áður en
rannsóknarnefndin skilaði áliti
sínu. Annars vegar var ákveðið
að lækka tollinn á innfluttum
fernum úr 60% í 20% og auk
þess lofaði sænska fyrirtækið að
lækka verð sitt um 9.5% eða um
26 aura pr. 2 lítra fernu. Með
þeim hætti hverfur mismunur-
inn, að því er varðar umbúð-
irnar. Er þá verðið á sænsku
umibúðunum orðið svipað og hjá
Kassagerðinni, eins og kemur
fram í skýrslu nefndarininar. En
áfram stendur 3 milljón króna
munurinn, að því er varðar vél-
arnar.
Með lækkun tollanna úr 60%
í 20% hefur tollvernd innlenda
iðnaðarins verið minnkuð niður
í 5%. Er hún því miklu minni,
en almennt er talið eðlilegt.
Reykjavíkurborg telur t. d. eðli-
legt að taka innlend tilboð fram
yfir erlend, þótt þau séu 10%
hærri, og sumir vilja hafa þá
prósentutölu enn hærri, vegna
þeirrar atvinnu og gjaldeyris-
sparnaðar, sem innlendi iðnað-
urinn veitir.
Ef umbúðirnar væru fram-
ieiddar hér heima, mundi spar-
ast gjaldeyrir, sem nemur 20
aururn á hvern lítra, eða 6.6
miljónir á ári, fyrir utan 3 miljón
króna mismuninn á vélakostnaði.
Samtals næmi þá gjaldeyris-
sparnaðurinn 9.6 milljónum
króna.
Kassagerð Reykjavíkur vill
benda á, að útreikningar henn-
ar byggiast á að Seal Right áfyll
ingarvélin sé niotuð 8 klst. pr.
- ONASSIS
Framhald af bls. 1.
mentinu gæti Mn gengið í
grísku rétttrúnaðarkirkjuna. —
Hann sagði, að Richard kardin-
áli Cushing í Boston og yfirmað
ur grísk-kaiþólsku kirkjunnar
heíðu skipzt á bréfum um mál-
ið. Cushing hefur sagt að það
sé hrein fjarstæða að haalda að
frá Onassis verði bannfærð.
sólarhring, en Mjóikursamsalan
telur sinn vinnudag við áfyll-
ingu mjólkur vera aðeins 4% —
5 klst. daglega, og þykir mörg-
um það léleg nýting á vél sem
kosta mundi nærri 16 milljónir
króna.
Umbúðanefndin mun hafa
byggt útreikninga sína á þessum
stutta vinnutima Mjólkursam-
sölunnar. Þess er vart að geta,
að af þessari umræddu Seal
Right vél mundi ríkissjóður fá
í tolla og söluskatt kr. 4 millj.
100 þúsund, en enginn tollur
hefur verið greiddur af leigu-
gjöldum sem Mjólkursamsalan
hefur greitt Tetra Pak síðustu
10 árin.
Mjól'kursamisalan hefur notað
hyrnuvélar frá Tetra Pak í nær-
fellt 10 ár og greiðir ennþá full
leigugjöld, sem í dag eru um
15 aurar af hverjum lítra í
hyrnu.
- PÁSKAHROTA
Framhald af bls. 32
net, en mun fleiri af Þorlákshafn
arbátum eru rheð net en troll.
— Franklín.
Sandgerði, 29. marz.
Ágætur netaafli hefur verið
hjá Sandgerðisbátum síðustu
daga. Tuttugu og tveir bátar
komu til Sandgerðis í gær með
alls 254 tonn, sem gera að meðal
tali 13.9 tonn á bát. f þessum
bátafjölda eru trollbátar sem eru
með allt niður í 3 tonn. Andri
var þarna aflahæstur með 25
tonn. Engir línubátar réru fyrr
en í gærmorgun um hádegisbil,
en þá hafði lægt á miðunum. Lít-
ill afli var hjá línubátum eftir
daginn. — Páll Ó.
Grindavík, 29. marz.
Mjög góður afli var hjá Grinda
víkurbátum undangenginn hálf-
an mánuð, en nokkuð hefur
dregið úr síðustu daga, þó segja
megi að afli hafi verið sæmileg-
ur, eða um 20 tonn á bát. Gæftir
hafa verið góðar og bátar hafa
getið dregið netin daglega. Mun
fleiri eru á netum en trolli, en
afli trollbáta hefur verið tiltölu-
lega rýr. Hér landa daglega á
milli 50 og 60 bátar. Stærsti hluti
afla þessara báta er unninn hér í
byggðarlaginu, en þó er töluve.rð-
ur hluti hans fluttur til Kefla-
víkur, Sandgerðis, Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur. Marga dag-
ana hefur verið landað hér 5-8
hundruðum tonnum á dag.
— Tómas.
- BIAFRAFLUG
Framhald af bls. 32
fríum sínum, og skiptast þá
kannski á. Ég fer með þeim
suðureftir og flýg með þeim
fyrstu 2 — 3 viikurnar, þvi að
þeir hafa flestir eikki flogið á
þessum slóðum.
Það verður maður fyrir mig
suðurfrá til að sjá um rekst-
urinn en sjálfur verð ég þar
með annan fótinn.
— Þegar auglýst var eftir
flugliðum var lofað háu
kaupi.
— Já, kaupið er hátt, enda
er þetta tahn hættu'leg vinna.
Þeir fá fast kaup og síðan fá
þeir eftir þekn tonnafjölda,
sem þeir flytja. Þetta er eins
konar atokorð.
— Hvaða vél verður notuð
til flugsins?
— DC-6B vél sem Fragt-
flugi h.f. stendur til boða að
kaupa eða taka á leigu, og er
málið í athugun hjá íslenzk-
um stjórnvöldum. Reynslan á
Norðurlöndum er sú að stjórn
völd þar hafa verið kirkjunni
og Rauða krossinum mjög
hjálpleg við ýmis formsatriði,
sem gera félögunum kleift að
halda þessu flugi uppi.
— Er samið um einhvern
ákveðinn fjölda ferða?
— Það er ekki hægt. Við
fljúgum eins mikið og við get
um. Það er ekki hægt að
leggja af stað fyrr en kl. 6
að Kvöldi, þegar orðið er
dimmt.Það er flogið yfir Guin
eaflóann og inn yfir Nígeríu
og tekur flugið aðra leiðina
klukkutíma og 40 mínútur en
hina klukkutíma og korter.
Við verðum að vera komnir
til baka úr síðustu ferðinni
áður en fer að birta. Ég vona
að ég fái nógu marga íslenzka
flugliða í þetta flug — ef ekki
verð ég að fá frá hinum Norð-
urlöndunum, en framboð er
mikið.
— Það má geta þess, þótt
sé mér og mínu fyrirtæki al-
veg óviðkomandi að það er
mikið af ungum piltum frá
Norðurlöhdunum sem vinna
um borð í flugvélunum á veg-
um Rauða krossins í Svíþjóð
og Alþjóða Rauða krossins. Er
mikið um að skólapiltar, sem
komnir eru yfir tvítugt fái
vinnu við þetta í fríum, 1—3
mánuði. Vinnan er í því fólgin
að stjórna hleðslu og afhleðslu
vélanna. Er lögð áherzla á að
reyna að fá fólk frá sem flest
um löndum til að vinna við
matvælaflutninga og önnur
hjálparstörf í Biafra eins og
kunnugt er.
— En hvað líður vöruflutn-
ingum milli Bandáríkjanna og
Evrópu um ísland?
— Það er ekki hægt að
segja svo mikið um það enn
sem komið er.
— Fragtflug h.f. var stofn-
áð í júlí í fyrra og umsókn
um lendingarleyfi erlendis
send sarhgöngumálaráðuneyt-
inu, en samkvæmt ósk okkar
hefur umsóknin ekki verið af-
greidd ennþá, þar sem undir-
búningur málsins við erlend
yfirvöld er ekki kominn nógu
langt. Mun ég óska eftir að
það verði látið bfða eitthvað,
því að vegna Biafra-flugsins
verður ekki tími til að Ijúka
undirbúningnum erlendis. Ég
mun þó nota tímann hér
heima til að vinna áfram að
þessu.
— Til hvaða staða er áætlað
áð fljúga?
— Við höfum sótt um nokkr
ar flugleiðir, en ég vil taka
það skýrt fram að við höfum
ekki sótt um leiðir sem ís-
lenzku flugfélögin fljúga á.
Með því að koma okkar
flutningum í gang vonumst
við til að geta aukið flutninga
íslenzku flugfélaganna.
Þeir staðir sem við höfum
sótt um að fá að fljúga til
eru: Philadelhpia, Boston,
Chicago, Detroit, Los Angel-
es, Amsterdam, Frankfurt,
Milano, Basel og Asíuborgirn
ar: Tokyo, Hong Kong, Man-
illa, Bankoto, Kuala Lumpur,
Singapore og Jakarta. Nú er
eftir að sjá til hváða borga
okkur verður veitt leyfi til að
fljúga, og hvernig þróunin
verður síðan.
— Hvaðan kemur fjármagn
til þessa fyrirtækis?
— Félagið telur sig geta út-
vegað fjármagn til að koma
þessu af tað. Við verðum með
eina vél til að byrja með og
erum sem stendur að athuga
me'ð Britannia fragtvél, en
hún getur flutt 17 tonn.
— Má búast við að fragt-
flutningar um ísland hefjist í
sumar?
— Hver veit? Þegar Biafra-
flugið er komið í gang sný
ég mér að því að vinna í
þessu af fullum krafti.
Flugfélag íslands býður nú einkar
ódýrar og þægilegar einstokl-
ingsferði með nær 40% áfslætti
til Spánar og Portúgals.
Þotuflug til Barcelona, Malaga
og Palma de Mallorca á Spáni
og Lissabon og Faro I Portúgal
Viðdvöl í London á heimleið ef
óskað er.
Allar frekari upplýsingar og
fyrirgreiðsla hjá lATA-ferða-
skrifstofunum og Flugfélagi
íslands.
Hvergi ódýrari fargjöld.
FLUCFELAC /SLAJVDS
ÞJONUSTA HRAÐI - ÞÆGINDI