Morgunblaðið - 01.04.1969, Side 1

Morgunblaðið - 01.04.1969, Side 1
32 síður 76. tbl. 56. árg. ÞRIÐJUDAGUR 1. APRlL 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins Einhverjar mestu flotaæfingar, sem Rússar hafa haldið, fara nú fram á hafinu suður af fslandi. Skip og fiugvélar Atlantshafs- bandalagsins fylgjast náið með þessum æfingum og á sunnudag bauð Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli íslenzkum fréttamönn- um í eftirlitsflug yfir æfingasvæði Rússanna. Á þessari mynd sést eitt rússnesku beitiskipanna á siglingu; þetta skip er af Kresta-gerð og búið eldflaugum. — Sjá frásögn og myndir á bls. 10. YAHYA KHAN forseti Pakistan □— O Sjá Utan úr heimi, bls. 16. □ □ Herlög voru sett í Pafcistan strax og Ayulb Kihan sagði af sér Framhald á bls. 31. Karacbi, Paikistan, 31. marz. (AP). TILKYNNT, var í Rawalpindi, höfuðborg Pakistan, í dag, að Yahya Khan hefði í kvöld tekið við embætti forseta landsins. — Yahya Khan er hershöfðingi og var yfirmaður hers Pakistan þar til fyrir viku að hann tók við völdum í landinu samkvæmt sér stökum herlögum eftir að Ayub Khan lét af forsetaembættinu. í tilikynnirugu ríkisstjórnar Pakistan segir að Yahya Khan m.uni gegna forsetaembættinu að minnsta kosti þar til ný stjórn- arskrá landsins hefur verið sam- in og samlþykkt. Samkomulag um ANGUILLA Honn féhk múlið Tókíó, 30. marz. (AP). ÚTVARPIÐ í Peking skýrði | ' frá því á sunnudag að kín- ( | verskum læknum hefði tekizt j að lækna ungan dreng í 1 , Mauretaníu, sem verið hafði I 1 heymar- og mállaus. Fékk | I drengurinn málið, og fyrstu |orð hans voru: „Lengi lifi , Mao formaður.“ London og Anguiila, 3>1. marz (AP-NTB). SAMKOMULAG hefur náðst milli fulltrúa brezku stjórnar- innar og leiðtoga ibúa eyjunn- ar Anguilla á Karabiska hafi um grundvöll til Iausnar deil- unnar um framtíð Anguilla. Náðist samkomulagið eftir við- ræður Caradons lávarðar, aðal- fulltrúa Bretlands hjá Samein- uðu þjóðunum, við leiðtoga eyj- arskeggja, þeirra á meðal við Framhald á bls. 31. Danskir skátar — r víking til Grœnlands Kaupmannahöfn, 31. marz. Einkaskeyti til Mbl. UM 50 skátar frá Suður-Jótlandi ætla að reyna að sigla til Græn- lands sumarið 1971 á víkinga- skipi, sem þeir smíða sjálfir. Fara þeir leið Eiríks rauða. Skátahreyfingin danska hefur nýlega fengið verðlaun, er nefn- ast „Tragprisen", og nema þau 10 þúsund dönskum krónum. Verð- ur sú upphæð notuð til skipa- smíðarinnar. Verðlaun þessi veit- ir upplýsinganefnd timbur-iðn- aðarins í Danmörku til einstakl- inga eða stofnana fyrir frum- lega eða góða notkun timburs, en þetta er í fyrsta skipti sem verð- launiri ver'ða notuð til smíði vík- ingaskips. Dönsku skátarnir hafa áður smíðað sér víkingaskip. Var það árið 1903 að þeir smíðuðu 20 metra langt skip, en hlaut nafn- ið „Imme Gram“. Á sumri kom- anda munu skátarnir ljúka við smíði á fjórum skipum til viðbót- ar, en ekki er ákveðið hvaða gerð víkintgaskips ver'ður notuð til Grænlandssíglingarinnar. Um tvær gerðir er aðallega að ræð'a. Önnur gerðin er eftirlíking af svonefndu „skipsflaki 1“ frá Hróarskeldu, en það sikip er knörr, 17 metra langur, tveggja metra hár og rúmlega fjögurra metra breiður. Er það skip smíð að úr furu, sennilega um árið 1000. Hin gerðin er eftirliking af víkingaskipi, sem fannst við út- gröft á Suður-Englandi. Það vík- ingaskip var 28 metra langt, 5 metra breitt og 2 metra hátt. Búizt er vi'ð að skátarnir hefji smíði á Grænlandsfari sínu vorið 1970, og hafa söfn í Kaupmanna- höfn og London sýnt málinu mik inn áhuga. — Rvtgaard. Fiöldi þjóðhöfð- ingja í Washington — til crð votta Eisenhower virðingu sina Útförin gerð trá Eisenhower-bókasafninu i Abilene Washimgton, 31. maxz. (AP-NTB). KIRKJUKLUKKUM var hringt nm gjörvöll Bandaríkin í dag til minningar um Dwight D. Eisen- hower, fyrrum forseta, og þjóð- höfðingjar víða að streymdu til Washington til að vera viðstadd- ir útför hans. Kista Eisenhowers stóð á við- hafnarbörum í forsal þlnghúss- ins í Washington í dag, og þang að streymdu erlendu leiðtogarn- ir og tugir þúsunda annarra gesta til að votta hinum látna virðingu sína. Meðal gestanna voru konungar og forsetar, ráð- herrar og sendiherrar. í kvöld var svo kistan flutt til dómkirkj- unnar jí Washington þar sem haldin var minningarguðsþjón- usta, en síðan var kistan flutt með sérstakri járnbrautarlest til Abilene í Kansas, þar sem jarð- neskar leifar forsetans fyrrver- andi verða jarðsettar. Fulltrúi Islands við útförina Framhald á hls. 31. Mountbatten lávarður, fulltrúi Elisabetar Bretadrottningar, við kistu Eisenhowers í þinghúsinu í Washington í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.