Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL, 1»®9 3 •• Hesturinn ver&ur til sýnis við félagsheimili Fáks í dag ATBURÐUR gerðist í fyrsta sinn á Islandi nú um helgina, að settar voru gervi- tennur upp í hross. Jón Sig- urbjörnsson, leikari og kona hanis, Þóra Friðriksdóttir, eru mikið hestafólk og nýlega varð einn jgæðinga þeirra — reiðlhestur frúarinnar, fyrir því óláni , að tennurnar skemmdust — bókstaflega hrundu. Urðu þau hjóu að velja í milli þess að deyða gæðinginn, eða reyna eitt- hvað annað, og þalr sem frúnni va,r mikil eftirsjá í klárnum, tók Jón það ráð að leita til L»->læknis. Haukur Clausen tok að sér málið og um helgina fékk klárinn nýju tennurnar eftir að hafa verið tannlauis í 2 mánuði. Mbl. fékk góðfúslega að vera við- statt á sunnudaig, er góm- arnir voru settir upp i fliest- :; :;u‘. Forsaga þessa máls er sú, að Páfi, 6 vetra gæðingur fxú Þóru Friðriksdóttur, fékk skyndilega meinsemd í tann- hioldið, sem olli því, að gler- ungurinn efst við tannbeinið skemmdist. í fyrstu áleit Jón þetta myndj ganga yfir, en þegar klárinn fór að legigja af, kom í Ijós, að tann- sfeömmdirnar voru alvarleg- ar. En látum Jón lýsa þessu hwóiíxm; Smíði tanminna lokið og gómarnir fullgerðir. Haukur athugar bitið, en tannsmiðirnir horfa á Júníus Pálsson til vinstri og Guðjón Guðmundisson til hægri. sjálfan, en við hittum hann Stanleyville við Elliðaár á að máli í hesthúsunum í sunnudag: — Þetta er búið að vera er- ils-amur tími fyrir mig og raunar hefur Haukur ekki átt sjö dagana saela, því að allt hefur þetta staðið og fallið með snilldarlegum hand- brögðum hans. Ég hafði heyrt um það, að í Bandaríkjunum væru hrossatannlækningar sérstakt fag og lengdu menn oft líf hrossa sinna með því að láta gera við tennur þeirra. Mér flaug því þetta ráð í hug og Haukur tók að sér málið. — Ég gat ekki hugsað mér að missa Páfa — sagði frú Þóra Friðri'ksdóttir, og þótt Jón hafi þurft að leggja á sig aukið erfiði, sem enfitt va,r að samræma störfum okkar í leikhúsunum s>é ég ekki eft- ir þessu. Haukur Clausen sagðd okk- ur að þetta væri eitt erfið- asta verkefni, sem hann hefði unnið á tannlæknisferlí sin- um. Við spurðum hann í fyrstu, hvort hann hefði ekki orðið his,sa vdð bón Jóns, og hann svarar: — Jú, satt að segja hélt ég að Jón væri að gera að gamni sínu. En ég skildi þá ekki, hve annt þeim hjónum var um hestinn. Við urðum Framhald á bts. 24 > V / V W/.»>>»;„■ .* ■■ ' . > ', :■ ■:■ ' ■■ ■'-„:■>:■ .,4ö . s *> » ■ - • - •♦»:•<*„ * >«x->.>;>.f>:5»>X'W;X<^.<;>:::S Páfi kominn með tennurnar og Haukur Clausen aðgætir ilwort þær sitji ekki rétt. Þóra Friðriksdóttir og Jón Sigurbjörmsson horfa á. — Ljósm.: ól. K. M. Kaupið borðstofusett fyrir ferminguna FYRIR 1500 KRÓNUR á mánuði og 1500,00 út eignizt t>ér BORÐSTOFUBORÐ og 4—8 stóla. FYRIR 2000 KRÓNUR á mánubi og 2000,oo út eignizt Jbér BORÐSTOFUSKÁP, BORÐ og 4—8 stóla. STÓLAR KOSTA: 1.450.-, 2.390.-, 2.810.-, 2.985.-, 3.375.- BORÐ — 6.880.-, 7.345.-, 7.760.-, 8.985.-, 9.365.- SKÁPAR — 12.845.-, 13.345.-, 13.900.-, 15.845.-, 17.585.- Eingöngu vnndnðnr vörnr r>e» ® 22900 LAUGAVEG 26 STAKSTEIHAR Nýtt - Nýtt Það ber ekki sjaldan við þegar menn vilja vekja athygli á vöru sinni, að þeir auglýsi hana undir upphrópunarorðunum Nýtt! Nýtt! Sjálfsagt er það sama, sem vakir fyrir hinum mismunandi klíkum á vinstri væng íslenzkra stjórnmála er þær hefja blaðaútgáfu. Nú eru gefin út þrjú blöð auk Þjóðvilj- ans sem túlka málstað vinstri manna. Einkenni þeirra allra er það sama: NÝTT Land — NÝ Útsýn — NÝ Dagsbrún. Hið síðastnefnda blaðið kom út sl. sunnudag og ef marka má orð þess hefur Þjóðviljanum heldur betur skrikað fótur á hinum dyggðum prýdda vegi marxis- mans. „Ný Dagsbrún“ segir um tilefni útkomu sinnar: „úm 40 ára skeið hafa flokkar íslenzkra marxista átt sér málgögn. Þau hafa vísað alþýðunni leið í bar- áttunni fyrir bættum kjörum, fylkt liði í þjóðfrelsisbaráttunni og örfað skilning á framtíðar- markmiðunum: sósíalistískum þjóðfélagsháttum. Nú er svo komið að marxistísk samtök á fslandi eiga sér ekkert slíkt mál- gagn. Eins og málum var háttað hafði Sósíalistafélag Reykjavik- ur ekki frjálsan aðgang að neinu málgagni og vildi ekki til lengd- ar þurfa að sæta því að frá starf- semi félagsins og viðhorfum til mála yrði ekki skýrt eða þá með hálfum sannleik og rangfærslu." Þetta er eftirtektarverður dómur um starf Þjóðviljans á undan- förnum áratugum og þó sérstak- lega hin síðari ár. Er ekki að efa, að Austri mun hafa nóg að gera á næstunni þegar slíkri ósvinnu sem þessari er haldið fram um hans blað. Nýr flokkur í fyrsta tölublaði Nýrrar Dags- brúnar ritar formaður Sósíalista- félags Reykjavíkur, Steingrímur Aðalsteinsson, grein, þar sem mjög er gefið í skyn, að þeir aðilar, sem að blaðinu standa hyggist stofna nýjan stjórnmála- flokk, eða öllu heldur bjóða fram í nafni þeirra stjórnmálasamtaka, sem þeir standa að. Steingrímur Aðalsteinsson segir: „En Alþýðu bandalagið er staðreynd, sem pólitískur flokkur — og Sósíal- istaflokkurinn hefur endanlega verið látinn víkja fyrir því. Hvers vegna Vill Sósíalistafélag Reykjavíkur ekki sætta sig við þau málalok og leggja árar í bát? Það er af nákvæmlega sömu ástæðu og þeirri, sem olli því, að Einar Olgeirsson og fjöl- margir aðrir sósíalistar undu sér ekki í Alþýðuflokknum heldur töldu óhjákvæmilega nauðsyn að stofna marxistískan flokk. Al- þýðubandalagið er ekki marxis- tískur flokkur. Það er að vísu látið heita svo í lögum þess, að það sé sósíalistískur flokkur — á sama hátt og Alþýðuflokkurinn kallar sig vera það. En sú þróun starfsaðferða, sem varð í Sósíal- istaflokknum hin síðari ár — »g sem drepið er á hér að framan — mun halda áfram í Alþýðubanda laginu með meiri hraða og leiða það í sömu slóð og Alþýðuflokk- urinn hefur fetað í íslenzkum stjórnmálum: þ.e. að hreiðra um sig eftir mætti í valdakerfi hins borgaralega þjóðskipulags — en láta sósíalismann lönd og leið. Hefur Sósialistafélag Reykjavík- ur bolmagn til þess að hef ja á ný það merki, sem reist var á sínum tíma með stofnun Kommúnista- flokks íslands?" Óþarft er að rekja nánar efni þessarar grein- ar. Hún sýnir glögglega, að í upp siglingu eru ný stjórnmálasam- tök sem eiga eftir að verða hin- um endurskipulagða Kommún- istaflokki þung í skauti fyrst og fremst vegna þess, að í Sósíal- istafélagi Reykiavíkur er hinn gamli kjarni, sem iafnan hefur verið burðarásinn í hinni komm- únisku hreyfingu á íslandi. * ♦ < 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.