Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1969 11 Skákþing íslands 1969: Friðrík og Björn Sigurjónsson hnfn bóðir unnið sínur skúkir FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari, hefur þcgar tekið forystuna i landsliðsflokki á Skákþingi ís- lands, sem hófst sl. laugardag í samkomuhúsinu Tónabæ við Skaftahlíð. Friðrik hefur 2 vinn- inga eftir tvær umferðir, en Björn Sigurjónsson, 19 ára Kópa vogsbúi, hefur einnig unnið báðar sínar skákir! íslandsmeist arinn 1968, Guðmundur Sigur- jónsson og Freysteinn Þorbergs- son liafa 1 vinning og biðskák hvor. Úrslit í 1. umferð: Friðrik Ólafsson vann Hauk Angantýsson, Björn Sigurjónsson vann Jón Hálfdánarson, Guð- mundur Sigurjónsson vann Jón Kristinsson, og Björn Þorsteins- son vann Arinbjörn Guðmunds- son. Jóhann Þórir Jónsson og Jóhann Örn Sigurjónsson gerðu jaintefli, en skák Freysteins Þor bergssonar og Halldórs Jónsson- ar fór í bið. 2. umferð var tefld í húsa- kynnum Dansskóla Hermanns Ragnars við Háaleitisbraut á sunnudag og urðu úrslit í lands- liðsfiokki þau, að Friðrik vann Kynnir sér iðn- þróun í Bnndnríkjunnm FRAMKVÆMDASTJÓRI Iðnað- armálastofnunar íslands, Sveinn Björnsson, hefur fengið leyfi frá störfum um hálfs árs skeið, þar sem hann hefur hlotið styrk úr avonefndum Isenhower-sjóði, til þess að kynna sér næstu 6 mán- uði iðnþróun í Bandaríkjunum. í fjarveru Sveins Björnssonar mun Þórir Einarsson, viðskipta- fræðingur, gegna framkvæmda- stjórastörfum hjá IMSÍ. Björn Þorsteinsson og Arinbjörn vann Jón Hálfdánarson, en aðr- ar skákir fóru í bið og voru það skákir Guðmundar og Frey- steins, Halldórs og Hauks, Björns Sigurjónssonar og Jóhanns Þór- is og Jóns Kristinssonar og Jó- hanns Arnar. Biðskákir voru tefldar í fyrra- kvöld og fóru leikar þannig að Björn vann Jóhann Þóri, en Jó- hann Örn og Jón Kristinsson gerðu jafntefli. Öðrum biðskák- um er ólokið. Staðan eftir 2. umferð er þessi: Friðrik og Björn Sigurjónsson hafa. 2 vinninga hvor, sem fyrr segir, Guðmundur og Freysteinn 1 vinning og eina biðskák hvor, Arinbjörn, Björn Þorsteeinsson og Jóhann Örn hafa 1 vinning hver, Jóhann Þórir og Jón Krist insson % vinning hvor. Halldór og Haukur hafa engan vinning, en eiga 1 biðskák hvor og Jón Hálfdánarson engan vinning. Taflröð kcppenda í landsliðs- flokki er þessi: 1. Guðmundur Sigurjónsson, Garðakauptúni 2. Freysteinn Þorbergsson, Siglufirði 3. Haukur Angantýsson, Reykjavík 4. Björn Þorsteinsson, Reykjavík 5. Jón Hálfdánarson, Reykjavík 6. Jóhann Þórir Jónsson, Reykjavík l\ lukið viðskiptin - Auglýsið — Jl^ Bezta auglýsingablaðiö Báruplast í plötum og rúllum margar stærðir glært og litað. Verð mjög hagstætt BYGGIIMGAVÖRUVERZLUN KÓPAVOGS Sími 41849. Stangaveiði Stangaveiði í Ölfusá fyrir Hellislandi á Selfossi er til leigu á næsta sumri. Leyft verður að veiða með 6 stöngum á dag á tímabilinu 20. júní — 20 september. Aðallega er um laxveiði að ræða, en einnig er nokkur sjóbirtingsveiði. Tilboð í veiðina sendist skrifstofu Selfosshrepps fyrir 15. apríl næstkomandi. VEIÐIRÉTTAREIGENDUR. -K ROAMER er rétta úrið Garðar Qlafsson Lækjartorffi. 7. Jóhann Örn Sigurjónsson, Reykjavík 8. Björn Sigurjónsson, Kópavogi 9. Arinbjörn Guðmundsson, Kópavogi 10. Friðrik Ólafsson, Reykjavík 11. Halldór Jónsson, Akureyri 12. Jón Kristinsson, Reykjavík. Frá Skákþinginu, 1. umferð. Haukur Angantýsson (t.v.) og Friðrik Ólafsson leika fyrstu leik ina í skák þeirra úr 1. umferð sl. laugardag. Hvítt: Haukur Angantýsson Svart: Friðrik Ólafsson Sikileyjarvörn, 1. e4, c5 2. Rf3, Rc6 3. d4, cxd4 Rxd4, g6 5. Be3, Bg7 6. Rc3, Rf6 7. Bc4, d6 8. f3 Bd7 9. Bb3, Hc8 10. g4, Da5 11. 0-0, 0-0 12. Rd5, Rxd5 13. exd5, Re5, 14. De2 b5, 15. Bf2, Hfe8 16. h3, a6 17. a4, bxa4 18. f4, Bb5 19. De4, Rc4 20. Bxa4, Bxa4 21. b3, Rd2 22. Del, Dxd5 23. Dxd2, Bc6 24. Be3, Dhlf 25. Kf2, Dxh3 26. c4, Dh4f 27. Ke2, Dxg4t 28. Kd3, Be4t 29. Kxe4, e5. Þegar hér var komið féll klukka Hauks og átti hann þá eftir að leika elluefu leiki. Fjórða umferð verður tefld í kvöld kl. 20 í húsakynnum Dans skóla Hermanns Ragnars. (Þeir fyrrnefndu stýra hvítu mönnun um): Freysteinn og Haukur, Halldór og Jón Hálfdánarson, Guðmundur og Björn Þorstein9- son, Arinbjörn og Jóharm Örn, Jón Kiistinsson og Björn Sigur- jónsson og Friðrik og Jóhann Þórir. NÝJAR UMBÚDIR ER AD KOMA í VERZLANIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.